Dagur - 21.04.1927, Side 1
D AGU R
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjálddagi fyrir 1. júlí.
Innheimtuna annast Jónas
Sveinsson bóksali, Eyrar-
landsveg 3 (Sigurhæðir).
A f g r e i ð s lan
er hjá Jóni Þ. Þ6r,
Norðurgötu 8. Talsfmi 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
X. ár.
| Akureyri, 21. apríl 1927.
17. tbl.
Hjartans þakkir fyrir innilega hluttekningu og virðingu auðsýnda með
minningargjöfum og á annan hátt við fráfall og jarðarför Jónínu Sig-
ríðar Stefánsdóttur húsfreyju á Öngulsstöðum.
Aðstandendur.
Farfuglar.
Nú koma þeir sunnan og þreyta
flugið yfir óravegu hafs og landa.
Kynja-afl ástarþrárinnar brýzt
þeim í brjósti og stælir átökin.
Draumar vornóttanna, dýrð ís-
lenzkra hásumarmorgna seyðir og
dregur. Vilji þeirra er takmarka-
laus eins og rúmið sem þeir kljúfa.
Einbeitnin hvessir augun litlu
móti veðurbökkum norðursins.
Ekkert breytir áformi þeirra,
nema hin banvæna þreyta, er hún
slær þá niður í hafið. Draumlönd
æskunnar hillir bak við hafið ólg-
andi, bak við hamrarið og ókleifa
jölda.
Kvíðalausir og óhikandi sækja
þeir ferðina til yztu hjara verald-
ar. óbrigðulir koma þeir í sama
mund á hverju vori, þessir boðber-
ar suðrænna daga; þessir fagnend-
ur norrænna nótta.
Lengur en þúsund ár hefir þeim
verið fagnað á hverju vori af börn-
um íslandsbygða. Koma lóunnar
hefir verið mest fagnaðarhátíð
önnur en jólin. Þessa minnast þeir,
sem hafa verið börn á æskustöðv-
um lóunnar. Fyrstu tónarnir af
söng hennar eru eins og rödd úr
djúpinu; eins og kall handan yfir
fjöllin. Þeir bera í sér hreim fagn-
aðarins yfir ókominni sælu; þeir
eru máttur hinnar barnslegu, ó-
heftu eftirvæntingar.
Heim! heim til æskustöðvanna
keppa þeir allir þessir vinir góðra
barna. Enginn hégómi lokkar þá
frá stöðvum fyrstu vona, engin ný-
breytni rís eins og skuggi milli
upphafs og endimarks. Trúleik-
ans eilífa sæla birtir um þá,
hreiðrin þeirra, foreldravernd
þeirra, æskusorgir þeirra, flug
þeirra yfir hafið, baráttu þeirra
við hregg og stórviðri óblíðra vor-
daga.
Við erum farfuglar, og við sækj-
um kappsamlega för til fyrirheit-
inna landa. Er ekki líf okkar, tak-
mark okkar og farsæld háð þeim
lögum, sem beinir för litlu fugl-
anna yfir hin breiðu höf ? Er ekki
skylda margra og svo hamingja
yfirgefin, þar sem vaggan stóð?
Orka lífsins er við upptök þess.
Andi vorsins »dregur arnsúg í
flugnuim«. Svo er og um vonir
æskumanna, fyrirætlanir þeirra
og átök. Þau eru hiklaus og sterk.
Orkan er sótt í upphafslindir lífs-
ins, hamingju þess og afreka. Hún
er sótt í djúp þess hjarta, sem er
ósnortið af tælibrögðum hrörnandi
dygða; hún er sótt í fylgsni þess
hugar, sem er óflekkaður af falsi
hnignandi siðgæðis. Hún er sótt í
fyrstu bænir til guðs, í fyrsta
fögnuð lífsins á vorin, þegar lóan
boðar upprás sólar yfir gróandi
by’gð.
Litli, vegmóði æskuvinur minn,
kominn langt um blávegu hafs og
geims, til þess að geta lifað æsku
þína og barna þinna að nýju í
dalnum okkar. Hugur minn fylgir
þér. Eg vildi geta, eins og þú, sótt
orku til upphafslinda vona minna
og eftirvæntinga. Hamingjan gefi
þér og öllum, mönnum og málleys-
ingjutm
Gleðilegt sumar!
——O---------
Fundargerð.
Ár 1927, laugardaginn 5. marz (kl 5
síðdegis), var aðalfundur S. Þ. U. settur
í Laugaskóla. 'Formaður sambandsins,
Þóroddur Guðmundsson, setti fundinn
og bauð fulltrúa velkomna. Samkvæmt
uppástungu formanns, var Þórir Stein-
þórsson i Álftagerði kosinn fundarstjóri,
en hann tilnefndi aftur til varafundar-
stjóra Karl Jakobsson á Narfastöðum,
og til skrifara þá: Karl Kristjánsson í
Rauf og Helga Sigtryggsson á Hall-
bjarnarstöðum. Öll stjóm S. Þ. U. var
mætt á fundinum og fulltrúar frá deild-
um sambandsins sem hér segir:
1. Frá ungmennafélaginu »Efling«:
Karl Jakobsson, Vagn Sigtryggsson,
Helgi Sigtryggsson.
2. Frá ungmennafélaginu »Gaman og
alvara«:
Flosi Sigurðsson.
3. Frá ungmennafélaginu »Geisli«:
Völundtir Guðmundsson, Steingrimur
Baldvinsson.
4. Frá »Ungmennafélagi Lauga-
skóla«:
Árni Þórðarson, Ingólfur Sigurgeirs-
tson, Hólmfríður Jónsdóttir.
5. Frá ungmennafélaginu »Ljótur«:
Helgi Hjálmarsson.
6. Frá ungmennafélaginu »Mývetn-
ingur«:
Arnþór Ámason, Þórir Steinþórsson,
Pétur Jónsson (Gautl.).
7. Frá »Ungmennafélagi Tjöraessc:
Baldur Steingrímsson og Karl Krist-
jánsson.
Engir fulltrúar voru mættir frá ung-
mennaf élögunum:
»Bjarmi«, »Víðir« og »Reykhverfing-
ur«.
Á fundinum gerðist þetta:
1. Flutti formaður S. Þ. U. stutta en
gagnorða skýrslu um starfsemi sam-
bandsins síðastliðið ár.
2. Lesið upp bréf frá ungmennafélag-
inu »Víðir« í Bárðardal, þar sem félag
þetta segir sig úr S. Þ. U. Var úrsögn
þessi tekin gild og félagið því talið
fonnlega gengið úr sambandinu.
3. Lesinn upp aðalreikningur S. Þ. U.
1926 og þessir menn koánir til þess að
endurskoða hann fyrir lok fundarins:
Vagn Sigtryggsson og Amþór Árnason.
4. Rætt um það hvort S. Þ. U. skuli
ganga í U. M. F. 1. og samkvæmt álykt-
un síðasta aðalfimdar sambandsins,
gerð grein fyrir undirtektum deilda
sambandsins. Höfðu fjögur félaganna,
sem fulltrúar voru mættir frá, samþykt
álylctanir um að þau væru því mótfall-
in að S. Þ. U. gangi í U. M. F. í., en
þrjú félaganna höfðu verið því fylgj-
andi; eitt þeirra þó með sérstökum skil-
yrðum.
Með þessum undirtektum var málið
fallið að svo stöddu, og því tekið út af
dagskrá.
5. Kosin stjóra S. Þ. U. fyrir næst-
komandi starfsár, og voru þeir: Þór-
oddur Guðmundsson, Úlfur Indriðason
og Pétur Jónsson endurkosnir. Sömu-
leiðis var varastjómarmaður endur-
kosinn: Arnþór Árnason.
6. Kosinn maður í »Skólaráð Lauga-
skóla« af hálfu S. Þ. U. og Þórólfur
Sigurðsson í Baldursheimi endurkos-
inn.
7. Kom fram og var samþykt svo-
hljóðandi tillaga:
»Fundurinn skorar á fulltrúa að vekja
athygli og áhuga á vormótshreyfing-
unni. Telur hann nauðsynlegt að sam-
bandsfélögin ræði málið á fundum sín-
um heima«.
8. Endurskoðendur lögðu fram endur-
skoðaðan aðalreikning S. Þ. U. fyrir
1926 með lítilsháttar athugasemd. Var
Hér með tilkynnist að Ólöf
Jónsdóttir frá Sólborgarhóli andað-
ist í sjúkrahúsinu á Akureyri 14.
þ. m. — Jarðarförin fer fram fimtu-
daginn 28. þ. m. og hefst með
húskveðju á heimili hinnar látnu
kl. 12 á hádegi.
Sólborgarhóli 18. apríl 1927.
Anna Pálsdóttir.
Ásgeir þorvaldsson.
reikningurinn með athugasemdinni sam-
þyktur í einu hljóði. —
9. Tekið til umræðu landnámsmálið og
gerðu fulltrúar fyrst grein fyrir af-
greiðslum málsins heima í félögunum.
Þrjú félögin sem áttu fulltrúa á fund-
inum, höfðu samþykt tillögur um stofn-
un »Landnámssjóðs Þingeyinga« á þann
hátt, sem nefnd sú lagði til( er kosin
hafði verið í málið á síðasta aðalfundi
S. Þ. U. og birt hafði álit sitt í »Þing-
evingk. En fjögur félögin höfðu tekið
sér sérstaka afstöðu til málsins, hvert
á sinn hátt. — Var þá mál þetta rætt
alllengi á víð og dreif, en síðan kosin 3
manna nefnd, til þess að koma næsta
dag fram með ákveðnar tillögur til af-
greiðslu málsins á þessum fundi. 1
nefndina voru kosnir: Pétur Jónsson
(Kasthv.), Þórir Steinþórsson og Karl
Kristjánsson. — Var þá klukka orðin
10% og fundi frestað til næsta dags.
Sunnudaginn 6. marz var svo fundur
aftur settur, kl. 9 árd., með sömu mönn-
um og daginn áður.
Nefnd sú, sem kosin hafði verið kvöld-
ið áður, lagði fram svohljóðandi tillögur
með munnlegri greinargerð: »Með því
að ekki hefir komið fram nógu ákveðinn
áhugi fyrir stofnim Landnámssjóðs, og
eigi frá nógu mörgum félögum, sér S.
Þ. U. sér ekki fært að stofna hann að
svo stöddu. En fundurinn skorar á deild-
ir S. Þ. U., að gera landnámsmálið að
stefnuskrármáli sínu og framkvæmdar-
máli þannig, að hver deild fari nú þeg-
ar að vinna að nýyrkju og jarðaumbót-
um í sínu bygðarlagi á þann hátt( sem
staðhættir krefja þar. — Jafnframt