Dagur - 11.05.1922, Page 2
64
ÐAOUR
19. tbl.""
Samvinnuskólinn
1922-23.
InntöKuskilyrði:
. Fyrsta deild:
Hafa numiö málfraeði H. Bríem, bæði heftin af dönskukenslubók Jóns
Ófeigssonar, enskunámsbók O. Zoéga, í reikningi brot og tugabrot, Ianda-
fræði Karls Finnbogasonar, íslandssögu Jónasar Jónssonar, mannkynssögu
Þorl. Bjarnasonar.
0nnur deild;
Sömu inntökuskilyrði og i fyrstu deild, nema að því er snertir ensku.
Kenslu tími í báðum þessum déildum 7 mánuðir, frá byrjun október til
apríi Ioka. Kenslugjald fyrir hvern nemenda, 100 krónur, greiðist í byrjun
október.
Þriðja og fjórða deild:
Hafa numið aðalatriði íslenzkrar málfræði. Skrifa læsilega rithönd. Hafa
numið i landafræðú íslandssögu og mankynnssögu sama og fyrsta deild.
Kenslutimi í þríðju deild 6'mánuðir, frá byrjun október til marzloka.
Kenslutími í fjórðu deiid 7 mánuðir frá byrjun október til aprílloka.
Kennslugjald 50 krónur fyrir hvern nemenda. Greiðist við inngöngu í
skólann.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist undirrituðum.
Samvinnuskólinn
sem álfta mætti, að enn þá heíðu
gildi, er þau ekki fást lengur f bóka-
verzlunum. Það er óak gefanda, að
legati þessu verði stjórnað af 5 manna
nefnd og séu þrír þeirra valdir af
kennurum Mentaskólans, en 2 af öðr-
um embættismönnum við hina æðri
skóla í Reykjavík. Fjórði hluti ár-
Icgra vaxta leggist jafnan við höfuð-
stólinc og sömuleiðis þriðji hluti þess
fjár, sem árlega innheimtist fyrir sölu
rita þeirra, sem út eru gefin á legats-
ins kostnað. Hinu skal verja til út-
gáfu hinna fyrnefndu rita.
Hinu legatinu skal varið tii atyrkt-
ar ekkjum fastra kennara við Menta-
skólann I Reykjavfk og guðfræðisdeild
háskóla fslands, eða þá, ef ástæða
þykir til, handa öðrum ekkjum eða
dætrum embættismanna í Reykjavfk.'
Fyrst um sinn er þó þessum styrk
ráðstafað til þriggja nafngreindra
kvenna. Legatinu skal stjórnað undir
yfirumsjón landsstjórnarinnar, af þrem-
ur mönnum: biskupi íslands, rektor
Mentaskólans pg rektor Háskólans.
Skal fjórði hluti ársvaxta jafnan legg-
jast við höfuðstól, en hinu útbýtt ár-
lega til styrkþega. Að öðru jöfnu skulu
‘ættingjar eða ættingja ekkjur legat-
stofnenda sitja fyrir, en þó ná þau
forréttindi ekki lengra en 100 ár aftur
f tfmann frá dauða þess stofnandans,
sem lengur lifir. Þegar tfmar lfða og
legatið hefir vaxið, má styrkur af
vöxtunum einnig ná til ógiftra dætra
embættismanna við Mentaskólann eða
hina æðri skóla f Reykjavfk, eftir að
þær hafa náð 45 ára aldri, og einnig
til ekkna annara embættismanná þar,
en þó svo að hinar fyrnefndu hafi að
öðru jöfnu forgangsrétt.
Þrjú þúsund krónur skulu leggjast
við legatið, sem ber nafn dóttur þeirra
20. febr. 1922.
Jónas Jónsson.
hjónanna, Sigríðar Thorddsen, og atofn-
að var eftir dauða hennar.
Þetta eru þau ákvæði þessarar
merkilegu erfðaskrár, sem snúa að
almenningi. En hin, sem að einstakl-
ingunum snúa, sýna ef til vill enn
betur umhyggjusemi og göfugan hugs-
unarhátt þeirra hjóna.
Jiérna blunda eg dáinn.
(Lag: í Heiðardalnum.)
Að renna gáskafult gönuskeið,
Sú greip. mig stundum ódæl þráin,
Og hún tttér benti um leið á leið,
Sem lá þar vestur f bláinn.
Og þar var hinsvegar heimur nýr
Að hennar sögn og fágæt æfintýr,
Og gullið nóg
í grænum skóg
Mér geymt var handan við sjóinn.
En eg nam þrauga og þroka við
Og þverspyrnan var mörg og sláin,
Og henni skipaði að hafa frið
Svo hún varð gröm við mig, þráin.
Og henni sagði eg, eins og er
Að allar mfnar rætur væri hér
í móðurgrund, —
En marga stund
Eg mændi samt út f bláinn!
Svo hef eg lofað að lifa hér
Og löngu spök er hjartans þráin,
Og veit þó naumast hvað unnið er
Og ei hvað tapað f bláinn!
En við það sitja nú víst mun þó.
Eg verð að fara á mis við gull og skóg
Eg snerti ei hafið
Héðan af
Og hérna blunda eg dáinn.
Gaddavír.
Um miðjan þennan mánuð fáum við miklar birgðir af mjög
ódýrum gaddavír.
Þeir sem hafa talað við okkur um gaddavírskaup, sendi okkur
sem fyrst pantanir sínar pví eftirspurnin er mikil/
Verzlun Sn. Jónssonar.
Sambcmd Isí
Sam vinn ufélaga
útvegar beint frá verksmiðjunni
hið viðurkenda, ágæta
Mc. Dougall’s
BAÐLYF.
Gúmmi-og Skóverksfæði
hðfum viö undirritaðir opnað í Hafnarstrœti 105 B (hús Ingimars
söðlasmiðs ) Eru þar af hendi leýstar allskonar skóviðgerðir, smiðað nýtt
skótau og gert við
Gúmmiskóíau með gúmmi.
Einnig seljum við skóáburð allskonar, reimar úr silki, ull og hör, gummi-
hæla handa herrum og dömum, skójárn og m. fl. alt með Iægra verða
en annarstaðar í bænum.
mr REYNIÐ VIÐSKIFTIJW -w
Virðingarfylst. '
Ebenharð Pörðarsoh. Sigurður /óhannesson.
F r éjjt i r.
Goðafoss kom í gærmorgun frá
Reykjavík. Með skipinu komu nokkrir
þingmenn, fulltrúar af fundi Sambands-
ins og ýmsir fleiri farþegar. Sirius er
væntánlegur um helgina, á austurleið.
Og Villemoes að austan fyrir helgina.
Ritstjóri þessa blaðs, sem dvalið
hefir fyrir sunnan nú um tíma, hjá
konu sinni veikri, er væntanlegur
heim með Siriusi um næstu helgi.
Sigurður Kristinsson kaupfélaga-
stjóri kom heim með Goðafossi f gser.
Látin er nýlega hér á sjúkrahúsinu Hall-
dóra Tryggvadóttir frá Möðrufelli, ekkja
eftir Samúel heitinn á Hjálmstöðum. —
Jarðarför hennar fór fram í dag.
Sly8 vildi til hér frammi í firðinum í
nótt. Unglingsmaður, Pétur Ágústsson að
nafni, skaut $jg til bana á fuglaveiðum.
Red Seal bye,
þvottaduftið margeftirspurða, er nú
Ioksins komið.
Verzlun P. Péturssonar.
FRIÐ|ÓN JENSSON,
læknir.
Aðalstræti 22 Sími 72.
Viðíalstími 1—3 og 4 — 6.
Tanngervi kr. 125.-Tannfylling3-6kr*
Tannfylling með rótaðgerð 5-10 kr.
Útdráttur tanna með eða án deyf-
ingar.
Ritstjóri: JÓNAS ÞORBERGSSOJÍ~S
Prentari: OPDUR BjÖRNSSON J