Dagur - 01.06.1922, Blaðsíða 2
74
DAGUR
22. tbl.
Skittavinnusfofan í ReykjavíK
tekur að sjer að mála skilti af ýmislegri gerð og allskonar letri (t. d. í
umgerð með gullletri). — Pöntunum má koma til V. Knudsen, skrifstofu
Nathan &. Olsen Akureyri, þar til Ooðafoss fer 10. n. m. —
Reykjavík 31. maí 1922.
r
Osvaldur Knudsen. Ludvig Einarsson.
T ulinius^-verzlun
hefir á boðstólum margskonar nauðsynjavörur, svo sem allar venjulegar
matvörutegundir og nýlenduvörur; emailleruð eldhúsgögn: suðupotta,
kaffikönnur og katla af ýmsum stærðum, mjólkurfötur, herbergisfötur,
þvottastell, steikarapönnur 0. s. frv.
Skótau af ýmsri gerð handa börnum sem fullorðnum.
Oalvaniserað plötujárn (slétt) og ýmislega smærri járnvöru. —
Ennfremur fjölbreytta álnavöru 0. m. fl., sem hér væri oflangt að telja,
Akureyri 1. júní 1922.
Tuliniusar-verzlun.
N V M | O L K
til sölu á Eyrarlandsvegi 8 (Æsu-
stööum).
vera, því margir bændur eru orðnir
mjög tæpir með hey og jafnvel hey-
lausir þrátt fyrir gæði vetrarins.
Frifz Boesen, leikari, sem bæjar-
búum er kunnur frá fyrri árum, hefir
dvalið hér í bænum um tíma í erind-
um fyrir Gyldendals bókaverzlun í
Khöfn. Hann selur bækur nýjar og
gamlar og mörg ágætisverk með. góð-
um kjörum þannig, að kaupendur
geta fengið bækurnar gegn mánððar-
legum afborgunum.
. SfrokufanganSi sem getið var hér
f blaðinu sfðast, varð að sögn vart
hér f bænum fyrir nokkrum dögum og
slapp úr greipum lögregiunnar en
misti staf og poka. Enn fréttist til
hans á Hjalteyri og eru gárungarnir
að segja að hann muni ráða sig f
kaupavinnu hér f nærsveitunum f
sumar.
Skólaslit. Gagnfræðaskólanum sleit
skólameistarinn kl, 2 f gær með merki-
legri ræðu. Allir 43 nemendurnir
stóðust prófið. í gærkvöld kvaddi
skólam. gagnfræðingahópinn með sam-
sæti og sátu það jafnframt kennarar,
prófdómendur og nokkrir gestir. Marg-
ar ræður voru fluttar og var stundin
ánægjuleg.
Ósannar fregnir eru nú á gangi
með meira móti. í gær fréttist að
kona vestur f Fljótum sem hefði átt
mann sinn á Mari Anne hefði fyrir-
farið tveimur börnum sínum. Þetta er
ósatt. Börnin dóu úr barnaveiki hvern
daginn eftir annan. Maðurinn var á
Hektor og kom heim jarðarfarardag
barna sinna. Hjón þessi, sem búa í
Hólakoti, áttu ekki fieira barna.
Ennfremur fréttist, að togarinn
Draupnir hefði sprungið og farist með
allri áhöfn fyrir ógætilega kyndingu á
flótta undan varðskipinu. Þetta er lfka
tilhæfulaust. Fregnir um að skip þau,
sem vanta, hafi sum sézt eða komið
fram eru 'sömuleiðis tilhæfulausar. í
dag hefir enn ekki orðið vart við þau
þrátt fyrir mikla teit, sem áður er
getið um.
Þúfnabaninn. Eftir upplýsingum frá
Búnaðarfél. íslands að dæma eru horfur
á, að þúfnabaninn komi hingað til
Akureyrar áður langt líður og ef til
vill með Goðafossi næst (10. júnf til
Akureyrar). Einnig eru miklar líkur til
að Ræktunarsjóðslán fáist svo að Akur-
eyrarbær verði bundinn við sámþykt
sfna um að ábyrgjast J/3 kaupverðsins.
Presfvígslan fór fram á sunnu-
daginn var. Fjöldi fólks var við staddur
og urðu margir frá að hverfa. Prest-
arnir sr. Stefán á Völlum og sr. Björn
f Laufási aðstoðuðu vfgslubiskupinn.
Að lokinni vígslu sté séra Sveinn
Víkingur f stóiinn og flutti vígsluræð-
una og þótti hún afbrigða góð og vel
flutt. Hann valdi sér að texta: >Fremur
ber að hlýða guði en mönnum* ?
Sveinn var vfgður til aðstoðarprests
sr. Halldórs Bjarnasonar að Piesthól-
um ðg Skinnastað í Axarfirði.
Barnavagn óskast tii leigu eða
kaups — R. v. á.
Athugið augl. Vilhj. Þ. Þór hér í
blaðinu.
Símskeyti.
Reykjavík, 31. maí.
Amerískir fjármálamenn ræða
um að lána Þýzkalandi stórfé.
Frakkar hóta að herkvía Ruhr-
héraðið ef Þjóðverjar greiði ekki
skaðabæturnar á réttum tíma.
Sagt að Englendingar láni Þjóð-
verjum fé til greiðslunnan
Þrír flugmenn lögðu af stað
frá London 24. f>. m. í flugferð
kringum hnöttinn. Viðkomust.
eru Mikligarður, Indland, Japan,
Alaska, Nýfundnaland, Græn-
land, Island, Færeyjar.
Eftir umræður í brezka ping-
ingu um Genúafundinn hlaut
Lloyd George traustsyfirlýsingu
með 239 atkv. gegn 26.
Loforð fjármálaráðherrans pýzka
til skaðabótanefndarinnar um
greiðslu setur alla stjórnina. í
mesta vanda.
Kaupmannafél. í Bergen skip-
ar nefnd til að undirbúa bein
verzlunarsambönd við Island.
Búist við að norsk verzlunar-
skrifstofa verði bráðum opnuð
í Reykjavík. Stjórnir Islands og
Noregs semja um lækkun burðar-
gjalda.
Morgunbl. hamast á móti sam-
vinnuflokknum; afsakar legáíana,
krossana, Spánarvínið, landráða-
málið og Siglufjarðarsjóðpurðina.
Fréttaritari Dags.
Strandferðirnar.
iii.
Nú er Sterling úr sögunni. Saga
þess sklps fékk svipaðan enda og
margra annara skipa á hættulegum
siglingaleiðum meðfram ströndum ís-
lands. Afleiðingin er sú, að við stönd-
um uppi strandferðaskipslausir I bráð-
ina. Villemoes, sem tekur við af Sterl-
ing, er gersamlega óhæft skip til
þeirra ferða vegna rúmleysis fyrir far-
þega. En við þann kost Verðum við
samt að una fyrst um sinn.
En þessi atburður markar ný tíma-
mót f sögu íslenzkra strandferða og
þau tfmamót ættu að geta orðið merki-
leg, ef vit og framsýni verða látin
ráða aðgerðum. Sagt er að skipið hafi
verið vátrygt fyrir rúma milljón króna.
Upphaflegt kaupverð var öoo.ooo kr.,
en skip stigu eftir það ákaflega f
verði. Nú eru þau aftur fallin mjög.
Er því ekki ósennilegt, að fyrir and-
virði Sterlings gefist okkur kostur á
að eignast skipakost, sem kemur okk-
ur að betra haldi til strandferða, en
Sterling gerði.
Þegar ráða skal fram úr málinu,
geta fjórar tillögur komið til álita:
1. Að kaupa svipað skip og Sterl-
ing var og haga strandferðunum á
sama hátt og verið hefir undanfarin ár;
2. að láta skipið koma við á ail-
mörgum beztu höfnum landsins, en
styrkja ríflega flóabáta, til þess að
selfæra vörur og fólk milli betri hafna
og lakari;
3. að kaupa tvö skip til strandferð-
anna, minni 'en Sterling var, láta þau
hvort um sig flytja fólk og vörur í
senn og skifta landinu milli sfn lfkt
og Vestri og Austri gerðu, með enda-
stöðvum í Rvík og á Akureyri;
4. að kaupa tvö skip hæfilega stór, er
hagi göngu sinni likt og Sterling, ann-
að hraðskreitt póst- og fólksflutninga-
skip, sem rúmi 150—200 farþega og
fari umhverfis land á 6—7 dögum,
hitt vörufiutningaskip, hægskreiðara,
sem beri hæfílega mikið af vörum og
hagi ferðum sfnum meira eftir atvikum.
Væri málinu ráðið til lykta sam-
kvæmt fyrstu tiliögunni, «æti alt við
það »ma, sem verið hefir, Áður hefir
verið nokkuð á það drepið, hvað
ástandið hefir verið fit og blátt áfram
ósæmiiegt hverri menningarþjóð. Þess-
vegna er einsætt, að Dagur gæti aldrei
faliist á hana.
Ekki gæti hann heldur faliist á aðra
tillöguna. Á þann hátt yrði tillhögunin
litlu betri; Örlftið ynnist á um far-
flýti en aðeins lftið. Skipið þyrfti að
dvelja þvf lengur á stærri höfnunum,
sem það hefði þar meiri vörur til um-
skipunar. Umskipunarkostnaður yrði
gffurlegur og flóabátarnir verða alt af
vandgæfur og jafnvel hættulegur far-
kostur.
Miklu nær væri að fallast á þriðju
tillöguna. Væru skipin tvö þyrfti það
aldrei að koma fyrir, að t. d. maður
úr Hornafirði, sem þyrfti til Rvfkur,
væri neyddur til að fara alla leið
norður um land. Tvö skip mundu fara
sem svaraði hringferð eins skips á mun
skemri. Þó hefði sú tilhögun þann
óbærilega annmarka að fólkið yrði
flutt eins og væri það dauðir hlutir.
AUir, sem reynt hafa, eru búnir að fá
sig fullsadda af þvf sleifarlagi.
Á sfðustu tillöguna felst Dagur
óhikað. Hér á landi þarf að fullnægja
einhverri ákveðinni fólks- og vöru-
flutningaíerð með ströndum fram. Væru
skipin tvö, sem gera verður ráð fyrir,
að öllum virðist æskilegt og sjálfsagt
er ekki unt að sjá, hvað við það vinst
að láta bæði skipin káka við hvort-
tveggja ferðamönnum tii ósegjanlegrar
skapraunar og skaða og þjóðinni til
minkunar. Borgi fólks- og póstflutn-
ingar sig ver en vöruflutningar, ynnist
skaðinn, sem fólksflutningaskipið biði,
upp á vöruflutningaskipinu, sem gæti
varið öllu rúmi sfnu til þeirra flutn-
inga. Reksturskostnaðurinn hlyti að
verða þvf nær sá sami en samgöng-
urnar stórum betri, hagkvæmari, hættu
minni og samboðnari siðaðri þjóð.
Á þenna hátt gætum við því nær
á öllum tfmum árs haft vikulegar
ferðir með fólk og póst umhverfis
landið. Alt annar bragur kæmi á við-
skiftalffið. í landinu yrði meira unnið
og framfleitt. Úreltir, dýrir og sein-
legir póstflutningar yfir fjöll og firn- •
indi, sem oft eru næstum þvf drep-
andi fyrir menn og skepnur, gætu að
mestu fallið niður, en f stað þeirra
kæmu tfðari og auðveldari póstferðir
f manna bygðum, — frá höfnum upp
yfir héruðin.
Jafnan er okkur núið þvf um nasir,
íslendingum, að lftil framsýni ráði úr-
siitum máiá okkar. Úrslit þessa máls,
hver sem þau verða, eru mörgu fremur
til þess kjörin, að sanna eða ósanna
þenna áfeliisdóm. En oft hefír það ver-
ið að fátækt og úrræðaleysi hefir valdið
því, að málum hefir verið ráðið til
lykta einungis með það tvent fyrir
augum, að fullnægja bráðabirgðarþörf
á einhvern hátt með sem minstum
kostnaði. tVið tjöldum oft til einnar
nætur, þar sem til alda skyldi vera.
Húsabyggingar okkar frá öndverðu
bera sorglegan vott um þetta. Á
þessu þarf vitanlega að verða breyt-
ing. Við úrslit slíkra mála sem þessa,
þurfum við að átta okkur á þvf, hvað
muni borga sig bezt til frambúðar fyrir
þá þjóð, sem gerir ráð fyrir að lifa
og byggja þetta Iaad á komandi ár-