Dagur - 28.05.1925, Blaðsíða 2

Dagur - 28.05.1925, Blaðsíða 2
86 DAOUR 22. tbl. *p Kaupfélag Eyfirðinga. Nýkomið: Regnkápur karlmanna .... Kr. 38.00 stk. Karlmannafatnaðir.................frá — 67.50 settið. Karlmannaskór......................- — 18.00 parið. Nærföt karlmanna...................- — 9.00 settið. Manchettskyrtur....................- — 10.00 stk. Flókahattar ;...... - — 3.50 — Harðir hattar................... — 14.50 — Enskar húfur..............; . - — 2.50 — Hálsbindi karlmanna .... - — 1.50 — Pverslaufurkarlm.viðeinf.ogtvöf.flibba--1.40 — Flibbarkarlm.einf. ogtvöf.,stífiroglinir- 0.50 — Kaupfélag Eyfirðinga. Heiisuf ar í Akureyrarhéraði árið 1924, (úr ársskýrslu héraöslæknls.) Árið 1924 var veturinn mildur en vorið kalt og sumarið mjög kalt og votviðrasamt. Skrautblóm þrifust ekki í görðum og uppskura jarðarávsxta var afar lftil. Sj&lfsagt meðfram vegna veðráttunnar var kvillasamt i meira lagi. Ein sótt var þó illræmdust allra og minnistæðust, það var mœnusóUln eða lömunamikln. Manndauðl. AUs dóu 108. DSnar- talan varð i8°/oo (miðuð við fólksfjölda f ársbyrjun); er það svipað hlutfall og var 1922, sem var eitt mesta mann- dauðaár lengi. Helztu dánarorsakir voru þessar: Berklaveiki 2$ (þar af lungnatæring 19, heilabólga 2, önnur berklamein 4); Ellihrumleiki 9; Krabba- mein 5; Heilablóðfall 4; Druknanir 4. Fœðingar. 152 börn fæddust lifandi; 2 andvana. Barnkoman er yfirleitt lftil f þessu héraði (23,5°/oo) f samanburði við landið alt. (26^4), hinsvegar fæðast hér mörg óskilgetin börn. (Þetta árið 15)- Fólksfjöldi var f árslok orðinn 6006. Fjöigun á árinu 8 (tr það lítil fjölgun f samanburði við mörg undanfarin ár, 1923 fjöigaði t. d. um 201 ) í Akureyrarkaupstað hefir þó (jölgað um 35. Þar fæddust á árinu 77 börn, en dóu alls 50 íbúatalan á Ákureyri var f ársiok 2906. Steingrfmur læknir Einarsson gegndi störfum fyrir mig f fjarveru minni vestan hafs rúman fyrsta ársfjórðunginn. Jónas iæknir Rafnar aðstoðaði mig við skurði o. fi. á sjúkrahúsinu. Og hann fór flestar ferðir út um héraðið eða IOI. Sjálfur fór eg 34 ferðir. Það ér orðið algengt að héraðs- læknisins f Höfðahverfithéraði sé vitjað frá Hjalteyri og ytri hluta Arnarnes- hrepps. Það er miklu styttri leið til hans yfir fjörðinn en inn á Akureyri. Hinsvegar er vanalega leitað úr Háls- hreppi f Fnjóskadal til okkar læknanna á Akureyri. Þannig kemst jöfnuður á og væri réttast að breyta læknaskip- unarlögunum samkvæmt þessari hefð. í sambandi við þessi meiniausu strandhögg Höfðahverfislæknisins get eg ekki gengið frám hjá þvf að minn- ast á annan keppinaut, sem á þessu ári hefir náð mikliii iýðbylli f þessu héraði og sfðan víðsvegar um land. Það er hinn svonefndi Öxnafellslæknir, huldumaðurinn Friðrik, sem enginn hefir greinilega séð nema hin skygna bóndadóttir f Öxnafelli. Sjúklingar koma til hennar eða skrifa henni um sjúkdóm sinn eða aenda henni sfm- skeyti og hún taiar við Friðrik. En hann lfknar fólkinu á undursamlegan hátt. Msrgir verða hans varir þegar lækningin kemur, þannig að straumur fer um þá allra snöggvast og batnar stundum um leið, en aðrir finna engan straum og batnar þó eða batnar ekki. En sumir, sem bráðfelgir eru, deyja þrátt fyrir alt. »Ekki verður feigum forðað!« Þvf verður að skjóta hér inn f, að stúlkan f Öxnafelii Margrét, er af öllum kunnugum sögð bæði greind og sérlega vönduð og ætti skilið meiri laun en hún hefir hingað til fengið hjá þeim, sem hún hefir leitast við að bjálpa tii að öðlist hjátp. Fyrir ailskonar ýkjur og umburðar- þvaður um þessi fyrirbrigði hefir trúin magnast og fleiri og fleiri leitað sér Ifknar, svo að nú streyma bréf og sfm- skeyti til Oxaafells vfðsvegar af öllu landinu, en nú einna mest af Austur- landi. Lengi var aðsóknin mest úr hinni upplýstu Þingeyjarsýslu. Hafa sumir haldið að bráðum þyrfti ekki lengur neinna annara lækna við, við hink svonefndu lærðu læknar gætum hætt öllu okkar káki og farið að púla f kúgrasi, en I Oxnafelli yrði lækninga- miðstöð alls landsins og þegar víðboðið kemur gætu allir leitað þangað loft- leiðis og fengið læknisráð sem dygðu. Þá mælti hinn mikli kappi Tertius; •Mikinn skandaia hefir þú unnið voru rfki!« — stendur f gamalli riddara- sögu, — og sömu orð hefðum við Akureyrarlæknar tekið okkur f munn ef Friðrik kollega væri eins skæður keppinautur eins og hann er sagður. Þó einkennilegt sé höfum við haft góða aðsókn eftir sem áður og engu sfður verið sóttir, ekki einu sinni þarna framan að úr nágrenni við Friðrik, heldur enn áður. Til þess að komait næ-.t sönnu um kraftaveikin hefi eg reynt að kry'ja til mergjar ýmsar sögur, sem mér hafa borist Hafa þær sumar reynst ýkjur einar með litlum sannleikakjarna og af þvf tagi, að eðlilegt var að sjúklingnum batnaði, þvf tfminn læknar margt og margt batnar jafnt af m x túrum, sem hómopatalyfjum, »pater- noster* og bænaþulum eða blávatni og jafnvel þvagi («br. þegar skottu- læknir pissaði f glas og kerlingunni batnaði augnveikin af dropunum). En sumar cögurnar hafa verið samskonar sannar kynjasögur og við lesum um f Bisktpisögum og sem enn gerast f Lourdes og vfðar, þannig, að tauga- veiklunarkvillar og selasýki (einkum f kvenfólk') batnar fyrir trú og fmyndun stundum snögglega. Slfkt þekbja allir læknar meira og minna af eigin reynd, og kemur oft fyrir bæði á sjúkrahús- um og f heimahúsum (en um það er ekki eins mikið talað og þegar huldu- læknir á ( hiut.) Eg hefi oft dskað að Friðrik gæti sparað mér ferðir a. m. k fram f fjörðinn, en sú hefir ebki orðið raun á Og eg hefi oft óskað um þá sjúkl- inga, sem eg hefi ekki treyst mér til að lækná, eins og sjúkl. með slæma tæringu eða krabbamein (og sem eg hefi stundum vitað leita til Oxaafells), að þeim mætti batna vel og eg mætti sjá verulegt kraftaverk. En þvf miður hefi eg aldrei orðið sifks var og yfir- leitt aldrei fengið ástæðu til að taka ofan hattinn til heiðurs Friðriki. Eg hefi um hrið gert mér að reglu, að spy/ja þegar eg var sóttur út um sveitir eða mfn var vitjað: >Hefir ekki verið farið f OxnafelW’* Þá hefir svárið verið ýmist, að vfst hafi verið þangað leitað, en árangurslaust, eða þá að fussað befir verið við og þvf tekið fjarri að vert væri að trúá á sikan hégóma. Og eg hefi f seinni tfð margár fregnir af þvf, að einmitt frammi f firðinum f grend við Öxnafell séu fleiri og fléiri farnir að snúa bakinu við Öxnafeilslækningunum, ekki má- ske sfzt vegna þess, að hljóðbært hefir orðið að stúlkan sjálf hafi f veikindum sfnum þurft að snúa sér til læknanna Jónasar Rafnars og Vald. Strffensens hér á Akureyri. Eg hefi fengið bréf og margar fyrir- spurnir vfðsvegar að um undraiæknir- inn okkar eyfirska. Einkum hefi eg verið spurður um samvinnu okkar, þvf sögur hafa gengið austanlands og vestan, að huldulæknirinn væri svo að segja aðstoðalæknir minn og að mikið af því eða alt sem vel tækist á sjúkra- húsinu væri honum að þakka. Það væri nú djarft af mér, að þvertaka fyrir að r.okkuð væri satt f þessu, þvf ef satt er að framliðnir menn geti notað miðla og borðfætur til að opin- bera sig f gegnum, þá væri eins trú- legt að Oxaafeilslæknirinn færi f mig, ekki eins og fjandinn f svfnin, heldur eins og heilagur andinn sjálfur þegar mest lægi á. En undarlegt er að eg sknii ekki hafaorðið þess var, enginn stráumur hefir gagntekið mig eða dáleiðslutiifinning og mér finst alt hafa gengið fyrir mér eins og endranær. En ef svo skyldi vera, að sjúklingar þeir, sem eg hefi gert hættulega skurði á og vel hcfir tekist með, skyldu eiga huldulækninum að þakka iff og heilsu, þá kemur mér undarlega fyrir, að hann skuii ekki hafá verndað lff sinna sam- sveitunga frammi f Grundarþingum betur en raun hefir orðið á þetta um- liðna ár. Þvf svo einkenniiega rauna- lega hefir brugðið við, þetta ár, sem hann hefir svo ötullega fengist við að lækna náunga sfna, að þá hafa langí- um flelri dáið í Grundarþlngum en nokkru slnnl, síðan 1908. Þetta minnir á söguna af lækninum sem spurði oft sjúkiinga sfna þannig: >Hvernig varð yður af meðulunum sem eg sendi?* og þeir sögðu þávanalega: »Mér versnaði stórum.< Þá sagði læknirinn: »Já, vérsnaði. Já, það veit ég og það veit egU Svipaða sögu get eg sagt af einum sjúklingi sem leitaði til spftalans til ljóalækninga en þorði ekki annað en að leita til Öxaa- fellslæknisins um leið til að vera vissari um bata. Það brá svo við að honum hrfðversnaði á eftir, sem annars er sjaldgæft f Ijósunum. Eftir nokkurn tfma batnaði þó aftur og áleit eg engan vafa á að það hefði verið Ijósunúm einum að þakka. En máske munu aðtir segja að þar hafi Friðrik bætt úr skákl Svo mikið get eg ennfremur sagt, að eg veit ekki flugufót fyrir þeirri sögu, sem tögð hefir verið um sjúkl- ing er eg átti að hafa ákveðið að taka fót af, þareð drep var f fætinum og holdfúi með mikilli fýlu. Þegar eg leysti af fætinum og ætlaði að fara að skera fylgdi sögunni, að fóturinn hefði verið orðinn heili og enginn ódaunn lengur. Og þetta átti að vera Friðrik að þakka, sem komið hefði og bundið um fótinn um nóttina og grætt bann algerlega. Eg kann svo ekki þessa sögu lengri, en vildi óska að þeir vildu enn þraulreyna krafta Frið- riks, sem fyrir vonbrigðum verða bjá okkur veslings lærðu læknunum. Og glaður skal eg verða þegar eg stend frammi fyrir kraftaverkinu og verð að segji lfkt og Bjarni Tb. þegar hann heyrði Gunnarshóima: »Eg held mér sé nú bezt að hætta að yrkja!< Loks vil eg bæta þvf við, að mér finst þetta andlega faraldur, hulda- lækningaátrúnaðurinn vera tfmanna tákn. í nokkur ár hefir verið unnið að þvf af kappi, áð fyila fólkið með andatrú, með þeirri fullyrðingu að þar sé um raunvfsindi að ræða. En grunnhyggna fólkið er f meirihluta ætfð. Og svo koma þessi stórmerki til sögunnar og þau hljóta öil að vera vissuleg sann- indi. Fréttir fljúga fram og aftur þar til þeir skárri fara einnlg að trúa. Andlega smitunin þarf ekki nærri eins langan undirbúningstíma eins og misl- ingar. Og dæmi veit eg til þess að svo smitaðir eru jafnvel góðir menn orðnir af Oxaafellstrúnni, að þeir lfkt og sjúkiingurinn, sem eg áður mintist á, treysta þvf ekki eingöngu að sækja okkur Jónas Rafnar, heldur senda fyrst eða um ieið f Öxnafell. »Löstur er synd, sem orðin er að drottnandi vana< lærðum við f kverinu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.