Dagur - 10.02.1927, Side 1

Dagur - 10.02.1927, Side 1
DAOUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Inuheimtuna annast Jónas Sveinsson bóksali, Eyrar- landsveg 3 (Sigurhæðir). A f g r e i ð s lan er hjá Jóni Þ. Þ6r, Norðurgötu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. X. ár. Akureyri, 10. febrúar 1927. 6. blað. Ritfregnir. Páll Eggert Ólason: Menn og mentir siðaskiftaaldarinnar á íslandi. IV. bindi. Rithöfund- ar. Bókaverzlun Ársæis Árna- sonar. Rvík 1926. Með þessu bindi er lokið hinu mikla og stórnierka ritverki Páls Eggerts ólasonar um »Menn og mentir siðaskiftaaldarinnar«. Höf- undurinn hefir í upphafi sett sér það tvöfalda markmið: »Að lýsa lands- sögu og bókmentum þjóðarinnar á siðaskiftaöld«. Saga landsins verður þá einkum saga þeirra afreksmanna, sem ber hæst og mestu valda um atburði í landinu og örlög þjóðar- innar á greindum tíma. Eru slíkir þættir raktir í hinum fyrri bindum, sem áður hefir verið lýst hér í blað- inu. Þetta IV. bindi fjallar um bók- mentir þjóðarinnar og rithöfunda á siðaskiftaöld. Liggur að rótum verksins geysimikil og merkileg rannsókn höfundar um myrk og fólgin svið þeirra viðfangsefna. Hef- ir hann um sunrt notið leiðsagnar fyrri ritkönnuða, eldri og yngri, sem hann og greinir frá. En um flest er þó rannsókn hans sjálfstæð og fiumger. Verður starf höfundar og rannsóknir eigi til hlítar nretið af þeim, er engin skil kunna þessháttar starfa. Þó má nokkuð marka víð- förli höfundar af tilvitnunum hans í rit og handrit erlend sem innlend. Eru þær furðulega margar. Ritinu er ætlað að ná tvennskonar tilgangi. Það á að vera heilsteypt bókmenta- saga og rithöfundatal aldarinnar en auk þess farvegur sérrannsókna, er síðar kynnu að verða gerðar, framar en orðið er, um ýmsar greinir bók- mentanna. Er leikmönnum ófært um að dæma, til hverrar hlítar er náð þessu tvöfalda markmiði. En svipur verksins og bygging, nákvæmni höf- undar, heimildatal o. fl. ber honum gott vitni. Merkustu bókmentafrömuðir ald- arinnar, sem frá er greint í þessu ritj, eru þeir Arngrímur lærði og Guðbrandur biskup Þorláksson. Er ritverkum þeirra og miklu áhrifum rækilega lýst. Eru og greindir sund- ur sérþættir bókmentanna og hverj- um þeirra gerð skil fýrir sig. Lengsti kaflinn er um skáldin, eða yfir 330 blaðsíður. En bindi þetta er 777 bls. En aftan við eru skrár á 87 bls. Rit þetta er hið fullkomnasta að frágangi. Eru mörg sýnishorn rit- handa þeirra höfunda, er um getur í ritinu en myndir af sumum þeim, er við sögu koma. Nafnaskrár eru full- komnar svo og ritatal. Þá er og skrá yfir upphöf kveðskapar. Verður þar fundinn uppruni margra kveðlinga, er verið hafa húsgangar í landinu, þó almenningi hafi verið ókunnugt um uppruna þeirra. Er og allmikið aí kveðskap siðaskiftaaldar tekið upp í ritið. Áður hefir verið minst á stíl P. E. Ó. og frásagnarhátt. Stíllinn er lát- laus og hreinn. Frásagnarhátturinn þróttmikill og afinarkaður. Er rit- list höfundar nærð við frumlindir tungunnar, eins og þær geymast í fornum ritum, en vaxin við gáfur, lærdóm og smekkvisi höfundarins. Ritverk þetta er í alla staði nrerki- legt og hin ágætasta eign til fræði- lesturs og skemtunar. -----o---- Taðan okkar. Eftir Pál Zóphónfasson skólastjóra á Hólum. Land andstæðanna. Ekkert land, sem eg þekki til, bíður íbúum sínum aðrar eins and- stæður og ættlandið okkar. Það hef- ir ógnar eld í undirdjúpum, eld, sem Bjarni vildi að við lærðum af fjör. Á hinn bóginn hefir það líka lands- 'ins versta • óvin, hafísinn, sem ástundum umlykur það örmum sín- um, og sendir kuldastrokurnar inn yfir landið, svo naprar að þær smjúga gegnum merg og bein. Af kuldanum vildi Bjarni að við lærð- um hörku. Andstæður íslenzku nátt- úrunnar eru miklar. í háskammdeg- inu getur verið þíðviðri og blessað blíðviðri, eins og var nú um jólin, en svo getur líka verið öskrandi blind- bylur, svo snjónum kyngi niður, eins og var í fyrra um sama leyti. And- stæður vetrarveðráttunnar eru mild- ar, og af þeim stafar að veturnir verða misjafnir. Þá getur veðrið verið breytilegt á vorin. Frostin geta tekið nýgræðing- inn heljartökum og kyrkt úr honum alt líf, svo þar verði kalskellur, sem áður voru græn tún. En á vorin get- ur veðrið líka verið svo hlýtt og milt, að »maður lieyri og sjái grasið vaxa«, finni hvernig lífsþrótturinn magnast og dafnast í allri náttúr- unni, og verði sjálfur þrunginn af auknum lífsþrótti og nýju lífsfjöri. Vel má vera, að andstæður tilver- unnar komi aldrei skírara fram en í vornáttúrunni og vorveðráttunni hér á landi. Sveitamennirnir þekkja líka and- stæður sumarsins. Þeir þekkja góðu þurkasumrin, þegar alt leikur í lyndi, og þeir þekkja úrhellisrign- inguna, »þegar aldrei tekur af steini«, »ekki er hundi útsigandi« og »alt ætlar á flot«. Munurinn er mik- ill og augljós, og hann er auðfund- inn af þeim, sem við heyskapinn fást, því fyrirhöfnin við öflun heyj- anna verður geysimisjöfn. Sumarið í sumar var eitt af þess- um sumrum, sem með ekkert var meðalsumar. Sprettan varð betri en í meðallagi. Grasiö þaut upp á skömmum tíma, og mátti því ætla að hey yrðu heldur létt. Þegar sláttur- inn kom fór að rigna, og úr því rigndi hvern einasta dag, nema 5 daga í ágúst og 4 daga í sláttarlok- in. Þessi dæmafái óþurkur varð til ’þess, að hey manna stórhröktust. Sérstaklega hröktust töðurnar, og taðan í sumar varð andstæða góðu, óhröktu, ylmandi töðunnar, sem við þekkjunr frá góðu þurkasunrrunum. Misnmnur töðunnar. Margt getur valdið því, að taðan okkar verði misjöfn. Sem það helzta má nefna: Að taðan verður misjöfn að gæð- um, eftir því í hvernig rækt túnin eru. Af túnunr í góðri rækt fæst betri taða en af túnum í lélegri rækt. Þetta, ásamt því að taðan verður meiri, og spretta vissari, er orsök þess, að nrenn eiga að leggja sig fram til að bæta rækt túnanna. Að það veldur miklu um gæði töðunnar, hvaða jurtir mynda gróð- ur túnsins. Við þak- og græðislétt- unaraðferðir túnanna hefir sá, er sléttar, lítið vald á því, hvaða jurtir myndi gróður túnanna, en með því að sá í slétta flagið, hvort sem það er í túni eða utan túns, má ráða því, hvaða jurtir myndi gróðurinn. Þess- vegna þurfa sáðslétturnar að út- breiðast og verða öruggar. En það verða þær vart fyrri en við gerum það, sem Magnús sýslumaður Ket- ilsson sagði að við yrðum að gera, til þess að túnin stækkuðu fljótt og yrðu góð, en það var að afla sjálfir þess grasfræs, sem við þyrftum til að sá í slétturnar. Að taðan verður betri af þurlend- um en raklendum túnum. Þetta er ein af þeim ástæðum, sem gera að við eigum að ræsa túnin okkar fram, og sjá um að nýræktin sé vel fram- ræst. Að tíðin og tíðarfarið meðan giasið er að spretta hefir áhrif á töðugæðin, og að hún verður því betri sem grasið hefir verið lengur að vaxa og haft meiri sól á vaxtar- tímanum. Það hefir mikil álirif á töðugæðin, á hvaða þroskastigi jurtin er, þegar slegið er. Prósentvís er næringin mest í jurtinni' eða nýgræðingnum, en magn næringarefnanna í jurtinni verður mest þegar jurtin er komin í blóma, en þó ekki farin að fella fræ. Þessvegna fæst inest næring í töð- una með því að slá þegar tiltölulega flestar jurtir eru búnar að setja blóm, cn þó engar farnar að fella fræ. Loks hefir þurkunin og hirðing öll, frá því grasið er slegið ög þar til það er gefið að vetrinum, mikil áhrif á gæði töðunnar, og má þá í stuttu máli segjá, að taðan verður því betri, því skeinra sem líður frá því hún er slegin og þangað til hún er þur, því minna sem hún á þeim tíma hefir blotnað, því minna sem hefir hitnað í henni og því tninna loft sem nær að verka á hana. Um þetta alt og hvert einstakt mætti segja mikið, en það verður ekki gert hér frekar að sinni. Sumar þessar orsakir, setn eg nú hefi bent á, að séu til þess að taðan getur verið misjöfn, vil eg kalla staðbundnar. Þær eru bundnar við ákveðna staði, og gera að töðurnar verða misjafnar af túnum innan sömu sveitar, og sé um dálitið stórt og breytilegt tún að ræða, verður taðan líka breytileg af sama túninu, eftir því hvar af því er. (Rækt, gras- lag, rakastig.) Nokkrar aðrar orsakir til mis- munar á gæðum töðunnar vil eg kalla persónulegar. Þar kemur eink- um til greina misnuinandi dugnaður og mismunandi útsjón, svo mönnum notast misvel að sama þurknum. Einn sér að það er að gera þurk og þorir að dreifa, annar sér það síðar og missir einn snúning af heyinu og sá þriðji sér það als ekki og dreifir

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.