Dagur - 19.06.1924, Blaðsíða 4
96
DAQUR
24. tbl.
Halldór Þorsteinsson
frá Hjaltastöðum.
Svo nú er hann dáinn, horfinn inn
á myrkur eða ljósleiðir dauðans, þang-
að sem við fáum ekki fylgt, en förum
seinna sjálf.
Þegar góðvinur er kvaddur á gatna-
mótum verður margs að minnast.
Samleið liðinnar æfi blasir opin og
augljós hugskotsaugum vorum með
liðna atburði.
Samvistir okkar urðu ekki um
neina óravegu né áratugi, þó hefi eg
hvergi eignast betri fétaga og föru-
naut, en hann. Engan dáði eg svo f
æsku fyrir hvatleik og atgjörfi, enda
þurftu fáir við hann að þreyta skjót-
færi né fimleika
Halldór stendur mér Ijóst f huga
frá fyrstu sýn: unglingur innan tvftugs
f fjölmennum hóp fjatlgöngumanna.
Grannur og beinvaxinn, stæltur eins
og stálfjöður en um leið dúnmjúkur f
hverri hreyfingu. Fríður yfirlits og
bjartur með augljós sérkenni heim-
alningsins óg eigin upplags; prúður f
framgöngu og lftið eitt feiminn, en frægur
fyrir brattgengni og skjótteik svo að
þar bar enginn af, þeirra er eg þekti.
Sjálfur var eg nokkru yngri og
virti — sem uDglingum er títt —
ekkert meir en fþróttir og afl. Síðar
kendi mér lffið meir að meta gott
hjarta og göfugt hugarfar og þá fann
eg einnig að Halldór átti það hvort-
tveggja til. Ekkert tók hann nær sér
en að þurfa að synja nokkrum manni
bænar eða greiða enda var það sjaldan
gert. Til hins var hann boðinn og
búinn að leýsa hvers manns vandræði
ef fært fanst og sást þá oft eigi fyrir.
Þegar mér nú berst dánarfregn þfn
um langann veg, er það seint og
sfðar en þó alt of fljótt. Eftir nokkur
ár og þrjátfu, f hæstum þroska, lagðir
þú inn á Iandið ókunna með vinar
hug hvers er þér kyntist.
Kynleg eru leyndarráð lffsins og
engum er það auðráðin gáta, en á
endalok þess eða eilffð er þó mest
dul dregin.
Sfzt vil eg gráta þig vinur, sem
horfinn og týndán að fullu og öllu.
Svo mælir mér vissublandin von að
fram liggi leiðin og hærra.
Eg sé þér f anda sökt niður f kalda
moldina og grátklökka vandamenn og
vini skipa sér hljóða um grafarbarm-
inn f höfugri sorg. En horfum lengra.
Framvinda lifsins blasir sýnum traust
og óbrotin. Sljóskygni vor eygir hana
sjáldnast nema f veikri von, hvarflandi
milli trúar og efasemda.
Eftir þér horfa aldin móðir og ást-
kær systkini, en þau munu þar góðan
dreng, sem þú varst. Marga mæta
menn hefi eg hitt um dagana og
ýmsa reynt að vinum, en þar sem
þú hvflir er einn af mfnum beztu.
Og sveitin þfn, Skagafjörður, sem
Ó1 þig úr æsku og átti allan þinn
hug, hefir úú byrgt þig við barm
sinn. Hana þráðir þú er fjarvistum
var dvalið, enda eru æskustöðvar
þfnar einn hennar fegursti staður, vel
fallinn til að ala dtaumleynda, dula
flg göfuga wenn.
Nú er þar einum færra en áður.
Blönduhlfð góðum manni fátækari en
fyr.
Halldór Þorsteinsson héfir verið
numinn burtu af vettvangi þessa
heims og yfir á annan ókunnan. Slfk
eru Iffsins lög.
Hallgr. /ónasson.
Höft og: bann.
Lengi máttu kaupsýslumenn og
fylgifiskar þeirra ekki heyra innflutn-
ingshöft nefnd, svo að þeir ekki kross-
uðu sig fyrir þeim ófögnuði. í vetur
sýndust þó þessir menn vera búnir
að taka skýluna frá áugunum að
nokkru leyti og vera farnir að átta
sig. Jafnvel sumir f liði kaupmanna á
Akureyri létust vera þvf hlyntir, að
takmarkaður yrði innflutningur á ó-
þörfum vörum. Þeir báru meira að
segja fram tillögu f þessa átt á
þipgmálafundi hér f bæ. Þeir kváðust
ekki láta sér nægja néitt kák éða
hálfverk f þessu bjargráðamáli, fult
innflutningsbann sögðust þeir vilja,
án allrar undanþágu. Þessvegna máttu
þeir ekki heyra nefnd innflutningshöft,
þvf að það gæti skilist svo sem um
undanþágur væri að ræða, en það
væru einmitt þær, sem bæri að forðast,
það væri reynslan búin að sýna.
Um þetta var nú ekki annað en
gott að segja, en þó sannaðist það á
mönnum þessum, að ekki skal fsinn
lofa fyr en yfir er komið.
Nú vfkur sögunni til þess, þegar
Klemens gaf út reglugerðina og Fram-
sóknarmenn báru fram frumvarp sitt
f þinginu. Var þar um algert inn-
fiutningsbann að ræða og þvf f anda
fyrnefndra höfðingja. Hefði þvf mátt
ætla að nú íögnuðu þeir yfir þvf,
hvaða stefnu málið hefði tekið. En
þetta fór á annan veg. Þeirra eigið
málgagn »íslendingur«, fitjaði upp á
trýnið og urraði. Þá þóttust menn
sjá þess greinileg merki, að fyrri
framkomu íslendingsliðsins hefði ekki
verið af heilindum gérð.
Nú er enn komin ný reglugerð frá
íhaldsstjórninni, sem að vfsu bannar
innflutning á fjöldamörgum vörum, en
er að öðru leyti svo úr garði gerð,
að hún er f raun og veru ein stór
undanþága á öllu innflutningsbanni.
Ef nokkur snefill af samræmi hefði
verið f framkomu íslendingsmanna,
hlutu þeir nú að verða hamstola af
reiði, þvf til þeirra mátti nú heimfæra
gamla verspártinn: »Það, sem að
helzt hann varast vann, varð nú að
koma yfir hann«. En það er svo
langt frá þvf að reynslan hafi orðið
þessi, að íslendingur blessar þessa und-
anþágureglugerð, má þá nærri um það
fara, hvort hún fellur ekki vel f geð
húsbændanna, hvort sem þeir eru
fslenzkir, eða danskir.
Snarfari.
Ritstjóri: Jónas þorbergsson
Hafnarstr, 86 a. Sími 178.
Prenfsmiöja Odds Björnssonar
Aðalstræti 17, Sínii 45.
SZ__________________r
Smásöluverð
má ekki vera hærra á eftirtöldum tóbakstegund-
um, en hér segir:
VINDLAR:
Lloyd Kr. 1495 pr. lh ks.
Hermes — 12 35 — >/2 -
Terminus — 12.10 — ’/2 -
Advokat — 2415 — 1/2 _
Lopez y Lopez — 23.00 — »/2 —
Phonix (Horw. & Kattentid) — 2300 — l/2 _
Times — 18.40 — ]/2 —
Cervantes 25 90 — >/2 _
Utan Réykjavíkur má veröið vera þvi hærra, sem nemur flutningskostn-
aöi frá Reykjavik til sölustaðar, en þó ekki yfir 2%.
Landsverzlun Islands.
Sam vinn uféla^ a
hefir fyrirliggjandi og útvegar alls konar
LANDBÚN AÐARVERKFÆRI:
Sláttuvélar, Milwaukee.
Rakstrarvélar, Milwaukee.
Snúningsvélar, Milwaukee.
Brýnsluvélar fyrir sláttuvélaljái.
Plóga frá Kyllingstad Plogfabrik, er hlutu fyrstu viður- |
kenningu á landbúnaðarsýningunni í Rvík 1921.
Garðplóga, Pinneberger.
Rótherfi, Pinneberger. #
Tindaherfi, Pinneberger.
Arfaplóga, Pinneberger, með tilheyrandi hlújárnum, sem
hlutu sérstaka viðurkenningu á fyrnefndri sýningu.
Rófna sáðvélar.
Forardælur.
Vagnhjól frá Moelven Brug,
Skilvindur, Alfa Laval.
Strokka, Alfa Laval o. fl. o. fl.
Ennfremur verkfæraskápa með öllum algengum smíðatólum.
Tilbúinn áburð, gaddavír o. m. fl.
Flest verkfærin hlutu viöurkenningu á landbúnaðarsýn-
Ingunni i Reykjavík 1921 og eru valin i samráði við
Búnaðarfélag fslands, sem efnnig gefur upplýsingar um pau.