Dagur - 13.09.1923, Blaðsíða 3

Dagur - 13.09.1923, Blaðsíða 3
39. tbl. DAQUR 143 Munið að haldbeztu og ódýrustu vinnufötin fást í Brauns Verzlui). Páll Sigurgeirsson. "I Dömu-kamgarn á kr. 10,50 og 12,00 mt. sér- lega gott I peysuföt, peysu- fatakápur o. m. fl. BRAUNS VERZL. Páll Sigurgeirsson. Símskeyti. Rvík 10. Sept. Manntjónið i Japan hálf miljón, áætlað efnatjón 1000 milj. sterlings- punda. Þjóðabandalaginu liggur við að sundrast. Fulltrúar norrænu þjóðanna hóta að ganga af fundi. Pjóðabandalagið ræðir grísku deil- una. ítalir standa þar einir uppi. Af- staða Frakka og Spánverja vafasöm. Samþykt að alþjóða dómstóllinn i Haag útkljái deilu Grikkja og ítala. ítalir hafa hertekið 3 eyjar viö Grikk- Iand og hóta að senda flotann til Piræus (hafnarborgar Aþenu). Fiumedeilan er að ná hámarki. í Þýzkalandi er rætt um að koma á fót fjárhagslegu einræði. Dollar kostar 40 milj. marka. Ákvæði þýzku stjórnarskrárinnar um eignarrétt og friðhelgi heimilisins, að ekki megi lesa póstbréf numið úr gildi í biii. Frakkar búast við samningatilboöi frá Þjóðverjum um sameiginlegan iðnrekstur. Togararnir Iiggja allir enn. Nokkr- ir vilja fara fyrir gamla kaupið, en Claésen bankastjóri ógnar hverjum þeim, sem fer þannig án samþykkis útgerðarmanna með að heimta greiðsiu á því er þeir skulda og neitun um reksturslán. Menn standa hér forviða yfir slíkri framkomu. Stjórnmálafundur við Ölfusárbrú I gaer. Fréttaritari Dags. f r é 11 i r. Jarðskjálftinn í Japan. Þau undur hafa gerst á jörðunni, að höfuðborgin í Japan, Tokio, hefir hrunið f jarð- skjálftum svo að segja til grunna og síðan brunnið til kaldra kola. Önnur borg, Yokohama er og fallin til grunna. Slðari fregnir herma, að höíuðborgin sé að miklu leyti sokkin í sjó. — Tokio hafði um 2Y2 milljón ibúa en Yokohama rúml. 1 milljón. Sagt er að um Y2 milljón manna hafi farist f jarðskjálftanum og borgarbrunanum. Um 3 millj. ættu þá að vera húsviltar. af þeim, sem bjuggu f þessum borg- um. Vitanlega hafa jarðskjálftar þessir gert vfðar usla. — Örðugt er að gera sér grein fyrir hvflikt reiðarslag þetta er fyrir Japan. Höfuðborgin og fleiri borgir fallnar til grunna. Æðstu menta- stofnanir, mestu byggingar, dýrustu söfn og mikill hluti af öllum þjóðar- auðnum er glatað. Margra ára skeið hlýtur að þurfa, til þess að byggja upp nýja höfuðborg, traustari en fyr og endurvinna glataðan auð að þvf leyti, sem hann getur unnist. Slfkt hlýtur að kosta þjóðina stórar fórnir, miklar þrautir og erfiði. — Ekki hefir enn heyrst um hluttöku annara þjóða f þessari miklu neyð og ógæfu nema að Bandarfkin hafa boðið fram her- skípaflota sinn til þeirrar hjálpar, er hann geti veitt. Leiðarþing. Jónas Jónsson 5. lands- kjörinn þingmaður hefir boðað til leiðar- þinga f þrem sýslum á undirlendi Suðurlands. Sfðastl. sunnudag varfyrsta leiðarþingið haldið við Ölfusárbrú. Auk frambjóðenda var sérstaklega boðið Eggerz, M. Guðm. og J. Magn. kl. 3 var fundur settur og stýrði honum fundarboðandinn sjálfur. Reis þá upp klerkur úr liði Mbl.-manna og lýsti helgidagsbanni yfir þessu fundarhaldi. Af ýmsum ástæðum var ekki unt að taka það til greina. Á fundinum töl- uðu fyrverandi og núverandi dðms og kirkjumálaráðnerrar og lýstu þannig afstöðu sinni til áður nefnds banns. Þegar nokkuð var liðið á fundinn komu úr Rvfk Eggert Claesen og Lárus Jóhannesson. Kröfðust þeir að fá að tala, en var synjað, vegna þess að fundurinn var fyrir Árnesinga og þremur helztu mönnum úr liði andstæðinganna hafði verið boðið. Gerðu þá Claesen og Lárus tilraun, til að hleypa upp fundinum en mistókst og urðu sér til minkunar. Að öðru en þessu fór fund- unnn vel fram. Frummælandinn, J. J. talaði f kl.st. Eggerz, J. Magn. og M. Gu*m. töluðu sinn V2 tfmann hver og 6—7 frambjóðendur álfka lengi hver. Árangurinn at fundinum er talin Fram- sóknarflokknum mjög f vil og er hann sterkastur f sýslunni, sem vænta má. Framboösfund héldu þingmanna- elm Norður Miilaí.ýslu á Fossvöllum á sunnud. var. Mættir voru þar Hall- dór Stefánsson frá Torfastöðum f Vopnafirði, sem býður sig fram af hálfu Framsóknarflokksins og Björn á Rangá, sem býður sig fram upp á þjóðmálaglundroðann. Hinn frambjóð- andi Framsóknarflokksins, Þorst. M. Jónsson alþm. gat ekki mætt á fundi þessum né öðrum fundum, sem haldnir verða austur þar. En þeir fylgjast fast að Halldór og hann og styðja hvot annan, Þ. M. J. með rótgrónu fylgi en Halldór með harðfengni og glæsi- legri sókn máia á fundum, Eru þeir báðir taldir vissir f kjördæminu. Á Fossvailafundinum hafði Halldór hvern manu á sínu bándi að heita mátti. Leiðrétting við greinina f sfðasta blaði >Ræktunarfélagið til sölu«, frá stjóru félagsins, kemur f næsta blaði. Dánardœgur. Látinn er í nótt á heimili sfnu hér f bænum Einar ívars- son, 89 ára gamall. Hann var elzM borgari bæjarins og einn af þeim merkari. BíÓ. Þar er nú sýnd heimsfræg mynd, sem nefnist »Þjóðin vaknar.< Er hún af þrælastrfðinu f Atnerfku og róman ofinn f þá uppistöðu. HljÓmleÍKa heldur Kurt Haeser, snillingurinn þýzki, á föstudaginn kemur f Samkomuhúsinu kl. 9 e. h. »Lífsreynsla til lands og sjávar«. Hvar sem fara hrafnar og mávar hafa þeir úti sinar klær; þótt séu þær bæði svartar og gráar af sömu hvötum stjórnast þær og »lifsreynslu til lands og sjávar*. Ekki eru hvatir ljótar og lágar, — leitt er að fljúga þröngan hring — og eiga sér vonir ærið háar um að komast á næsta þing með »lffsreynslu til lands og sjávar«. Þar sem skriður hrjúfar og háar hoifa móti landnyrðing, ' hraktir og mæddir hrafnar og mávar með harmatölum setja þing, um >lífsreynslu til lands og sjávar.* Á víðavangi. Gesfri8nin á Sandi- Guðm. á Sandi hefir varið fé því, er honum hefir áskotnast fyrir fyrirlestra og styrknum af almannafé þannig, að teljs má til fyrirmyndar og með fádæmum. Hann hefir verið þvf til góðgerða. Samkvæmt nýfengnum upplýsingum hans sjálfs, hefir hann hýst og fætt að nokkuð mikiu leyti bændur úr 2 hreppum um sfðastliðin 24 ár. Bændur þessir hafa átt kaupstaðarleið fram bjá bæ hans og komið þangað ott hraktir f vondum veðrum og færðum. Ekki hefir fyr farið tiltakanlegt orð at gestrisn- inni á Sandi og sýnir það, að margt liggur f láginni um þá, er afskektir búa, sem þeim er sómi að, ef ijóst verður og er gott að Guðm. hefir haft ein- urð, til þess að skýra frá þessu. Ætti hann nú ekki að draga það lengur, að birta þá kapitula úr frægðarsögu sinni, sem óbirtir eru. »Líf8reynsla fil lands og sjávar*. í 37. tbi. ísl. birtist svoteld ummæli eftir »Dalakarl«: >Hvernig svo sem fer um kosning- arnar til þingsins, þá vil eg segja það, að Akureyri og Eyjafjörður fær óálit hjá öllum akynbsrum mönnum, ef ann- $ Gummi-hálstau % •% * % Flibbar, einfaldir og tvö- J*. 2 faldir á kr. 1.00. í Brjóst á kr. 1.25. J 5 BRAUNS VERZL. \ ^ Pdll Sigurgeirsson. £ •% % i|j íts* Stór eldavél. -sa lltið brúkiið, er til sölu undir hálfvirði. Sérstaklega hentug á stór sveitaheimiti. Jón Steýdnsson. Simi 23. Herbergi til leigu. Upplýsingar gelur Kristján Halldórsson, úrsmiður. ar eins maður og Björn Lfndal býður sig fram og nær ekki kosningu, með þeirri lffsreynslu, sem sá maður hefir, bæði til lands og sjávar. Má lfka kveða svo að um Sigurð dýralækni*. Æskilegt væri að »Dalakarl« vildi segja ger frá reynslu þeirri, sem þessir dýrmætu meun hafa til lands og sjávar. Sumir vilja álíta að sjávar-reynsla Sig- urðar sé engiu og Björns Lfndal þannig vaxin, að hún veiti honum engin meðmæli sem forráðamanni fyrir þjóðina. Af landsreynslu B. L. fer smátt orð sfðan hann flutti fyrirlestur sinn um nýbýlin, þvf sfðan hefir hann helgað krafta sfua síldarspekulationum, og gleymt að-efna loforð sitt um, að skrifa sfna merkilegu grein um það mál. Um landsreynslu Sigurðar mætti segja það, að hann hefir með tilstyrk B. L. stjórnað Rf. Nl. f hinar mestu fjárhagskröggur og komið þvf f óálit. Þar hefði þessi uppgjafakaupmanna- þjónn, sem nú biður um bændafylgi til þings, átt að geta sýnt hæfileika sfna, til þess að ráða fram úr afmenn- ingsmálum. En það hefir nú tekist svo, að ekki horfir tii frægðar, trausts né glæsilegrar »lffsreynslu til lands.« »Happíð«. Svo nefnist gaman- leikur í einum þætti eftir PálJ. Árdal og er það nýkomið út. Happið er vlða þekt austán hafs og vestan og er mjög hentugur og góðfyndinn gamanleikur enda hefir oft verið leik- inn. Nú hefir höfundurinn aukið og endurbætt leikritlð. Hann hefir bætt f það tveimur persónum, Grfmu móður Heiga og Siggu, unglingstelpu úr kaupstað. Sfðan gaf hann það út, þvf að of hætt er við, að rit þau, sem ganga uppskrifuð mann frá manni af- bakist verulega, þegar stundir Hða. í einu hefir höf. yfirsést að hans eigin dómi. Hann hefði átt að hafa ritið f tveim þáttum og l&ta þáttaskifti vera á bls. 35, þar sem þeir Hallur og Helgi fara út. En auðvelt er fyrir leikendur að breyta út af f þessu, ef þægilegra þykir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.