Dagur - 13.10.1920, Síða 4

Dagur - 13.10.1920, Síða 4
100 DAOUR. Kartöflur fást í Ketbúdinni. Úr öllum áttum. / Druknun 4 m*nna í lendingu á Haga á Barða- strðnd hefir nýlega frézt. Einn maður- inn er nafngreindur: Qestur Magnús- aon frá Staðarfelli í Dðlum, ungur efn- iamaður. Qleggri frétta má vænta um þenna sorglega atburð. Skfpafregnir: Búiat er við að íkipin reki nú hvert annað hár norður um land á næstunni Lagarfoss, Qullfoss, Sterling og Borg. Enn eru þó óglðggar fréttir um sum þeirra. Lagarfoss kemur með hveiti frá Ameríku og tekur ket hjá kaupfé- lögunum hér á Akureyri, Svalbarðseyri, Húsavík og ef til vill víðar. Á mánu- dagsnóttina kom hingað skip, sem tekur síldarmél í Krossanesbót. Ennfremur er von skipa til þess að taka fisk hér norðan lands. Útflutningiir varanna virðist ætla að ganga eins og i sögu. Síld. Um 130— 140 þús. fullpakkaðar tunnur hafa veiðst á landinu f vertíðinni. AII- mikið þegar flutt út. Hitt bíður byrjar. Salan gengur því miður mjög illa. Hætt við að atvinnuvegurinn rísi ekki undir stórfeldu tapi í ár eftir það, sem á und- an er gengið. Frá því sala hófst, hef- ir verðið verið á stöðugri niðurleið. Markaðurinn er allur í höndum Svia. Kunnugur maður hefir sagt ritstjór'an- um, að ef ekki rýmist um markaðinn fraravegis, muni síldarútgerðin leggjast niður. Einræði á markaðnum gerir selj- endur máttlausa gagnvart sínum eigin atvinnuvegi. Sami maður fullyrti, að mat hefði verið með nákvæmasta og bezta móti í sumar. En kaupendurnir, •em ekki hafi við neina samkepni að etja á heimsmarkaðinum, standa vel að vígl, til þess að skrúfa niður verðið og finna sér alt til. Af því munu að mestu •tafa tröllasðgur þær, sem borist hafa um slæma verkun á síldinni. rtskur selst nú óðum, að sagt er. Einkum eftirspurn eftir Labradorfiski, en það er sm*rri fiskur verkaður á sérstakan hátt. Hann er ekki flattur aflur úr, heldur skorið út úr og stirtlsm látin halda sér. Auk þess er hann Iinþurkaður. Mestur Austfjarðarfiskur er þessarar tegundar. U1I. Lftilsháttar hluti af þessa árs ull kvað vera seldur. Verðið í Kaupmannahöfn um 4 kr. kg. Fj&rkroppan sú sania. Ef vörur okkar halda áfram að seljast, ætti að losna um hana áður en langt um líður, sí ummæli ráðherr- anna hafa verið á rökum bygð, sem getið var um hér í blaðinu fyrir nokkuru. Akureyri. Kvef er víst með meira móti, í bænum. Inflúenzan ioðir við og tekur menn aftur og aftur. Er hálfömurlegt að heyra hósta þann og óheilinda-hljóð, sem pest þessari fylgir hér í bænum, þegar hanstmyrkrið grufir yfir götunum, og er Akureyri myrkfælnum mönnum óhollur staður. Otto Tulinius kaupmaður tekur sig upp með fjölskyldu sinni og flytur alfarinn tii Kaupmannahafnar með Gullfossi næst. Sjálfur mun hann koma snögga ferð aftur hingað, til að ráðstafa innbúi sínu o. fl. Verzlun sína rekur hann hér áfram. Kunnugum mönn- um og starfsbræðrum Tuliniusar þykir sem stórt skarð verði eftir, þegar fólk þetta fer. Tulinius er atorkumaður mikill, framtakssamur og góður drengur. Bæ/arst/órnarfundur var haldinn í gær, sem slóð yfir frá kl. 4 e. h. til kl. 1 í nótt. Fjárhags- áætlun kaupstaðarins fyrir árið 1921 var þar til annarar umræðu og var samþykt. Urðu um hana mjög snarpar umræður. Helztu nýmæli í bæjarstjórn þessi: Sam- þykt að láta fara fram berklarannsókn á mjólkurkúm í kaupstaðnum í þessum og næsta mánuði. Sömuleiðis samþykt að panta rottueituf1 (ratin) og gera gang- skör að því, að útrýma rottúm í bæn- um. Ennfremur samþykt að kaupa 300 ten.metra af muldu grjóti af Espholin Co. til strætagerðar í bænum. Barnaskóiinn verður 6ettur í samkomuhúsi bæjarins á morgun kl. 1 e. h. Ritst/órinn leitaði upplýsinga póstmeistara hr. Guðm. Bergssonar urn það, hvort það væri rétt hermt, að peningaviðskifti við- komandi líftryggingarfélaginu *Danmark« gengju óhindruð gegnum pósiinn og lcvað hann það rétt vera. Kaupfélag’ Eyiirðinga hefir leigt til ketgeymslu íshus Tul- iniusar kaupmanns suður í bænum. Úr bæ/arst/órn ganga um næstu áramót, eftir því sem hlutkesti féll á bæjarstjórnarfundi í gær, þeir: bæjarfulltrúar Júlíus Havsteen, Otto Tulinius, Ingimar Eydal og Sig. Bjarnason, mm Tryggið líf yðar í lífsábyrðarfélaginu ,,D A N M A R K“ Að félaginu standa hinir hyggnustu og beztu fjármálamenn á Norðurlöndum enda reynst hið ábyggilegasta í öllum viðskiptum. Lág iðgjöld. Hár bónus. Félagið hefir lagt stórfé í bankavaxtabréf og þjóðþrifafyrirtæki hér á landi. Pessvegna sérstök ástæða til aðtryggja sig í því félagi, sem lætur landið njóta góðs af velíufé sínu. Allir hyggnir fjármálamenn og framsýnir tryggja líf sítt í,Danmark,‘ Byrjið ungir að spara aurana. Þeir lcoma aftur með margföldum vöxtum þegar mest liggur á. Læknisskoðun ókeypis. Aðalumboðsmaður Porv. Pálsson, læknir, Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur Lárus J. Rfst. mwmMwm Síldarmél frá síldarverksmiðju Hinna sam. íslenzku verzlana á Siglufirði. Verð: sé tekið minst 100 hálfpokar 55 aiirar pr. kg. annars 57 aurar. Pantanir má senda beint til verksmiðjunnar eða undirritaðs, og er nauðsynlegt að þær kotni sem fyrst. Par eð af- gangurinn verður fluttur til útlanda. Otto Tulinius. Mógrá hryssa tapaðist frá Skútustöðum í Mývatnssveit seint í ágúst s. 1. Hryssan er 5 vetra gömul, hringeygð á öðru auga, mark: tvær fjaðrir fr. hægra, blaðstýft fr. vinstra' Finnandi geri ritstjóra blaðsins aðvart eða undirrituðum eiganda hryssunnar, sem borgar áfallinn kostnað. Skútustöðum 10. okt. 1920. Porlákur Jónsson. : amerísku eru heimskunnir sem beztu og fullkomnustu grammófónar, er hugvitsmennirnir hafa búið, til. Pantið einn slíkan grammófón hjá kaupfélagi yðar, eða kaupmanni, með nokkrum plötum, og þér munuð undr- ast hve mikill ánægjuauki það verður fyrir heimili yð- ar, þegar þetta snildar áhald lætur þar til sín heyra. é ~4>K

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.