Dagur - 19.03.1925, Síða 2
40
DAOUR
12. tbl.
Nathan & Olsen.
Eins og að undanförnu útvegum við:
Noregssaltpéfur.
Chilesaltpétur.
Superfosfat.
Kali og annan tilbúinn áburð.
Þar eð það er mjög takmarkað, sem hægt er að fá af Noregssaitpétri,
er mjög áriðandi að fá pantanir hið allra fyrsta.
skipam. — Sjö frv. um breytingar á
vegalögunum feldar.
Óalóháskóli býður þeim Sigurði
Nordal og Jóni Helgasyni magister að
flytja fyrirlestra við háskólann næsta
vetur, sinn vetrarhelminginn hvorum.
Stjórnin heflr skipað Þingvallanefnd,
til þess að undirbúa hátfðahöld 1930.
47 þúsund krónur hafa safnast til
ættingja sjódruknaðra manna. Franskur
togari kom inn til Vestmannaeýja í
fyrradag með sex slasaða skipverja.
Einn þeirra var dáinn, er læknir kom
á skipsfjöl og annar dó litlu slðar.
Hinir eru á batavegi. Mennirnir urðu
fyrir vfrstrengjum skipsins.
Frá ElsasS'Lothringen og Parfs er
sfmað að fjandskapurinn milli kaþólsku
kirkjunnar og stjórnarinnar magnist.
Frá Washington er sfmað að Banda-
rfkjamönnum geðjist vel að þvf, að
Chamberlain fráhverfíst Genf-samþykt-
inni. Halda þeir, að afvopnunaráform-
um CoIIidge forseta blasi þá byrlegar.
Útflutningur fslenzkra áfurða f fe-
brúar nam 5 milljónum og tæpum
200 þús kr.
Aðalfundur Búnaðarfél.
QarOa- og BessastaOahrepps.
Hinn 25. febrúar hélt Búnaðarfélag
Garða- Og Bessastaðahrepps aðalfund
sinn þ. á. Fyrst skýrði formaður frá
starfsémi félagsins sfðastliðið ár. Dags-
verkatalan var alls f félaginu yfír árið
2510 eða um 80 dagsverk á hvern
félagsmann. Auk þess hafði félagið á
árinu stofnað sjóð með 3300 krónum.
Er þeim sjóði ætlað að vaxa þar til
hann er orðin 25 þúsund krónur, en
þá skal verja vöxtunum til styiktar
þarfafyrirtækjum f þessum sveitum.
Úr sjóðnum er lánað fé til áburðar-
kaupa og ný-yrkju. Höfðu á árinu verið
lánaðar 16 hundruð krónur til áburðar-
kaupa og 400 krónur tit ný-yrkju.
Eru lánin til áburðarkaupa veitt til 6
mánaða, en hin til lengri tfma. Lánin
eru veitt með 1% lægri vöxtum
heldur en bankavextir eru á hverjum tfma.
Sjóður þessi var myndaður með frám-
lagi rfkisjóðs eftir dagsverkatölu félags-
manna nokkur ár og með samskotum
meðal félagsmanna. Auk þessa átti
félagið 1 sjóði um 400 krónur. Þá
hafði félagið gengist fyrir þvf á árinu,
að ráða mann með hesta og verkfæri
til að plægja og herfa, útvegað félags-
mönnum útl. áburð með sem beztum
kjörnm og styrkt sauðfjársýningu á
féiagssvæðinu með 50 krónum. Þá var
ákveðið fyrir næsta ár, að útvega
plægingamann, að gangast fýrir káup-
um á tilbúnum áburði, að stofná naut-
griparæktarfélag á búnaðarfélagssvæð-
inu, að kaupa eitthvað af jarðyrkju-
verkfærum, ef þörf krefði, að veita
ált að 100 krónum til verðláuna á
nautgripasýningu og að veita lán úr
sjóðnum til áburðarkaupa og ný yrkju.
Þá Gekk félagið f félagið >Landnám«
með 20 króna árgjaldi. Ýms fleiri mál
komu til umræðu. í lok fandárins
hélt Sigurður Sigurðsson búnaðarmála-
stjóri fyrirlestur um jarðyrkjn og
notkun áburðar.
6. marz 1925.
Jón H. Þorbergsson.
formaður félagains.
»A t h u g u 11.«
Svo nefnist hann maðurinn, sém
ritar f sfðasta tb). Verkamannsins
kerskisgrein um Heilsuhælismálið.
Greinin er rituð af óvildarhug til rit-
stjóra Dágs út af þessu máli. Fáir
munu vilja gera slfkt mál, sem Heilsu-
hælismálið að persónulegu óvildarmáli.
Þó er hér einn, sem er við þvf búinn
og einn ritstjóri, sem hefír lagt það
eitt til þesBa máls, að birta um það
þessa skætingsgrein. Ritstjóri Dags
telur sig ekki þurfa að bera skjöld
fyrir sig f þessu máli og sfzt fyrir
þessu skeýti, þvf að það geigar bjá
markinu. Það vill svo vel til, að rit-
stjóri Dags þekkir, hver á þetta sora-
mark hieppapólitfkurinnsr. Þessvegna
yrði vörnin hæg, ef hennar gerðist
þörf. Ritstjóri Dags álftur að hreppa-
pólitfk eigi ekki að koma til greina
og sfzt f þessu máli, sem þarf að
ráða til lykta með heill ófæddra kyn-
slóða fyrir augum. Þessvegna vill hann
ekki svara greininni frekar, en telur
miður farið að hún er fram komin og
að hún sé höíundinum til lftits sóma.
En greinina hefir skrifað Bergsteinn í
Kaupangi.
Stutt athugasemd.
í »greinargerð< Benedikts Blöndals
kennara f 6. tbl. Dags þ. á. segir
svo, að eg hafi tilkynt honum þáð
vorið 1923, að eg léti ekki kenslu
hans atskiftalausa framvegis, vegna
þess að hún fœn íöfuga átt við aðra
kenslu í skólanum.* Þetta er ekki
rétt að öðru en þvf, að eg hefi óskað
þesB, að hann veitti nemendum sfn-
um nokkru meiri fræðslu nm einstök
dýr og jurtir en verið hafði áður
(sbr. skýrslur skólans) og haldið þvf
fram, að skólastjóri hefði (hlutunar-
rétt um það, hvað kent væri.
Úr þvf að eg tek mér penna f
hönd á annað borð, vil eg geta þess,
að við prentun á grein minni f Degi
mun orðinu »aðeins< ófyrirsynju hafa
verið bætt inn í setninguna, »að þeir
séu komnir f skólann til þess að
verða vaktir<. Geta menn nú borið
hugmynd mfna um skoðun hr. B. Bl.
saman við greinargerð sjálfs hans og
dæmt um það, hvort eg hafi rangfært.
Ásmundur Quðmundsson,
Aths.
Dagur vilt ekki kannait við, að
hafa >ó(yrirsynju< bætt orðinu >aðeins<
eða yfirleitt neinu orði inn f grein
skólastjórans f prentun. Próförk var
borin nákvæmlega saman við hand-
ritið.
Rilstj.
* Leturbr. mín. Á. G.
Caroline Rest.
í 11. tb). Dags er grein um þessa
stofnun, Þar sem farið er að ræða um
hana opinberlega, vildi eg fá að gera
dálitla athugasemd við ýmislegt, sem
sagt hefir verið.
Þvf er haldið fram, að húsið sé
>komið f niðurnfðslu, svo vansæmd sé
að< og Steingrfmur læknir telur húsið
»til skammar bæ og bygð. < Þessi
lýsing gat ekki slður átt við 1918,
er við tókum við húsinu; þá mátti
heita að hvert einasta berbergi læki
og einn af þeim mönnum, sem þá
sat f stjórnarnefnd og átti að sjá um
að húsið ekki yrði »til skammar bæ og
bygð,< var enginn annar en vinur
minn, Steingrfmur læknir.
Stofnunin hefir verið vanrækt af
þeim, sem helzt bar að sjá fyrir
hénni. Meðan hún var nær éina gisti-
húsið f bænum og alt var nýtt f hús-
inu veitti bærinn henni 500 kr. styrk
á ári. Þegar alt var farið að ganga
af sér og samkepnin farin að aukast
vegna nýrra gistihúsa, var stofnunin
svift þessum styrk (1919) Ekkert var
hugsað um að gera húsið samkepnis-
fært; inngangseýri var haldið óbreytt-
um, þó öllum væri auðsætt að hann
væri ekki viðunanlegur; harðar madress-
ur og þunn yfirteppi bjóða lúnum
ferðamönnum litla hvfld, en þvf hefir
aldrei verið neitt breytt. Reykháfarnir
eru of lágir, svo oft fyllist alt af reyk,
þilin í ibúðinni óstoppuð, vatn fer f
gegnum flesta múra að heita má;
svona var nú frágangurinn upphaflega
og f þau 7 ár, sem eg hefi verið hér,
hefir engin breyting fengist á þessu.
Það er þvf f raun og veru merkilegt,
að stofnunin skuli þó hafa borið sig,
eins og hún hefir gert, þegar hún er
f öllu orðin langt á eftir kröfum
tfmans.
Nú þarf mikil bieyting á að verða
og er búið að bfða alt of lengi. Það
þarf fé til og ef eg þekki bændur hér
rétt, þá munu þeir ekki kæra sig um
að láta Akureyrarbæ gefa sér, en
flestir þeirra munu sjá hverjar skyldur
þeir þó eiga við þessá stofnun. Það
þarf ekki að koma húsinu »aftur f
sæmilegt lag,< þvf það hefir aldrei
verið sæmilega frá þvf gengið, heldur
gera það miklu betur úr gárði en
það hefir verið, ef það á að vera sam-
kepnisfært og boðlegt mönnum og
málleysingjum.
Olgeir Júlíusson.
F r é t f i r.
Frá Heilsuhælisfélaginu. Húsa-
meistari rfkisins kom með íslandi
sfðast og fór aftur með Dfönu f fyrri-
nótt. Ásamt stjórn og framkvæmda-
nefnd félagsins athugaði hann nokkra
staði hér f grendinni, þar sem til
mála gæti komið, að reisa fyrirhugað
heilsubæli. Mun húsameistari láta uppi
álit sitt, eftir að hann hefir unnið úr
athugunum sfnum og verður þá tekin
endanleg ákvörðun. Félagið hefir hald-
ið áfram íjársöfnun og undirbúningi
fjársöfnunar. Enn hefir það skrifað
landlækni um málið. Verður eigi unt
að hefja framkvæmdir fýr en heyrist
um góðar undirtektir þingsins og á-
kvörðun verður tekin um staðinn.
Höfðinglegar gjafir. Þau hjónin
Einar Stefánsson skipstjóri og Rósa
kona hans gáfu 1000 kr. f Heilsu-
bælissjóðinn. Sonur og stjúpsonur
þeirra Magnús Aðalsteinsson frá
Grund gaf sömuleiðis 1000 kr.
Leikfélag Akureyrar afhenti ný-
lega gjaldkera Heilsuhælissjóðsins kr.
1 764 49, sem er ágóði af leiksýning-
um Dóma, samkvæmt þvf er áður
var auglýst. Má þeBsi gjöf teljast
mjög rausnarleg þegar á það er litið
hvað þelta félag er fátækt og á erfitt
uppdráttar. Ekkert félag f bænum
mun leggja sig meira fram én Leik-
félagið, til að ná tilgangi sfnum.
Margt af fólki teggur feikna mikla
vinnu fram ókeypis f þágu leiklistar-
innar og oft með mjög góðum ár-
angri. Það er ástæða til að tjá Leik-
(élaginu þökk fyrir óeigingjarnt og
mikið starf og um leið fyrir gjöfina f
Heilsuhælissjóðinn.
Jón Sigurðsson frá Yztafelli
kom nýlega úr fyrirlestraferð um
Húnavatns- og Skagafjarðarsýalur.
Greiddist vel för hans um Skagafjörð
en f Húnavatnssýslu hömluðu óveður
samkomum að nokkru. Dagur væntir
þess að geta sfðar flutt nánari fregn-
ir af þessari för Jóns.
Díana kom á þriðjudaginn og fór
aftur í fyrrinótt áleiðis til Reykja-
vfkur. Meðal farþega voru: Húsa-
meistari rfkisins, Guðjón Samúelsson,
Steingrfmur Matthfasson læknir og
frú, Haraldur Björnsson, frú Vilhelm-
fna Sigurðardóttir o. fl.
Slys. Húsfreyjan f Kaupangi, Ingi-
björg Sölvadóttir, fótbrotnaði f gær-
kvöldi. Hún var á leið frá Akureyri
heim til sfn, er hestur féll með hana,
og hlauzt af þyí slys þetta.