Dagur - 11.06.1921, Side 3
24; tbl.
DAOUR
95
manns og kom aftnr á miðvikudag
með fjölskyldu Steingrfms Jónssonar
bæjarfógeta. Steingrímur keypti hús
af Sig. Fanndal, gamla amtmannshús-
ið, og hefir það þurft mikillar viðgerð-
ar, sem verið er að framkvaema. Frá
Húsavfk flutti hingað ennfremur Sigur-
jón Þorgrímsson fyrrum veitingamaður
og settist að í hinu nýbygða húsi
Eggerts Melstað við Oddeyrargötu.
Ásbjörn Árnason bóndi f Torfum f
Eyjafirði seldi jörðina Sigtryggi Jóhann-
essyni, sem var í Saurbae. Bróðir Ás-
bjarnar, Gunnar á Krónustöðum, seldi
sína jörð Magnúsi Árnasyni Hólro,
sem var f Sauibæ. Ásbjörn keypti
aftur Þverárdal f Húnavatnsýslu og
fluttu þeir bræður þangað vestur í
síðustu viku.
Aövörun bæjarfógetnns til manna,
sem fest er upp á götunum, um að
bæjarbúar verði að halda fé sfnu ut-
an takmarka kaupstaðarlóða, kemur
að litlu haldi. Menn hafa naumast
svefnfrið á nóttum fyrir sauðíjárjarmi.
Það virðist vera að verða rótgróinn
siður, að haía reglugerðir og fyrirmæli
yfirvalda að engu. Röggsemi og strangt
réttlæti þarf, til þess að hrista af
mönnum vanatómlætið.
Sjöstjömuna, motorskip eign sam-
nefnds félags hér í bæ, hafa eigeodurnir
f hyggju að gera út til Réykjavíkur
nú um sýningartfmann, til þess að flytja
fólk. Ferð með skipinu verður bæði
fljótari og mun ódýrari en með Sterling.
Sjá auglýsingu f blaðinu.
Duglegir verkamenn. Skipstjórinn
á seglskútunni, sem er að afferma
trjávið hér við hafnarbryggjuna rómar
verkamennina fyrir dugnað og þykir
vera stór munur á handatiltektum
þeirra og t. d. Englendinga.
Bœjarsímini). ólagið á honum virð-
ist vera að ágerast. Það er oít mjög
örðugt að tala á landlfnum fyrir sam-
tölum manna innan bæjar. Þannig
virðast leióslur liggja saman í skiíti-
borðinu eða á lfnunum. Stundum arga
6 eða fleiri menn hver f eyrun á
öðrum og hafa lftið annað upp úr eu
skapraunir og ljótt orðbragð. En bót
f máli er sú, að nú er verið að setja
niður stórt og vandað skiftiborð í
símastöðinni samk. loíorði sfmastjórn-
arinnar s. 1. vetur. Um niðursetning-
una annast Otto B. Arnar, ritstjóri.
Mun þvf verki verða fljótlega lokið.
Úr öllum áttum.
111 meðferð virðist vera á póst-
flutningi með landpóstinum. Blöðunum
er auðsæilega haugað ofan f poka.
Reykjavikurblöð, sem komu með sfðasta
pósti, voru allmikið skemd.
Sœsíminn er slitinn aftur og á
sömu stöðvum og s. I. vatur. Talið er
líklegt að togarar valdi slitum þess-
um. Þarna kvað vera auðug fiskimið.
Skriða féli nýlega á túnið á Fagra-
bæ á Svalbarðsströnd og eyddi */s af
þvf. Á bænum var fjögurra kúa tún,
svo skaðinn er mjög tilfinnanlegur
fyrir bóndann.
Heilsuljælissjóður Noröurlands
Dagur hefir leitað upplýsinga um
sjóðinn hjá þeim ungfrú Önnu Magn-
úsdóttur, form. sjóðsins, frú Laufeyju
Pálsdóttur, gjaldkera og ungfrú Krist-
björgu Jónatansdóttur ritara hans.
Sjóðurinn et nú orðinn kr. 37.668.98.
Er því fé ráðstafað þannig: Kr. 2 5 000.00
hafa verið lánaðar sjúkrahúsinu Gud-
manns Minde á Ákureyri, gegn skulda-
bréfi, dags. 30. júlf 1920, með öVíO/o
vöxtum og uppsegjanlegu með 6 mán-
aða fyrirvara af beggja hálfu. Lánið
ábyrgjast bær og sýsla. Kr. 10.000.00,
gjöf frá Kaupfélagi Eyfirðinga, stend-
ur þar inni samkvæmt gjafaloforði
félagsins með 4°/o vöxtum og kr.
2668.98 í sparisjóði Landsbankaút-
búsins á Akureyri.
Valdemar Halldórsson, Káifa-
strönd við Mývatn er nýlega kominn
úr ítalfuför. Er hann talinn fyrsti Is
lenzkur bóndi, sem farið hefir þangað
suður á seinni öldum eða sfðan suður-
göngur f því skyni að taka lausn af
páfa lögðust niður. Hann fór frá Khöfn
suður gegnum Þýzkaland og Austur-
ríki, og gegnum Alpafjöli og til Róma-
borgar. Með honum var f för Tryggvi
Sveinbjarnarson (Svörfuður). þeir félag-
ar hittu f Róm þá Rfkarð Jónsson mynd-
höggvara og Davíð Stefánsson skáld.
Fóru þeirsíðan allir skemtiför um Ítalíu
til Neapel, Capri og upp á eldfjallið
Vesúvíus. Upp úr gígnum f fjallinu
þeytist gufumökkur með hvellum og
drunum. Valdemar fór einnig til Flor-
enze. Frá ítalfu fór hann sfðan til
París, þaðan yfir til Englands og síðan
heim. Valdemar segir Ifðan fólks og
dýrtfðina mjög misjafna f löndunum.
Hann telur engu dýrara, að ferðast
suður f löndum, heldur en að sitja
um kyrt á Norðurlöndum. Fargjald á
3. farrými frá Khöfn til Rómaborgar
kostar litlu meira en einir stlgvéla-
skór með pppplrssólum kosta hér á
Akureyri. Einna mesta dýrtfð sagði
bann vera á Englandi af þeim lönd-
um sem hann fór um. Þó var hvergi
jafn dýrt að dvelja, sem í Reykjavfk.
Dónardœgur. Fyrir nokkru sfðan
andaðist á Emarsstöðum f Reykjadal
húsfreyja Anna Haraldsdóttir af barns-
förum. Anna var dóttir merkisbóndans
Haralds Sigurjónssonar, sem bjó á
Einarsstöðum l mörg ár, en er dáinn
fyrir 11 árum sfðan og Ásrúnar Jóns-
dóttur Ólafssonar frá Rifkelssöðum í
Eyjafirði Ásrún dó fyrir 2 árum sfðan;
Anna var gift Einari Guðmundssyni
ættuðum af Austurlandi. Áttu þau
hjón 2 börn á llfi og hið þriðja fylgir
nú móður sinni f gröfina. Anna var
góð kona og hversdagsprúð og vinsæl
af öllum, sem kyntust henni.
Nýlega er og látinn Árni Stefáns-
son í Litladal í Eyjafirði, bróðir Stef-
áns alþm. f Fagraskdgi. Árni var á
áttræðisaldri, þegar hann lézt. Hann
var lengi góður og gegn bóndi f
Litladal og Stóradal. Hann var talinn
hamrammur að afli og mikill dreng-
skaparmaður.
Sömuleiðis er nýlega látinn á Gaut-
Bókavarðarsíaðan
við bókasafn Akureyrar og Eyjafjarðarsýslu er laus frá 1. júlí þ. á. Þeir
sem sækja vilja um stööuna, sendi umsóknir sínar til undirritaös. fyrir
20. júlí þ. á.
Bæjarfógetinn á Akureyri, 4, júlí 1921.
Steingrimur Jónsson.
r
Mikil verðlækkun
í Sdpubúðinni
á Oddeyri. (Sími 82.)
Bezta Krystalssápa V2 kg. . . 0.60
Sódi — — . . 0.14
Marseiliesápa - - . . 0.52
Sápuspænir — — . . 1.65
A. B. C. Sápa, stk
Sápuspænir í kössum .... 0.90
Jurtasápa, stór stykki. . . 0.40
Standardsápa, — — . . . 0.40
Ágætir skúringaburstar frá . . 0.55
— gólfskrúbbar — . . 0.95
Lessive lútarduft . . .
• Bedste” þvottaduft */j pk.
Do. Do. V2 -
Sodanak ’/i -
Do. V2 —
Skúringaduft, pk.. . .
Salernispappír — . . .
Fægiefni „Gull" glasið frá
Marseille úrgangssápur V2
kg.
0.50
0.48
0.30
0.46
0.27
0.27
0.70
0.40
0.52
Mikið úrval af ágæfum handsápum.
800 kgr. af hvítri blautsápu, '/2 kgr. á kr. 0.39.
1000 — - handsápu, J/z kgr. á kr. 1.00.
Mikið úrval af alskonar burstum og gólfsópum, pvottaskinn, t
greiður, kambar, hár- og fataburstar. Krydd í brauð og mat. !
Mikið úrval af svömpum. f
■é
T-f-JVl-jA-R-I-T
isl. samvinnufélaga.
Nýútkomið hefti rekur í aðaldráttum sögu samvinnustefnunnar hér á
Iandi síðust 40 árin. Koma þar við sögu fjðlmargir þjóðkunnir menn: t.
d. Tryggvi Gunnarsson, Jakob Hálfdánarson, Benedikt á Auðnum, Jón
Sigurðsson á Gautlöndum og synir hans þrír, Einar í Nesi, Jón í Múla,
sr. Einar Jónsson á Hofi, Skúli Thoroddsen, Ólafur Briem, Páll Briem,
Torfi í Ólafsdal, Guðjón á Ljúfustöðum, Hallgrímur Kristinsson, Sigurður
á Ystafelli, Ágúst í Birtingaholti, Bogi Th. Melsteð, Sigurður Sigurðsson
ráðunautur. Lárus Helgason Kirkjubæjarklaustri, Guðmundur Porbjarnar-
s°n á Hofi, Eggert í Laugardælum, Björn Bjarnarson í Grafarholti,
o. m. fl.
Ennfremur er í sama hefti rækilegt yfirlit yfir mörg hin helstu málaferli
sem risið hafa út af útsvarsskyldu samvinnufélaga.
Nýir kaupendur að árg. 1921 fá þetta hefti í kaupbæti, ef borgun fylg-
ir pöntun.
Afgreiðsla tímaritsins er í Sambandshúsinu, Rvík. Sími 603.
löndum í Mývatnssveit Kiistján Þor-
steinsson bróðir Hólmgeirs Þorsteins-
sonar stöðvarstjóra á Breiðumýri,
Kristján var farinn að heilsu og kröft-
um og er hverjum gott, að losna við
lífsbyrðina, þegar hún gerist svo þung.
Fjáríöfnun til styrktar sjúkrahús-
inu hér á Akureyri hefir farið fram
vestanhafs að tilhlutun Helga magra.
Þegar siðast fréttist nam upphæðin
$ 812.02. Sýna Vestur-íslendingar
það nú sem fyr, að þeim er Ijúft að
rétta okkur höndina yfir hafið.
Rammalistar
til sölu í verzlun
H. Einarssonar.
Stórt herbergi er til leigu.
Gluggar móti suðri. R, v. á.
Kynbótanaut
P/2 árs gamalt, af úrvals kyni,
er til sölu hjá
Kr. E. Kristjánssyni,
Hellu.