Dagur - 23.05.1925, Síða 2
82
DAOUR
21. tbl.
^#^#^^‘áHH(t#TÍlTjt^HL^tTÍL‘^1 TÍL#TÍLTlLTÍLlíLlP"rfL^
‘P
Kaupfélag Eyfirðinga.
Saumur,
allar tegundir, mikið ódýrari en þekst
hefir áður,
nýkominn.
Kaupf. Eyfiiðinga.
^^TP^'^líL^TP''tP''éL#'éLTÍLTÍLTÍL1^^'TÍLTHÍLT^TpTÍL^TÍLTP'^
Stjórnmálaástandið
í Skagafirði.
— Drög. —
Þar sem allmikið hefir verið rætt
og ritað om samvinnumensku Skag-
firðinga og afstöðu þeirra til stjórn-
mála og flokka, virðist ekki úr vegi
að gera um það nokkrar athugasemdir.
Samvinnumenn hafa Skagfirðingar
yfirleitt ekki verið fram á sfðustu
tfma — andinn að sönnu reiðu búinn
en holdið veikt. Það er að vfsu all-
margt góðra samvinnumanna og er
þeirri stefnu þár eins og annarstaðar
stöðugt að aukast fylgi, þó hægra
fari en f flestum sveitum öðrum. En
þvf miður hefir alment rfkt bér svo
mikil þröngsýni og skilningsleysi á
þeim máium, að hver sem verið hefir
f Kaupfélagi og skift þar upp á nokkrar
krónur hefir talið sig samvinnumann.
En þó maður vilji leggja mælikvarðann
á hæstu greinina, þar sem eru verzl-
unarmálin eða kaupfélögin, er eg
hræddur um að kirkingur reynist f
gróðrinum. Það hefir verið eitt mesta
mein Kaupfél. Skagfirðinga, að efna-
mennirnir hafa yfirleitt ekki skift nema
lftið við það, en aðeins notað það sem
skálkaskjól. Viðurkent gagn þess og
nauðsyn og að það mætti ekki fyrir
nokkurn mun leysast upp. En svo
gerir fjöldinn sér að góðu, að skifta
við kaupmenn við sömu kjör og kaup
félagið veitir. Ea benda mætti þeim
góðu mönnum á, að það er ekki kaup-
félagið, sem einstaklingur eða fram-
kvæmdastj., sem ráða verðlagi og
verzlunarkjörum, heldur eru það við-
skiftamennirnir sjálfir.
Það er óhætt að fullyrða það, eftir
beztu heimildum, að ef allir félagsmenn
í K. S. hefðu haft sín aðaiviðskifti
við Kaupfél. sfðastliðið ár, hefðu þeir
sjálfir skapað sér langt um botri
verzlunarkjör en nokkur kaupmaður
hefir veitt — eða getað veitt. Það eru
ekki allar syndir guði að kenna — og
ekki heldur kaupmönnunum. Stærstu
viðskifti við K. S. hafa skólabúið á
Hólum, spftalinn á Sauðárkróki og
rfkasti bóndi sýslunnar, Magnús hrepp-
stjóri Gfslason á FroBtastöðum, sem
hefir þar öli sfn viðskifti og telur sér
þau frjáisleg og hagfeid, og ættu aðrir
að taka sér hann til eftiibreytni, þvf
tæplega munu þeir betri kjörum ná
hjá kaupmönnum en hann.
Hér er margt af mönnum, sem eru
kaupfélagsmenn og álfta sig samvinnu-
menn, en hampa samábyrgðinni eins
og grflu framan f fólkið, en sé að
þeim þrengt og það mál krufið til
mergjar, er reglan að skjóta sér bak
við þá rökleysu, að þ<5 f framkvæmd-
inni verði Iftill eða enginn eðlismunur
á takmörkuðu ábyrgðinni, sem þeir
hafa viljað fá og þvf fyrirkomulagi
sem nú er, þá verði að breyta þvf
vegna fólksins. Þeir stinga inn flfsinni
til að fá fgerðina — framleiða mein-
semdina til að fá uppskurðinn, þvf
heilbrigðir þurfa ekki læknis við heldur
þeir sem sjúkir eru.
Þá væri fróðlegt að athuga dálftið
afstöðu Skagfirðinga til stjórnmálaflokk-
anna og meginþættina i kosninga-
fylgi Magnúsar Guðmundssonar.
Það munu allir, sem ekkert þekkja
til, telja sjálfsagt að Skagfirðingar séu
fléstir fhaldsmenn vegna þeirra (ulitrúa
sem þeir hafa sent á þing. En svo er
ekki. Þeir eru yfirleitt frjálslyndir og
framsæknir menn, en — sem ekki
hafa fundið sjálfa sig. Það getur aldrei
orðið nema Iftið tfmaatriði, að þeir
átti sig á þvf, að þeir eiga ekki og
geta aldrei átt samleið með broddum
fhaldsins. Það er ekki stjórnmálastefna
Magnúsar Guðmundisonar — enda er
hún nú raunar engin—sem veitt hefir
honum vfgsgengi, heldur liggur kjör-
fylgi hans f þrem öðrum meginþáttum.
í fyrsta lagi persónulegri kynningu við
margá af leiðandi mönnum héraðsins
frá þeim tfma, er hann var hér sýslu-
maður. Einkum fengu margir tröllatrú
á þvf, að bann mundi aldrei verða
útausandi á fé. í öðru lagi athugalaus-
um og blindum ótta við samband
Framsóknarflokksins við jafnaðarmenn
— Allir áttu að vera bolsar. — í
þriðja lagi þeim misskilningi, að flokkur
M. G væri sparraðatflokkur f tjár-
málum.
Ef um hreinar kosningar væri að
ræ*a um íiald og Framsókn drsg eg
ekki f efa, að fleiri viidu rétta Fram-
sókn >örfandi hönd» og vera »á fram-
tfðarvegi.c
Menn eins og t.d. Jónas læknir,
Pálmi Pétursson, Árni J. Hafstað,
Ávarp.
Samkvæmt áliti Steffensens læknis, sem hefir stundað sjúklinginn frú
Ouðrúnu Kristjánsdóttur, konu Áskels kennara Snorrasonar, er nefndum
sjúklingi hin mesta nauðsyn á að fara utan, til pess að leita sér læknis-
hjálpar. Hinsvegar er efnahagsástæðum þeirra hjóna þannig háttað, vegna
mjög Iangvarandi og þungrar vanheilsu konunnar, að þeim er um megn
að standast af eigin ramleik þann kostnað, sem sigfing frúarinnar hefði {
för með sér. Það eru þvi vinsamleg tilmæli okkar til Akureyrarbúa og
annara, sem lesa þessar Ifnur, að þeir með almennum samskotum hlaupi
undir bagga svo drengilega og svo fljótt, að frúnni verði gert fært, að
taka sér far til útlanda með Goðafossi þann 5. júnf næstkomandi.
Verður næstu daga gengið með samskotalista um bæinn.
Steingrímur Jónsson, bæjarfógeti. Jón Sveinsson, bæjarstjóri.
Sigurður Ouðmundsson, skólameistari. Steinþór Ouðmundsson, skólastjóri.
Ounnl. Tr. Jónsson, ritstjóri. Halldór Friðjónsson, ritstjóri.
Jónas Þorbergsson ritstjóri.
Albert á Pá'astöðum, Björrr á Stóru-
Seylu, séra Tiyggvi Kvaran, séra Lárus
Arnórsson, Jóhann á Ulfsstöðum og
Jón hreppstjóri f Bæ o. fl éru altir f
eðli sfnu frjálslyndir og framsæknir
menn, sem f raun og sannleika eiga
hvergi annarsstaðar heima en ( Fram-
sókn, þó sumir þeirra hsfi einhverra
orsska vegna lent á öndverðum meið.
Eg vildi mælast til við þessa menn og
marga fleiri, að þeir gengu undir próf
og spyrðu sjálfa sig f fullri hreinskilni,
svo sem 20 sinnum á dag f bálfan
mánuð, undir hvaða flokki þeir ættu
fleit sfn hugðarmál — þvf
varðar mest til allra orða
undirstaðan sé réttlig fundin.
Skagfirðingur.
S í m s k e y t i.
Rvlk 20. mal,
Hafnarverkfall hófst f Kaupmanna-
höfn á föstudaginn var. Báist við að
það standi ekki lengi. Hindenburg
hyltur jafnt af hægri og vinstri.
Stjórnin ráðgerir að tollvernda koin
og járn. Sosialistar mótfallnir. Upp-
reist hefir brotist út gegn Frökkum
f Marokko Uppreistarmenn fara hall-
oka, hafa þó nýtfzku útbúnað, er þeir
hafa unnið af Spánverjum.
Búist við að þjóðaratkvæði fari fram
f Noregi um bannmálið á næsta ári.
R'kisstjórnin hefir leigt vélbátinn
Harald til strandvarna á Vestfjörðum
f sumar. Er hann 25 smálestir með
60 hestafla vél, skipst jóri Eliíkur
Kristófersson.
Símað er frá Parfs: Þýzkaland leitar
hófanna um, hvort bandamenn vilji
samþykkja sameiningu Austurrfkis og
Þýzkalands. Alger neitun.
Frétt frá Washington hermir, að
Amerfknmenn heimti af lánþegum
ákveðið fyrirkomulag um aíborgun
skulda.
Frá Moskva er sfmað: í Kákasus
hrýnur hús, 100 menn bfða bana.
Stmað er frá Róm: Mussolini legg-
ur fram frumvarp er bannar allan
leymfélagsskap, til dæmis frfmúrara.
Samskotasjóður aðstandenda sjó-
mannanna er druknuðu f vétur er
orðinn 106 þúsund kr.
Á v a r p i ð.
»Sjúkur var eg, og þér vitjuðuð mín<
Dagur vill vekja sérstaka athygli
á Ávarpinu, sem birtist á öðrum stað
f blaðinu. Mörgum bæjarbúum mun
vera kunnugt um, að það er ekki birt
að ástæðulausu. Það mun vera sjald-
gæft, því betur, að sjúkdómar þjaki
heimilum jafn lengi og þunglega eins
og heimili þeirra hjóna, Áskels kennara
og konu hans. Það er aðeins vegna
stakrar þrautseigju og geðstyrks heim-
ilisföðurins, að þau hjón hafa ekki
beðiðfullan heimilisósigur. Mjög margra
ára þung og margháttuð veikindi
konunnar hafa heldur ekki megnað
að lama þrek hennar að fullu. Nú
telur læknir hennar að hún verði að
leita heilsubótar erlendis. Undangengn-
ar þjáningar og sjúkrakostnaður hafa
sktpað þungar búsiljar, svo að efna-
skortur bannar slik úrræði, nema aðrar
hendur verði réttar fram til bjálpar.
Raunar ætti rfkissjóður að leggja
fram fé, þegar sýnt þykir, að
sjúklingar geta ekki fengið nauðsyn-
lega læknishjálp flandinu sjálfu. Meðan
það er ekki, verða náungarnir að
gera það. Og sá, sem hefir varist
heimilisósigri jafnlengi eins og Áskell
kennari, á raunar þegnfélagslega kröfu
á hendur þjóðinni um að hún liðsinni
honum, þegar viðfangsefnin eru að
reynast algert ofurefli. Skylda þjóðar-
innar er að vernda heimilin. Falli
heimilin ( rústir, fellur þjóðin.
Nýkomnir
ágætir girðingarstaurar.
Kaupfél. Eyfirðinga. *
Rúskinshanzki, grár, tapsðist
á götum bæjarins síöastl. sunnudag.
Finnandi skili i Prentsmiöju Odds
Björnssonar.