Dagur - 31.05.1923, Blaðsíða 3
23. tbl.
DAOUR
85
mjög ákveðíð krafist þess af stjórnar-
völdum ríkisins, að lögin um gripahús
yrðu endurskoðuð og þeim breytt tillp
batnaðar, þannig að þau skylduðu'
menn til að byggja betri og hag-'
kvæmari peningshús, en tíðkast hefir
til þessa og hefir þetta borið tals-
verðan árangur til bóta. Einnig hefir
félagið útbreytt siökkviáhöld, sum
ókeypis, verðlaunað þá, sem sýnt hafa
hugrekki við að bjarga skepnum úr
eldsvoða, Bkrifað í allar áttir viðvíkj-
andi málinu og hefir það borið mikinn
árangur.
Skepnii- I Félagið hefir vakandi
fluintngur. | auga mcð því, hvernig
Þær, sem fluttar
Guðrún Jösefsdóttir
Breibumýri.
tarið er með skepnur.
eru á iandi eða sjó. Hefir það fengið
breytt mikið til bóta, ákvæðunum, um
hvernig skepnur skuli fóðraðar á þess-
um ferðalögum og hafa járnbrautar-
félögin létt mikið undir með D.v.fél-
aginu, með að ganga atrangt eftir að
reglum þessum sé hlýtt.
Um flutning dýra á sjó, er nokkuð
öðru máli að gegna. Þó hefir félagið
fengið því ágengt, að lögregian ásamt
dýralækni, hefðu eftirlit með því hvort
skepnurnar væru flutningsfærar og
þcgar þær kæmu á áfangastað, gæfi
dýralæknir vottorð um útlit þeirrá og
ásigkomulag.
Þegar eg tala um þetta kemur
óboðin í huga minn gömul og Ijót
endurrainning frá haustinu 1915, Eg
var þá á leiðinni til útlanda (með
Ceres gömlu.) Hestar voru með í
lestinni. í Leith var lestin opnuð og
aáum við farþegarnir ofan f hestakös-
ina í lestinni og var það ófögur sjón.
Svo þröngt var að fá af hrossunum
gátu legið, vatn eða annað fóður var
hvergi sjáanlegt, enda ekki hugsanlegt,
að hægt væri að bera vatn eða hey
til hvers og eins og í slíkri þvögu.
Eitt trippi hafði staðið með mjaðmar-
hnútuna upp við eina járnstoðina alla
leiðina og hafði núist svo, að dreirði
úr. 2 hryssur höfðu látið fyljunura,
leið auðsjáanlega afarilla. — Svona
var nú útlitið á þeim litla hluta af
þessum hrossahóp, sem við fárþeg-
arnir sáum ofan um lestaropið. Okkur
ofbauð. En hvað var hægt að gera.
Ekki var líklegt, að það hefði mikið
að segja, þó nokkrir farþegar færu að
>gera röfi« út af þessu, enda kom
það á daginn, að slíkt var árangurs-
laust. — >Vi forstaar os paa Dyre-
transport* var svarið sem við fengum.-—
Þetta var nú útúrdúr, en eg gat ekki
annað en minst þessa f sambandi við
skepnufiutningana i útlöndum, sem eg
var að tala um. Eftir þvf sem eg bezt
veit, er meðferðin á útflutningshestum
héðan orðin betri en var á þessum
árum, þó mörgu sé enn ábótavant og
á vonandi eftir að batna enn.
Meira.
raun eg þreyta Iesendur
blaðsins með löngutn eftirmælum
vegna hennar. Hún vildi aldrei valda
öðrum óþægindum og eg vil gæta
þess, að bregðast ekki þeirri lífsreglu
hennar.
En eg hefi heitið sjálfum mér
því, að geta burtfarar hennar sér-
staklega. Sú ákvörðun er nokkuð
gömui. Enn eldri er óljós þrá mín,
að þakka á sérstakan hátt það, sem
hún var mér, ungum og auðnulitlum.
Sú þrá er frá þeim tíma, er við
tvímentum í smalaferð. í þeirri ferð
komumst við inn í víðáttu heiðanna,
þar sem rakna af mannssálinni aliir
fjötrar hversdags anna og erfiðis. fá
sagði hún margt það, er mér verður
minnisstætt til banadægurs og sem
hjálpar mér til að skiija sálir eins
og hennar, viðlíka fórnfúsar og kær-
leiksríkar. Sálir, sem fara því nær
alls á mis nema þeirrar sælu, sem
felst í sjálfsfórninni.
Stærstu dræltir sðgu hennar geta
orðið sagðir í mjög fáum orðurn. Eng-
in kona er betur fallin, en hún var, til
þess að lauga barnssáiir í móðurkær-
leika. Pó var móðurþrá hennar látið ó-
íulinægt. Þess naut eg og aðrir móö-
urieysingjar, sem urðu á leið hennar.
Alt líf hennar var siitalaust starf í
verkahring ættmenna hennar og
skylduliðs; það var möglunarlaus
starfsfórn, en jafnframt naut hún
heimilis í skjóli bróður síns og hún
naut fölvskalaus kærleika og virð-
ingar allra, sem voru henni samtíöa.
Og nú er saga hennar sögð.
Dánardægur. Þann 19. þ. m. ánd-
aðiat á Húsavfk, Sigurborg Kristbjarnar-
dóttir, kona Jóns Isfjörðs skósmiðs
hér í bæ. Var hún í kynnisför- hjá
syni þcirra hjóna er hún lézt. Llkið
var flutt hingað til greftrunar. Þá er
nýlega dáinn hér á Sjúkrahúsinu Bene-
dikt Þórarinsson frá Húsavfk, gatnall
maður. Keldhverfingut að ætt.
Siðan eg kom til fullorðinsáre hefi
eg skilið það til fulls, að hún átti,
eins og eg og þú, lesari, djúþa,
sterka þrá, eftir því aö njóta þess
dýrasta, sem Iffið á tii: kærleika
þess, unaðar og hrifningar. Að sumu
naut hún þess á takmörkuðum verka-
hring og kærfeiksmildri aðhlynningu
þeirra, sem hún umgekst. Pað, sem
ekki fékst á þann hátt, sótti hún út
í heim drauma sinna.
Eg gleymi þvf aldrei, með hvf-
likri ást og lotningu hún talaði um
Hvannalindar. Þar hugðist hún aö
reisa sér bæ. í faðm tveggja slag-
æða öræfanna; Kreppu og vestari
kvíslar Jökulsár á Fjölium var draum-
heimur hennar og æfintýraland. Eng-
inn, sem á fleyga sál, er svo auðnu-
laus og öllu sviftur, að hann eigi
ekki, þessa heims eða annars, friðað-
an blett, þar sem þrá hans er full-
nægt, þar sem sófin hlær á rjóöum
æskuvöngum, sem geta aldrei elzt
fremur en sjálfur guðs kærleikur.
Og nú er eftirmælunum hennar
lokið. Yfir Hvannalindum leikur sól
vorsins og háfjallablærinn fær sér
þar morgungöngu. Hugur minn
spyr: Er Ouðrún komin tif þessa
draumalands síns eða á annan við-
ifka stað? Er ekki þrá hennar, sem
alla æfi varð að draga sig f hlé,
eins og fátækt barn á rfks manns
heimifi, orðin ung og djörf og stór?
Er annað hægt f rfki tilverunnar, en
að veröa víð þrá kærleikans?
Símskeyti.
1 Rvík 28. niaí.
Ófriðarútlií var um stund milli
Tyrkja og Orikkja, en nú hafa
samningar tekist, með því að
Grikkir hafa Iátið af hendi Kalag-
alch-héraðið, sem skaðabætur.
Jafnaðarmenn (kommúnistar)
hafa tekið yfirráðin í Gelsen-
kirchen og hafa borgina á valdi
sínu. Forsætisráðherra flúinn úr
landi, vegna ótta við uppreistar-
menn.
Halvorsen látinn. Ráðuneytiö
lrefir beiðst lausnar.
Öldungadeild franska þingsins
kom saman, sem ríkisdómstóll
í máli sameignarmannsins Canas
Hier, sem sakaður var um undir-
róður móti töku Ruhrhéraðanna.
Meiri hluti deildarinnar áleit sig
ekki bæran að dæma. Poincare
sendi pá lausnarbeiðni, en for-
setinn neitaði að taka hana til
greina. Poincare situr pví áfram.
Forsetinn kaílar saman pjóöar-
samkomu til að setja á stofn
hæstarétt með nýjum grundvaliar-
lögum. Astæðan sú að öldunga-
deildin vill dæma sameignar-
mennina. Frakkar hafa dæmt
borgina Essen í 90 millj. marka
sekt fyrir spell á talsímaleiðslum.
2. alpjóðasamband jafnaðar-
manna endurreist á Hamborgar-
fundinum.
Nýtt blað farið að koma út
hér. Máigagn íhaldsamra bænda.
Heitir Vörður.
Togararnir afia vel.
Rvík 30. niaí.
Þýzka markið faliið mjög mik-
ið lægra en austurrísk króna.
Frakkar hafa lagt hald á 80
milliarða ríkismarka í ríkisbank-
anum í Essen.
Vald sameignarmanna (jafn-
aðarmanna) vex mjög i Ruhr-
héruðunum og suðurpýzkum
borgum.
Berge fjármálaráðherra er skip-
aður forsætisráðherra í Noregi.
Baldvins er kjörinn foringi
Brezkra íhaldsmanna og var
fagnað mjög.
Brezki Miðjarðarhafsflotinn
hefir brotist gegnum Hellusund
prátt fyrir mótmæli Tyrkja og
inn í Svartahaf; samtímis hefir
brezki flotinn verið kvaddur
brott úr Norðuríshafinu.
Vestmannaeyjar eru einangr-
aðar vegna taugaveikinnar,
Aflabrögð eru góð í Sandgerði.
Einnig á togurunum.
Fréttav. Dags.
Hljóðfæri,
— orgel harmonium og piano —
beztu tegundar útvega eg undirrit-
aður frá Þýskalandi. Verðið lægra
en kostur er á annarsstaðar.
Upplýsingar gefnar og verðlistar til
sýnis.
Sigurgeir (ónsson.
Lambskinn
kaupir
Haraidur Guðnason
F r é t f i r.
Island kom að kvöldi þess 26. þ.
m. Fjöldi farþcga var með skipinn.
Meðal þeirravoru: Forsætiaráðherrann
s’g- Eggerz á leið til konungsfnndar.
Geir Zoega landsverkfræðingur, til
þess að koma af stað brúarbygging-
unni yfir Eyjafjarðará. Matthfas Einars-
son læknir, jón Bergsveinsson forseti
Fiskifélags íslands. Frá útlöndum komu
O. C. Thorarensen með frú og dóttur.
Hafa þau dvalið f Khöfn vetrarlangt.
Freymóður Jóhannesson málari kom
heim úr ítalfuför. Skipið íór aítur á
sunnudagsmorguninn.
Goðafoss kom á sunnudagsmorgun-
inn á leið frá Rvík og til útlanda.
Meðal farþega varHalIgr. Þorbergsson
bóndi á Halldórsst. f Laxárdal. Kom
hann úr utanför, er hann fór þess
erindis, að kynna sér, hvort takast
mætti að fá hentugar tóvinnuvélar
fyrir heimilisiðnaðinn.
* /
Tunnusmiðja sem Bræðurnir Esp-
holin hafa komið upp hér í bænum,
er nú tekin tii starfa. Eru um þessar
mundir smíðaðar þar 200 tunnur dag-
lega. Tunnurnar eru mjög sterkar og
álitlegar. ,
Taugaveiki œjög illkynjuð hefir
gosið upp f Vestmannaeyjum. Eru svo
mikil brögð að útbreiðslu hennar að
orðið hefir vegna sóttvarna að stöðva
fólksfiutning úr Eyjunum. Eitthvað
mun veikin berast út, því á Sjúkra-
húsinu á Akureyri liggur maður þungt
haldinn f veikinni. Er hann nýlega
kominn frá Vestmannaeyjum.
Athygli bænda er vakin á auglýs-
ingu Kaupfélags Eyfirðinga hér í blað-
inu um útfiutning á hrossum. Hrossin
verða flutt ti) Englanda og sökum
mjög hagstæðs gengis á enskum pen-
ingum hefir náðst gott vcrð fyrir þau,
en strax og gengið lækkar falla hrossin
í verði. Þeir sem hafa hross aflögu
rettu þvi að hugsa sig vel um, áður
en þeir sleppa þesau tækifæri, sem
nú býðst.
Tíðarfarið. Hitar sfðustu daga, alt
að 2Q° f forsælu. Tún grænka með
degi hverjutn,