Dagur - 03.02.1927, Page 1

Dagur - 03.02.1927, Page 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Innlieimtuna annast Árni Jóhannsson í Kaupfél. Eyf. X. ár. A f g r e i ð s lan er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. Akureyri, 3. febrúar 1927. 5. blað. Unga ísland. íii. Auk þess sem mikill þorri þeirra unglinga, er vaxa upp í kaupstöð- um, taka að reykja vindlinga að héita má á barnsaldri, leiðast margir þeirra mjög ungir til drykkjuskapar og stórum fleiri heldur en gerist í sveitum, einkum fjarsveitum kaup- staðanna. Veldur það tvent, að það vín, sem er óleyfilega flutt inn í landið staðnæmist mest í kaupstöð- um og sjávarþorpum og er neytt þar og að ríkisstjórnin hefir sett upp vínsölubúðir, — einskonar drykkjuskaparskóla fyrir unglinga og kvenfólk í kaupstöðum landsins. Mun þeim, er ungir taka að neyta víns vera hættara til drykkfeldni. Verður því tæplega mótmælt, að drykkjuskapur æskumanna sé all- mikill í kaupstöðum og sé að fara í vöxt á síðustu árum. Samkvæmis- lífið gefur einna glegsta mynd af ástandinu í þessu efni. í sam- kvæmum gefa margir sér lausan tauminn. Eru og tið samkvæmisspjöll af völdum drykkjuskapar og rysk- inga. Til þess eru og dæmi að samkomur verða að höfuðhneykslum fyrir þessar orsakir. Eða hvað segja menn um það, er samkvæmisgest- irnir æla í yfirhafnarvasa náungans! Ætla mætti að örðugt væri til að geta, hvað fyrir gæti kohiið, þar sem slikt verður. Pessi tegund af spillingu kemur glögglega fram í nærsveitum kaupstaðanna. Áður hefir verið minst á það hér í blað- inu, að drykkfeldir menn spilla mjög samkvæmum í nærsveitum Akureyrar. Kveður svo ramt að því, að tæplega er unt að halda svo neina samkomu, að ekki verði á stórspjöll. Pannig berst hin sið- ferðislega uppeldishætta eins og sóttnæmi út í umhverfi kaupstað- anna. IV. Aftur skal það fram tekið, að eigi ber að skilja þessar athuga- semdir eins og ádeilu á æskulýðinn sjálfan, heldur ádeilu á foreldranna, og á forráðamenn þjóðarinnar í uppeldismálum og stjórnarfari. Hvers er að vænta um börn, sem eru alin á brjóstum reykjandi móður, eða verða oftlega vottar að drykkju- skap föður eða jafnvel beggja foreldra ? Hverjar verða hugarstefnur ungl- inganna, sem eru látnir alast upp í háska og óþrifnaði götulífsíns? Hvers er að vænta um þjóðar- uppeldið, þar sem sjálf stjórnar- völdin byrla æskulýðnum eitur í mynd Ijúffengra drykkja, þar sem ekkert eftirlit er með sölu tóbaks til barna og tóbaksneyzlu ungl- inga, — þar sem mjög mikið af tekjum ríkissjóðsins éru reistar á neytslu eiturefna og eru því raun- verulega hluti af siðferðisþreki æskulýðsins breyttu í blóðpeninga?* V. Pegar mikill hluti af æskulýð þjóðarinnar leitar sér lífsnautna í neytslu eiturefna og eftirsókn fánýtra skemtana þá er þjóðlífið á niðurleið. Fegurðarkend æskunnar og hug- sjónalíf er ósamrýmanlegt eitur- nautnum. Nautnir æskumanna eru sálræns eðlis. Pær búa í voldugum draumum og framtíðarfyrirætlunum, í gleðileikjum og félagsstörfum, í náttúrufegurð og gróðri jarðar. Fyrir hirðuleysi og að sumu fyrir beinan tilverknað forráðamanna þjóðarinnar og þeirra, sem hafa með höndum uppeldi æskulýðsins, eru bæirnir að hálffyllast af reykj- andi slæpingjum, sem eiga sér ekki æðra mið en það að verða með leyfilegum eða óleyfilegum ráðum þátttakandi í hrjúfustu nautnum, sem umhverfið hefir að bjóða. Sá hlutí æskulýðs þjóðarinnar fóstrar enga innri þrá eftir umbótum á kjörum hennar og háttum; hann á enga hugsjón eða langmið að vinna fyrir og gleðjast við. Hann er gam- all fyrir aldur fram; hann er dauður áður en hann byrjar að lifa. Upp úr slíkum gróðri sprettur íhaldi landanna liðskosturinn. Er sízt að furða þó sumum foringjum íhaldsins sé ekki vel við mentastofnanir, þar sem verið er að ala upp hugsjóna- menn.** Hver sú þjóð sem vanrækir á einn eða annan hátt uppeldi æsku- * Þegar Jón Þorláksson gekk á milli bols og höfuðs á tóbakseinkasölu ríkisins færði hann það fram sem líkur iyrir auknum tolltekjum og sem meðmæli með þeirri ráðabreytni, að tóbaksneytsl- an í landinu myndi vaxa, er því yrði otað að unglingum af fleiri höndum. Hvers er að vænta af óvitum þjóðarinnar, þegar slíkar röksemdir og siðferðishug- myndir þróast í »heila heilanna<, sem er nú falin höfuðumsjá með velferð ís- Iendinga ? ** Sbr. hatur Jóns Þorlákssonar til Lauga- skóla. lýðs síns, er í raun og veru að höggva sínar eigin rætur. Framtíð þjóðarinnar er að skapast, þar sem unggróður hennar vex. Sé æskulíf hennar snautt að hugsjónum og ætlunarverkum verða fullorðinsárin fátæk að athöfnum og dáðum, ellin köld og minningasnauð. -----o—-- Skipulag Kaupfélags Eyfirðinga. Andsvar gegn ,,Athugasemd“ endurskoðenda Kf. Eyf. (Niðurlag). IV. Upphaf þessara umræðna okkar, hr. endurskoðendur, var það, að eg, í frá- sögn um Kaupfélag Eyfirðinga, skýrði frá tillögu yðar og ályktaði jafnframt, að með henni væri gerð tilraun að raska í verulegu atriði starfsgrundvelli félags- ins þ. e. gangverðsskipulaginu. Vörn yðar hefir því aðallega hnigið að hinni formslegu hlið tillögunnar. Þér hafið leitast við að hnekkja þessari ályktun minni. Og vörn yðar hefir verið reist á tveimur staðhæfingum; fyrst þeirri, að það »sé í samræmi við grundvöll, lög og anda félagsins«, að selja vörur við kostnaðarverði og í öðru lagi þeiiTÍ, að félagið hafi, árið 1922, »sagt skilið« við Rochdale-grundvöllinn og þar á meðal við gangverðsskipulagið. Eg þykist hafa, í undanförnum grein- arköflum hnekt þessum staðhæfingum yðar með sögulegum rökum, sem ekki verði hrundið. Eg hefi sannað áð félagið hvílir á gangvei’ðsgrundvelli og að það hefir ekki hvikað frá þeim grundvelli nema um einstakar vörutegundir og um stundarsakir, þegar knýjandi ástæður hafa verið fyrir hendi. Eg hefi enn- fremur sannað, að félagið heldur skipu- lagi sínu óbreyttu, eins og það var bygt árið 1906 að undanteknu því eina atriði, er það, árið 1922, breytti skuld- ti-yggingarákvæðum sínum. Eg þykist viss um, að þér getið ekki fundið hald- bæra vörn í máli yðar mn þessi efni. Þér getið að vísu haldið áfram að mót- mæla á þann hátt að ganga fram hjá rökum og berja höfðinu við steininn. En eg vil ekki, að óreyndu, ætla yður slíkt, með því að það væri mjög ósamboðið endurskoðendum, sem þurfa að vera manna fundvísastir á rök og sannindi. Þá er á hitt að líta, að þótt niður falli vörn fyrir hina fomslegu hlið tillögu yðar, gæti efni hennar verið þannig vaxið, að það ekki einungis réttlætti heldur gæfi beina ástæðu, til þess að upp yrði tekin sú breytta skipun og grundvelli félagsins raskað til þeirrar hlítar, sem hún fer fram á. 1 tillögu yð- ar gæti verið fólgin sú raunverulega umbót á starfsháttum félagsins, að fastheldni við skipulag þess réttlætti ekki mótstöðu gegn henni. Mætti nú vænta, að vörn yðar beinist hér eftir aðallega að því, að sýna fram á þetta. Þótt hinar sögulegu staðreyndir, sem hafa verið ykkur að mestu eins og lok- um bók, hafi nú við þessar umræður brotið hverja brú að baki yðar, svo að þér getið eigi fundið tillögu yðar stað í skipulagi félagsins og starfsháttum alt til þessa dags, þá ber að rannsaka hitt, hvort í tillögunni felist umbætur, sem liafi verulega þýðingu fyrir framtíð fé- lagsins. Eins og áður var tekið fram, varð nauðalítið um vörn yðar fyrir tillög- unni, er hún sætti andmælum á aðal- fundi. Þótti öllum einsætt, að þér væruð ekki við því búnir, að færa fram veruleg rök fyrir tillögunni. Nú hafið þér síðan haft ærinn tíma, til þess að hugsa ráð yðar og finna varnir. Umræður þessar eru og hið hentugasta tækifæri til þess að bera þær fram. Rök, sem fest eru á pappírinn, fara ekki á milli mála og verða eigi afflutt. Auk þess má ætla að þau nái' til fleiri félagsmanna, heldur en ræður yðar á fulltrúasamkomum fé- lagsins. Þér hafið látið þetta tækifæri að mestu ónotað. Þér hafið í »Leiðrétt- ingu« yðar og svo í »Athugasemd« fært fram aðeins eina ástæðu. Hún er sú, að tillagan sé spor í áttina, til þess að liönd selji hendi og miði til þess, að koma í veg fyrir skuldaverzlun. Eg' skal nú líta á þessa einu ástæðu. Áður tilfærð ummæli úr »Athugasemd« yðar: »-----Það af kornvöru með kostnaðarverði, er þeir greiða í pening- um við móttöku«, benda ljóslega á, að þér gerið ekki ráð fyrir að félagsmenn myndu alment greiða komvöru »í pen- ingum við móttöku«, heldur einhver hluti þeirra. Og þá yrði það vitanlega einkum sá hluti félagsmannanna, sem væri rúmt um hendur og hefðu peninga- ráð. En þeim mönnum hættir yfirleitt sízt, til þess að skulda um áramót. Hin- um hættir fremur til þess, sem eru í peningavandræðum. Tillag'a yðar myndi því ekki koma til leiðar slíkri breytingu, sem þér ætlist til. Hún myndi ekki draga úr skuldaverzlun, þar sem mest væri þörfin, heldur þar sem hún væri

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.