Dagur - 24.09.1923, Síða 1
DAGUR
ketnur út á hverjum fimtudegi,
Kostar kr. 6.00 árg. Ojalddagi
fyrlr 1. júlí. Innheimtuna annast
Árni Jóhannsson í Kaupfél. Eyf.
VI. ár.
Akureyri, 24. september 1923.
AFOREIÐSLAN
er hjá Jónl f>. I>ór,
Norðnrgðtu 3. Talsfmi 112<
Uppsðgn, hundin við áramót
sé komin til afgrelðslumanns
fyrir 1, des.
Forsikrings — Aktieselskabet
-U-R-A-N-l-A-
Brunatryggir: Hús, kirkjur,
sveitabæi, húsgögn, vörur, skip á
landi og báta, o. fi.
Sjóvátryggir: Skip og báta,
vörur hvort sem eru smásendingar,
eða heilir skipsfarmar.
Áðalumboðsmaður á íslandi:
Jón Stefánsson.
Akureyri. - Sími 23 og 94.
Kosningin í
Múlasýslum.
Framsóknarflokkurinn gerir sér
miklar vonir um Iiðsauka úr Múla-
sýslum við næstu kosningar. í kjöri
verða þar af hálfu Framsóknarflokks-
ins: í N.-Múlasýslu Porsí. M. Jóns-
son alþffli og Halldór Stefdnsson
bóndi á Torfastöðum í Vopnafirði.
í S.-Múlasýslu: Sveinn Ólafsson alþm.
og Ingvar Pálmason útgerðarbóndi í
Norðfirði.
í Norður-Múlasýslu bjóða sig
fram .á móti tveir flokksleysingjar
Björn Hallsson á Rangá og Jón
Sveinsson bæjarstjóri á Akureyri.
En í Suður-Múlasýslu bjóða sig
fram á móli Sigurður H. Kvaran alþm.
og Magnús Gíslason sýslumaður.
Á Seyðisfiröi býður sig fram Karl
Finnbogason skólastjóri. Mun hann
bjóða sig fram af hálfu verkamanna
en er í sumum höfuðmálum sam-
ferða Framsóknatflokknum, t. d. fjár-
hags- og ísiandsbankamálunum. Mun
hann því njóta fylgis samvinnuhugs-
andi manna á Seyðisfirði fremur en
andstæðingur hans Jóh. Jóhannesson
bæjarfógeti f Rvík, sem er einn af
ókvikulum fylgismönnum J. M.
Sigurvonir Frnmsóknarflokksins
eru bygðar fyrst og fremst á því,
að málstað hans hefir aukist fylgi
á Austurlandi á síðustu árum, vegna
þess, að fulltrúar þess flokks af
Austurlandi hafa getið sér góðan
orðstýr á þingi. í öðru lagi er flokk-
urinn svo lánssamur, að geta haft
þá f kjöri áfram Svein og Þorstein
og tvo aðra ágæta menn með þeim,
Halldór og lngvar. I þriðja lagi hefir
svívirðilegur og ofsafenginn ritháttur
Hagalínsblaðanna gert málstað and-
stæöinganna stórlega tortryggilegan
á Austurlandi.
Sveinn Ólafsson ííFirði og Porst.
M. Jónsson eru nú, eftir þingmensku
síðan 1916, að þeir voru kosnir,
orðnir þektir að þvi, að hafa ágæta
þingmenskuhæfileika til að bera. Þeir
eru báðir prýöilega vel máli farnir
og drengilegir til orðs og æðisi
Sveinn átti mjög merkilegan þátt í
lausn vatnamálanna og frægilegan.
Þorsteinn er einn sá maður, er
flokkurinn gæti trúað fyrir hlut sín-
um til harðræða og trúleiks.
Báðir hinir frambjóðendur flokks-
ins eru nýir menn í fremstu röð
stjórnmálabaráttunnar. Halldór Ste-
fánsson er ötull maður, fastur í lund,
ágætur ræðumaður. Hann er ein-
lægur samvinnumaður og glöggur
á þau mál eins og greinar hans í
Tímariti samvinnufélaganna hafa
sýnt. En þær greinar fjölluðu um
skipulagsatriði í samvinnuverzlunum
og skrifaði á móti honumjón Gauti
Pétursson. Voru ritgerðir þær prúð-
mannlegar og fræðandi frá báöutn
hliðum. Er Halldór talinn hafa yfir-
gnæfandi fylgi í kjördæminu ásamt
Þorsteini og er lítill vafi á því, að
þeir nái báðir kosningu.
Ingvar Pálmason er útvegsbóndi
og ber því gott skyn á ait er að
útveginum lýtur. Sjávarútvegur á
Austurlandi er talinn illa farinn eftir
undangengin kreppuár. Liggur sú
ógæfa að mjög miklu leyti í skipu-
iagsleysi sjómanna og braski og
mistökum í sölu sjávarafurða. Er
það eitthvert mikilvægasta mál, er
nú liggur fyrir til úrlausnar, á hvern
hátt þau vandræði verða leyst með
samtökum og skipulagi. Ingvar er
samvinnumaður mikilf og er talið
Ifklegt að hartn hljóti fylgi allra
samvinnumanna og smáúlgerðar-
manna í sínu kjördæmi. Sjótnönn-
um er nú á engu meiri þörf, en að
styðja þá menn, sem líklegastir eru
til þess aö geta leyst vandræði þeirra.
Kvaran og Jóh, Jóh. eru tveir af
ákveðnustu andstæðingum Framsókn-
arflokksins en mjög fylgisamir Jóni
Magnússyni og Mbl. Sá er munur
þeirra, að Jóh. Jóh. er einn af prúð-
manníegustu andstæðingunum en
Kvaran sá ruddalegasti og illúðleg-
asti. Er jöfn ástæða til að fella báða
frá kosningu frá sjónarmiði flokks-
gengisins skoðað en auk þess sér-
stök ástæða, til þess að fella Kvaran,
vegna sóma þingsins. Þessir menn
hafa verið sporþægir í þinginu fyrir
hagsmunastefnu hluthafa íslands-
banka, sem hafa undanfarið haft
fjármálaráð þjóðarinnar í hendi sér.
Sérstaklega gerðist Kvaran illvígur
fyrir þeirra hönd.
Magnús Gíslason sýslum. er ó-
þektur sem stjórnmálamaður og
hvllir einhver kynleg óvissa yfir
innræti hans. Alþbl. telur hann vera
jafnaöarmann en Kvaran gengur í
fóstbræðralag við hann. Mætti trúa
því, að Magnús yrði orðinn óþekki-
legur og til lítils hæfur, þegar samn-
ingar Kvarans og Alþbl. um eignar-
hald á honum væru um garð gengnir.
Myndi það mega teljast áhættuminst
fyrir sýslumanninn og Sunnmýlinga
að Iáta hann sitja kyrran heima.
Björn á Rangá er einn af þéitn
»gráúlpu«-klæddu mönnum i þess-
um kosningum. Hann hefir verið í
kosningabandalagi við Framsóknar-
flokkinn, en þózt vera yfir það haf-
inn, að hlíta flokksaga og líða súrt
og sætt með stjórnmálaflokki sam-
vinnumanna og bænda. Nú bíður
hann sig fram stefnulaus og óbund-
inn að kalla, þó vænta megi, að
hann gangi i lið J. M. í helztu
ágreiningsmálum eins og að undan-
förnu. Svipað er ástatt um Björn
eins og Stefán í Fagraskógi. Stefán
er heillaður af J. M. en Björn af
Jóh. Jóh. Nú er talið víst að Jóh.
Jóh. falli á Seyðisfirði. Væri þá rétt
að veita vini hans samskonar lausn,
svo þeir geti huggað hvor annan
útan þings.
Jón Sveinsson hefir valið sér vont
hlutskifti, að ganga til kosninga
með Birni. Skoðanir hans og vilji
er óþekt og er ekki unt að segja
honum neitt til lofs eða Iasts sem
stjórnmálamanni. Aðstaða sú er hann
hefir valið sér gerir kosningu hans
óhugsanlega.
Nauðsyn þjóðarinnar er sú, að glund-
roðinn hverfi úr íslenzku stjórnmála-
lífi. Allir eru svo að segja sammála
um að núverandi ástand sé óviðun-
andi. Fratnboð stefnulausra manna
og flokksleysingja er því torskiliðog
óafsakanlegt. Framsóknarflokkurinn
hefir verið að vaxa upp í landinu.
Óbifanleg nauðsyn til flokkaskipunar
mun leiða hann til sigurs. Nú er
því spáð, að hann muni sigra við
þessar kosningar.
En til þess aö sá sigur vinnist
er stórlega nauðsynlegt að fella
viðurkenda andstæðinga flokksins.
Enn nauðsynlegra er að leggja að
velli alla þá, sem skortir hreinlyndi
og þrek, til þess að skipa sér i
fiokk öðru hvoru megin. Þeir veröa
verstu menn á þingi þjóöarinnar.
En til þess að þetta vinnist, er
mest um vert, að samvinnumenn
og bændur fylki sér um menn
Framsóknarflokksins og fylgi þeim
fram til sigurs. Skiftir þá mestu að
kosningarnar verði sóttar með harð-
fengi og að hver liðsmaður, bæöi
karlar og konur sæki á kjörstað.
Væntir Dagur þess, að flokkurinn
eigi fjölmennan liðsflokk og harð-
snúinn á Austurlandi, sem skiii hrein-
iega til þings öllum frambjóðendum
flokksins.
Kosning í
S.- Pingeyjarsýslu.
----- %
Þess hafði verið vænst, eftir því
sem áslæður horfðu, að Ingólfur
Bjarnarson alþm. í Fjósatungu yrði
sjálfkjörinn í Þingeyjarsýslu.
En skömmu áður en að biaðið
fer í pressuna, berast þær fréttir, aö
á móti Ingólfi bjóði sig fram Sig-
urður bóndi Jónssön á Arnarvatni í
Mývatnssveit.
Framboð þetta mun mörgum
þykja ærið kynlegt og liggja til
þess þær ástæður, er nú skal greina
Sigurður er mjög einlægur og á-
kveðinn samvinnumaður. Má þvi
vænta þess, að hann sé i því efni
samferða Framsóknarfíokknum.
í öðtu lagi hefir hann á leiðar-
þingi á Breiðumýri síðastl. sumar
lýst yfir því, að hann væri fylgjandi
Framsóknarflokknum og sá flokkur
ætti einn rétt á sér.
Hinsvegar hefir hann Iátið í Ijósi
að flokkurinn hafi ekki að öllu verið
heppinn í mannavali.
f þriðja lagi hefir hann tvívegis
Iýst yfir því, að siðast greindum
ummælum væri ekki stefnt tii þing-
manns kjördæmisins.
Af framangreindu verður dregin
eftirfarandi ályktun.
Að Sigurður telji stefnu Fram-
sóknarfiokksins rétta og að hann
telji Ingólf í Fjósatungu vel valinn
fulltrúa þeirrar stefnu.
Framboð Sigurðar verður þá helzt
ekki skýrt á annan hátt, en að á-
skorendur hans og hann sjáifur telji
sig svo mikinn yfirburðamann, að
þess vegna sé ástæða til þess að
sparka í vel hæfan og raungóðan
þingmann, sem fyrir tveimur árum
var kosinn með meira en 2h greiddra
atkvæða í Suður-Þingeyjarsýslu.
FuIIyrða má, að allur þorri Þing-
eyskra kjósenda sætti sig illa viö
þessa skýringu. Dagur telur að með
henni sé smekkvfsi Sigurðar gert
rangt til. Liklegasta skýringin verð-
ur sú, að hann sé ekki eins ánægð-