Dagur - 14.09.1922, Side 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtudegi.
Kostar kr. 6.00 árg. Ojalddagi
fyrir 1. júlí. Innheimtuna annast
ritstjóri blaðsins.
AFOREIÐSLAN
er hjá Jónl Þ. I>ór,
Norðurgðtu 3. Talsími 112.
Uppsögn, hundin við áramót,
sé komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
Akureyri, 14. september 1922.
37. blaö.
M-Ó-O-F-N-A
mjðg góða, hentuga f baðstofur og sveita-
heimili, útvega eg. Þeir, sem hafa reynt
ofnana, ljúka lofsorði á þá. Byrgðir fyrir-
liggjándi.
Jón Stefánsson.
Talsfmi 94. 2^ Akureyri.
Breyttir búliættir.
(Framh.)
Lífskröfurnar.
Mörgum er oröið ljóst, þó það sé
ekki enn orðið þjóðinni nógu Ijóst,
hversu lifskröfur manna hér á landi
hafa vaxið gífurlega á síðustu ára-
tugum. Með aukinni alþýðu- og há-
skólamentun, auknum samgöngum
og blómgun atvinnuveganna hefir
smátt og smátt færst nýr bragur
yfir alla lifnaðarhætti. Einkum kveður
mikið að þessu í kaupstööum lands-
ins. Svo mikla þrá virðast margir
hafa eftir því, að snföa lifnaðarhætti
sfna eftir erlendum fyrirmyndum í
einu og öilu, að sú viðleitni leiðir
fólk út í mjög viðsjárverðar öfgar.
Ufnaðarhœttirnir verða í algerða ósam-
rcemi við landshœltina. Lffskröfurnar
vaxa verklegri og fjármunalegri getu
þjóðarinnar langt yfir höfuð. Pað er
eins og mikill hluti þjóöarinnar lifi
f einskonar paradísardraumi um líf
í Iandi auös og allsnægta með óbil-
andi gjaldþoli einstaklinga og þjóðar-
heildar, — einhverju öðru og auð-
sælla landi en fsland er, eins og því
er háttað í dag og verður á morgun.
Uppgangsárin svokölluðu, þegar
stórkaupmenn og stórútgerðarmenn
veltu sér í peningum og þjóðin
u4kk sem snöggvast fullar hendur
fjár, munu hafa átt drjúgan þátt í,
,að auka lffskröfurnar. Paö er auð-
weldara að veita sér og venja sig á
■uukið eftirlæti, þegar ástæðurnar
leyfa, en að venja sig af uppteknum
hætti, þó nauðsyn krefji. Pjóðin hefði
að líkindum verið sízt ver stödd, þó
hún hefði aldrei grætt neitt á öfgum
striðsins. Sá gróði er orðin henni
hefndargjöf.
Með fuliveldinu hafa lfka stórir
draumar stigið okkur til höfuðs. Við
streytumst við að semja okkur að
siöum stærri þjóða um getu fram.
Embættabákniö hvílir þungt á herð-
um þreklítillar þjóðar. Pað verður
mikiil vandi, að koma þeim málum
svo fyrir, að fullnægt verði réttmæt-
um kröfum okkar til fullveldislegra
stjórnarhátta á þann hátt, sem okkur
verður kleift
Sparnaöur.
Mest hefir verið um sparnaöinn
rætt og deilt, ekki einungis sparnað
á hverju heimili, heldur þjóðarinnar
allrar. Stórum hluta af landsbúum
hefir virzt, að ef við gætum ekki
skift við aðrar þjóðir öðru vísi en
okkur í skaða, yrðum við að minka
þau viðskifti, þar til betur blési og
grynka um leið á skuldunum. Fjölda
manna hefir virzt það vera svo ein-
falt mál, sem mest gæti verið, að
ef einhver einstaklingur tekur meira
út í reikning sinn, en hann er fær
um að gjalda inn í hann, þá verði
hann að sníða úttektina eftir gjald-
þolinu, ella , sökkvi hann dýpra og
dýpra í skuldir. Og það sem er
þannig staðreynd um einstaktinginn,
er það ekki síöur um þjóðina. Hún
er aðeins einstaklingur í þjóðahópn-
um, sem fer halloka f þjóöaviðskift-
unum. Prátt fyrir augljós deili þessa
máls hefir ekki verið hægt, að koma
til leiðar sparnaði sem skyldi, ekki
á heimilunum og því síður á þjóðar-
heimilinu öliu. Allar tilraunir hafa
mishepnast, nema fyrri skömtunin.
Til þessa hafa legið þrjár höfuðor-
sakir. í fyrsta Iagi er þjóöarviljinn
veikur, að leggja á sig nokkuð það,
sem er einstaklingnum andstætt á
hverjum tíma, þó mikið liggi við. í
öðru iagi hefir andstaðan verið
hörð hjá þeim, sem lifa á því, að
þjóðin eyði sem mestu og þó einkum
mestu af lítt þörfum varningi eða
óþörfum. í þriðja lagi virðist þingið
hafa verið mjög háð vilja höfuð-
staðarbúa í þessu máli og fleiri mál-
um og það svo, að þó þingið hefði
stuðning mikiis meiri hluta lands-
búa í einhverju sliku máli, mætti
vænta að minni hluti réði úrslitum,
ef hann aðeins væri reykvfskur.
En hvernig sem þessu máli er
velt til álits, er vist, að sparnaðurinn
er eina ráöiö, sem að haldi gæti komið
nógu fljótt. Ef bjarga á manni frá
druknun, eru skjót ráð, þó tvfsýn
séu, meira verð hinum, sem tryggja
það að vísu, að manninum verði
náð, en að likindum ekki fyr, en
hann er druknaöur. En þau ráð,
sem eru hvorttveggja, skjótverkandi
og einsæ til góðs árangurs, ættu
ekki að orka tvímælis.
(Meira.)
Stáltunnur. Sú nýlunda hefir gerst,
að Landsverzlun hefir fiutt inn stein-
olíu í stáltunnum. Er þetta mjög
mikilsverð umbót, því olían hefir
drjúgum lekið niður úr eikarfötunum
til stórskaða fyrir kaupendur.
Símskeyti.
Reykjavik, 13. sept.
Rússneskir einvaldssinnar hafa
beðið Dagmar keisaraekkju að
tilnefna keisaraefni fyrir Rússa.
Óháðir og hægri jafnaðar-
menn Þýzkalands sameinast í
einn flokk.
I Efri-Schlesíu hefir pýzki
hlutinn samþykt að sameinast
Prússlandi með 400 pús. atkv.
meirihluta. j
Enskir bankar bjóða Austur-
ríki 30 milljóna sterlingspunda
lán gegn tryggingu í tolltekjum
ríkisins.
Grikkir hafa undanfarna daga
beðið mikla ósigra í Litlu-Asíu
fyrir Tyrkjum. Smyrna tekin her-
skildi og 40 pús. Grikkir hafa
verið teknir til fanga. Af Grikkj-
um hafa fallið 30 pús. Land-
settar sveitir bandamanna vernda
íbúana. Grikkir beiðast ásjár
bandamanna.
Mikil ráðstefna um kaupdeilur
verður haldin í Genúa í Októ-
ber.
Símablaðið hefir gert árás á
Forberg landssímastjóra. Er svo
að sjá, sem sumt af starfsfólki
símans hér í Reykjavík fylgi pví
að málum.
Fréttaritari Dags.
F r é 11 i r.
Guðmundur Bárðarson kennari,
sem um var getið í síðasta blaði að
hefði fótbrotnað, var fiuttur hingað
inn eftir og gekk flutningurinn ágæt-
lega. Guðm. liggur nú og er ekki illa
haldinn. Gefa læknar honum von um,
að hann geti orðið rólfær að 3 vikum
liðnum. Guðmundur lætur mikið yfir
ferð sinni austur og telur Tjörnes
meira og merkilegra jarðfræðilegt
rannnsóknarefni en sig hefði grunað,
þó mikið væri af því látið.
Afurðasaiatl. Nú sem stendur eru
heldur slæmar horfur um sölu á öllum
fslenzkum afurðum, hversu sem úr
raknar. Fiskurinn er talinn óseljanlegur
vegna ofurmagns norsks fiskjar, sem
haugaðist á markaðinn, þegar úr greidd-
ist samningamáli Norðmanna og Spán-
verja. Ennfremur er það talið spilla
fyrir sæmilegu verði á fslenzkum fiski,
að Copland og fleiri stórsalar hafa
mikið af fiski liggjandi í umboðssölu
á Spáni. Framboðið of gffurlegt, til
þess að markaðurinn þoli það. Sfldin
er f lágu verði og slæmar horfur um
verð á keti.
Síldveiöinni er nú að verða lokið.
Fyrir nokkru var allri söltun hætt, en
skipin hafa sfðustu dagana veitt f
bræðsluna f Krossanesi, sem í ár um-
setur mikið. Sfldveiðiskipin eru nú
hvað af hverju að hverfa heim til
sinna átthaga eftir góða vertfð.
J^orðanþrynu gerði um helgina
sfðustu og snjóaði talsvert f fjöll á
mánudagsnóttina. Frost gerði um leið
svo að kartöflugras f görðum þvf nær
gerféll. Gras sölnar nú óðum. Hey-
skapur mun verða f rýrara lagi, en
þó sumstaðar alt undir meðallag.
Knattspyrnumóí var háð hér á
Akureyri s. 1. laugardag og sunnudag.
Kept var um verðlaunagrip, sem er
silfraður fótknöttur f fullri stærð, gef-
inn af »U. M. F. Akureyrar* og
íþróttafélaginu »Magni« í Höfðahverfi
fyrir þremur árum sfðan. Tvisvar hefir
áður vetið kept um gripinn, árið
1919 vann »Magni< hann og 1921
»U; M. F. A,< og var það því hand-
hafi hans nú.
Leikslok á þessu móti eru talin hér
f sömu röð og kappleikarnir fóru fram:
Magni 10 mörk, Mjölnir o
Þór s — U. M. F. A. o
Magni 3 — Þór 1
Mjölnir o — U. M. F. A. o
U. M. F. A. 3 — Magni 1
Þór 7 — Mjölnir' 1
Vinningar urðu þvf þessir:
Magni 4 stig
Þór 4 —
U. M. F. A. 3 —
Mjölnir 1 —
»Magni< og »Þór< eru jafnir að
stigatölu og verða þvf sfðar að keppa
til úrslita. —
Barnaskólinn. Þar hefir f aumar
verið bætt við einni kenslustofu f
kjallaranum og kennaraliðið hefir verið
aukið um einn stundakennara. Var sú
staða veitt ungfrú Unni Vilhjálsdóttur
frá Heiði á Langanesi með einróma
samþykki skólanefndar.
YfirhjúkrunarkvennasHifti eru
nýlega orðin f Akureyrarspftala. Ung-
frú Elfzabet Eirfsdóttir lét af þvf