Dagur - 24.03.1927, Blaðsíða 3
12. tbl.
SAOUB
45
Takið eftir!
Ibúðarhús mitt í Lækjargötu 4 er til sölu nú þegar og laust til íbúðar
14. maí næstkomandi.
Nákvæm lýsing á húseign þessari og öllu henni viðkomandi er í
Islendingi nú þann 18. marz þessa árs, sem eg vil benda væntanlegum
kaupendum á, til nánari athugunar, þar sem hún er of löng og dýr til
þess að eg geti birt hana í heild sinni í fleiri blöðum.
Þetta mönnum til athugunar.
Virðingarfylst.
Akureyri þ. 23. marz 1927.
Carl F. Schiöth.
Gúmmískófafnaður!
Skóhlífar, gúmmískór og gúmmístígvél í afar stóru úrvali; allar
venjulegar stærðir og gerðir fyrir karlmenn, konur og börn.
Verðið altaf lægst í skóverzlun
Hvannbergsbræðra.
Hjartans þakkir til allra sem
auðsýndu samúð og hluttekningu
við andlát og útför dóttur og eigin-
konu, Brynhildar Eyjólfsdóttur.
Sérstaklega þökkum við stúkunni
»Brynju« og karlakórnum »Oeysi«,
er heiðruðu útför hennar á veg-
legan hátt.
Kristrún ]ónsdóttir.
Stefán Ág. Kristjánsson.
ágætiskona. Um langt skeið veitti hún
forstöðu einu glæsilegasta heimili þessa
bæjar, þar sem uppi var haldið stór-
kostlegri risnu og höfðingskap. Hún var
jafnfær um að standa fyrir slíku heim-
ili og að búa við þessháttar lífskjör eins
og hún var síðar fær um að taka á móti
andstreymi lífsins, þegar misvindi ör-
laganna gerði stórfeld umskifti á hag
hennar. Hún andaðist á heimili sonar
síns, Júlíusar sýslumanns, enda átti hún
þar aðsetur hin síðustu ár.
— U. M. F. Árroðinn í Eyjafirði hélt
20 ára afmæli sitt 27. jan. síðastl. í sam-
komuhúsi félagsins. Fagnaðurinn hófst
með kaffidrykkju og ræðuhöldum. Al-
þingism. Einar Árnason mælti fyrir
minni félagsins. Síðan var sýndur smá-
leikur og skemt með söng og' dansi. Fé-
laginú bárust heillaóskaskeyti frá U. M.
F. í. og U. M. F. A.
— Hæstaréttardómur féll nýlega í
máli Sauðárkróksdrengsins, sem hlaut
sjúkleika og örkuml fyrir hungur, vos-
búð og misþyrmingu af hendi húsbænda
sinna. Hjónin voru dæmd til að sæta
refsingu, — tvisvar sinum fimm daga
fangelsi við vatn og brauð og til þess að
greiða allan legukostnað drengsins. Ekki
voru dreng-num tildæmdar neinar ör-
kumlabætur með því að engin krafa
hafði komið fram um það. Blaðið Vísir
í Reykjavík hefir safnað 1700 kr. handa
dreng-num.
— Síðan í byrjun febrúarmánaðar
hefir verið hin mesta öndvegistíð um alt
land. Norðanlands hafa skifzt á hlákur
og staðviðri en stöðug hlýindi og er
snjór fyrir löngu horfinn af láglendi.
Sunnanlands eru stríðir hafstormar með
slagviðii þegar hlákur eru norðanlands.
Annai’s hafa veður þar verið hin beztu.
Er tekið að sætna í rót hér norðanlands
og þykir mörgum það vera of snemt.
------o------
Afurðasalan
hefir geng'ið lákar en í meðal-
lagi. Nokkuð af kjöti er enn óselt.
Allmikið af fiski var óselt um ný-
ár. Einnig hefir síldarsalan geng-
ið mjög treglega. örðugleikar is-
lendinga nú á tímum eiga að mjög
litlu leyti rót sína að rekja til ills
árferðis. Það hefir mátt kallast
gott síðan 1920. örðugleikarnir
rísa af því, að við erum eyðslusöm
þjóð og hirðulítil um hverju muni
fram vinda. Fyrir þá sök verðum
við um of háðir verzlunarviðskift-
um við aðrar þjóðir, en í þeim leik
erum við eins og máttvana peð
á taflborði og göngum frá með
skarðan hlut úr skiftum,
A viðavangí.
Íhalds-Templarinn á þingi.
»— — Fyrir þá, sem hugsa ein-
göngu um áfengismálið, er Jónas
Kristjánsson tvímeelalaust álitleg-
asti maðurinn af þeim, sem í boði
eru«, sagði »Templar« fyrir kosn-
ingarnár síðastliðið haust. Undir
þetta tóku svo sárfegin öll »bann-
blöðin« íhaldsins, alt ofan að
»Stormi«. Fulltrúi Heimatrúboðs-
ins danska velti vöngum af á-
nægju og Pétur Halldórsson bann-
maður varð mjóraddaður af hrifn-
ingu. Sjálfur gerði Jónas í Verka-
manninum grein fyrir skoðunum
sínum. Mátti af þeirri greinargerð
sjá, að hann er að vísu hlyntur á-
fengisvörnum, en hefir ekki trú á
banninu, eins og því er nú háttað.
Ekki bar á öðru en áðurnefndir
fulltrúar bannsins væru harðá-
nægðir með fulltrúann og þing-
mannsefnið eftir sem áður. Nú
hefir fulltrúinn prófast á þingi. J.
J. bar fram frv. til laga um ölvun
embættis- og sýshmavmanna, lands-
ins. Skyldi ákveða refsingu til
handa þeim embættis og sýslunar-
mönnuim, sem yrðu berir að því,
að vera ölvaðir við að gegna störf-
um sínum. Slík ákvæði hafa áður
verið sett um bifreiðastjóra. Nóg
dæmi eru fyrir höndum, sem
benda á þörf slíkra refsinga. Það
er kunnugt að skipstjórar drekka
mikið. Dæmi er til þess, að læknir
hefir skammað sængurkonu og
barið ljósmóðurina í ölæði. Frum-
varp þetta var þegar drepið með
jöfnum atkvæðum í Ed. Með voru
Framsóknarflokksmennirnir allir,
Jón Bald. og Björn Kristjánsson.
En á móti voru íhaldsmenn, nema
B. Kr., og þar með talin »álitleg-
asti maðurinn« Jónas Kristjáns-
son.
„Minningarorð“.
ísl. 11. febr. síðastl. um tóbaks-
einkasöluna eru komin fram of
snemma. Hann segir, að ríkissjóð-
ur hafi hagnast um 1/2 miljón kr.
á afnámi einkasölunnar. Þessa
niðurstöðu fær hann með því að
bera tolltekjurnar saman við áætl-
aða upphæð þeirra á fjárlögunum.
En slíkt eru falskar röksemdir.
Áætlanir fjárlaga hafa gengið
mjög úr skorðum. Meðal annars
fóru tekjurnar 21/2 miljón kr.
fram úr áætlun síðastl. ár. Sam-
bærilega upphæðin er samanlagð
ar toll- og söiutekjur eins og þær
reyndust síðasta ár einhasöhinnar.
Kemur þá í ljós, að ríkissjóður
hefir beðið um 3000 kr. skaða við
breytinguna. Nú er það vitanlegt
að innflutningur á tóbaki varð
miklu meiri en áður um leið og sal-
an var gefin frjáls og verzlunar-
rekendur tóku að keppa. Eru því
sterkar líkur til, að mikill aftur-
kippur verði í tolltekjunum á yfir-
standandi ári, íslendingur hefði
því átt að bíða frekari reynslu,
áður en hann hóf yfirsönginn.
Raunar segir það sig sjálft, að ríf-
legur verzlunarhagnaður af tó-
baki, sem áður rann í ríkissjóð en
nú rennur í vasa einstakra manna
og félaga, er beint tap fyrir ríkis-
sjóðinn og að það tap hlýtur að
koma í ljós, þegar innflutningur-
inn og þar með tolltekjurnar féer-
ast í eðlilegt horf.
Bókasafn Laugaskóla.
Laugaskóli hefir nýlega keypt
bókasafn af Jónasi Sveinssyni
bóksala á Akureyri. 1 safninu eru
hátt á 8. hundrað bindi. Eru það
nálega alt íslenzkar bækur; þar á
meðal margar fágætar bækur eða
jafnvel ófáanlegar. Safnið er vel
valið og heilsteypt einkum um
sagnfi’æðileg efni. Tímarit og
flokkaútgáfur alt í heilu lagi. Alt
er safnið snirtilegt, hreint, bundið
í ágætisband og að öllu leyti frá-
bærlega vel frá gengið. Kaupverð-
ið er 5000—5500 kr. eftir því
hvort greitt verður á 1 eða 3 ár-
um.
Sigurður Benediktsson
14 ára gamall sonur bóndans í
Barnafelli í Þingeyjarsýslu hefir
verið sæmdur verðlaunum úr
hetjusjóði Carnegies fyrir að
bjarga móður sinni og yngri bróð-
ur úr lífsháska. Tildrög þess voru
sem hér segir: Vestanmegin
Sjálfandafljóts stendur bærinn
Barnafell í allbrattri fellshlíð.
Jafnri brekku hallar alt frá hlað-
varpanum og niður að fljótinu. En
þar fellur Barnafoss niður í hrika-
legt gljúfur. Munnmæli segja, að
í fyrndinni hafi börn skriðið inn í
tunnu á hlaðinu í Barnafelli og
tunnan oltið með þau niður í foss-
inn. Hafi fossinn hlotið af því
nafn sitt og hæjarheitið breizt úr
Miðfelli í Barnafell. Á öndverðum
þessum vetri voru börnin í Barna-
felli að leika sér á hlaðinu. Hjarn-
fenni var áog svellalög. Kassi, sem
börnin höfðu í gull sín rann fram
af hlaðinu ög niður brekkuna.
Drenghnokki, bróðir Sigurðar
hljóp á eftir kassanum, náði hon-
A t v i n n a!
Nokkra menn vantar við plægingar
og önnur jarðabótastörf í Framfara-
félagi Öngulsstaðahrepps á næsta
vori. — Lysthafendur snúi sér til
Péturs Gunnarssonar Sigtúnum fyrir
15. apríl næstkomandi.
Ritlingurinn FJÁRSTJÓRN ÍSLANDS
eftir Jón Þorláksson, útg. 1923 eða 1924,
óskast tii kaups. — F. B. ARNGRÍMSSON.
um, en rann sjálfur niður hjarnið.
Fékk hann með naumindum stöðv-
að sig á hnjót nokkurum er stóð
upp úr svellinu. Móðir drengsins
vildi bjarga honum, en fór sömu
för og hann. Lá við sjálft að þau
steyptust bæði í gljúfrið. Þó fékk
hún einnig stöðvað sig á sama stað
og drengurinn. Sigurður litli
hugsaði ráð sitt, tók sér reku í
hönd og pjakkaði spor í hjarnið
alla leið. Fengu þau með þeim
hætti bjargast. Nokkrir góðvinir
blaðsins »Politiken« í Khöfn, sem
lásu í blaðinu um atburðinn, hafa
haft samtök um að bjóða drengn-
um til Kaupmannahafnar á næsta
sumri. Verður ferð hans og dvöl
kostuð að öllu leyti. Hefir hrepp-
stjóri Ljósavatnshrepps fengíð
bréf frá sendiherra islands í
Khöfn hér að lútandi. Eru líkur
til að drengurinn þiggi boðið.
Annáll nítjándu aldar,
3. hefti II. bindis er nýkomin út.
Nær það yfir árin 1843 til 1849.
Eins og fyrri er frágangur verks-
ins í bezta lagi og útgefandanum,
syni síra Péturs, Hallgrími bók-
bindara til sóma. Eins og fyr hefir
verið greint, er bók þessi prýði-
lega rituð, skemtileg og hin fróð-
legasta. Eru þar raktir helztu at-
burðir aldarinnar í dómstólamál-
um, slysförum o. fl., rakin æfiat-
riði merkra manna, lýst veðurfari,
mannalát talin og margvíslegur
annar fróðleikur saman tíndur.
Eins og sést af ártalinu er verkið
nú nálega hálfnað. Ættu sem flest-
ir að gerast kaupendur þessa
merkilega rits.