Dagur - 10.02.1927, Side 3
6. tw:
DAGUK
23
Jl
lúðar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð
og hluttekningu við andldt og jarðarför Margrétar I
Eggertsdóttur.
Aðstandendurnir.
Verkamannastígvél,
brún, með gummí-botnum,
Vatnsleðursstígvél,
3 tegundir, mjög vandaðar. Verð frá kr. 12 50 til 19.50.
HVANNBERGSBR Æ ÐUR,
Skóverzlun.
JMokKur hús
til sölu á fegurstu og beztu stöðum í Akureyrarbæ.
Upplýsingar gefur
Eggert St. Melstað,
byggingameistari.
Akuneyri, 10. febr. 1927,
Sundnefnd: Óskar Sigurgeirsson,
Steinþór Guðmundsson. Bæjarstjóri
sjálfkjörinn.
Stjórnarnefnd Car. Rest: Sigurður
Hlíðar, Þorsteinn Þorsteinsson, Due
Benediktsson.
Skólanefnd, til 2 ára: Brynleifur
Tobíasson, Elísabet Eiríksdóttir, Jón
Sveinsson, Böðvar Bjarkan. —
Fræðslumálastjóri hefir skipað for-
mann nefndarinnar, Geir Sæmunds-
son.
Heilbrigðisnefnd: Ragnar Ólafs-
son. Bæjarfógeti og héraðslæknir
sjálfkjörnir.
Sóttvarnarnefnd: Sigurður Hlíðar,
Bæjarfógeti og héraðslæknir sjálf-
kjörnir.
Verðlagsskrárnefnd: Hallgr. Da-
víðsson. Bæjarfógeti og sóknar-
prestur sjálfkjörnir.
/ stjórn sjúkrahússins: Ragnar
Ólafsson. Endurskoðandi reikninga
sjúkrahússins: Jón E. Sigurðsson.
Kjörstjórn við bæjarstjórnarkosn-
ingar: Bæjarstjóri, bæjarfógeti,
Ingimar Eydal.
Kjörskrárnefnd: Jón Sveinsson,
Halldór Friðjónsson, Hallgr. Da-
víðsson.
Niðurjöfnunarnefnd: Hallgrímur
Davíðsson, Halldór Friðjónsson, Jón
Guðlaugsson, Böðvar Bjarkan. For-
maður skattanefndar (Bæjarstjóri)
sjálfkjörinn. — Til vara: Jakob
Karlsson, Erlingur Friðjónsson, Ein-
ar Gunnarsson, Jón Kristjánsson.
Bókasafnsnefnd: Steingr. Jóns-
son, Steinþór Guðmundsson, Stefán
Stefánsson.
Þingvallanefnd: Jón Sveinsson,
Sigurður Hlíðar, Hallgrímur Da-
víðsson.
Forseti: Steingrímur Jónsson.
Varaforseti: Ingimar Eydal.
-----o------
S í m s k e y t i.
Rvík 7. febr.
Stjórnin mun leggja fyrir Alþing
sérleyfisfrumvarp handa Títan til
virkjunar Urriðafoss og járnbrauta-
lagningar að Þjórsá. Atvinnumála-
ráðherra segir í viðtali við Morgun-
blaðið, að í samningagrundvellinum
sé gert ráð fyrir að áskilið verði að
byrjað verði á járnbrautarlagningu
austur snennna sumárs 1929 og
verkinu lokið 1933; ríkið leggi fram
einn þriðja kostnaðar, en þó rnest
2 miljónir af 8, sem ráðgert sé að
brautin kosti; ýms skilyrði verði sett
af' stjórnarinnar hálfu, svo sem að
hún ráði flutningstöxtum, og geti
tekið járnbrautina að sér, hvenær
sem er. — Iðja verður starfrækt í
sambandi við virkjunina; frumvarp-
ið sennilega lagt fram í þingbyrjun.
Stjórnarfrumvörpin verða senni-
lcga 21.
Afli góöur víða, er gefur. Mokafii
við Akranes.
Fylla liafði 6 inflúensusjúklinga;
hefir ekki haft samband við land. .
Frá London: Haldið að Canton-
her áformi að taka Shanghai; Jap-
anar hafa nú einnig sent herskip
þangað.
Sigurður Sigurðsson hefir nú gef-
ið út bók um frumhlaup Búnað-
arfélagsstjórnar og áburðarmálið.
Hæstiréttur staðfesti fógetaúrskurð
í innsetningarmálinu.
Oddur Hermannsson skrifstofu-
stjóri er látinn á heilsuhæli í Dan-
mörku, eftir langvinn veikindi.
------o-----
F r é 11 i r.
— Hjónin á Reykjahólum í Fljótum
hafa verið til fangelsisvistar við vatn
og brauð fyrir misþyrmingar á 9 ára
gömlum dreng, sem komið hafði verið
á vist með þeim. Hafði hann verið
barinn og sveltur, ofboðið með vinnu og
svo illa hirtur og kalinn, að taka varð
af honum allar tær. Málið fer til
Hæstaréttar.
— Tímanlega dags 12. janúar síðast-
liðinn lagði 11 ára gömul stúlka frá
heimili sínu Tréstöðum á Þelamörk og'
var ferðinni heitið ofan til Skjaldar-
víkur til að sækja bækur. Þegar stúlkan
hafði rekið erindi sitt og var aftur kom-
in á heimleið brast á vonzkuhríð. Komst
stúlkan yfir Moldhaugnahálsinn, en gat
ekki fundið bæinn á Tréstöðum vegna
dimmviðris. Tók hún þá það ráð að
hvarfla að símanum og fylgja honum
eftir unz hún næði til bæja. En er hún
hafði gengið lengi þótti henni uggvænt
um að húnnæði bæ. Varð henni þá það
að ráði að grafa sig í fönn og bíða
morguns, því dimt var orðið af nótt. En
er birti fór hún aftur á flakk og sá þá
bæ skamt frá sér. Var það Pétursborg í
Glæsibæjarhreppi. Fólk var í svefni er
hún kom á bæinn, en brá við og veitti
stúlkunni hjúkrun. Var hún lítið eitt
kalin á fótum en að öðru leyti ósködduð.
Fulla 14 tíma var stúlkan á þessu
ferðalagi. Mun það fátítt, að svö ung
börn sýni af sér þvílíkt þrek og still-
ingu. Degi er ókunnugt um nafn stúlk-
unnar, en vildi óska að honum yrði sent
það og svo nöfn foreldra hennar.
— Aðalfundur »'Ötgáfufélags Dags«
var haldinn í »Skjaldborg« á föstudag-
inn var. Voru þar saman komnir margir
af eigendum blaðsins og höfðu fjörugar
umræður. í stjórnina voru kosnir Ingi-
mar Eydal kennari, Árni Jóhannsson
verzlunannaður og Einar Ámason al-
þingismaður.
— Síra Jakob Kristinsson kom hingað
til bæjarins ásamt frú ' sinni með ís-
landi. Dvelja þau hjón um mánaðartíma
hér fyrir norðan. í för með þeim var
Jón Árnason prentari, og mun hann
hafa hér sömu dvöl.
— »Island« kom á laugardaginn og'
fór aftur á sunnudagsmorgun vestur um
til Rvíkur og kom þangað á mánudags-
kvöld. Margir tóku sér far með skipinu,
þar á meðal Jón bæjarstjóri, ritstjóri
Dags ásamt tengdamóður sinni, frú
Björgu Björnsdóttur og þingmenn hér
um slóðir.
Viðgerðaverkstæði
hefi eg undirritaður opnað fyrir reiðhjól,
grammófóna og barnavagna i Hafnar-
strœti 66 (gamla póslhúsinu).
Magnús V. Guðmundsson.
— Erindi um komu mannkynsfræðara
flutti síra Jakob Kristinsson í stóra sal
samkomuhússins í gærkvöldi. Venjulega
reynist salurinn óþarflega stór til fyrir-
lestrahalds, en í þetta skifti varð hús-
rúmið heldur lítið. Ræðumaðurinn talaði
í hálfa aðra klst. Allan þann tíma sat á-
heyrendafjöldinn grafkyr og I djúpri
þögn. Er slík aðsókn og áheyrn vel við
hæfi þess, er afburðaræðumaður talar
um mesta stórmál veraldarinnar og sem
ætti að vera hjartfólgnast mál alls
mannkynsins.
Á föstudagskvöldið flytur J. K. annað
erindi um sama efni; verður það áfram-
hald af hinu fyrra.
— Jarðarför húsfrú Ragnhildar Ein-
arsdóttur á IIj artarstöðum á Fljóts-
dalshéraði fer fram á morgun (föstu-
dag'inn 11. þ. m.) að Eiðum.
-----o----
Vormót Laugaskóla.
Laugaskóli á tvo hatursmenn á lÖg'-
gjafarþing'i þjóðarinnar. Þeir menn eru
forsætisráðherrann, Jón Þorláksson og
þingmaður Akureyrar. Þessir menn
setja sig aldrei úr færi að óvirða og
bakbíta þessa héraðsstofnun Þingey-
inga. Orsökin er sú að skólastjórinn
kom við Ihaldskaunin á þeim báðum
á opinberu málþingi á Breiðumýri. Van-
máttur þeirra snerist í hatur og of-
sóknartilraunir gegn stofnuninni, sem
hann veitir forstöðu! Ber að virða slíkt
eftir »efnum og ástæðum« þessara
manna. Og ekki mun það saka, meðan
skjólviðir spretta upp innan héraðs öllu
megin vi'ð skólann. Þessi stofnun, sem
er um margt frumleg í starfsemi sinni
og fyrirætlunum á sér og frumlegan
uppruna. Hún er fyrst og fremst afrek
æskunnar í sýslunni. Og andlegir að-
standendur skólans láta sér ekki falla
liendur í skaut þótt húsið sé risið af
grunni. Umhverfi skólans þarfnast mik-
illa aðgerða um græðslu, ræktun, bygg-
ing sundstæðis og fleira. Nú hafa unn-
endur skólans tekið upp þann hátt, að
koma saman á vormót, til þess að vinna
skóla sínum þessháttar fórnarstörf.
Sendir þá .hvert ungmennafélag sýsl-
unnar ákveðna tölu manna á vettvang.
Er og hverjum manni frjálst að taka
þátt í þegnskaparvinnunni. Er hafin
bygging á stórri sundtjöm sunnan við
skólavegginn. Á veturna er þar skauta-
ís fyrir æskulýð skólans og er tjörnin
upplýst með ljóshafi frá allri suðurhlið
hússins. Síðar verður gi-æddur skógur
umhverfis tjörnina og húsið, gerðir
blómareitir, gangstígir lagðir, tún rækt-
uð o. s. frv. Meðan skólinn á slíka að-
standendur verður honum ekki mein að,
þótt kulda kenni frá þeim mönnum, sem
óttast ung'gróður í þjóðlífinu, af því að
æskuliugsjónir þeirra sjálfra eru lagst-
ar í kör fyrir alduir fram.
•o