Dagur - 30.03.1922, Blaðsíða 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtudðgi.
Kostar kr. 6.00 árg. Qjalddagi
fyrir 1. júlí, Innheimtuna annast
ritstjóri blaösins.
AFGREIÐSLAN
er hjá Jóni I>. Dóf,
Norðurgötu 3. Talsimf 112.
Uppsögn, bundin við áramót,
sé komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
Akureyri, 30. marz 1922.
13. blað.
Þ-E-I-R S-E-M B-Y-G-G-J-A
ibúðarhús, verzlunarhús eða hvaða hús sem
er, þar sem hitunartæki þurfa, »miðsföðvar<:-
vélar, ofna eða eldavélar, ættu að snúa
sér til undirntaðs.
Jón Stefánsson.
Talsími 94. 'Ss' Akureyri.
Framfaramál Akureyrar.
Rafveitan.
Prátt fyrir alla mótspyrnu, sem
rafveitumálinu hefir mætt, miöar því
áfram jafnt og þétt. Síðastl. sumar
var miklu af verkinu lokiö, en af
ýmsum ástæöum gat því ekki orðið
lokiö á einu sumri. Olli því einkum
vöntun á fé til innkaupa á efni og
vélum og yfirfærsluvandræðin. En
eins og áður hefir verið getið, tóicst
bæjarfulltrúa Ragnari Ólafssyni að
útvega mjög hagkvæmt ián í Dan-
mörku til rafveitunnar. Þaö sem fram-
kvæmt var i fyrra varð stórum ódýr-
ara en búist hafði verið viö.
Nú er máiinu svo komið að búið
er að kaupa vélar og efni til verks-
ins, nema götuljósker og eitthvað
af leiðsluþráðum auk steinlímsins og
er það alt mun ódýrara en gert var
ráð fyrir. Þeir Indriði Helgason á
Seyöisfiröi og Rögnvaldur Snorra-
son kaupm. hér í bæ hafa tekið að
sér að koma fyrir leiðsluþráðum og
Iampastæðum í húsin og er það
mun ódýrara en í Reykjavík og það
sem tíökast hefir hér áður í því
efni, eða kr. 1950 fyrir almenn Ijós.
Oert er ráð fyrir að sami maðurinn,
sem stóð fyrir verkinu í fyrra, verk
fræðingur Ole Sandell komi snemma
I maí og að verkinu verði lokiö í
septemberbyrjun. Þessi framgangur
málsins má gieðja alla, sem unna
fyrirtækinu sigurs og sérstaklega
má það gleðja menn, að fullar líkur
eru til, að iafstðöin muni ekki kosta
meira en 250 000 kr. í stað 370 000,
sem áætiað var eða 120 000 ódýrari
Kúabú.
Skoðanir manna um framtfð
Akureyrarkaupstaðar eru dálítið
skiftar. Sumir hyggja, að bærinn
standi og falli meö sjávarútveginum;
Síldin og fiskurinn séu þeir hyrn-
ingarsteinar, sem á verði að byggja
ásamt iönaði og verzlun. Aðrir
hyggja, að jarðræktin sé öllu trygg-
ara lifsskilyrði fyrir þenna bæ í
framtföinni.
Svo hagar tii, að framsýnir menn
í bæjarfélaginu hafa á undanfðrnum
árum trygt bænum mikið af frjósömu
landi. Bærinn hefir keypt nálegar
jarOIr Qg á uk þess alimikið af
ágætu engi f hólmum Eyjafjarðarár.
Væri alt þetta iand ræktað, gæti það
ekki einungis framleitt mjólk handa
bæjarbúum í rfkulegum mæli, heldur
og veití fjölda mðrgum fjölskyldum
lifsuppeldi við kvikfjárrækt og garð-
rækt.
Bæjarstjóri Jón Sveinsson vi!l fara
að hrynda í framkvæind því sjálf-
sagða umbótamáli, að rækta eitt-
hvað af þessu mikla landi f stærri
stíi og með stórvirkari aöferðum,
en hingað tii hefir verið gert Hann
vill að í Kjarnaiandi sé tekin lands-
spilda til ræktunar fyrir reikning
bæjarins og aö »þúfnabani« sé feng-
inn, til þess að brjóta iandið. Hug-
mynd hans er sú, að bærinn setji
þarna upp stórt kúabú og að gamai-
mennaheimili og þurfalninga sé
stofnsett í sambandi við það. Fá-
tækraframfærsla kostar bæinn 10—
14000 kr. árlega. Er hugsanlegt að
úr þeim úlgjöldum yrði dregið með
þessum hætti og að þeir þurfalning-
ar, sem eru að einhverju leyti vinnu-
færir, gætu aðstoðað við þetta fyrir-
tæki og fengið um leið betii að-
búð og rólegra heimili en ella.
Hörmulegt slys
»Talisman«ferstmeð 12 mönnum.
Þilskípíð »Talisman«, 44 tonn, eign
Ásgeirs Péturssonar, fór héðan frá
Akureyri á leið suður til Vesimanna-
eyja sunnudaginn 19. þ. m. Skipvetjar
voru 16 og skipstjórinn var M kael
Guðmundsson ættaður úr Hrlsey en
til -heimilis hér í bæ, kvongaður Gunn-
laugu Kristjánsdóttur lögregluþjóns,
þau bjón eiga 3 börn og hið elzta á
4 ári. »Talisman< fór frá Siglufirði
fimtudaginn 23. kl. 9V2 og hrepti
stórhríéargarð um miðjan dag. í Húna-
flóanum lékk það áfall; brotnaði þá
ofan af káetunni og hana fylti að sjó.
Skipið hélt síéan áfram vestur fyrir
land. Á laugardagsnóttina sáu skip-
verjar vita og álitu það vera Straum-
nesvita. Beygðu þeir þá að laudi og
setluðu að bleypa inn á ísa'jarðardjúp.
En vitin, sem þeir sáu var ekk, á
Straumnesi, heldur vestan megin Súg-
andaljarðar og af þessum orsökum
sigldu þeir til skipbrots upp á Sauða-
nes milli Súgandaljarðar og Önundar-
íjarðar, Súgandafjarðarmegin. Þar gekk
óbrotinn sjór á land. Sktpið brotnaði
þegar allmikið og gerðu 7 af skíp-
verjum tilraun að komast á stórsigl-
unni til lands. 4 af þeim komust líta
af og hellir á húfi, en 3 fórust. Þeir
9, sem eftir voru á skipsfjöl, fórust
allir, því skipið brotnaði mjög fljótt.
Alls fórust þvf 12 menn en fjórir
komust af. Þcir 4, sem lifa, eru þessir:
Einar Guðbjartsson frá Grenivík, Jakob
Einarsson héðan úr bænum, Jóhann
Sigvaidason úr Hörgárdal og Arin-
björn Árnason úr Möðruvallasókn. Þeir
tólf, sem druknuðu, voru þessir: 1.
skipstjórinn Mikael Guðmundsson, sem
áður er getið. 2, stýrimaðurinn, Þorst.
Jónsson, frá Grímsnesi, ógiftur. 3. vélar-
stjóri Stefán Ásgrímsson héðan úr bæn-
um frá konu og 5 börnum. 4. Sigurður
Þorkellsson frá Sigiufirði, ókvæntur. 5,
Jóhannes Jóhannesson írá Kúgili f Þor-
valdsdal,ókvæntur. 6. Benedikt Jónsson
héðan úr bænura írá konu og 4 börnum.
7. Sæœundur Friðriksson úr Glerárþorpi
frá konu og 4 börnum. 8. Ásgeir
Sigurðsson fóstursonur skipseiganda,
ókvæntur. 9. Sigtryggur Davíðsson
frá Dalvík frá konu og börnum. 10.
Bjarni Emilsson frá Hjalteyri, ókvæntur.
II. Gunnar Viglússon frá Siglufirði,
ókvæntur og 12. matreiðslusveinn
Stelán Jóhannsson frá Nunnuhóli (
Möðruvallasókn. Lfk allra þessara
manna eru fundin og er gert ráð íyrir
að »Helgi magri«, skip Ásgeirs Péturs-
sonar, sem fer suður um þessar mundir,
flytji þau hiiígað, þegar það kemur til
baka. »Talisman< hafði meðlerðis
slldarfarm til Vestmannaeyja og var
sk p og farmur hvorttveggj'* óvátrygt.
Alllangt er alðan Ægir hefir unnið
Akureyri og grend hennar þvílíkan
geig. Fimm af þeim, sem druknuðu,
joru frá Akureyri og Glerárþorpi, þar
af 4 kvæntir og dánir frá konum og
alls 15 börnum. Auk þess hefir ein
kona í Dalvik orðið ekkja við þenna
atburð, en blaðinu er ókunnugt um,
hversu mörg börn hennar eru, Margir
eiga nú um sárt að binda og Við fá-
tækt að striða og rcynir nú á örlæti
þeirra og samúð, sem virðast hafa
fullar hendur fjár, hvenær sem skemt-
anir og gjálifi er annars vegar. Stórar
stundir og hörmulegar koma yfir bæi
og landshluta við þvfiíka atburði. Sam-
eiginlegur barmur margra legst eins
og alvaran yfir bæinn með flöggum í
hverja stöng hálía. Og þvfllkar stundir
þoka alvörugefnum mönnum saman
undir byrði missis og harma, sem
öllum er á herðar lögð fyr eða seinna/
Og Dagur efast eklci uro, að yfir
þenna bæ renni dagur almenns harms
og hluttekningar, þegar »Helgi magri<
skilar á land líkunum tólf.
F r é f t i r.
Frú Guörún Indriðadóttlr fór
suður til Rvfkur með Sterling sfðast.
Eins og áður hefir verið skýrt frá,
kom hún hingað norður að tilhlutun
Leikfélagsins, til þess að leika Höllu
í »FjaIla-Eyvindi.< Hún gerði því
kleift að' sýna leikinn hér. Enginn ef-
ast um, að leikur frúarinnar var f
verulegum atriðum stórmikil list, þó
að mætti finna og munu Akureyrar-
búar vera frúnni stórþakklátir.
Jón Guðmundsson frá Gufudai,
endurskoðari Sambandsins dvaldi bér
við endurskoðun hjá Kf. Eyf. Hann
fór raeð Sterling síðast vestur á bóg-
inn til endurskoðunar hjá Sambands-
deildunum.
Stórhríðarbyl gerði hér á föstudags-
nóttina með aftakaveðri og hlóð niður
miklum snjó á föstudag og laugardag.
Sterling náði til Sigluljarðar á fimtu-
dagskvöldið í slæmu veðri og lá þar
til sunnudags. Á laugardagsnóttina
strandaði á Súgandafirði motorskipið
»Talisman< frá Akureyri og fórust
tólf menn, eins og getið er annars-
staðar hér f blaðinu.
Viðurkenníng.StyrktamefndSjúkra-
hússins Gudmanns Minde hér f bænum,
afhenti nýlega — fyrir hönd sjúkra-
hússins — frú Júlíönu Friðriksdóttur
hjúkrunarkonu, að gjöf mynd af sjúkra-
húsinu utan og innan f vandaðri um-
gerð með áletruðum silfurskildi. Var
mynd þessi gefiu f viðutkenningar-
skyni fyrir vel unnið starf hennar til
umbóta á sjúkrahúsinu, bæði með
bættri hjúkrun og fjársöfnun til þess,
hér á landi og vestan hafs.
ólafur Túbals iistmálari kom frá
Húsavík hingað til bæjarins með Sterl-
ing sfðast. Hefir dvalið f Húaavfk
mánaðartfma og tnálað þar. Hann
opnar í dag málverkasýningu í stóra
salnum í „Hotel Akureyri." Ólafur er
ættaður frá Múlakoti f Fljótshlfð. Hann
er náttúrubarn f list sinni og gefur
sig lftið að hinum nýju öfgastefnum í
þeirri grein. Ólafur hafði málverka-
sýningu í Rvfk f vetur og hlaut mikið
lof í blöðunum. í Húsavfk hafði hann
og sýningu og seldi þar allmörg
málverk.
Dánardægur. Þessir menn eru ný-
lega látnir: Halldðr Stefdnsson bóndi
á Skútum á Þelamörk, Páll Jónsson
á Sórlastöðum f Fnjóskadal, báðir á
áttræðisaldri, Bjarni Helgason véistjóri,
Norðurpól hér í bæ, frá konu og fjór-
um börnum f ómegð. Ennfremur er
nýlátið stúlkubarnið Ninna Hjartar-
dótlir á Stóruvöllum hér i bæ eftir
miklar þjáningar. 27. þ. m. lést á
heimili sfnu, Gamla spítalanum, Sigurður
Eiríksson, góður og gegn borgari þessa
bæjar.