Dagur - 26.06.1925, Blaðsíða 1

Dagur - 26.06.1925, Blaðsíða 1
DAGUR Kemnr úf á hverjum fimtudegi. Kostar kr. 6.00 árg. Qjalddagi fyrir 1. júlí. Innheimtuna annast' Arni Jóhannsson í Kaupféi. Eyi‘ AFOREIÐSLAN cr hjl Jónl Þ. t»ðr. Norðnrgðtn 3. Taisimi 112 Uppsðgn, bundin við áramðt ■é komin til afgreiðiinmanni fyrir 1. dei. VIII. ár. Abureyrl, 26. júni IÐ25. 26. blaöi Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum að ekkjan Sigurlaug Jónsdóttir frá Krossastöðum, andaðist á Sjúkrahúsinu á Akureyri 15. júni s.I. Jarðarförin fer fram á Möðruvöllum i Hörgárda! þriðjudaginn 30. þ. m. og hefst með húskveðju á heimili hinnar látnu kl. 11 fyrir hádegi. Krossastöðum 23 júní 1925. Börn hinnar látnu. Aðalfundur Sambands íslenzkra samvinnufél. var háður i Rvik dagana 6 til 10. þ. m. Á fundinum voru mættir um 40 fulltrúar auk forstjóra Sambands- ins og tveggja framkvæmdastjóra, stjórnarnefndarmanna, endurskoð- enda og nokkurra gesta. Fundarstjóri var sem að undanförnu S<gurður S. Bjarklind, kaupfélagsstjóri i Húsavik. Um leið og varaformaður Sam- bandsins Sig. S. Bjarkiind setti fund- inn mintist hann með hlýrri ræðu nýlátins formanns Sambandsins Ólafs Briem. Forstjórinn Sigurður Kristins- son mintist og Ólafs einkar fagur- lega. Var Ólafur mörgum barmdauði vegna mikilla mannkosta. Forstjóri og framkvæmdastjórar innflutnings- og útflutningsdeilda gáfu venjulegar skýrslur um starfsemi Sambandsins á liðnu ári. Skólastjóri Samvinnuskólans og ritstjóri Tima- rits fsi. Samvinnufélaga gerði og grein fyrir störfum sinum. Að venju var kosin nefnd til þess að athuga reikningana. Hagur Sambandsins hafði mjög blómgast á árinu og höfðu deildir þess yfirieitt bætt hag sinn til mik- illa muna. Hætta sú, er kreppuárin lögðu á ieið þessa fyrirtækis hefir nú verið bægt frá að fuilu og öliu. Verði unt að stýra hji nýjum, veru- legum áföllum má gera ráð fyrir áframhaldandi vexti og velgengni f samvinnustarfssemi landsmanna. Reikninganefndin lagði ekki fram neitt nefndarálit, heldur aðeins tillögu til fundaryfirlýsingar og var hún rökstudd með ræðu formanns nefnd- arinnar Sigurðar bónda að Arnar- vatni. Var niðurstaða nefndarinnar og greinargerð Sigurðar mjög á- nægjuleg fyrir samvinnufélögin og þá menn, er hafa unnið mikii störf f þágu þessa stóra framtíðarmálefnis. Fundaryfirlýsingin var samþykt f einn hljóði og varhúnáþessa leið: .Fundurinn lýsir yfir þvi, að hann telur niðurstöðu á rekstursreikningi S. í. S. um næstliðið ár mjög góða og glæsilega og að hagur Sambandsfélaganna yfirleitt hafi batn- að framar vonum. Þakkar fundurinn stjórn og starfsmönnum S. í. S. vel unnið starf. Jafnframt lýsir fundurinn yfir að hann felst á aðgerðir S í. S. í einstökum skuldamálum og treystir því, að stjórn og starfsmenn beiti framvegis eigi síður en að undanförnu varúð, festu og lægni i viðskiftum við þær deildir, sem tæpast standa fjárhagslega.' Fundurinn tók ýms mál til athug- unar auk venjutegra Sambandsfundar- mála. Kæliskips og frystihúsamálið var merkast þeirra. Skipaði fundur- inn nefnd i það mál og lagði nefndin fram álit og tillögur í fimm liðum og voru þær samþyktar með litlum breytingum. Fara þær hér á eftir: .Fundurinn skorar á Sambandsstjórnina að beitast eftir megni fyrir þvf að tilraunum með útflutning á frosnu og kældu keti verði haldið áfram í svo stórum stU sem ástæður um frystingu á keti heimila og sem að öðru leyti þykir ráðlegt." .Fundurinn telur nauðsyn á að koma upp frystihúsum til að frysta í ket til útflutnings úr aðalketútflutningshéruðum landsins. Telur hann þó rétt að ekki sé hrapað svo að framkvæmdum að málið bíði við það hnekki og leggur í þvi efni megináherzlu á að landsmenn eigriist skip til þessara ketútflutn- inga jafnhliða og fyrstu frystihúsin eru reist," „Fundurinn telur þetta mál þannig vaxið að rétt sé og sjálfsagt að samvinnufélögin f landinu hafi framkvæmdirnar með hönd- um, felur því fundurinn stjórn og fram- kvæmdastjórn Sambandsins að leggja ráð á hvar haganlegast sé að reisa frystihúsin og hversu örar framkvæmdir séu hafðar á bygg- ingu þeirra." • .Sambandsfélögin tryggi að Va tjón það sem kann að leiða af byggingu og rekstri 1—2 fyrstu frystihúsanna sem einstök sam- bandsfélög reisa, en þó því aðeins að skil- yrðin fyrir ábyrgð hlutaðeigandi sýslunefnda á rikissjóðslánum séu með þeim hætti að stjórn Sambandsins teiji félögunum þau ekki skaðleg og nái þessi ábyrgð Sambandsins aðeins til framleiðslu félagsmanna í hlutað- eigandi SambandSfélagi, enda hafi Sambandið fyrir sitt leyti samþykt skityrði þauersýslu- nefnd hefir sett fyrir ábyrgð sinni fyrir rikissjóðsláninu.* .Fundurinn felur Sambandsstjórninni að skora á ríkisstjórnina að undirbúa sem fyrst kaup á hæfilegu kæliskipi til flutninga á frosnu keti: a. með því að leita tilboða um nýsmíði á kæliskipi, b. með því að leita. tilboða um gamalt skip, c. með því að taka upp í næsta fjárlaga- frumvarp ríflega fjárveitingu í þessu skyni og sé þessum undirbúningi lokið fyrir næsta þing." Formaður Sambandsins til tveggja ára var kosinn Ingólfur Bjarnarson í Fjósatungu. — Tveir meðstjórn- endur tii þriggja ára voru kosnir Þorsteinn Jónsson kaupfélagsstjóri á Reyðarfirði og Sigurður Bjarklind kaupfélagsstjóri í Húsavik. — Vara- formaður tii eins árs var kosinn Porsteinn Briem prestur á Akranesi.— Varameðstjórnendur tit eins árs voru kosnir Tiyggvi Þórhallsson ritstjóri og Sigurður Jónsson bóndi að Arn- arvatni. Endurskoðandi til tveggja ára var endurkosinn Jón Quðmunds- son frá Gufudal en varaendurskoð- andi Sigurgeir Friðriksson bóka- vörður. Eins og lesendum biaðanna er vel kunnugt hefir Morgunblaðið og önnur íhaidsblöð gert sérfarum að vekja úlfúð meðal samvlnnumanna út af ákvörðun Sambandsfundar í fyrra um að styrkja samvinnublöðin og tryggja um leið, að eigi falli niður varnir gegn þeim árásum, er samvinnufélögin i landinu verða sífeit fyrir. Vaifýr mun hafa talið sér skylt að vera á verði i þessu máli fyrir húsbændur sina nú, er fundur kom saman. Hann birti þvi i Morg- unblaðinu eina af þessum umhyggju- greinum um velferð samvinnumál- anna! Kom sú grein inn á Sam- bandsfundinn um leið og fyrir skyldi taka tillögur úr Skagafirði og frá Snæfellsnesi i þá átt að takmarka styrkinn til blaðanna. Var þess getið tii að samtök um þessa herför hafi átt sér stað milli skagfirzkra Bsam- vinnumanna," og þessa vesæla of- sækjanda samvinnustefnunnar. Munu þeir hafa vonað, að þetta rógmæli Vattýs sannfærði fulltrúana. Áhrifin urðu þó gagnstæð. Jafnvel þó skrif Valtýs væri eins og sjáifur hann og þvi að engu hafandi var það vottur um sivakandi hug þeirra manna, er andstæðingarnir kaupa, til pess að vinna skemdarverk i félagsmálum bænda. Þessi bjánalega ihlutunar- semi um einkamál pessarar stofnunar varð til þess eins, aðskerpa hugina og poka liðinu fastar saman. Tiilaga þeirra Skagfirðinganna, sem einkum vakti umræður, hlaut litinn byr. Bar Jón ívarsson fram dagskrá svohljóðandi: »Þar sera stjórn Sambandsins hefir bæði um þetta mál sera önnur jafnan farið vel °g hyggilega með allar heímildir aðalfundar telur fundurinn ekki ástæðu til að hlutast frekar til um styrk til samvinnublaðanna og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.< Var óskað nafnakalls um dagskrána og fór atkvæðagreiðsla á þá leið, að 32 sögðu já, 5 greiddu ekki at- kvæði og 3 voru fjarverandi. Um þá 3, er voru fjarverandi, var það kunnugt, aö þeir voru dagskránni fylgjandi. Aðra tillögu áttu skagfirzku Ssam- vinnumennirnir0 af svipuðum toga spunna. Var hún á þá leið að skora á Sambandsstjórnina að beita sér fyrir þvi að breyta *soIidariskun ábyrgð félaganna innan Sambands- ins i takmarkaða ábyrgð. Eftir all- miklar umræður var borin upp til atkvæða dagskrá frá Jóni Jónssyni i Stóradai svohljóðandi: .Með þvi að fundurinn lítur svo á, að ekki sé tfmi til kominn að takmarka ábyrgð félaganna gagnvart S. í. S. og hann hins- vegar er mótfallinn takmörkun hennar innan einstakra kaupfélaga, er tekið fyrir næsta . mál á dagskrá * Var þessi dagskrá samþykt með 28 samhljóða atkvæðum. Þessi fundur var með ánægjulegustu Sambandsfundum.Fjárhagsástæðurn- ar voru eins góðar og frekast mátti vænta. Og þótt aliskarpur ágrein- ingur yrði um tvö siðasttalin mál, var eindrægni .fundarins mikil og andstaðan úr Skagafirði svo veik og fáiiðuð, að hún mátti sín ekki mikils. Munu hinir gætnari og hóf- látari Skagfirðingar sætta sig við að hlita úrskurði jafn samhents og yfir- gnæfandi meirihiuta sem þess, er hér kom fram íandófsmáium þeim, er þeir telja sig þurfa að halda uppi á fundum Sambandsins. Á þessum fundi voru fulitrúar, sem hafa orðið að sæta mótgangi Tím- ans og Dags í stjórnmálum. Var þó samvinnan við þá á þessurn fundi hin ánægjulegasta. Verður reynslan sú, að þar sem góðir samvinnumenn eiga hlut að, kemst stjórnmálaágrein- ingur ekki inn fyrir vébönd félags- málanna. Það eru ekki samvinnu- mennirnir, sem leiða þá asna inn f herbúðirnar. Að loknum fundi komu fundar- menn saman til gleðskapar og treýstu viðkynningu sína og félags- bönd. Var sú stund ánægjuleg og góð til minningar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.