Dagur - 04.06.1925, Blaðsíða 3
23. tbl.
DAOUR
91
V»~ '*’~i"1“ i
0
0
0
0
0
0
0
Sport-
B U X U R,
lœkkaö verð í
@/
0
0
0
0
0
0
jg BRAUNS-verzIun. jg
til að sigraat á berklunum. Heilsuhæli
ber að nota sem heilsuhæli þ. e. áskilja
þar piáss aðallega sjúklingum á byrj-
unarstigi veikinnar, sjúklingum sem
eru að miklu leyti fótaferðarserir og
færir um að nota hælismeðferð. En
spftala á að nota sem spltala þ. e.
áðallega fyrir rúmliggjandi og dauð-
vona sjúkiinga. Heilsuhæli eru þess-
vegna miklu dýrari en venjuleg sjúkra-
hús að á þeim og kringum þau er
miklu meira rúm áskilið fótaferðasjúkl-
ingum. En séu þau notuð sem spftalar
mestmegnis er illa farið með hið dýra
pláss.
Hinsvegar verður þsð að skiljast
alþýðu hér eins og annarstaðar flönd-
um að langt leiddir tæringarsjúklingar
geta að ósekju legið á mörgum heim-
ilum ef þar eru engin börn en sérstakt
herbergi og bjúkrsnarkona til að sinna
þeim.
Það er vöntun á hiúkrunarkonum i
sveitum sem um fram alt veldur þvf
að spftalar landsins fyllast bér af berkla-
veikum langtnm meira en f nokkrum
öðrum löndum en alls ekki það að
berklaveiki sé bér mágnaðri. Þessvegna
rfður mjög á þvf að rfkissjóður styðji
duglega að þvf að stofnaðar verði Iff-
vænlegar stöður fyrir æfðar bjúkrunar-
konur f öllum læknishéruðum landsins.
Ennfremur vantar oss hér á lsndi
það sem aðrar þjóðir hafa þ e hress-
ingarhæli fyrir þá berklasjúkiinga sem
ekki hafa fengið bata á sjúkrahúsi eða
hæli en eru hálfvinnufærir.
En það er mér ijóat að hin dýru
berklavarnalög vor komi aldrei að
tilætluðu gagni nema skipaður verði
sérstakur framkvœmdastjóri eöa yfir-
lœknir berklavarnanna til að hafa
eftirlit með útbreiðslu veikinnar f land-
inu og niðurröðuo sjúklinga á spftala
og hæli.
Frh.
»FrjálS verzlun* er eitt af slag.
orðum ísaldsmanna. Mönnum er talin
trú um að það sé bæði skömm og
skaði að ganga f nokkru á móti svo-
nefndri frjálsri verzlun. Almenningur
þarf að gjalda varhuga við að gleypa
þessa flugu. »Frjáls verziun,* eins og
henni er nú háttað í heiminum, þýðir
raunar ekkert annað, en ótakmarkað
frelsi okurhringa (>trusts«) og einstakl-
inga, til þess að raka saman í sina
vasa fjármunum þjóðanna, það er auð-
velt að sýna fram á og verða sfðar
færð rök að þvf að ekkert spillir íi-
lendingum eins og hin svonefnda frjálsa
verzlun. Kaupmanna- og einkum mang-
araskarinn er að verða skömm og
ikaði fyrir þessa þjóð.
~*i-—nn~^~rw»ri
*
S í m s k e y t i.
Rvík 2. júnf.
Brussel: Msx gafst upp við að mynda
ráðuneyti.
Berlfn: Nansen ráðgast við R kis-
kanzlarann um vfsindalega póllör á
loftskipum, én það er ekkert skylt
Amundsensfélaginu.
Sofia: Konungurinn hefir undirskrif-
að dsuðadóm þriggja manna fyrir dóm
kirkjusprenginguna, voru þeir hengdir
samdægurs á dómkirkjutorginu f viður-
vist 7000 manna.
Stokkhólmur: Tundurdufi finnast á
reki f Norðursjónum, mótorskip sekk-
ur og sjö af átta skipsmönnum
drukkna.
Los Angelos: Fjársöfnun til bjarg-
arleiðangurs Amundsens er hafin.
Coolidge er meðmæltur að bjargarför
verði farin. Mörg stórblöð f Evrópu
telja Amundsen hafa farist, én Nansen
telur alla spádóma ómérka.
Oslo: Óðalsþingið fellir stjórnar-
frumvarp um afnám burðargjaldsrétt-
inda opinberra skrifstofa, felli iag-
þingið (rv. fer stjórnin frá.
Reykjavfk: Hanseat frá Bremerhav-
en, sem Þór tók, var sektaður um
15000 gullkrónur og afli og véiðar-
færi upptækt. Gunnari Egilssyni hefir
verið veitt fiskfulltrúaembættið á Spáni.
Sfra Friðrik hefir tekið við dómkirkju-
prestsembætti sínu, Ferðamannafélagið
»Hekla« gefur út bækling á énskú,
10 000 eintök, fyrir útlenda ferða-
menn. Bækhngnum er útbýtt frftt er-
lendis.
Rvík 3. júnf.
Samkvæmt sfmakeyti frá Oslo tii
Socialdemokraten f Khöfn er helmingur
Amundsensmannafarinn frá Spitzbergen
heimleiðis. Álfta pólflug mishepnað.
Sumir álfta að póltararnir séu einhver-
staðar gangandi, aðrir að alvarlegt
óhapp hafi hent.
London: Bretar ætla að byggja 5
beitiskip; 8000 skipismiðir fá atvinnu.
Parfs: Bmdamenn bjóðast til að
fara frá Kiel með herina, uppfyili
Þjóðverjar aívopnunarskiiyrði, sem eftir-
litsnetnd Bmdamanna ásakar þá um
að þeir hafi ekki gert.
Rvík: Danska listasýningin opnast
bráðiega. Er talinn merkisatburður af
mörgum.
Kennarafundur verður haldinn
hér i barnaskólahúsinu, og hefst á
laugardaginn kemur kl. 1. Fundinn
sækja alþýðukennarar frá Siglufirði,
Húsavfk og svo úr nálægum sveitum
og þorpum. óvfst er enn hvort Skag-
firskir kennarar geta sótt hann.
Goðafoss kom f morgun. Meðal
farþega var Stefán Stefánsson lögfiæð
ingur frá Fagraskógi.
Foreldrafufld hafakennarar barna-
Bkólans ákveðið að hafa hér f Sam-
komuhúsinu á sunnudaginn kemur,
kl. 4. Er þangað boðið fyrst og fremst
foreldrum barna f bænum, en aðgang-
ur heimilaður öllum fulltfða borgurum,
Fundáréfnið er uppeidismál.
Muníð eftir
iðnsýningunniáAkureyri 1925, er hefst 28. júní.
Menn aðvarast um að senda muni í tæka tíð.
Iðnsýningarnefndin.
F r é f t i r.
Gíffíng. Á laugardsginn var voru
gefia saman f bjónaband ekkjufrú
Gannlaug Kristjánsdóttir og Jóhannes
Jónasson verzlunarmaður, bæði til
heimilis hér f bænum.
Gagnfrœðaskólinn, Próf Gign-
fræðaskólans eru nýlega afstaðin. Luku
57 nemendur burtfararprófi, 3 gátu
eigi gengið undir próf, sökum veikinda,
og 1 stóðst eigi prófið. Fara hér á
eftir nöfn gagnfræðinga og aðaieinkunn
hvers um sig.
Aðaleink.
1. Ágúst Sigurðsson, Borgarfj. 646.
2. Ástvaldur Eydal, Skagafj. 6,75
3 Baldur Öxdal, N.-Þing. 6,27.
4 BenedíktÞórarinsB.,N.-Múlas. 5,67.
5 Böðvar Guðjónsson, ísafirði. 6,14.
6 Eðvarð Árnason, Ak. 6,19.
7 Eðvarð Sigurgeirsson, Ak. 431.
8 Etður Kvaran, S.-Múlas. 5 67.
9 Erlendur Þorsteinss. S.-Múlas.6 40.
10 Gfsli Gfslason, S.-Þing. 637.
11 Guðríður Aðalsteinsdóttir, Ak. 6 54.
12. Gunnláugur Halldórsson, Vm. 5 39.
13. Gústaf A. Agústsson, Eyjaf. 5,67.
14. Hafliði Halldórsson, Sigluf. 6 16.
15. Hafliði Helgason, Sigluf. 6,72.
16. Hólmgeir Pálmason, Eyjafj. 6 44.
17 IngibjörgGnðmundsdóttir, Ak. 5,88.
18. Jóhann Möller, Skagafj. 649.
19 Jón A Sigurgeirason, Ak. 606.
20 Jón Guðmannsson, Húnav. 5 67.
21. JónLund'Baldursson,S. Þ ng 678.
22. Ktrl L Benediktss., Húnav. 6,74.
23 Kristfn Bjarnadóttir, Ak. 5 77.
24 Kdstfn Vernharðadóttir, ítaf. 4 61.
25 Kristján P. Sigurðsa , N Þing. 5 11.
26 Kristj Þorvarðars., V. Skaftat.6,20.
27 Ó'afur Hansson, Burgatfj. 702.
28. Pétur Einarsson, Húnav. 6 30
29 Sigrtður Oddsdóttir, Barðastr.6 28.
4,
30 Stgrfður Stefánsdóttir, Ak. 4 99.
31. SigurðurBenediktss , Skagafj 568.
32 Sigurður E. Ólason, Hnappad 5 71.
33 Sigurður Pálsson, ísaf. 648
34 Solveig Kristjánsd., S. Þing. 592.
35 Svafa Skaftadóttir, S. Þing. 6 57.
36 Unnur Bjarnadóttir, Ak. 6 40
37. Þórður Þorbjarnars.,Barðastr. 6 91
P/ófdómendur við burtfararprófið voru
þeir Bjarni Jónsson, bankastjórl, Böðvar
Bjarkan lögmaður og Jónás Rafnar,
læknir. Skólauppsögn fór fram laugard.
30. maf, að viðstöddu fjölmenni. Við
það tækifæri flutti skólameistari langa
og merkilega ræðu um gildi þegnlegrar
fræðslu. Vonandi kemur ræðan fyrir
almenningSsjónir f skólaskýrslunni,
eins og venja er til.
Dánardœgur. Fyrir skömmu and-
aðist að neimili sfnu Jóhannes Jóhann-
Skófatnað
karla og kvenna og barna, mikl-
ar birgðir, koma nú með e. s.
uGoðafoss" í skóverzlun
Hvannbergsbrœðra.
Á HVERJU
HEIMILI
er sápa notuð meira eða
minna, hyggin húsmóðir
ætti því að vera mjög
nákvæm með innkaup á
sápu, því aðeins það
bezta er gott — Hreins
Kristalssápa inniheldur
meira af hreinni sápu
en nokkur blautsápa er-
lend sem hér er seld.
— Verið viss um að fá
hana.
esson bóndi f Öxnafellskoti, miðaidra
maðnr. Hann dó úr lungnabólgu. Þá
er og nýdáinn úr máttleysisveiki ungi-
ingspiltur á Rútsstöðqm f Eyjaflrði,
sonur Steinþórs Sigurðssonar bónda
þar.
Konsert ætia að halda f Nýja-Bfó
i kvöld Þjóðverjinn Otto Stöterau frá
Hsmborg og Þórh&llur Árnason frá
Reykjavfk, sem dvalið hefir um langt
skeið f Þýzkalandi og stnndað þar
fyrst nám á violincello (atórfiðlu) og
sfðan verið fastur starfsmaður ( Ham-
borg hjá stórri hljómsveit. Stöterau
er orðinn þektur pianoleikari f föður-
landi sfnu, og er ekki að efa, að þessi
koasert þeirra félaga er meir en þeas
verður, að bæjatbúar sæki hann. Félag-
arnir eru á skemtiferð til íslands og
eru nú á heimleið með Goðafossi.
GóBur gestur. Kennaraskólastjóri
séra Magnús Helgason er væntanlegur
hingað um miðjan þenna mánuð. Er
hann á ferðalagi um Norðurland fyrir
>Ssmband norðlenzkra kvenna* og
flytur fyrirlestra um uppeldismál. Ak-
ureyrarbúum mun gefast kostur í að
hlýða á hann, og mun margur hyggja
gott til, enda getur ekki f fyrirlestrum
fegurra mál eða meiri hjartans hlýju.