Dagur - 04.12.1924, Qupperneq 2
188
DAOUR
49. tbl.
HH(H(^iíliíHÍH(Híl^iíHÍHÍHíH^iíl'^i{HÍHÍ^iíli(H(ltíHP'iH
Kaupfélag Eyfirðlnga.
Sjóvetlinga
tökum við framvegis. Verðútlit er
gott. — Viljum fá ca. 400—500
pör af stórum sjóvetlingum
úr tvinnuðu togbandi.
Grenslist eftir verðútliti hjá okkur
áður en þið seljið öðrum.
% Kaupfelag Eyfirðinga.
hann, eftir þvl aem frá er aagt,
{eiknarlega eítirtekt. Tilraunir Möll-
gaards hafa aðallega verið gerðar á
dýrum. A öðrum fundi gerði svo yfir-
læknirinn á Bispebjærg sjúkrahúsi, dr.
Secher, grein fyrir þeim tilraunum,
sem gerðar hefðu verið á mönnum
með meðal þetta, en þær eru orðnar
talsvert miklar og á ýmsum sjúkrahús-
um og heilsuhælum. Niðurstaðan af
greinargerð iæknisins er sú, eftir þvf,
sem frá er skýrt, að þessari aðferð
verðl beltt vlð tœringu á byrjunarstlgi
með nœstum ðtvírœðum árangri og að
takast megi að lækna alt að helming
þeirra, sem meira eru veikir. Vand-
kvæðin eru þvf meiri, sem tæring
er á hærra stigi vegna þess, að sýkla-
eitrunin verður því meiri og hættu-
legri, sem sýklarnir eiu fieiri. En á
byrjunarstigi er sú hætta talin hverf-
andi lftil, eða jafnvel engin. Er jafnvel
fuilyrt af dr. Secher, að tekist hafi á
þennan hátt að lækna óðatæringu.
Enn er að sögn nokkuð á huldu
um mátt meðalsins, til þess að verka
á hin ýmsu berklamein og vitanlega
getur meðalið aðeins stöðvað sjúkdóm
inn, þar sem hann er kominn, en ekki
gefið mönnum aftur eydda vefi og
sundruð líffæri. — Meginatriði málsins
virðist vera það, að sé það rétt, að
unt sé jafnan að stöðva sjúkdóminn f
byrjun, þá hverfa úr sögunni þau
hin þyngri tilfelli, sem hættuleg verða.
Sé þessi fullyrðing dönsku læknanna
rétt, virðist að því stefna, að þessi
geigvænlegi sjúkdómur verði gersigrað-
ur innan skams.
Undangengin reynsla virðist benda
f þá átt, að varlegast sé að fara sér
hægt f að trúa þeim fregnum, sem
bérast um svo undúrsamlega hluti. Sé
þessu svo varið, sem af er látið, mun
meðalið ryðja sér til rúms með flug-
hraða, þvf telja má að heimurinn
standi nú á öndinni og meðalið er
nú þegar framleitt f allstórum stfl.
Það sem á móti mælir er undangengið
tál og vonbrigði. Það aem mælir með,
eru þau ólfkindi, sem á þvf eru, að
hin danska læknastétt og þar á meðal
menn eins og Faber, einn merkasti
prófessor Dana f læknavfsindum og
yfirlæknir rfkisspftalans danska, Secher
o. fi. láti ómótmælt bendla nöfn sfn
við svona atðrar fullyrðingar, án þess
að styðjast við vfsindalegar niðurstöður.
Með þvf myndu þeir ekki einungis
stofna sinni eigin sæmd f hættn, heldur
gera smán allri hinni dönsku þjóð.
Mestu skiftir þó, að þeir myndu setja
óafmáanlegan blett á læknavfsindin f
beild sinni. Rétt er að geta þess hér,
að Slgurður Magnússon yfirlæknir á
Vffilsstöðum mun að lfkindum hefja
tilraunir með meðal þetta upp úr
næstu áramótum.
F r é 11 i r.
Skipafregnir. Esja kom á iaugar-
dagskvöldtð á leið vesturum. Meðai
farþega voru Sigurður Sigurðsson frá
Vigur, ásamt fjölskyldu. Sigurður er
skipaður sýslumaður f Skagafjarðar-
sýslu. Var hann að fiytja sig f em-.
bættið. Árni Jónsson frá Múla á leið
til Reykjavfkur, tii þess að taka við
ritstjórn blaðs, sem >Vörður* nefnist
og nýlega hefir verið lýst yfir, að
væri málgagn íhaldsfiokksins. Frá
Húsavfk kom Bjarni Benediktsson
kaupmaður ásamt frú og frú Þóra
Guðnadóttir kona Fáls Krisjánssonar
kaupmanns f Húsavfk. Diana
kom á sunnudaginn. Meðal farþega
voru Júlíus Havsteen sýslumaður og
frú, Davfð Stefánsson skáld frá Fagra-
skógi, Sigurlaug M. Jónasdóttir frá
Uppsölum o. fl.
Brunar. Heybrunar urðu f Húna-
vatnssýslu fyrir nokkru sfðan. Brann
hey á Þingeyrum og vfðar. Eigi hefir
blaðið getað fengið Ijósar fregnir af
þessum brunum. Nýlega brann og
nokkur hluti af bænum Hreiðarsstaða-
koti f Svarfaðardal. Brann frambærinn
ásamt nokkru af búshlutum, fatnaði
og matvælum. Enn brunnu þar verk-
færi bóndans, sem er smiður. Á þriðju-
dagskvöldið f fyrri viku brann á Sval-
barði skemma, þar sem geymdir voru
búshlutir, matvæli og 12 hænsni.
Varð engu bjargað.
Botnía kom f morgun. Meðal far-
þega voru Freymóður Jóhannsson
málari, séra Herm. Hjartarson prestur f
Laufási og Steingr, Jónsson. bæjarfógeti.
Báfstapi. Þegar Esja var á Kópa-
skeri seinast, fórst véibátur, er þorps-
búar höfðu við uppskipunina. Barst
hann upp á sker og brotnaði, svo
að hann sökk.
Tíöarfariö. Eftir um 6 vikna kafla
af hlákum og hlýviðii brá aftur til
þrálátrar norð austan áttar með hryðj-
um og steytingi en eigi miklum frost-
um. Nokkur snjór er nú kominn, en
þó mun eigi enn vera tekið fyrir
sauðjörð.
Bókasafnið. Bókavörður biður þess
getið, að þangað til öðruvfsi verði
ákveðið, verði safnið opið alla virka
daga, sem hér segir: Til útlána á
mánudögum, miðvikudögum og föstu-
dögum kl. 5 — 7 og til lestrar á þriðju-
dögum, fimtudögum og laugardögum
kl. 4 — 7 e. h.
»Langnesingur * Dagurvil! minna
Langnesinginn, sem sendi honum grein
til birtingar, á, að blaðið hefir áður
lýst yfir þvf, að það birtir engar grein-
ar, hversu sem þær eru vaxnar, ef
það veit ekki, eftir hvern þær eru.
Caroline Resf Oigeir júiíusson,
sem veitir gistihúsinu forstöðu, hefir,
að gefnu tilefoi, beðið blaðið að geta
þess, að allir á sfnu heimili hafi áður
fengið mislinga. Sé því mislinganna
vegna hættulaust fyrir ferðamenn að
gista f Caroline Rest.
Mislingamir. Þeir breiðast út hér
I bænum hægt og hægt. Héðan af
verður ekki vegna smithættu óhætt
fyrir sveitamenn að koma inn f nokk-
urt hús á Akureyri. Veikin hefir breiðst
út á marga bæi f Mývatnssveit.
Símskeyti.
Rvfk 26. Nóv.
Skaðabótaupphæðin fyrir Stack-
morðið er greidd. Stjórnarskifti f
Egiftalandi. Nýja stjórnin er vinveitt
Bretum sem bfða átekta þó þeir
séu fastákveðnir að halda yfirráðum
í Sudan. Brezk herskip eru á leið-
inni til Egiftalands.
Kveldúlfur kaupir nýjan togara i
Hull. Samkvæmt útreikningum hag-
stofunnar hefir dýrtíðin aukist um
16 procent síðan í fyrra. Útfiutn-
ingur íslenzkra afuröa frá i ársbyrj-
un til nóvemberbyrjunar 65 milljónir
840 þúsund kr. Verkamaður I Reykja-
vik, Oísli Jónsson, hefir horfið. Bj«rni
Guðmann Sigurðsson, vinnumaður
f Brautarholti druknaði, ofhlóð hann
smábát svo hann fylti og sökk á
leið út i mótorbát á vikinni undan
Hofi.
Rvlk 28 Nóv.
Þingmenn, sem andstæðir eru
Mussolini, hafa tekið þátt í þing-
störfum og reyndu að steypa hon-
um á laugardaginn. Hann fékk
traustsyfirlýsingu yfirgnæfandi meiri-
hluta.
Alþjóðabandalagið getur ekki haft
afskifti af brezk-egyfaku málunum
eins og sakir standa.
í Reykjavfk er tollskoðuninni lok-
ið í Islandi. Ein búö fékk lakkskó,
sem er brot á innflutningsreglugerð,
óvist hvort sendandi á sök eða við-
takandi.
Rvík 29. Nóv.
Urgur í Frökkum vegna æsinga-
undirróðurs kommúnista í frönsku
nýlendunum Algier og Tunis, al-
varleg uppþot hafa átt sér stað þar.
Landstjórarnir kallaðir til Paris.
Franska stjórnin álftur útlitið alvar-
legt.
Símskeyti frá R'ga segja Trotsky
rekinn úr hermálafulltrúaembættinu
og aðrar stöður hans af honum
teknar.
Ouðmundur Thoroddsen settur
prófessor i stað Ouðmundar heitins
Magnússonar.
Rvík 1. Des.
Miklar æsingar í Algier og Tunis.
Landstjórarnir kallaðir til Parfsar.
Franska stjórnin telur ástandið al-
varlegt Ráðstjórnina í Rússlandi hafa
lofað að hætta undirróðri i frönsk-
um iðndum, ef franska sljórnin við-
urkendi hana.
Fregnirnar um afsetningu Trozkys
óstaðfestar.
Bardagar milli Sudanhermanna
og Englendinga Englendingar reyna
að bæfa uppreistina niður með harðri
hendi. Mikið mannfall af beggja
hálfu. Englendingar þykjast hafa
komist að samsæri til að myrða yfir-
hershöfðingjann í Egiftaiandi og
forsætisráðherrann, sem er vinveittur
Bretum. Hafa þeir handtekið fjölda
manna og aukiö varðiiðið í Kairo.
Fullveldishátiðahöldum í Rvík
frestað til 7. þ. m. vegna andláts
Guðm. Magnússonar. Stúdentar gefa
þó út blað í dag til ágóöa fyrir
Stúdentagarðinn.
Rvlk 2. des.
Brezka stjórnin tilkynnír að upp-
reistin f Sudan sé bæld niður og
sjálfstæði Egyptalands verði ekki
takmarkað af þessum orsökum.
Þýzkir fréttaritarar f Kairo segja
að hatrið tii Englendinga vsxi óð-
fluga.
Primo Rivera segir af sér.
Samkvæmt nýustu skýrslum um
heildsöluverð hækkar verð á vörum
um heim alian.
Steinolfusamningum við Ðritish
Petrolum Company hefir stjórnar-
ráðið sagt upp. Samningurinn gildir
til ársloka 1925.
3. des. 1924.
Egyptska stjórnin gengur að öll-
um settum og ósettum skilyrðum
Englendinga.
Símað frá Reval i Estlandi, að
ægileg stjórnarbyltingartilraun sé
hafin nýlega þar í landi. Kommún-
istar réðust á stjórnarbyggingar,
sfmastöð og járnbrautarstöð. Her-
mannaliði hefir verið safnað og bar-
ist meö vé'byssum og handsprengj-
um. Byltingin kæfö er siðast fréttist.
Komst upp að ætlunin var að stofn-
setja þar ráðstjórn eftir rússneskri
fyrirmynd.