Dagur - 26.01.1922, Page 1

Dagur - 26.01.1922, Page 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtudegi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Innheimtuna annast ritstjóri blaðsins. AFOREIÐSLAN er hjá Jóni I>. I>óf, Norðurgðtu 3. Talsimi 112. Uppsögn, bundin við áramót sé koniin til afgreiðslumanns fyrir 1. des. V. ár. Akureyri, 26. janúar 1922. 4. blað. Hann andaðist að heimili sínu i Reykjavik snemma á föstudagsmorg- uninn 20. þ. m. Banamein hans var heilablóðfall. Var hann búinn að liggja rúmfastur nokkra daga vegna lítilsháttar uppskurðar i hné, en að öðru Ieyti frískur fram á kvöld sið- asta dagsins, sem hann liföi. Hann er fyrsti íslendingurinn, sem andast f ráðherradómi. Pétur Jónsson var fæddur á Gaut- löndum í Mývatnssveit 28. ágúst 1858 og var því rúmlega 63. ára, þegar hann Iézt. Hann var sonur hins þjóðkunna merkismanns Jóns Sigurðssonar alþm., sem þar bjó, og Sólveigar Jónsdóttur frá Reykjahlíð. F>au hjón áttu mörg börn og öll hin mannvænlegustu. Hafa tveir synir þeirra aðrir en Pétur ráðherra, komið mjög við mál þjóðarinnar, þeir Krist- ján hæstaréttarforseti og Steingrímur bæjarfógeti. Er óþarfi að fjölyröa hér um ætt Péturs ráðherra Jóns- sonar. Pétur byrjaði búskap á Gaut- löndum á móti föður sínum árið 1883, en tók við ættaróðalinu öllu 1890 eftir dauða- föður síns. Hann tók þá og við formensku Kaupfé- lags Pingeyinga og gerðist forvígis- maöur héraðsbúa í þjóömálum á sama hátt og faðir hans haföi ver- ið. Hann var kosinn á þing árið 1894 og hefir verið fulltrúi Þingey- inga á Alþingi jafnan siðan. Árið 1920 varð hann ráðherra í ráðu- neyti Jóns Magnússonar og tók við sæti Sigurðar Jónssonar frá Yztafelli. Það er æfinlega hvast um þá menn, sem á valdstólum sitja og ekki sízt á tfmum eins og þessum( þegar málum þjóðarinnar er á ýmsa lund komiö f óvænt efni og deilan um úrlausn þeirra er bæði hörð á yfirboröinu og á sér djúpar rætur. Sfðustu atburðir eiga að öðru jöfnu rikust ítök i hugum manna. Það getur þvf verið örðugt að dæma með fullri sanngirni, réttlæti og vel- vild um þann mann, sem stfgur úr valdasætinu og Iegst á Iíkfjalir. Þó er þess að gæta, að alvara dauðans þolir enga smámunasemi, þegar að lokaskilum kemur. Hún knýr hvern mann, til að leita djúpt, finna insta þáttinn, sem er um leið ríkastur og haldbeztur f eðli manna- Alvara dauðans lyftir sjónum okkar upp til efstu marka. Við fráfall Pét- urs ráðherra er ekki eingöngu skylt heldur bæði Ijúft og auðvelt að finna insta þáttinn. Það mun jafnan verða dómur þeirra er bezt þekkja til og dómur sögunnar, að ríkasti þátturinn í eðli hans, sem setti blæ sinn á alla framkomu hans í opin- beru lífi, hafi verið strangur heiðar- leiki. Það verður dómur sögunnar, að hann hafi jafnan viljað og kapp- kostað eftir megni, að gera það eitt í afskiftum sínum af málum almenn- ings, sem hann taldi vera fyrir beztu, en um leið réttlátt og heiðarlegt. Sú aðstaða, sem hann með hæfileikum sínum og dugnaði skapaði sér f afskiftum sínum af málum þjóðar- innar, hefir jafnan f för með sér allmikla siðferðislega þrekraun, því að hvorttveggja er vandfarið með, völd og tiltrú. Það mun jafnan verða sagt um Pétur, að hann hafi staðist þá raun, svo sem bezt varð á kosið í þau 27 ár, sem hann fór með um- boð almennings. Þrátt fyrir alt, sem í augum sumra manna kann að marka, í smærri at- riðum, vafasama drætti í æfistarfi þessa manns, eins og allra annara, getur enginn kosið sér hugþekkari minnisvarða, heldur en slíka minn- ingu. Sá bautasteinn, reistur af viður- kenning alþjóðar, er óbrotgjarn og honum lúta allir beztu menn. Svo hefir virzt á allra sfðustu tím- um, sem afstaða hans í stjórnmál- um til þeirra manna, sem f eðli sínu og í afstöðu mála hlutu jafnan að vera hans nánustu fylgismenn, væri ekki jafn hugþekk honum og hans fylgismönnum og á hefði verið kosið. Hafa ýmsir talið, að alvarleg- ur ágreiningur lægi þar á bak við. En afstaða þessi er til leiðar komin fyrir það óheillaskipulag á stjórn- málum og flokkaskiftingu þjóðar- innar, sem ríkt hefir, síöan gömlu flokkarnir leystust upp. Sambræð- ingar flokka og samsteypustjórn gerir alla stjórnmálaafstöðu eins flokks til annars óskýra og tvíræða. Reynslan hefir þvf orðið sú, að ráðu- neyti sfðustu ára hafa ekki til lengd- ar getað staðið jafnfætis gagnvart neinum heilsteyptum þingflokki. Þetta hefir orsakað hæpin spor á báða bóga og meiri vanda i póli- tískri sambúð stjórnar og flokka, en menn alment gera sér Ijóst. Eg hygg, að ailir þeir menn, sem að stjórnmálainnræti stóðu Pétri Jóns- syni næst geti fylgt honum úr garði með óskiftum þakklætishug fyrir langt, mikið og þjóönýtt æfistarf. Pétur Jónsson var maður óskóla- genginn, en sjálfmentaður vel. Allar þær trúnaðarstöður, sem hann hefir hlotið og alt hans mikía verk ber vott um, að hann hefir verið miklu meira en meðalhæfileikamaöur. Með þvf er ekki sagt, að hann hafi verið annmarkalaus fremur en aðrir af- burðamenn. Segja má, að hann muni hafa tekið að erfðum nokkuð af vinsældum og héraðsríki föður síns, en það hefði enginn ættleri gert. Enda hefir hann haldið þannig á málum og störfum, að til fremdar horfði og aukinnar tiltrúar. Honum var fengið í hendur eitt trúnaðar- starf öðru meira. Hann var ekki áhlaupamaður en handfastur og ókvikull f rás. Hæfileikar hans voru ekki eins bjartir og bráðgervir eins og þeir voru ístöðumiklir. Hann átti rætur þroska síns djúpt í al- vörugefni, stöðuglyndi og hugrekki íslenzkrar alþýðu. Pétur Jónsson verður jafnan tal- inn einn af kjarnamestu kynkvistum íslenzkrar bændastéttar. Vöxtur hans var stöðugur og tryggur, ekki gerð- ur með áhlaupum og því engum afturkippum háður. Meö sjálfsment- un og dugnaði braut hann sér Ieið úr öftustu röðum óbreyttra liðs- manna fram f fylkingarbrjóst og þar er hann fallinn. Oft verður það um menn með miklu starfsþreki og mikilli starfs- löngun, sem hafa tekið ríkan þátt í framsókn þjóðar sinnar um langt skeið, að þeim verður erfitt um að hlíta dómi ellinnar og taka á móti Vandamönnum og vinutn til- kynnist, að sonur okkar elskulegur og bróðir, skip- stjóri Jón Guðmundsson í Hrísey, andaðist á sjúkrahúsinu á Akur- eyri, 19. janúar s.l. — Jarðarför- in er ákveðið að fari fram laug ardaginn 28. þ. m., kl. 12 á há- degi, frá heimili hins látna í Hrísey. Foreldrar og systkini. hrörnuninni. Umskiftasamir tímar, straumhvörf í þjóðmálum færa slík- um mönnum oft og einatt í ellinni mikinn sársauka og mikið vanþakk- læti. Þessvegna er slíkum mönnum gott að falla { fremstu skrefum. Hjá sársaukanum er stýrt og öllum ásteytingarskerjum undanhalds ell- innar. Sýslubúar geta fylkt sér um gröf Péturs Jónssonar og reifað minningu hans geðblæ fölskvalaus- rar þakklátssemi. Og þaö gera þeir. Fréttir. Dánardægur. Pétur Jónsson at- vinnumálaráðherra andaðist á heimili sínu í Reykjavlk föstudagsmorguninn 20 þ. m. rúml. 63 ára að aldri. Banamein hans var heilablóðfall. Ný- lega er látinn hér á sjúkrahúsinu Jón Guðmundsson skipstjóri frá Hrísey, maður á bezta aldri og vel látinn. Banamein hans var hjartasjúkdómur. Fjalla-Eyvindur var leikinn hér I bænum laugardags og sunnudagskvöld. Aðsókn var dágóð. Öllum ber saman um að leikendum takist yfir höfuð mjög vel. Glöggur maður, sem hefir séð leikinn í Reykjavík, fullyrðir, að heildaráhrifin af honum séu meiri og betri hér, en þar hafi verið.- Fjöldi manna, jafnvel í fjarlægustu sveitum, hefir mikinn hug á að sækja leikinn. Er llklegt að menn noti þetta tæki- færi til þess að sjá þenna heimsfræga leik, ef tíðin helzt svo góð. U. M. F. A. hélt aðalfund sinn á sunnudaginn. í félag þetta ættu öll ungmenni bæjarins að ganga. Það er ekki eingöngu þarfasti og fjörmesti félagsskapufinn í bænum, heldur lfk- lega fjörmesta ungmennafélagið á landinu. Inflúenzan. Fregnir berast um það að infiúenzan breiðist á ný eins og eldur f sinu út um öll Norður- A Péfur Jónssoi), atvinnumálaráðherra.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.