Dagur - 27.01.1927, Qupperneq 3
4. tbl.
DAGUB
15
sína til hans, komast jafnaðarmennimir
sumir hér í bænum í uppnám. Kalla þeir
slíkt »lýgi« og »æsingatilraunir« blaðs-
ins. Að öðru leyti vilja þeir sýnilega
viði-a fram af sér umræður um þennan
ágreining. Dagur lætur sér ekki lynda
þá aðdróttun, að hann færi slíkt í tal,
til þess að stofna til æsinga, eða að
hann Ijúgi til um það, að í liði jafnað-
armanna sé ágreiningur milli »social-
demokrats« og byltingasinna. Degi er
það fylsta alvörumál og engin launung,
að hann mun jafnan verða mótfallin
öllum byltingakenningum, því að þær
stríða á móti þeirri megin lífsskoðun, er
samvinnumenn aðhyllast og byggja
samtök sín á.
Prentsmiðja Odds Björnssonar
hefir aukið við áhöld sín til stórra
muna. Tók þar til starfa nú um ára-
mótin letursteypuvél (setjaravél). Um
uppsetningu hennar annaðist Jakob
Kristjánsson Nikulássonar. Hefir hann
átt aðsetur í Möen í Danmörku undan-
farið. Er þessi hin fyrsta vél slíkrar
tegundar, sem tekur til starfa hér á
landi utan Eeykjavíkur. Verkbrögðum
er hagað með þeim hætti, að fyrst eru
sett leturmót, eigi ósvipað því er unnið
er á ritvél. Síðan steypir vélin úr
bræddum málmi hverja línu í heilu lagi.
Með einu handtaki verður skift um letur
og með lítilli fyrirhöfn um línustærð.
Meginkostir þessarar umbótar erutveir:
Letur verður jafnan nýtt og að vélin
afkastar miklu verki.
Vald bankastjóra.
Þegar atvinnuvegir þeir, sem hafa
undanfarið haft í veltu megin hlutan af
bankafé þjóðarinnar liggja undir stór-
áföllum eða heldur við fullu þroti, mun
morgum verða að hugleiða, hvílíkt vald
bankastjórunum er fengið í hendur. Þeg-
ar rétt er skoðað sést, að örlög atvinnu-
veganna og þjóðarinnar um leið velta á
úrskurðum þeirra um lánveitingar. Þeir
hafa lánað stórfé tryggingarlítið í á-
hættusöm fyrirtæki, þeir hafa gefið ein-
stökum áhættuspilurum og óhappafyrir-
tækjum margar miljónir fjár og þeir
raka síðan saman fé úr höndum skila-
rnanna landsins til að vinna upp töpin
og verja bankana falli. Vald þingsins
og landsstjórnarinnar er aðeins lítils-
háttar kák, borið saman við vald þeirra
manna, sem ráða því, hvemig veltufénu
er beitt og varið frá ári til árs. Reynsl-
an virðist sýna, að umbóta sé þörf um
stjóm bankamála. Slíku valdi, sem hér
er lýst, fylgir meiri ábyrgð, en rétt er
að láta hvíla á herðum einstakra og að1
mestu leyti óvalinna manna. Á bak við
bankana þurfa að standa starfandi
bankaráð, skipuð þjóðhagsfræðingum og
úrvalsfulltrúum atvinnuveganna. Hlut-
verk þeirra á að vera það, að ráða meg-
instefnu í lánveitingum peningabúð-
anna. Mætti þá svo fara, að eitthvað af
fé þjóðarinnar yrði lagt í tryggari staði
og til meiri þjóðnytja én orðið hefir
fjáraustur sá, sem gengið hefir til þess
að yfirbyggja, landið af kaupstöðum og
þorpum og blása út þann atvinnuveg,
sem er svo dýr í rekstri og svo áhættu-
samur, að þar veltur alt á höppum og
«— glöppum.
Frá Landsímanum.
Par sem verið er að búa símaskrá 1927 undir prent-
un, eru þeir símanotendur, sem óska eftir breytingu, eða leið-
réttingu við hana, beðnir að gera mér aðvart fyrir 2. febrúar n. k.
Símastjórinn á Akureyri, 2il\ 1927.
Gunnar Schram.
F r é 11 i r
S í m s k e y t i.
Þann 19. þ. m. barst Degi frá Kaup-
mannahöfn eftirfarandi einkaskeyti.
Náði það ekki síðasta blaði, sem kom
út degi fyr en venjulega vegna kosning-
anna:
»Influenza gengur um alla Evrópu.
Er hún mannskæð á Spáni og ítalíu, en
meinlaus á Norðurlöndum og Englandi.
5200 sýktust í Kaupmannahöfn í síð-
ustu viku. Konungshjónin liggja. Áreið-
anlega er veikin enn meinlausari hér,
heldur en hún var á íslandi í haust.«
Síðan þetta skeyti barst, hefir heyrst
að illkynjuð tegund veikinnar hafi
stungið sér niður í Kristjánssandi. Má
af því ætla, að veikin sé viðsjál, þrátt
fyrir það að hún er víðast hvar væg.
Rvík, 20. jan.
Jón H. Þorbergsson á Bessastöðum,
sem er varamaður í stjórn Búnaðarfé-
lags íslands, hefir áfrýjað til hæsta-
réttar fógetaúrskurðinum í innsetning-
arkröfu fyrv. búnaðarmálastjóra. Krefst
Jón, að nokkrum ummælum í forsend-
um fógetaúrskurðarins sé hrundið, og
viðurkendur réttur sinn sem varamanns
að sitja í búnaðarfélagsstjóminni. —
Stefnir Jón Búnaðarmálafélaginu og
atvinnumálaráðherra. — Sennilega kem-
ur málið fyrir hæstarétt fyrstu dagana
í febrúai’,
Samningatilraunir standa nú yfir
milli útgerðarmanna og landverkafólks
í Reykjavík.
Aðalsteinn Kristjánsson í Winnipeg
hefir gefið 5000 krónur til Landspítal-
ans til minningar um móður sína.
Afli góður alstaðar, þar sem til
spurst hefir, en gæftir víða stopular.
ísfisksalan gengur sæmilega í Eng-
landi.
Vestmannaeyjar hafa gengið í fisk-
sölufélagið. 10 þús. skpd. óseld í Eyjim-
um.
Rvík, 25. jan.
Hér var afspyrnurok í gær og vantaði
báta á mörgum verstöðum sunnan lands
en hafa nú allir komið fram.
Lægst kolaverð hér er kr. 9.40 skpd.
heimflutt. — Kveldúlfur hefir keypt
síldarbræðsluverksmiðjuna á Hesteyri í
Jökulfjörðum og mun reka síldveiðar
þaðan.
Símað er frá París, að Garibaldi hafi
verið dæmdur í tveggja mánaða fang-
elsi.
Símað er frá London að 4 ný her-
fylki, ásamt tanks og flugvélum, liafi
send til Kína til vemdar brezkum þegn-
um og hagsmunum þar í landi.
Símað er frá Písa, að fundist hafi
nýjar járnnámur svo auðugar, að full-
nægja muni járnþörf ftala.
— Sigvaldi Þorsteinsson kaupmaður
kom heim á Goðafossi á föstudaginn
var, með lík Jóhanns sonar síns, er and-
aðist á öndverðum vetri í Kaupmanna-
höfn. Jarðarför Jóhanns fór fram í gær.
Með skipinu kom ennfremur Friðjón
læknir. Fór hann utan, til að leita sér
lækninga og var góður árangur þeirrar
farar.
Óðinn. Við reynslu á hinu nýja varð-
skipi kom það í Ijós, að það var ekki
gott sjóskip. Þótti það tíðindum sæta,
er það fréttist í haust, að óðinn hefði
lagst á hliðina úti fyrir minni Siglu-
fjarðar og hefði kostað æma erfiðis-
muni skipverja að reisa skiþið á kjöl.
Undir lok hins áskilda reynslutímabils
fór skipið til Khafnar og var, að sögn,
mjög hætt komið á leiðinni út. Fyrir
milligöngu Sveins Bjömssonar sendi-
herra og aðstoð flotamálastjórnar Dana
rannsakaði E. Adolph forstjóri skipa-
eftirlits flotamálastjómarinnar Óðinn
og sannaði, að smíðagalli var á skip-
inu og að þyngdarpunktur vélar og
katla var rangt gefinn upp. Félst skipa-
smíðastöðin á ástæðurnar og gekk inn
á að lengja skipið um 4 fet og setja í
það 20 smálesta kjölfestu. Var þá
samningum talið fullnægt. Síðan var
samið við skipasmíðastöðina um áð
lengja skipið enn um rúm 9 fet fyrir
8000 kr. aukagreiðslu úr ríkissjóði.
Lengist þá Óðinn um 13 fet. Með þess-
um aðgerðum er talið að Óðinn verði
hið öruggasta sjóskip. Þykir Flyde-
dokken hafa tekið liðmannlega í, að
bæta úr yfirsjónum. En alvarleg eru
slík missmíði og samningabrigði, er ná-
lega ollu líftjóni heillar skipshafnar.
— Hrafnagilshreppur hefir nú gefið
fullnaðar svar við málaleitun fram-
kvæmdanefndar Heilsuhælisfélagsins um
fjárframlag til byggingarinnar. Leggur
hi'eppurinn fram 500. kr. Hafa þá allir
hrepparnir, er til var leitað, veitt góð
svör og vikist rausnarsamlega undir
nauðsyn málsins — nema Öngulsstaða-
hreppur. Hann einn hefir ekki virt
málaleitunina svars! Er slíkt óvenjuleg-
ur háttur siðaðra manna.
— Símtefli fór fram milli nemenda
Gagnfræðaskólans og Húsvíkinga á
sunnudagsnóttina var. Þreyttu skákir
16 hvoru megin og urðu þau leikslok,
að gagnfræðingar höfðu 10 vinninga, en
Húsvíkingar 6. Tvö af töflunum urðu
jafntefli. Urðu allar skákir útkljáðar
deilulaust og stóð taflið frá kl. 8 að
kveldi til kl. 10 að morgni, með mikilli
glaðværð og skemtun. Fóru vísur á
milli og fleiri orðsendingar þær, er urðu
til gamans og gleðiauka.
— Séra Ásmundur Gíslason prófast-
ur á Hálsi, liggur veikur á sjúkrahús-
inu hér í bænum. Var gerður á honum
holskurður við sullaveiki.
— Látinn er síðastliðinn sunnudag
Margrét Eggerisdóttir kona Stefáns
Jónassonar en móðir Eggerts Melstaðs
byggingameistara og þeirra bræðra.
Frú Margrét var mjög við aldur, Hún
A11 a r íslenzkar bœkur kaupir J Ó N A S
SVEINSSOJÍ, Sigurhæðum, Akuréyri.
var hin mesta ágætiskona í hvívetna og
sérlega vinsæl.
— Jón Stefánsson fyrverandi ritstj.
hefir legið um skeið á RíkisSpítalanum
í Khöfn. Eru taldar góðar horfur á að
hann nái fullri heilsu innan skamms.
— Bæjarstjórnarkosningar fóru fram
á Siglufirði og á Isafirði 22. þ. m. og
unnu jafnaðarmenn stórsigur á báðum
stöðum. Á Siglufirði voru kosnir 1 mað-
ur til 4 ára og 2 til tveggja ára. Við
fyr nefnda kosningu hlaut listi jafnað-
armanna 369 atkv. en listi íhaldsmanna
aðeins 72! Var Otto Jörgensen sím-
stjóri kosinn. Við síðamefnda kosningu
voru þrír listar. Hlaut listi jafnaðar-
manna 251 atkv. og kom að tveimur,
Sigurði Fanndal kaupm. og Sveini
Þorsteinssyni skipstjóra. Hinir listarnir
lilutu 111 atkv. og 98 atkv. og féllu
báðir. — Á Isafirði voru kosnir 3 menn
og voru tveir listar. Hlaut listi jafnað-
armanna 373 atkv. og kom að Magnúsi
Ólafssyni og Jóni H. Sigmundssyni.
Listi íhaldsmanna hlaut 271 atkv. og
kom að einum: Matthíasi Ásgeirssyni.
— Ibúðarhús Vilhjálms Þór fram-
kvæmdastjóra Kaupfélags Eyfirðinga,
sem hann lét reisa síðastliðið sumar við
Eyrarlandsveg, er eitt hið myndarleg-
asta hús í bænum. Hefir hann gefið
húsinu nafn og kallar Þórshamar.
— Akureyrarbío sýnir ágæta mynd
um þesar mundir. Nefnist hún á dönsku
»Livets Göglespil«. Hin íslenzka Þýð-
ing á nafninu: »Ef eg giftist aftur«,
gefur ranga hugmynd um efni myndar-
innar. Er það reyndar ekki nýlunda hér
á Akureyri. Myndin fjallar um gamalt
og mikilsvarðandi efni úr mannlífinu og
á þann hátt að ávinningur er að.
Salamtala. Þetta er önnur útgáfa
þessarar fornindversku sögu, sem
Steingrímur Thorsteinsson skáld þýddi
og sem kom út 1879, en var löngu upp-
seld. Yfir sögunni er austrænn æfin-
týrablær og málið er hið vandaðasta,
eins og kunnugt er, því að Steingrím-
ur var hinn snjallasti þýðandi og
smekkmaður á íslenzka tungu. Lætur
Axel Thorsteinsson, sem annast um út-
gáfuna, þess getið, að ef bókinni verði
eins vel tekið og fyrrum, muni þess
skamt að bíða, að út komi hin önnur
austurlenzku æfintýri, sem faðir hans
þýddi einnig: Sawitri og Nal og Dama-
janti. Pappír og prentun er í góðu
lagi.