Dagur - 06.12.1923, Qupperneq 1
DAGUR
kemur úf á bverjum flmtudcgi.
Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi
fyrir 1. júlí. Innheimtuna annast
Árni Jóhannsson í Kaupfél. Eyf,
VI. ár.
Akureyrf, 6. desember 1923.
t
AFGREIÐSLAN
er hjí Jðn! Þ. Uór,
Norðurgötu 3. Talsiml 112
Uppsögn, hundin við áramót
sé komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
55. blað.
Frá Grimsey.
í bréfi, sem ritstj. Dags barst frá
Austurlandi, er um það kvartað, að
blöðin flytji aldrei neinar fréttir frá
Orímsey né^geti hennar að neinu
leyti. Að vísu er það rétt, að sjaldan
er Grímseyjar getið. En fréttaskortur
þaðan og úr öðrum landshlutum
stafar frá pennaleti landsbúa sjálfra.
Nægra frétta og ábyggilegra geta
btöðin ekki afíað sér úr fjarlægum
landshlutum, nema lesendur þeirra
stingi niður penna við og við og
sendi þeim fréttabréf. Um þetta hefir
ritstj. Dags áður ritað og óskað eftir
fréttabréfum og með nokkrum en
þó ekki nægum árangri.
Úr fréttaskorti þessum er nú, að þvj
Grímsey snertir, unt að bæta lítilsháttar.
Eins og áður er getiö, brá ritstj. Dags
sér til Grímseyjar sfðastf. sumar og
þó viðstaðan væri mjög stutt getur
hann þó, fremur en áður, Iátið blaðið
flytja dáiítinn frétfapistil úr eyjunni.
Hið helzta, sem unt var aö kynnast
í stuttri viðdvöl, eru bjargræðisvegir
eyjarskeggja. Eins og flestum mun
kunnugt, er Grfmsey afiöng frá norðri
til suöurs. Fyrir allri austurströnd
eyjarinnar er þverhnýpt og hrikalegt
bjarg, þeirn megin^er eyjan lítt eða
ekki vogskorin og hvergi unt að
lenda, sé sjór ókyr. Eyjunni hallar
til vesturs og er vesturströndin lág
og nokkuð brotin. Eru þeim megin
Iendingarstaðir þeir, sem eru á eyj-
unni. ÖIl er eyjan grasi vaxin upp
á hábjörg að heita má og eru nokkr-
ar slægjur á björgunum, því þar
ræktar fuglin Iandið. Bygðin er öll
vestanvert á eyjunni um og fyrir
sunnan miðja vesturströndina. Þar
eru tún nokkur umhverfis býlin.
Bjargræðisvegir eyjarskeggja eru
fiskiveiðar, eggja og fuglatekja og
kvikfjárrækt. Við eyjuna er mikil
fiskisæld og skamt að róa á miðin.
En kvikusamt er þar, sem vonlegt
er, þar sem sjór gengur óbrotin úr
reginhafi öllumegin að. Fiskiveið-
arnar eru aðalatvinna Grímseyinga.
Af bjarginu eru að vísu nokkuð
miklar tekjur, en örðugt og ekki
hættulaust að hagnýta sér þau hiunn-
indi. Grasræktin erogmeir til þæg-
inda og bættra lífskjara en til gróða-
reksturs.
Um ,fiskiveiðarnar er fátt sérstakt
að segja. Þær.eru stundaðar á opn-
um bátum einkum með handfæri.
Frásagnarverðari er eggja- og fugla-
tekja eyjarbúa. Gildir um bjargið
og atvinnu af því samþykt og eru
aðaldrættir hennar þessir: Skjóta
má fuglinn til 15. apríl og eftir
miðjan maí byrja menn að sfga í
bjargið eftir eggjum. Sigmaður fær
’/í af því er hann nær. Að öðru
leyti geldur bjargeigandi kaup þeirn
er að eggjatekju vinna. Þegar eggja-
tekjunni er lokið er fuglinn veiddur
í háf. í júlí er sigið eftir skeglu-
unganum og eftir 20. ágúst er sigið
eftir fílunganum. Er það Iokaþáttur
bjargveiðanna og er merkisatburður
í eyjunni. Þá haida eyjarbúar sér
tyllidag svipaðan töðugjöldum og
slægjum landbóndans. Um miðja
nótt er risiö úr rekkju og efnt til
mikils fagnaðar í mat og drykk.
Þykja þeir ekki liðtækir, er linlega
ganga að mat sínum. Er þá til tínt
alt, sem bezt er í búrinu og ekkert
til sparað. f birtingu er gengið
austur á bjargið og byrjað að síga.
Þegar þvi er Iokið ganga allir til
veizíuhalda á nýjan leik. Er þá lokið
hinum áhættumiklu bjargferðum Eyj-
arskeggja.
Séra Matthías Eggertsson, bróður-
sonur Matthfasar skálds, er búinn að
vera prestur í eyjunni I 26 ár. Áður
hann fiutti til eyjarinnar, var þar
engin kýr. Þjáðust eyjarbúar þá af
skyrbjúg og öðrum harðréttiskvillum,
því þó ekki, skorti íæöuföng, var
fæðan einhæf og óholl vegna mjólk-
urleysis. Voru eyjarbúar hættir að
trúa því, að kýr gætu verið í eigu
Grfmseyinga. Prestskonan setti það
skilyrði fyrir því, aö fiytja börh sín
út í Grímsey að fá að flytja kúna
sína með. Kýreignin hepnaðist þeim
hjónum svo vel, að aðrir eyjarbúar
tóku þau sér til fyrirmyndar. Eru
nú á eyjunni 15 kýr og er gersam-
lega tekið fyrir allan skyrbjúg og
aðra þesskonar kvilla. Ennfremur
eiga eyjarbúar 500 fjár og 3 hross.
íbúatalan er um 100 manns og er
þvi hér um talsverða búfjáreign að
ræða.
Á siðustu áratugum hafa híbýli
og öli menning eyjarbúa tekið mikl-
um framförum. Mun á ýmsan hátt
mega þakka það prestinum, sem
hefir verið sínum afskekta söfnuöi
fyrirmynd í dagfari og lifnaðarháttum.
Metnaðarlaust gjalda allir eyjar-
skeggjar honum fult traust sitt og
virðingu.
Grímseyingar hafa fyrir löngu
fengið á sig mikið orð fyrir tafl-
mensku. Norðan við heimsskauts-
baug hafa landlegudagar gerst margir
á vetrum og þá Iftið að starfa. Hafa
eyjarbúar þá þreytt íþrótt þessa og
náð sumir þeirra svo Iangt i henni
að verða jafnokar landsins beztu
skákmanna eða jafnvel fremstir Iands-
manna um skeið. Nú mun íþrótt
þessi þvi miöur vera f hnignun í
eyjunni og er það íila farið. Þessi
skákmenska eyjarmanna mun hafa
vakið athygli mannvinarinns Will-
ards Fiske á þeim. Eins og kunnugt
er veitti hann Grímseyingum sér-
staka athygli, gaf þeim vandað bóka-
safn með 5 — 600 bindutn og enn-
fremur skáktöfl. Bókasafnið er geymt
í skólahúsinu og virtist að betur
mætti um þaö fara. Er þess að vænta,
að Grimseyingar varðveiti þessa
dýru eign og um Ieið minningu
velgerðarmannsins.
Um andlegt líf eyjarbúa er fátt
hægt að segja í þessum linutn. Til
þess brestur kunnleik. Áður er minst
á skákmensku þeirra. Þessi afskekta,
fámenna bygð í íshafinu veitir íbú-
um sínum nægar tómstundir til and-
legra iökana. Enda er kunnugt að
vísindamenska hefir þróast í Grímsey.
Séra Pétur vann þar vísindalegt þrek-
virki, þar sem var „Annáll 19. ald-
ar.« Séra Matthías leggur stund á
ættfræði og má væntaþess að hann
leggi drjúgan skerf til þesrra visinda
endist honum lif og orka.
Með sanni má segja, að þjóðin
hafi veitt þessum fámenna og af-
skekta hóp barna sinna heldur iitla
athygli og litlu kostað til þeirra af
almennu fé. Enda eiga þeir enn
þann fágæta kost, að vera hvorki
ágangssamir né heimtufrekir. En þó
yfirlæti þeirra sé minna en sumra
annara landsbúa er þörf þeirra á
sumum almennutn umbótum engu
minni en þar sem hún gerist mest
á landi hér. Þessi fjariæga eyja um-
flotin reginhafi er sett langt úr leið
samganganna. Engsn sveit á megin-
landinu unir því vel, að vera án
símasambands,en hvað mættu Gríms-
eyingar segja. Lottskeytastöð er því
sjálfsögð umbót þeim til handa svo
fljótt, sem verða má. Þó Einar Þver-
æingur segði að í Grímsey mætti
fæða her manns og Grimseyingar
séu dugandi menn, getur þó aö
höndum borið eitthvað það, sem
búi háska svo fjarlægri bygð og
sambandsiausri við meginlandið.
S t a k a.
Hríðarandi harmavá
hleður granda’ og hvolum.
Sjórinn landi orgar á;
alt er í handaskolum.
A víðavangi.
Lögverndarinn. Síðastliðið sumar
skrifaði ritstj. ísl. ádeilu á bæjarlógeta
Siglufjarðar og fann honum til sakar,
að hann framfylgdi slælega sddveiði-
lögunum. Áður hefir verið minst á
árás þessa hér f blaðinu. Enn hefir
komið f Ijós lögverndunarstefna ísl. í
snmbandi við kosningarnar. Hefir um
leið komið f ljós, hversu sú stefna er
heiibrigð og sjálfri Bér samkvæm.
Kenning blaðsins er: Af því að Stefán
f Fagraskógi hlaut svo marga ógilda
seðla, á að úrskurða hann kosinn.
Það sem gerir seðlana skýlauslega
ógilda lögum samkv. og að samhljóða
dómi kjörstjórnar er ekki annað en
»galii« f augum ritstj. ísl. Sé ekki
unt, að þverbrjöta fyrirmæli laga, til
þess að koma Stefáai inn í þingið, á
að nota hverja átyllu, til þess að
ógilda kosninguua. Þessi er lögvernd-
unarstefna íslendings.
Skeytið. íslendingur birti fyrir
nokkru einkaskeyti, sem bann segir
að sent hafi verið héðan af Akureyri
til Rvfkur, daginn sem atkv. voru
talin í Eyjaíjarðarsýslu. Skeytið birti
hann innan tilvitnunarmerkja. Ritstj.
ísl. þyríti að gera grein fyrir þessu
tvennu: Hvernig komst hann yfir um-
rætt skeytif Með hvaða heimild birtir
hann einkaskeyti í blaði sínu? Við
umræður út af þessu gæti það orðið
Ijóst, að »strákar« ættu ekki að hafa
blað tii umráða.
Dyrnar á Samkomuljúsinu. Þegar
hin vandaða íorstofa var bygð við
Samkomuhús bæjarins voru settar á
hana tvennar viðar dyr með tvívængj-
uðum hurðum. Mun þetta hafa verið
gert af öryggisástæðum ef eldsvoða
kynni að bera að höndum. Samt sem
áður er því hagað svo á samkomum
að venjulega er opinn aðeins annar
vængur annarar hurðarinnar. 1 þessari
smugu kúgast menn og troðast og
skorðast hver af öðrum og komast
seint og með hörkubrögðum út. Bæri
eldsvoða að höndum yrði ekki unt að
opna hurðirnar vegna troðnings. Er
svo að sjá sem þessar víðu dyr hafi
verið settar á forstofuna meira af
monti en af gagnsemisástæðum.
Happdrættisnefnd Stúdentaráðsins
tilkynnir I nýkomnu Mbl., að sökum
seiniátra skila frá ýmsum útsölumönn-
um happdrættisseðlanna verði enn að
fresta að draga um happdrættið. Jafn-
frarat áminnast allir útsölumenn um
að gera greið skil og jafnframt áminn-
ast menn um að gera án tafar pant-
anir sínar á snildarbókinni »Pan.«