Dagur - 30.11.1922, Side 4
158
DAOUR
48. thi.
Ódyrusfu og bezfu
— oliurnar eru: ......— —
Hvítasunna,
Mjölnir, Gasolía og
Bensin B. P. Nr. 1.
Biðjið ætíð um olíu á stáltunnum, sem er
hreinust, aflmest og rýrnar ekki við geymsluna.
Landsverzlun.
ann. Greinin er þvf ekki annað en
vandræðalegt óheilindaklór, til þess
að láta svo virðast, að hann sé að
leggja eitthvað til þessa vandamáls.
Honum hefir farið eins og gömlum og
greindarlitlum konum, sem sagan seg-
ir, að hafi hýtt strokkinn sinn, þegar
hann vildi ekki »ganga*. Ritstj. isl.
byrjar á þvf að hýða Tfmann og tek-
ur svo úr honum smérið. Hann ætti
að halda uppteknum hætti og nota
sér sem mest af smérinu. En hýð-
ingarnar getur hann sparað sér, þvf
bæði eru þær óþarfar og reyna um
of á litla krafta hans sjálfs.
Úr Reykjadal
26. nóv. 1922.
Dagur minnl
Von er til, að þér finnist til um
pennaleti okkar lesenda þinna, en
margt höfum við til afsökunar. Frí-
stundir okkar sveitamanna eru ekki
margar, og þær þá of sjaldan teknar
til að stinga niður penna, þvf margt
fleira leitar þá f hugann, sem nær er
eða mönnum finst nær sér, heldur en
að fara að leggja orð í belg um þjóð-
málin opinberlega. En þetta er þó
lfkast til rangt álitið, þvf f raun og
veru verður þó mest um vert fyrir alla
einstaklinga þjóðfélagains, hvernig lög-
gjöfin tekst, framkvæmd laganna og
stjórn þjóðfélagsins. En svo höfum við
enn okkur til afsökunar póstgöngurn-
ar, þegar við fáum blöðin einu sinni
f mánuði, vöknum við að vfsu, en þá
fáum við of mikið f einu, og svo
koma á eftir 3 — 4 vikur, til að láta
hitann rjúka og svefninn sækja að á
ný.
En þetta póstferðamál ætti að vera
okkur svo mikið áhugamál, að við
legðum þar orð í belg. Eru litlar lfk-
ur til að búnaður vor taki stórstfgum
framförum, meðan við búum við þess-
ar samgöngur, sem verið hafa. Strjál-
ar og vondar ferðir til að koma af-
urðum á markað, og seint og siialegt
póstsamband, sem gerir mönnum ill-
kleift að ná hver til annars sveita og
héraða á milli.
Má okkur vera fagnaðarefni koma
nýja strandferðaskipsins, og við þakk-
látir þeim, er unnu að þvf með stór-
hug og framaýni, að það er. bygt eins
og fyrirhugað er. Er þá vel, ef póst-
stjórn vor verður jafn stórhuga og
framsýn að nota til bóta á póstferð-
unum, ferðir skipsins, svo sem þær
munu fyrirhugaðar. Enda full þörf að
leggja niður ferðir póstanna þvert yfir
fjöll, heiðar og dali, sem bæði eru
etfiðar og dýrar. Skal ekki að óreyndu
efast um að póststjórnin noti hvert
tækifæri, til að koma póstferðunum f
betra og hæfilegra horf.
Skal nú, sem ætlunin var, reynt að
tfna til eitthvað af frétta tægi.
Veðráttan: Sumarið fremur óþuika-
samt og erfitt, sérstaktega sfðari hlut-
inn, haustið og það sem af vetrinum
er, sérlega gott. Þvf mjög lítið búið
að gefa sauðfé enn. Enda veitir ekki
af að spara heyin; þau urðu mjög lítil
eftir sumarið vegna grasbrests, en
fremur munu þau góð. Ostagerðin mun
hafa gengið mjög vel f sumar, svo að
segja allur osturinn 1. flokks vara. Að-
eins of fáir, sem færa frá og leggja
mjólk til ostagerðar. Úttitið er þannig
nú, að osturinn gæti verið ein okkar
arðvænlegasta framleiðsluvara.
Ungtingaskóla halda þau hjónin, Arn-
ór Sigurjónsson og Helga Kristjáns-
dóttir, f þinghúsi okkar að Breiðumýri,
f vetur. Nemendur yfir tuttugu; þar af
14 f heimavist.
Heilsufarið ekki f bézta lægi; geng-
ur heldur vond hálsbólga og lungna-
bólga hefir stungið sér niður.
Fjárkláði er sagt að hafi fundist á
einni kind frá Finnastöðum f Köldu-
kinn, í haust. Heflr stjórnarráðið fyrir-
skipað kláðaböðun á öllu sauðfé f
Ljósavatnshreppi og öllum hreppum
landsins, þar sem orðið hefir vart við
kláða. Eru menn að fleygja því milli
sfn, að kindin hafi gengið á afrétti
Bárðdæla f sumar, og muni þvf eins
mikil þörf að fyrirskipa kláðaböðun f
Bárðdælahreppi lfka; en að það er
ekki gert, stafar þá lfklega af, að
hlutaðeigendur hafa ekki gefið nægar
uppiýsingar um, hvar kindin gekk f
sumar. Er ilt til að vita, að menn
skuli ekki allir geta orðið samtaka
um að gera alt til að ganga milli
bols cg höfuðs á þeim vogesti, sem
fjárkláðinn er.
Og þvf miður mun hann vera enn
við lýði, vegna þess að menn fylgdu
ekki nógu vel reglum þeim, sem
Myklested setti, þegar hann var við
kláðalækningar sfnar hér.
Kemur hér, sem oftar fram að
menn eru sjálfum sér verstir alt of
oft; sfnir eigin böðlar.
X.
Korfmans-þvoffaduff
er ódýrast í reyndinni og bezt. Þvottinn parf ekki að sjóða. Sápa
og sódi sparast alveg. Oerir pvottinn fallegan með lítilli fyrirhöfn.
Reynið petta ágæta pvottaduft. Fæst í
Kaupféí Eyfiiðinga.
Húsgagnavinnusfofa
okkar er flutt í Aðalstræti 12 (Hótel Akureyri „Billiarden").
Virðingarfylst.
/ón & Friðrik Kristjánssynir.
Samband fslenzkia
Sam vin n ufélaga
hefir fyrirliggjandi og útvegar alls konar
LAN DBÚN AÐARVERKFÆRI:
Sláttuvélar, Milwaukee.
Rakstrarvélar, Milwaukee.
Snúningsvélar, Milwaukee.
Brýnsluvélar fyrir sláttuvélaljái.
Plóga frá Kyllingstad Plogfabrik, er hlutu fyrstu viður-
kenningu á Iandbúnaðarsýningfinni í Rvík 1921.
Garðplóga, Pinneberger.
Rótherfi, Pinneberger.
Tindaherfi, Pinneberger.
Arfaplóga, Pinneberger, með tilheyrandi hlújárnum, sem
hlutu sérstaka viðurkenningu á fyrnefndri sýningu.
Rófna sáðvélar.
Forardælur.
Vagnhjól frá Moelvens Bruk.
Skilvindur, Alfa Laval.
Strokka, Alfa Laval o. fl. o. fl.
Ennfremur verkfæraskápa með öllum algengum smíðatólum.
Tilbúinn áburð, gaddavír o. m. fl.
Flest verkfærin hlutu viðurkenningu á landbúnaðarsýn-
ingunni í Reykjavík 1921 og eru valin í samráði við
. Búnaðarfélag íslands, sem einnig gefur upplýsingar um pau.
Tr
ibúðarhús
mitt í Lækjargötu 2. ér til sölu. Borg-
unarskilmálar sérlega góðir. Húsið
verður laust til íbúðar 14. maí n.
k. eða fyr, ef um semur.
Eggert Stefánsson.
Persil
er komið aftur
í
Kaupfélag Eyfirðinga.
Ritstjóri: Jónas Þorht:rgsson.
I’röntsmiðja Odds BjUmssonar.