Dagur - 03.06.1927, Page 2
88
DAQUR
23. tbl.
Kjötendurgreiðsla.
15 aurar verða endurgreiddir af hverju
kílói kindakjöts seldu á sláturhúsi okkar
á Akureyri síðastliðið haust.
Endurgreiðslan fer fram á skrifstofu
okkar hvern virkan dag kl. 1 til 6 frá
3. júní til 1. ágúst n. k.
Peir, sem ekki hafa vitjað greiðsl-
unnar fyrir tiltekinn tíma missa rétt-’
inn til endurgreiðslu.
Kaupfél. Eyfirðinga.
SiiiiiiiiftiiftftftiftiiiiiiiiiB
Myndastofan
í Oránufélagsgötu 21 er opin alla
daga frá kh 10—6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
Nokkur rit.
Islenskt skákblað. Þessa blaðs hefir
verið getið fyr hér í blaðinu. Það er
gefið út af Skáksambandi Islandsi
sem er stofnað fyrir forgöngu Taflfé-
lags Akureyrar og hefir nú sem stend-
ur aðsetur hér nyrðra. Ritstjórinn er
Þorst. Þ. Thorlacius. Ritið kemur út
ársfjórðungslega. 1 hverju hefti er grein
um einn eða fleiri merka skákmeistara.
Préttir af skákþingum innlendum og
erlendum, ýmsar nýjungar um skák,
skákir, skákdæmi og fleira. Ritið er vel
frá gengið og eigulegt fyrir allá þá sem
liafa hug á þessari stórfrægu og albeztu
þeirra íþrótta, sem stundaðar eru til
dægrastyttingar. Væri óskandi að skák-
listin næði meiri ig meiri tökum á hug-
um íslendinga og útrýmdi að einhverju
leyti spilaæði þjóðarinnar og öðrum
þessháttar fánýtari skemtunum, sem oft
verða að ástríðum og eru stundum rekn-
ar sem fjárglæfrafyrirtæki. Dagur vill
ráða mönnum til að kaupa skákritið og
nota sér það ósleitilega í frlstimdum,
þegar eigi verður þarfara aðhafst.
Almanak Ólafs Thorgeirssonar 1927,
er nýkomið. Innihald þess er auk hins
venjulega tímatals og smáfróðleiks um
stjömufræðileg og söguleg efni: J6-
hannes Jósefsson, eftir J. A. Sigurðs-
son, með mynd af þeim hjónum, Hundr-
að ára minnig Ottawa með mynd af
nýja þinghúsinu, þar sem háð er sam-
bandsþing Kanadaríkis, Uppruni friðar-
pípunnar, Safn til landnámssögu ís-
lcndinga i Vesturheimi, æfiágrip, ætt-
artala o. fl. Útgefandinn ritar um sögu
Islendinga í Norður-Dakota eftir Thor-
stínu Jackson. Telur hann rangt með
fama mynd af fyrsta landnemahúsinu í
bygðinni. Sönn mynd af húsinu segir
hann að hafi birzt í Almanakinu 1902
í grein Friðriks Bergmanns um s>Land-
nám íslendinga í Norður-Dakota«.
Myndin í bók Thorstínu er máluð af
málaranum Emil Walters, eftir upp-
lýsingum og telur Ó. S. Thorgeirsson að
hún gefi alranga hugmynd um frum-
byggingar landnemanna og sé að öðm
leyti ósönn. Til dæmis sýnir myndin
múrsteinspípu upp úr þakinu, en múr-
steinn muni hafa verið sjaldgæf vara í
óbygðum Ameríku á þeim áruml Fer
Thorgeirsson og að öðru leyti allhörð-
um orðum um bókina. Bók Thorstínu
mun að miklu vera reist á Almanakinu,
því það er, eins og kunnugt er, land-
námabók Vestur-lslendinga og því eitt
hvert gagnmerkasta rit. En oft hef-
ir Almanakið verið veigameira en að
þessu sinni.
Þjóðvinafélagsbækurnar eru nýkomn-
ar og eru þær snemma á ferðinni. And-
vari flytur að þessu sinni ákaflega
langa grein um Bjarna frá Vogi, eftir
Ben. Sveinsson alþm. Bjarni Sæmunds-
son ritar um »Fiskirannsóknir 1925 og
1926.« »Norsk vísindastofnun« heitir
grein eftir Sigurð Nordal. Er þar greint
frá »Instituttet for sammenlignende
kulturforskningz í Oslo. Sú stofnun er
risin upp úr öngþveiti stríðsáranna og
er ein af tilraunum hlutlausra þjóða,
að sameina á vettvangi vísindanna hin-
ar sundruðu og stríðandi þjóðir. Við-
fangsefni stofnunarinnar eru saman-
burðarrannsóknir á fornsögu, máli og
menningu ýmsra þjóða. Er það stór-
feld tilraun að skilja uppruna allrar
menningar og sögulegt samhengi ýmsra
þátta hennar. Loks eru »Þættir úr
menningarsögu Vestmannaeyja« eftir
Sigfús M. Johnsen. Fyrstu tvær rit-
gerðirnar eru 100 bls. og munu þeim
sem helzt vilja lesa fjölbreytilegt hrafl
og ágrip þykja ritið fábreytilegt. Al-
manakið 1928 er aftur á móti fjöl-
breytilegt og skemtilegt til lesturs. Er
nú tekin sú nýbreytni að birta myndir
og æfiágrip þeirra manna úti um heim,
sem hafa gerzt áhugamenn um íslenzk
fræði og þjóðhagi. í þetta Almanak rit-
ar Jón Stefánsson dr. um Englending-
ana James Bryce lávarð og prófessor-
ana W. P. Kerr, Sir Israel Collanscz og
W. A. Craigie. Loks er að nefna fylgi-
ritið: »Á norðurveg?. eftir Vilhjálm
Stefánsson landkönnuðinn fræga. Koma
hér fyrstu 96 bls. bókarinnar og endar
í miðri setningu. Er þessi fyrsti hluti
sögulegt og vísiadalegt yfirlit um land-
nám veraldar einkum á síðustu öldum
og landkosti heimskautalandanna. Er
það ritað af mikilli víðsýni en jafn-
framt hvarflað víða um og fyrir þá sök
eigi jafnskemtilegt og vænta má að enn
verði.
Eimreiðin 1. hefti 1927 flytur »Við
þjóðveginn eftir ritstjórann. Er það yf-
irlit um merkustu heimsviðburði og má
teljast einkarþörf nýlunda í fari ís-
lenzkra tímarita, síðan Skírnir tók að
stara nálega eingöngu inn í fortíðina.
»Hún var svo rík hún Laufey« heitir
þar saga eftir Hagalín. Haraldur
Björnsson ritar um leikhús nútímans
(með 7 myndum). Jakob Thorarensen
yrkir nokkur góð Kvæði í ritið og fylg-
ir mynd skáldsins, Alex McGill um Gor-
don Bottomley (með mynd), Ricard
Beck yrkir um Nótt, Jakob J. Smári
ritar »Hugleiðingar um skáldskap«. Þá
er framh. af Fundarbók Fjölnismanna,
Raddir um mynd Bólu-Hjálmars og
Ritfregnir. Eimreiðin hefir oft verið
veigameiri.
Vaka, I. 2. hefti, er nýkomin. Árni
Pálsson ritar ítarlega grein um Mussol-
ini. Er hún allnákvæmt sögulegt yfirlit
yfir óöld þá, sem Mussolini hefir leitt
yfir landið og röksamlegar ályktanir
dregnar af atburðum í landinu og á-
standi stjórnarfarsins. Greinin er fróð-
leg. Jón Þorláksson ritar um »Silfrið
Koðráns«. Skýrir hann frá annari hlið
en Guðm. Finnbogason samtal þeirra
Koðráns á Giljá og Þórdísar spákonu
og virðist bert, að J. Þ. hafi þar fyllri
rök að mæla. »Foksandur« heitir grein
eftir Sigurð Nordal. Eru það athuga-
semdir við síðustu skrif Einars H.
Kvarans. Þykist S. N. hafa náð hand-
föstu taki á gagngerðri mótsögn í kenn-
ingum Kvarans og lífsskoðun. Greinin
er röksamlega skrifuð sem vænta mátti.
Kristján Albertsson skrifar um »Ber-
sögli« og ferst það stórilla. Verður sú
grein athuguð sérstaklega. Páll Isólfs-
son skrifar um Beethoven, minningar-
greip.
Auk þessara greina eru ýmsar smá-
greinar og síðast ritfregnir. í smágrein-
unum ávarpar Guðm. Finnbogason %ig.
Verður þeirri kveðju tekið í sérstakri
grein. í ritfregnunum skrifar Sigurður
Nordal ágætlega um Laugaskóla. Xemst
hann að þeirri niðurstöðu, sem halciið
hefir verið fram í sumum blöðum, að
sumt í starfsháttum skólans sé fyrsta
nýjungin, sem íslendingar hafa lagt til
slcólamála. — Þetta annað hefti Vöku
er mjög læsilegt og tekur um það fram
hinu fyrsta hefti. En ekki verður enn
vart neins í ritinu, ’ sem verður mt-ð
réttu talin vökumenska.
-------o------
Rauða Kross skemtun mjög marg-
breytt verður haldin á annan Hvíta-
sunnudag til eflingar Rauða Kross
Deild bæjarins. Skátar og ungar
stúlkur selja Rauða Kross merki á
götunum og gefa þau aðgang að
skemtisamkomunni og veitingum í
Samkomuhúsinu. Kl. 3—7. Þar flyt-
ur Jóhannes Jósefsson erindi, Ingi-
mundur Árnason og Steingr. Matt-
híasson syngja tvísöngva, horna-
flokkurinn spilar, Steinþór Guð-
mundsson klæðskeri syngur gaman-
vísur. —f Dans á eftir,
Á víðavangi.
,Kjötsalan“.
ísl. 21. tbl. reynir að haida uppi
vörn fyrir ósannindaþvættinginn úr
»Stormi« um kjötsölu Sambandsins.
Bætir hann nú gráu ofan á svart
með því að gera ráð fyrir, að Jón
Árnason muni á Sambandsfundi*
gefa villandi skýrslu um málið, tii
þess að fegra frammistöðu sma!
Virðist engin takmörk fyrir ósvífni
íhaldsblaðanna í garð fulltrúa
bænda og í garð félagsskapar
þeirra. Skýrsla J. Á. er nú komin
hingað norður, í 22. tbl. Tímans.
Sést af henni, að öll atriði í ásök-
unum »Storms« og nálega öll frá-
sögn hans eru rakalaus ósannindi.
Höfuðatriðin eru þessi:
1. S^mbandið seldi alt það kjöt
sein framast var unt að selja á
hausti fyrir hið háa verð, 150 kr.
tn. Skýrsla J. Á. í bréfum til Sam-
bandsfélagana í byrjun kjötsölu-
tímans sýna, að hann var svartsýnn
á horfurnar. Hefði hann því tregð-
ast við að selja, vitandi það að verð-
ið myndi faila, hlaut það að vera af
því að hann hefði viljað að bændur
fengju sem lægst verð fyrir kjötið!
En hver trúir slíku?
2. Sambandið hafði til sölumeð-
ferðar 13.521 tn. af dilkakjöti og
1265 tn. af kjöti af rosknu fé. Af
þessu kjöti seldi það í fyrstu kvið-
unni nálega 6000 tn. Um nýjár voru
óseldar 5.350 tn. Kaupmenn og fé-
lög utan Sambandsins höfðu til
sölumeðferðar um 7700 tn. Af því
telur J. Á. að óselt hafi verið um ný-
ár um 3000 tn. Sala á öllu kjötinu
drógst fram á vordaga. Þegar
skýrslan var gefin voru óseldar af
kjöti Samb. 200 tn. af dilkakj. og
400 tn. af ærkjöti. Er þetta nokkru
meira en Dagur skýrði frá í 20. tv.I.
Stafar missögnin af skakkri eftir-
tekt í símtah.
Sii staðhæfing íhaldsblaðanna að
Samb. liafi selt minna af kjöti fy*ir
hæsta veið, en þá var unt og að
kaupmenn hafi þá selt alt sitt kjöt,
er alger ippspuni. Vill Dagur skora
á ísl. að bæra fyrir þá óráðvend ú í
garð bænda og blaðamenskusví-
virðingu að lepja þessi ósanniadi úr
»Síormi«, með því að taka upp n"f-
uðatiiðin úr skýrslu J. Á.
„þjóðernisbaráttan vestra".
Mbl. 30. marz hefir tekið upp og
lagt út a ummælum úr Degi, þar sem
blaðinu fórust svo orð: »íslending-
ar vestan hafs heyja baráttu fyrir
þjóðerni sínu, sem eftir öllum eðli-
legum mörkum hlýtur að vera von-
laus«. Þetta þykir Mbl. vera illa
mælt og ómaklega. Ummæli Dags
styðjast við umhugsun, bygðri á
þekkingu og reynslu, þar sem fimb-
ulfamb Mbl. er aðeins gaspur út í
loftið. Um Ieið og tekur að mestu
eða öllu fyrir fólksflutninga frá fs-
landi vestur uin haf, hverfa Vestur-
Islendingum öll hugsanleg ráð, til
þess að halda þjóðerni sínu nema
um stundarsakir, þrátt fyrir einlæg-
an vilja þeirra. Aðalvígi þjóðernis-