Dagur - 23.12.1922, Blaðsíða 1

Dagur - 23.12.1922, Blaðsíða 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtudegi. Kostar kr. 6.00 árg. Qjalddagi fyrir 1. júlí. Innheimtuna annast ritstjóri blaðsins. V. ár. Akureyrí, 23. desembtr, 1922. AFOREIÐSLAN er hjá Jónl l>. IÞdr, Norðurgðtu 3. Talsími 112, Uppsögn, hundin við áramót sé komin til afgreiðslumanns fyrir 1. des. j 51. blað. Sleðileg Jól! Jarsælt nýtt ár! áatirtes llaj'atcin. Við lát Hannesar Hafsteins ryðja sér til rúms í hugum manna minn- ingar um stóra atburði í landinu og um stórmenni, sem hætti að lifa með þjóðinni fyrir fimm árum síðan og er nú fyrir fáum dögum að fullu skilinn við þetta líf. Viðskilnað þessa manns hefir að borið með öðrum hætti en.þeirra manna annara, sem þjóðin getur með réttu talið sína fremstu menn. Um fall hans blikar ekki Ijómi fræknleika foringjans, sem fé!I í síðasta og vasklegasta áhlaup- inu. Fyrir fimm árum sloknaði gáfna- Ijós hans og síöan hefir um minn- ingu hans verið reifað rökkrí hljóð- láts sársauka, þar sem hefir verið talað í háífum hljóðum um hann, glæsimanninn, þjóðskáldið, stjórn- málamanninn. þrátt fyrir fimm ára ömurlega auðn í stórglæsilegu og athafnaríku Iífi þessa manns orkar dauðinn sjálfur því, að vekja þjóðina til skiln- ings á þeirri skyldu sinni, að minn- ast þess, að hún hefir átt mikinn mann, sem nú er dáinn. Þjóð, sem er rík að viðfangsefnum en íátæk að foringjum, má ekki f vanrækja þann þátt í vitundarlífi sínu, þar sem von vakir um handleiðslu góðra manna gegnum vandamál framtiðar- innar. En sá þáttur er unnin úr minningum um og þekkingu á nokkrum ágætismönnum, sem guð hefir gefið þessari fámennu þjóð. Þó getur æfisaga Hannesar Haf- steins ekki orðið rakin hér, né hann oröið skilinn, svo sem þyrfti að vera. Aðeins örfáir megindrættir eru nauð- synlegir, til þess, við dánarkveðju, að glöggva yfirsýn um endaðan æfiferil. Hann á kröfu til meira rúms og betri skila í bókmentura okkar, en hér er ráð á. Væntanlega lætur Söguþjóðin hann ekki liggja óbættan hjá garði. Hannes Hafstein er fæddur á Möðruvöllum í Hörgárdal 4. des. 1861, sonur Péturs amtm. Havsteens og konu hans Kristjönu Gunnars- dóttur frá Laufási, sem iifir son sinn í hárri elli, 86 ára gömul. Hann varð kandídat í Iögfræði 1886. Arið 1889 varð hann landritari og sýslumaður í fsafjarðarsýslu 1895. Hann kom fyrst við stjórnmál hér á landi á Þingvallafundi sumarið 1888. Var kosinn þingmaður fyrir ísafjarðarsýslur árið 1900. Var strax á þingi 1901 kjörinn fulltrúi og sendimaður Heimastjórnarfíokksins á konungsfund. Kyntist þar fremstu stjórnmálamönnum Dana. Mun sú viðkynning hafa átt sinn þátt í því, að árið 1904 var hann skipaður ráðherra íslands og hélt því sæti þar til árið 1909 Varð síðar ráð- herra frá 1912-1914. Hann féll viö kosningu í ísafjarðarsýslu árið 1902 en var kosinn árið eftir þingm. Ey- firðinga og hélt því þingsæti þar til árið 1916, að hann varð lands- kjörinn þingmaður. Árið 1888 kvænt- ist hann Ragnheiði dóttir Stefáns Thordarsens prests í Vestmannaeyj- um en kjördóttur Sigurðar Melsteðs, Iektors. Hann misti konu sfna 1913. Eítir hann lifa sjö dætur og einn sonur. Haustið 1915 varð Hannes Haf- stein fyrir mjög alvarlegri heilsu- bilun, sem ágerðist og síðan 1918 hefir hann að mestu verið rúmfastur. Ekki mun hann að jafnaði hafa Iiðið miklar Iíkamlegar þjáningar, en alvarleg heilabilun/ sem orsak- aði algert minnisleysi, hreif hann svo að segja burt úr tölu lifandi manna. Þó mundi hann það, er gerðist, áður en heilsa hans bilaði. Þar sem gera verður ráð fyrir, að í sál þjóðarinnar og í starfsemi hennar vaki meira og minna Ijós viðleitni til framþróunar er mest ástæða til að festa sjón á fremstu mörkum. Misstigin spor, undanhald í bili og ósigrar eru ekki annað en fórnir á altari mannkynsframfaranna. Fremstu mörkin eru nýir sigrar, sem veita nýja fótfestu og stærri vonir. Stigi þjóðin djarft spor og fái staðist nýja aðstöðu frarnar á Ieið en áður, hefir henni þokað í áltina til stærri sigra. Eignist þjóðin mikinn mann, er hann fyrirheit um annan meiri. Eins og ber að meta þjóðina eftir fremstu mörkum, ber að meta hvern mann eftir því, sem hann hefir komist lengst. Og eftir þeirri reglu eru engin vandkvæði á, að meta Hannes Hafstein mikils. Um margt hefir hann skorið sig úr og hann hefir stigið feti frarnar, en áður hefir verið stigið á landi hér. Baráttumálin gömlu, þar sem Hannes Hafstein og andstæðingar hans risu hæst, eru hjöðnuð. Ný viðfangsefni skifta hugum þjóðar- innar. Skilningur reynslunnar,—sög- unnar óbrigðuli sáttasemjari, — slær nú þegar ljósi sínu víðsvegar yfir svið þeirra mála og beiskja barátt- unnar hjaðnar eins og dögg fyrir sólu. Kærleikans eigin viögangsvon á jörðu hér, er bygð á þeim skiln- ingi, sem dauðinn og reynslan veitir. Sá skilningur er og vígi réttlætisins. Gamalt ósamþykki horf- inna deilumála fellur máttvand nið- ur við þá virkisveggi. Andstæðingar Hannesar Hafsteins geta metið hann mikils, án þess að meta sjálfa sig lítils. Um það hefir aldrei verið neinn ágreiningur, að Hannes Hafstein var skáld. Hann var fremur róman- tískt skáld en raunsætt. Þrek og djarfmannleg lífsgleði einkenna kvæðin. Hann var ekki djúpsækinn í skáldskap, heldur brattasækinn og um það gefið, að fá hátt sjónarmið til yfirlits í ríki náttúrunnar. Vegna óvenjulegrar lífsbirtu, sem var um- hveifis hann, var hann glöggskygn á fegurðarmyndir náttúrunnar og komst mjög framarlega í því, að fella þær myndir í umgerð Ijóð- Iistarinnar. Um stjórnmálamensku Hannesar Hafsteins hefir verið mikill ágrein- ingur. Tvö mál ber hæst í deilunum frá hans stjórnartíð, símamállð og sambandsmál Dana og íslendinga. Hér er ekki hægt að fara langt út í þau mál. Um fyrra málið virðist óneitanlega, að Hannes Hafstein hafi haft rétt fyrir sér en andstæð- ingar hans rangt. En það eitt verður ekki metið honum til mikils vegs- auka, né þeim til hins gagnstæða, með því að málið orkaöi mjög tví- mælis á þeim tíma, sem um það var deilt. Hannes Hafstein vex ekki eins mikið á sínum málstað, þó góður reynist, eins og á sókn þess máls, sem síðar verður vikið að. Um síðara málið er engum manni fært að dæma. Reynslan er svo stutt og úrskurður hennar er I framtíö- inni. I því máli var boginn spentur meira, en hann taldi rétt (1908). Móti málstað hans mæla þau hugs- unarréttu líkindi, að viðráðum ald- rei við það viðfangsefni, að vera sjálfstæð þjóð, fyr en við höfum viöfangsefnið sjálft í höndum. Með þvi er ekki sagt, að við verðum menn, til að ráða við það viöfangs- efni, né heldur er af tekið um það. Með málstað Hannesar Hafsteins mælir sá alkunni sannleikur, að fjár- hagslegur grundvöllur þjóðarinnar var veikur og atvinnuvegir hennar ýmist í rústum eða bernsku. Áð fenginni þeirri niðurstöðu, er hann taldi viðunanlega, mun hans hug- sjón hafa verið sú, að þjóðin tæki sér 25 ára hvíld í stjórnmálarifrild- inu við Dani, sem hún eyddi svo miklum kröftum í og sneri sér að innanlands málum. Úrskurði reynsl- unnar er einsætt að hlíta fremur en getspeki núlifandi manna um það, hvernig sjálfstæðisbaráttu okkar, sem nú fyrst er í alvöru byrjuð, reiðir af. Óháðri athugun virðist stjórnvizka Hannesar Hafsteins ekki hafa verið svo ótvíræð, að hann fyrir þá sök eina gnæfi hátt fyrir sjónum þeirrar kynslóðar, sem nú lifir. Aðrir hæfi- leikar hans lyfta honum hærra. Þeim hæfileikum er bezt lýst með einu orði, sem alt af verður bundið við nafn hans. Hann var foringi. Gáfur, glæsimenska, mælska safnaði um hann liði. En mestu orkaði þó um fylgi við hann og um framgang mála, að hann skildi hlutverk foringj- ans og brást því ekki. Hann átti sterk- ann vilja og hann átti haröan hnefa, sem hann þorði að leggja á botðið á úrslitastund. Þetta kemur Ijósast fram í símamálinu og verður því að at- huga það nánar. í því máli átti Hannes Hafstein við andstæðing að etja, sem var Iíka mikiimenni og þorði að leggja hnefann á borðið. Björn Jónsson fylgdi andstöðunni fram ekki með neinni hálfvelgju. Fyrir hans atfylgi brá til þeirra tíðinda hér á Iandi, sem fátíð eru, en mannsbragur er að. Hann kvaddi upp til fylgdar við sig bændur og búalið á túna- slætti, til þess að riða í fylktu liði á hendur ráðherranum og mótmæla ráðstöfunum hans í því máli? Þá var ókyrt í landinu og ofsi deil- unnar náði tökum í hvers manns huga. En á þeirri stundu óx Hannes Hafstein mest. Hann setti hnefann fyrir brjóst ofstoþanum og mælíi þau orð, er að margra dómi þóttu stappa nærri dauðasök: «Við hirðum ekki um goluþytinn utan af Iandinu, þetta mál skal fram.« Von er að sú þjóð, sem hefir öldum saman, að miklu leyti haft Danahatur að stjórnmálalegu viður- væri á aðra hönd en á hina skiln- ingslítinn rembing fornrar frægðar og er fyrir þá sök orðinn full af fyrirsjálftilli þverúð, léti sér blöskra slík ummæli eins og á stóð. Hjá þjóð, sem hefir verið misþyrmt

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.