Dagur - 29.06.1922, Blaðsíða 2

Dagur - 29.06.1922, Blaðsíða 2
90 DAOUR 26. tbl. 1. júlí halda Framsóknar- flokksmenn almennan fund við Þjórsárbru í sambandi við í- joróttamót ungmennafélaganna. Miklir kuldar í Danmörku og slæmar uppskeruhorfur. Fréttaritari Dags t Frú Sigurlaug Jialigrímsdóíiir. í gær barst sú sviplega harmfregn um bæinn, að frú Sigurlaug Hall- g{ímsdóttir, kona Brynleifs kennara Tobíassonar.væri látin af barnsförum. Dagur leitaði sér upplýsinga hjá læknunum um það, hvernig atburð- ur pessi, sem veldur svo mikilli um- hugsun, umtali og ágizkunum, væri að höndum borinn. Og hann fékk þessar upplýsingar: t>að bar nauðsyn til að greiða fyrir skjótri fæðingu vegna einkenna, sem bentu á yfirvofandi fæðingar- krampa. Stgr. læknir gerði því svo nefndan „minni keisaraskurð" þ. e. legopið víkað, til þess að komið verði við taungum. Fæðingin gekk að óskum og fæddist drengur. En er læknirinn var að enda við að ganga frá sinni aögerð, gerðu dauða- mörkin skyndilega vart viö sig og lífið fjaraði út, þrátt fyrir alt, sem gert var,' því til varnar. wÞað er sárt, að hafa slíkt tilfelli milli.handa. En einhver verður aö gera það," sagði Steingrímur læknir með óvenjulega mikinn sársauka í svipnum. Það er samhljóða álit læknanna Stgr. og Jónasar Rafnars, að dauð- anum hafi valdið eitrun frá óhraust- um nýrum. Sigurlaug sáluga var fædd 22.sept. 1893 og því langt komin á 29. árið; 25. september 1920 giftist hún eftir- lifandi manni sínum. Sá, sem þetta ritar, hafði enga persónulega kynn- ingu af þessari konu. Hann veit aðeins, að hún var einkabarn aldr- aðra foreldra, eiginkona í ungu hjónabandi og móðir síðustu augna- blik æfi sinnar. Hann veit, að miss- irinn er því gifurlega mikill fyrir foreldra, eiginmann og barn og að hann er óvenju sár, vegna þess hve óvæntur hann var. Brynleifur Tobíasson er ungur maður, en á óvenju mikla reynslu að baki sér. Dauðinn hefir verið stórhöggur í ætt hans. Hann hefir mist þrjár systur sínar alIarT blóma lífsins, foreldra sína, stjúpföður sinn og nú síðast konu sína eftir tæpra tveggja ára hjónaband. Tilætlunin með þessum línum er ekki sú, að bera upp kveinstafi þessa manns, heldur aðeins sú, að lyfta undir þá miklu samúð, seth ríkir f bænum vegna þess harms, sem að honum og öðrum aðstand- endum er kveðinn. Tilgangurinn er ekki sá, að bera harm hans á al- menningstorg, heldur sá, að gefa almennri hluttekningarþögn andar- drátt orðanna. Hvert þeirra högga, sem harmar lífsins slá, verður þeim mun þyngra, sem það er óvæntara. Mörgum hættir við, að láta hallast, þegar ekkert svigrúm hefir verið gefið til viðbúnaðar áhlaupi dauðans. Hér er þó ekki um óviðbúnað einn að ræða, heldur vírðist lífið breytást við slíka átburði i ömurlega ranghverfu. Þegar almesti fögnuður jarðarinnar barna streymir í móðurhjartað, er það stöðvað. Þegar hamingjuvon ungra hjóna dregur andann dýpst, er fyrir hann tekiö með dauðans þunga andvarpi. Þegar foreldragleðin, ömmu- og afagleðin verpur bjarma eftirvæntingar yfir heimilisarinn langrar framtíðar, fellur hula harms- ins á áugun og blindar útsýn til næsta augnabliks. Sá harmur verður aldrei skilinn, en hann verður skynj- aður með öllum mætti mannlegra tilfinninga. Þó eru til geislar, sem sundra öilum skuggum eftir stundarskin. Syrgjendum Sigurlaugar hefir verið gefinn slíkur geisli, sem dimma dauðans veitir aukið ljósmagn. Við gröfina rís upp vagga, sem bendir fram á leið. í óvitans æskugleði og hlátrum er lifsdjörfung, sem Iyftir þyngstu byrðum. 25. júní 1922. Ritfregnir. Jón Helgason biskup: Islands Kirke fra Reformationen til vore I)age. Framhald. Yfirleitt má það helst að bókinni finna, að ofmikið sé um það hugsað, að hrúga saman sögulegum fróðleik. Biskuparnir eru aðalviðfangsefnin, æfi- ferill þeirra og afrek, þótt ekki sé gengið fram hjá öðrum merkismönnum, sem eitthvað liggur eftir f bókmentum eða öðrum andlegum afrekum. Helst til lítið virðist að því gert að draga upp Ijósar og lifandi myndir af trúar- Kfinu, mentunarástandinu, menningar- stefnum eða andlegum straumum á ýmsum tfmum. Alt slfkt verður les- andinn að mestu leyti að ráða af at- burðunum og æfilýsingum þeirra manna, sem við stjórnvölinn stóðu. Nú er þess að gæta, að svo vel má sögu segja, að atburðirnij lýsi sjálfir þeim hugaröldum, sem bærast f brjóstum mannanna, og Jón biskup Helgason nær einmitt oft þessum tökum á frásögn- inni. En skemtilegri hefði bókin verið aflestrar, ef fleiri kaflar hefðu verið skrifaðir Ifkt og kaflarnir um Jón Vída- lín og um fræðslustefnu Magnúsar Stephensens. Það setr. gerir niðurlag bókarinnar einkum veigalítið er það, að höfund- urinn virðist veigra sér um of við að sýna muninn á þeim ólíku andans stefnum, sem nú krefjast rúms innan þjóðki’rkjunnar islensku. Furðulegt er það næstum, að varla skuli nefnd á nafn þau áhrif, sem hingað hafa borist frá biblíurannsóknunum þýzku. Og þegar höfundurinn segir að baráttan milli eldri og yngri skoðana f trúmál- um sé í þann veginn að hverfa, þá finst mér, og líklega fleirum með mér, an hann horfi meira inn f si'nn eigin barm en út yfir björðina. Sennilega afáakar höíundurinn sig með þvf, að þeir stormar, sem nú standa um trú- málin og líklegir eru til að vara nokkuð enn, séu ekki milli hinna svo- nefndu gömlu og nýju guðfræði, heldur séu það aðrar stefnur, sem kyljunum valdi, og þær stefnur komi ekkert kirkjunni við (guðspeki, spiritismi o. s. frv.). En of mikinn þátt eiga stefnur þessar f trúarlffi núlifandi kynslóðar á landi hér, til þess að hægt sé að ganga svo að segja þegjandi fram hjá þeim, þegar sögð er saga fslcnsku kirkjunnar á voium dögum. En þarna virðist einmitt liggja veilan í öllum þessum kirkjulegu sam- vinnutilraunum. Eftir því sem rit hinnar dönsku kirkjunefndar bera með sér,. virðist þar af ásettu ráði gengið fram hjá þvf róti, sem nýjustu sálarrannsóknir og kenningar guð- 30 Stjórnmálalíf. Hinar miklu frelsisöldur, sem gengu yfir Norður- álfuna laust fyrir miðju síðustu aldar, náðu til- tölulega fljótt til íslands og þar var jarðvegurinn orðinn talsvert undirbúinn, svo veruleg frelsis- barátta gat hafist. Þjóðin fann fjötrana, sem að lienni krepptu og nú hafði henni vaxið kjarkur og bjartsýni á þessum óvanalegu árgæzkutímum. En eins og hreyfingin kom frá útlöndum, eins var baráttunni stjórnað frá öðru landi, frá íslend- ingum í Danmörku. Hin mikla persóna Jóns Sig- urðssonar ber svo hátt yfir samtíðina, að stjórrt- málasaga íslands á hans tímum, er mestmegnis frásögn nm það, hvernig íslendingar tóku á émóti tillögum hans og reyndu að koma þeim í fram- kvæmd. Eyfirðingar tóku mikinn þátt í stjórnmáiabar- áttunni og tillögur þeirra og bænaskrár voru stundum hinar beztu og ítarlegustu, sem fram komu. Aftur á móti sóttu þeir lítið Þingvalla- fundina; mun fjarlægðin hafa verið þess valdandi. í sýslunni var engin stjórnmálaskörungur til á þessum tímum. Þingmaðurinn, Stefán Jónsson á Reistará, var greindur maður o^ gætinn, en engin sérlegur atkvæðamaður. Ekki gengu heldur em- bættismennirnir í fararbroddi. Þeir voru sumir hverjir andvígir öilum frelsiskröfum. Er þar fyrst að nefna Grím amtmann. Prestarnir voru í sum- um sýslum, hinir helztu leiðtogar bænda í bar- áttunni, en í Eyjafirði var öðru máli að gegna. 31 Þeir virðast hafa verið áhugalitlir og áhrifalausir í opinberum málum. Bændurnir urðu því ein- göngu að treysta á sjálfa sig og skulum vér nú athuga hvað þeir lögðu til málanna. Á þessum tímum, þegar ’engin blöð og -engin prentsmiðja var til í sýslunni, var það næsta erfitt fyrir leiðtogana að útbreiða skoðanir sínar. Funda- höld voru eini vegurinn. En stórir mánnfundir voru sjaldan haldnir, heldur komu nokkrir af hin- um heldri bændum saman og rökræddu málin, bjuggu til bænarskrár og samþyktu tillögur. Síðar voru bænarskrárnar sendar um sýsluna og safnað undirskriftum. Vanalega voru menn fúsir til þess að skrifa undir þær, svo þegar þær komu til stiftamtmanns eða Alþingis, bentu þær á einhuga vilja sýslubúa. Stundum voru þó haldnar fjöimennar sam- komur til pess að ræða um stjórnmál. Helzt voru þær haldnar á Akureyri, Grund í Eyjafirði og Skriðu í Hörgárdal. Þau mál, sem mest var hugsað um á þessum tímum, voru stjórnarskipunarmálið, fjárhagsmálið og verzlunin. Þegar 1845 sendu Eyfirðingar svo- hljóðandi bænarskrá til hins fyrsta Alþingis í Reykjavík. 1. Að kosningarréttur sé veittur ölltim mynd- ugum mónnum, með óspiltu mannorði og í hverri stétt, sem þeir eru, sem eiga finim hundruð í tíundbæru fé, föstu eða lausu, eða hvorttveggja til samans, eða hús í verzlunarstöðum, sem metið sé þar á borð við eftir tiltölu. 32 2. Að kjörgengi verði látin óbundin með öllu. 3. Að Alþingi fái 42 þjóðkjörna þingmenn. 4. Að alþingiskostnaðurinn verði fyrirfram tek- 'inn af gjaldasjóð landsins, þangað til færi gefst á að lagfæra skattalögin og útvega sjóðnum rífari tekjur. Þessar tillögur eru einkar frjálslegar samanborið við tíðarandann og víst má telja, að bænarskráin hafi birt nokkurnveginn greinilega vilja sýslubúa, því undir henni stóðu 284 nöfn. Þeir héldu líka fast við þessár skoðanir á hinum hörðu baráttu- tímurn, sem nú fóru í hönd. Þá v.oru Eyfirðingar fyrstir allra landsbúa til þess að heimta af stjórninni, að hún gerði reikn- ingsskil fyrir fjárhag landsins. Á hinu fyrsta Al- þingi lagði Stefán Jónsson fram bænarskrá úr Eyjafirði, þar sem stjórnin er beðin um reiku- ingsskil fyrir 1. koilektupeningunum, 2. mjölbótapeningunum, 3. andvirði seldra stólsjarða, 4. andvirði seldra klausturs- og konungsjarða. Um þetta urðu harðar deilur í þinginu. Kon- ungsfulltrúinn Bardenfleth reyndi að eyða málinti og hélt því fram, að þessi atriði væru að mestu afgreidd og úr sögunni. Samt var sett nefnd í málið og þó ekki kæmi strax í Ijós neinn árang- ur af starfi hennar, þá var nú sú hreyfing vakin, sem ekki varð stöðvuð. Þessi nefnd fékk einnig til meðferðar aðra bænarskrá úr Eyjafjarðarsýslu. Hún fór fram á, að fyrir Alþing væru lagðir ár-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.