Dagur - 17.11.1926, Blaðsíða 4

Dagur - 17.11.1926, Blaðsíða 4
192 DAOUR 50. lb«. (Framhald frá 2. síðu.) Samt sem áður verður því tæplega neitað, að bæjarstjórnin hefir verið tómlát um þetta stóra mál. Hún lætur það líða um dal og hól, þar til í ó- efni er koraið. Orðasveimur um að kaup muni vera að gerast »á bak við tjöldin* kemur fyrst verulegum skrið á aðgerðir hennar. En um seinan. Pví mun ekki verða neitað, að ef stórir hlutir eiga að gerast, þurfi fremjendur þeirra að vera öllu aðsúgsmeiri en bæjarstjórn Akureyrar hefir verið í þessu máli. En hún hefir nokkrar afsakanir. Hún hafði ástæðu til að ætla, að um sölu Oddeyrarinnar yrði hlítt venjulegum aðferðum, að eignin yrði auglýst, að feginsamlega yrði tekið við tilboðum og að bænum sjáifum yrði sýnd sú kurteisi, að bjóða honum kaup á sínum eigin grunni, í stað þess að bægja honum með brögð- um frá að gera tilboð, eins og raun varð á. Verður nú bæjarstjórnin að sitja við slíkt, sem orðið er. En vel mætti hún láta þessa atburði verða sér að kenningu um, að hún þurfi framvegis að verða árrisulli í þeim málum, sem miklu skiftir um, að eigi dragist úr höndum hennar, Ragnar boejarfulltrúi. Þess munu engin dæmi, að slík andúðaralda hafi risið gegn neinum manni hér í Akureyrarbæ eins og nú er risin gegn Ragnari Ólafssyni út af Oddeyrarkaupunum. Ándúðin hefir lýst sér á eftirgreindan hátt: Samverka- menn hans í bæjarstjórninni hafa lýst »megnri óánægju« sinni og undrun yfir aðgerðum hans. Fjölmennur borgara- fundur hefir lýst »megnri gremju* yfir framkomu hans. Og í umtali manna á meðal kveður það sífelt við, að óhönduglega hafi til tekist um ádeilur og umræður á borgarafundinum, þar sem þær hafi snúist nær eingöngu gegn hinum danska píslarvotti en eigi gegn þeim manni, sem hlyti að bera aðalsök í máiinu, Ragnari bæjarfulltrúa Ólafssyni. Og sök Ragnars er í fáum orðum þessi: Hann hefir gerst keppinautur bæjarins í miklu hagsmunamáli hans og gengið gegn þeirri viðurkendu stefnu í pólitík allra bæja og borga, að þær eignist grunn sinn og strand- réttindi. Hann hefir, sökum ágirndar, metið meira eigin hag en trúnað þann, er borgararnir hafa sýnt honura með því að fela honum bæjarfulitrúastörf. Þeir menn, sem hafa tilhneigingu til þess að bera blak af Ragnari Ólafs- syni í þessu máli, benda á yfirlýsingar hans á borgarafundinum, þar sem hann lýsti yfir því, að hann væri fús til þess að selja bænum það af Oddeyr- inni, „sem hann hefði með að gera“ með aðgengilegum kjörum. Og þeir benda ennfremur á, að ádeilur þær, sem R. Ól. verður nú fyrir, muni spilla fyrir því, að bærinn nái þessum »aðgengilegu kjörum« I Við þetta er þrent að athuga: í fyrsta lagi á Ragnar Ólafsson að skera úr því hvað bærinn »hafi með að gera« af þessum verðmætu eignum. Og er öllum Ijóst, að samkvæmt áliti R. Ól. á Tanginn að vera undanskil- inn. Hversvegna? Vegna þess að hann er verðmætastur og mest hagnaðarvon að þeim kaupum. Með öðrum orðum: R. Ó1 og aðrir einstakir borgarar mega eignast verðmæta grunna og strandréttindi sér til fjárgróða, en bæjarfélagið má ekki eignast neitt, sem hagnaðarvon er að. Þetta kemur vel heim við skoðanir þorrans af þéim kaupmönnum, sem reka verzlun þjóð- arinnar. Nægir að benda á kolaverzl- unina á stríðsárunum, Ríkið og bæjar- félögin eiga, samkvæmt skoðunum þessara manna, að taka á sig alla áhættuna en eftirláta þeim allan hagn- aðinn! í öðru lagi verður það á valdi R. Ól. sjálfs, að ákveða, hvað séu »aö- gengileg kjör*. í þriðja lagi er það hneykslanleg tilgáta gagnvart R. Ól. sjálfum, að hanrr muni taka að reka hefndarpólitík gagnvart bænum fyrir það, að borg- ararnir dirfast að víta hann fyrir hneykslanlega framkomu hans sem bæjarfulltrúa. Það er mikil svívirðing, að slík tilgáta skuli sjást í blaði því, sem hefir tekið að sér að verja hann, þó af veikum mætti sé. Mönnum verður á að spyrja: Á að fara að reiða kreptan hnefa fjárvaldsins að mönnum, til þess að þagga aðfinslur og kefja skoðanir?! Hvort sem R. Ól. sjálfur, eða aðrir fyrir hans hönd, vilja beita slíku, þá skal athygli þeirra vakin á því, að við búum ekki í Bandaríkjunum, þar sem skoðanir og saravizkur manna eru hneptar i fjötra fjárvaldsins. R. Ólafsson er að vísu voldugur gagnvart þessum bæ, líklega voldugri en Rockfeller var gagnvart Bankaríkjunum á dögum Roosvelts. En hann og fylgifiskar hans þurfa að fá að vita, að hvenær sem þeir vilja gerast svo djarfir, að hefta skoðana- frelsi manna í þessum bæ, verða þeir vægðarlaust hrópaðir niður. Þeir menn, sem hafa tekið sér þá kyndugu afstöðu í málinu, að deila á bæjarstjórnina fyrir það, sem hún kann að hafa látið ógert, til þess að tryggja hagsmuni bæjarins en hvítþvo R. Ól. fyrir það, sem hann lét aðgert til þess að hnekkja hagsmunum bæjarins, afsaka R. Ól. með því, að hann hafi álitið, að bærinn ætti ekki að gerast kaupandi. En er það fullgild afsökun fyrir bæjarfulltrúa, að hann sé svo þröngsýnn og þekkingarlaus um meg- instefnur í borgaralegum og þjóðhags- legum efnum ? Að áliti Dags hefir R. Ól. gengið hér á glapstigu vegna lífsskoðunar sinnar um rétt hins sterkasta, til þess að öðlast vald yfir málefnum og fjár- munum mannanna og sökum þeirrar fégirndar, er slík lífsskoðun fóstrar. Heiður hans er ekki skertur, en hann hefir glapist til að bregðast mjög átak- anlega trúnaði borgaranna, sem bæjar- fulltrúi. Og vegna Oddeyrarkaupanna verður hann að líkindum fleiri eða færri tugura þúsunda kr. ríkari en hann var áður, en hann verður jafnframt fá- tækari að almennu trausti og almennri virðingu. Prjónavélar. Q>' ^Yfir 50 ára' reynsla hefir sýnt og sannað að »Brit(annia‘ prjónavélarnar frá Dresdner Strickmaschinenfabrik eru öllum prjóna- vélum sterkari og endingabetri. Síðustu gerðirnar eru með viðauka og öllum nýtísku útbúnaði. Flatprjónavélar með viðauka, 80 nálar á hlið, kosta kr. 425.00* Flatprjónavélar með viðauka, 87 nálar á^hlið, kosta kr. 460,00. Hringprjónavélar, 84 nála, með öllu tilheyrandi kosta|kr. 127,00 Allar stærðir og gerðir fáalnegar, nálar og aðrir varahlutir út- vegaðir með mjög stuttum fyrirvara. Sendiö pantanir yðar sem fyrst til Sambandskaupfélaganna. I heildsölu hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga. B A Ð L Y F. Eins og að undanförnu útvegum vér beintfrá verksmiðjunum McDougalls baðlyf Coopers Barratts Hreins með beztu kjörum, sem hægt er að bjóða. Samband ísl. samvinnufélaga. Hreins-Kreolir) er bezt. Og auk pess er pað innlend framleiösluvara. Sauðfjáreigendur! Kaupið þvi Hreins-Kreolin. Nýtt! Nýtt! , S YZ,VZÁf skilvindan er nýjasta og ódýrasta skilvindan, sem fáanleg|er. Sylvia“ no. 0 ^skiiur 40 ltr* á klukkustund og kostar kr. 66.00 Sylvia" — 7 — 60— - —»— — — _ 80.00 Sylvia* — 8 — 90 — - —»— — — — 90.00 Sylvia" - 9 — 130 — - —— — — 115.00 Sylvia* - 9l/a — 170 - - —»—- — — — 125.00 Skilvinda pessi er smíðuð af hinni heimsfrægu skilvinduverksmiðju Aktiebolaget Separator, Stocholm (sömu verksmiöju, sem býr til Alfa-Laval skilvindurnar). Er pað full trygging fyrir pví, að ekki er hægt að fiamleiða betri eða fullkomnari skilvindur fyrir ofan- greint verð. Varahlutir fyrirliggjandi í Reykjavík. »Sylvia« fæst hjá öllum sambandskaupfélögum og í heildsölu hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga. Ritstjóri: Jónas Þorbergsson. Frentsmiðja Odds Björnssonar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.