Dagur - 12.05.1927, Side 2

Dagur - 12.05.1927, Side 2
76 DAOUR ao. tbi. Hótel Gullfoss verður flutt 14. maí í Hafnarstræti 100. Inngangur að sunnan. Rannveig Bjarnardóttir. Byggingavörur N ÝKOMNAR: Steypujárn. Vatns- og skólpleiðslurör. Qólfdúkar. Qólfpappi, þakpappi, veggpappi. Málningavörur allskonar. Veggfóður. % Kaupfél. Eyfirðinga. ÉiIiiiiiiliiilftiiikiiiiiiS Myndastofan í Gránufélagsgötu 21 er opin alla daga frá kli 10—6. Guðr. Funch-Rasmussen. göngu sinni um vöruvöndun og verzlunarhætti alið upp hina yngri menn í kaupsýslustétt landsins til siðmennilegri hátta og meira víð- sýnis í viðskiftum. Laphneigð fsl. hefir enn sem fyr komið honum út á hála braut. Hann hefir tekið óhróðursgrein um Sambandið upp úr blaði, sem enginn virðir svars. Hefir hann þannig gert ummæli greinarinnar að hálfu leyti að sínum' orðum. Virðist það benda á löngun hans til þess að taka þátt í nýrri her- för gegn samvinnufélögum lands- ins. Yfir slíkum blöðum svífur andi hinna lökustu manna í kaup- mannastéttinni, — manna, sem vildu fegnir geta féflett og kúgað vanmegna og sundraða bændur á líkan hátt og gert var á gullöld selstöðukaupmannanna. Ekki mun Dagur mjælast undan átökum um þessi efni eða skirrast við að mæta íslendingi á þeim vettvangi. út frá kunnleika sínum um sögulegar staðreyndir í verzlunarsögu lands- ins, telur hann sér óhætt að lofa því, að för fslendings og sagnar- anda hans skal verða hin háðu- legasta. ----o----- — Á Skákþingi íslands voru kosnir í stjóm Skáksambandsins til næsta árs Pétur Zóphóníasson formaður, Einar Amórsson féhirðir og Elías Guðmunds- son ritari. Skákritið verður gefið út hér á Akureyri fyrst um sinn trl næsta nýárs. Ágreiningur nokkur reis milli Norðlendinga og Reykvíkinga út af sumum fyrirkomulagsatriðum, þegar Akureyringar hófust handa um stofnun Skáksambands lslands. Nú er sá ágrein- ingur að fullu jafnaður. Þótti Reykvík- ingum gott að sækja heim Norðlendinga og töldu að þetta skákþing hefði verið það ánægjulegasta, sem enn hefði verið haldið. ----o-...— Ihalds-lánið. i. íslendingur 8. apríl síðastl. reynir að hnekkja frásögn Dags um skuldir bankanna. Röksemdir Dags um fjárhagsmálin, í 18. tbl. gengu til a'ð sýna, að fjárhagsá- standið hefði í engu batnað undir stjórn íhaldsins, því það sem hefði verið reitt af þjóðinni, til þess að grynka á ríkisskuldum, yrði hún að taka að láni erlendis í gegn um bankana. Heildarástandið muni því ekki hafa batnað, heldur jafn- vel lakast, þrátt fyrir undangeng- in einmuna veiðiár og sæmilegt árferði að öðru leyti. Svar íslendings er í tveimur köflum. Er annar kaflinn nær all- ur eftir Jón Þorláksson, tekinn upp úr Verði, og hljóðar um fjár- hagsástæður ríkisins. Hinn er um, bankaskuldirnar. Jón Þorláksson setur upp samL anburðarskýrslu um breytingar á efnahag ríkisins yfir árin 1922— 1926. Telur hann að á árunum 1922—1923 hafi hagur ríkisins lakast um rúml. 1.700 þús. kr., en vænkast aftur á árunum 1924— 1926 um rúml. 11 milljónir. út frá þessu eru svo dregnar óbeinar á- lvktanir um misvizku »Framsókn- arstjórnarinnar« og snild fhalds- ins og þá sérstaklega fjármálaráð- herra þess. Við þetta dæmi fjármálaráð- herrans er fyrst að athuga, að engar skýrslur liggja fyrir um það, hversu varlega eru bókfærðar eignir ríkisins. Fjármálaráðherra og yfir höfuð stjórn, sem vill sýni- lega neyta allra bragða, til þess að auka álit sitt undir kosningar, á hæg heimatökin um að setja upp þessháttar órökstudd dæmi og nið- urstöður á ótilfærðum efnahags- skýrslum. ETi slíkar greinar, sem eru án alls efa aðeins kosninga- beita, verða að engu virtar. — I öðru lagi hefði samvizkusamur maður um meðferð höfuðraka skygnst lengra fram’ en til 1922. Hann hefði litið á arfinn, sem barst Sigurðar Eggerz-stjórninni upp í hendur. f lok hins fyrra stjórnartímabils þeirra Jóns Magnússonar og Magnúsar Guð- mundssonar gerðist hið mesta hrun í fjárhag lands og þjóðar. ís- landsbanki komst í algert strand. Árið 1921 ætlaði Magnús Guð- mundsson að bjarga landinu með innflutningshöftum og harðvítug- um sparnaðarráðum, en endaði með því að taka við f járlögum með tveggja milljón kr. tekjuhalla, smíða »fjáraukalögin miklu« og með því að taka »enska lánið« — hið mesta ókjaralán, sem tekið hefir verið í sögu landsins. Slíkur var arfurinn eftir þá J. M. og M. G. árið 1922. örðugur ríkisfjárhagur 1922 og 1928 voru aðeins mjög eðlilegar afleiðingar af fjárhagshruni ár- anna 1920—•1921. En hættur rík- isfjárhagur síðustu þrjú árin er afleiðing af þeirri óvægilegu skatt- heimtu, sem rekin hefir verið síð- ustu ár samfara hinum mestu veltiárum unt veiðibrögð 1924 og 1925. * 1 2 3 4 5 6 7 8 En fjárheimtan og gengishækk- unin hefir sökt atvinnufyrirtækj- um og einstaklingum þjóðarinnar í óbotnandi skuldir. Þær skuldir koma fram í ástæðum bankanna. Skal nú vikið lítið eitt að þeirri hlið fjárhagsmálanna. II. Dagur lét þess getið, að hagur bankanna út á við hefði, »að sögn lakast um! 15 millj. króna«. Enn fremur taldi hann að bankarnir myndu, að meðtöldum hinum nýju lánum, skulda um 40 milljónir kr. erlendis. íslendingur telur að Dag- ur fari mieð ósannindi um 'fjár- hagsmálin. En hversu tekst honum að hnekkja þessum niðurstöðum? Ekki reynir hann að bera saman skuldir bankanna út á við um síð- astl. áramót og skuldirnar um ára- mótin næstu á undan, sem er þó óhjákvæmilegt, ef hann vill hneklcja umsögn Dags um hnign- unina á síðastliðnu ári. Nei, hann hefir á sér ráðherrabrag og tekur skuldir bankanna út á við í árslok 1923 til samanburðar. Þannig gengur hann á bug við þau rök, er hann kallar ósannindi og þykist vera að mæla á móti. Þessi »ráðherra-rök« lætur hann jafn- framt duga, seml andmæli gegn umsögn Dags um núverandi skuld- ir bankanna; — segir, eftir hag- stofustjóra, að bankarnir hafi skuldað út á við um síðastl. ára- mót 2814 millj. kr. eða um| 5 y2 millj. minna én í árslok 1923. — Með slíkum! blekkingum hygst hann að leiða athygli lesandanna frá raunverulegu ástandi bank- M U N D L O S-saumavélar eru beztar. anna og hinum nýju »íhalds-lán- um«. Slíkan m|ann, sem í viðræðum hleypur út undan sér, eins og ritstj. ísl. hefir gert hér, ber að tjóðra við sterkan hæl. Skal hann nú bundinn við rök, sem hann get- ur ekki hlaupið frá og birt hér sundurliðað yfirlit um skuldir bankanna eins og þær verða að teknum hinum nýju lánum: 1. Enska lánið frá 1921. Hlutdeild Landsb. kr. 2 millj. Hlutdeild ísl.b. kr. 6 millj. 2. Skuld íslandsb. við póstsjóð Dana frá árunum 1920 og 1921 alt að 5 millj. d. kr., ísl. kr. 6 millj. 3. Reikningslán Landsb. í Englandi frá 1921 um kr. 4. millj. 4. 20 ára fast lán Landsb. í Englandi frá 1923 um, kr. 4 millj. 5. Veðdeildarlán frá 1926; varið að 95/ioo í kaupstaðahús en að s/ioo í fast- eignir í sveit kr. 3 millj. 6. Skuldir fslandsb. við erlenda banka um kr. 5 millj. 7. Ráðgerð ný lántaka til fasteignaveðl. kr. 4% millj. 8. Hið nýtekna reikn- ingslán Landsb. í Ameríku kr. 9 millj. Samtals kr. 43% millj. Þannig stendur reikningslegur hagur bankanna út á við. Uggur manna við hina síðustu lántöku styðst við þau líkindi, að lánið verði í raun réttri fast lán, sem gangi til þess að jafna rekst- urshalla fyrirtækjanna við sjóinn. Lítum á meðferð málsins á þingi. Ekkert mál í frumvarpsformj er svo lítilsvert, að það fái ekki sínar sex umræður og athugun í nefnd- um. En lántökuheimild, sem hljóð- aði um 9 millj. króna, vildi fjár- málaráðherrann fá rekna gegnum þingið með afbrigðum frá þing- sköpum á afbrigði ofan. Enda var það þegar látið uppi að íslands- banka vanhagaði um skyndilega úrlausn á greiðslu skuldar í Eng- landi. Er því engin furða, þó ugg- vænlegt þyki um meðferð slíks láns í höndum þeirrar stjórnar, sem virðist hafa fullan hug á, að koma skuldbindingum Islands- banka yfir á bak þjóðarinnar í formi ríkisábyrgðar á skuldum Landsbankans.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.