Dagur - 11.11.1927, Qupperneq 3
47. tbl.
DAGUR
183
MEULSUHÆhH JMÚMIB MR1LAMÞ3.
sumtiRHhm-
v.
»pfc=fc=
Lýsing á Kristneshæíi.
Húsið er 36 metrar á lengd og 8 m.
á breidd. Við báða enda er útbygging
norður úr aðalbyggingunni 7% X 8 m.
og norður úr húsinu er þriðja álman
5 X 10 m. — Grunnflötur hússins er
ca. 480 ferm. Húsið er tvær hæðir,
kjallari og hátt ris (3% m.).
/ kjallara eru 7 íbúðarherbergi fyrir
starfsfólk hælisins, borðstofa, eldhús,
búr og bítibúr (matarúthlutunar) og
brauðgeymsla. Herbergi fyrir leguföt
úr leguskála, varamiðstöðvarstofa,
þvottaherbergi og annað til að vinda og
þurka lín og voðir.
Á 1. liæð er læknisíbúð í vesturendaiv-
um (7 herbergi og eldhús); 3 sjúkra-
stofur, borðstofa og dagstofa sjúklinga.
Ennfremur ljóslækningastofa, röntgen-
stofa, ásamt skoðunarherbergi og skrif-
stofa hælisráðsmanns. — Ein sjúkra-
stofan á þessari hæð í suðvestur horni,
er tileinkuð minningu Grundarhjónanna
Magnúsar Sigurðssonar og Guðrúnar
Jónsdóttur. Úr búi þeirra hafa samtals
farið 30 þús. kr. til hælisins. —
Á 2. hæð eru 9 sjúkrastofur, svefri-
herbergi yfirhjúkrunarkonu, herbergi
fyrir vökukonu og lyfjastofa.
Á efsta lofti er geymsla fyrir farang-
ur sjúklinga, lín og ýmiskonar vörur.
í húsinu eru 4 baðherbergi, og 11
vatnssalerni. Á göngum beggja hæða
eru 3 marmaraborð með 9 þvottaskál-
um í.
Austan við húsið er leguskáli fyrir
sjúklinga, 30 m. á lengd og 3(4 m. á
breidd. Undir honum er kjallari, sem
ætlaður er fyrir líkhús, geymslu, og
bifreiðarhús. Yfir leguskálanum er sól-
pallur eða svalir fyrir sjúklinga og má
aka út á hann rúmum þeirra, sem ekki
eru rólfærir.
Hælið er alt hitað upp með vatni úr
Reykhúsalaug, leiðslan er c. 430 metrar
og er vatninu dælt með rafmagnsdælu
frá lauginni. Hitinn er yfirgnæfandi.
Varamiðstöðvarkatlar eru þó í hælinu,
ef til þyrfti að taka.
Rafmagn er leitt frá Akureyri en
reynist það ekki nægilegt, er vafmagns-
mótorstöð norðan við leguskálann, sem
notuð er í viðlögum.
1 þvottahúsinu er gufuketill, sem hit-
ar þvottavélar og' 3 matsuðupotta í eld-
húsi, Þar er allur matur soðinn við
gufu. Þar er og bökunarofn, sem bakað
er í alt brauð fyrir hælið.
1 þvottahúsinu er þvottavél, lútpott-
ur, og vél sem vindur línið; og' í næsta
herbergi er önnur vinda, sem fullþurk-
ar og sléttir línið. Þær eru hitaðar með
gufu.
Úr bíti-búri í kjallara gengur matar-
lyfta upp á efri hæðir hússins, sem
hreyfist fyrir rafmagni — Loftleiðslur
eru í allar sjúkrastofur og víðar og
hringingaleiðsla að hverju sjúkrarúmi.
Á aðalgangi beggja hæða eru greyptir
í veggina fataskápar fyrir hvem sjúkl-
ing. Allar leiðslur fyrir miðstöð, raf-
magn, vatn og skólp eru ennfremur
greyptar í veggi hússins. Á öllum gólf-
um eru linoleumdúkar, nema í eldhúsi,
baðherbergjum, þvottahúsi og salern-
um, þar eru þau lögð gólf-flísum og
einnig er neðri hluti veggja þar lagðir
hvítum flísum. Gangflötur þrepa á að-
alstigum hússins er lagður hvítum
mannara. — Borðstofu- og dagstofu-
húsgögn eru úr bónuðu birki. Sjúkra-
rúm eru öll úr jámi með trégöflum og
hvítmáluð, og fylgir lítið borð hverju
rúmi. — Vandað orgel hafa bygginga-
menn hælisins gefið því, og málarar,
sem við það unnu, hafa gefið því stórt
málverk af hælinu og umhverfi þess,
♦
málað af Freymóði Jóhannssyni. Bygg-
nc -j/rjí! v7iv- /itnni jm-
ingamieistarar við hælið, þeir Jón Guð-
mundsson og Einar Jóhannsson hafa
gefið hælinu 2 klukkur. Eyfirðingur
einn í Reykjavík, sem eigi lætur nafns
síns getið, hefir gefið hælinu borðstofu-
klukku. Húsgagnasali Gunnar Stefáns-
son gaf hælinu vandað taflborð.
Á framhlið við borðstofu sjúklinga
eru gluggahurðir og má opna þær inn,
þannig að þær falli saman, svo að
borðstofan vei'ður eins og opin verönd
eða svalir.
1 hælinu eru öll nýtízku Röntgen- og
ljóslækningaáhöld. — Öll glerílát, áhöld
og' tæki, eru hreinsuð í gufu-suðuköss-
um og er einn slíkur kassi á hverri
hæð. Hrákakrukkum er raðað á bakka
og þeir síðan settir í stóran málm-
stamp; í honum er dálítið vatn og er
hann svo hitaður með rafmagni og
krukkur og hrákar sótthreinsað alt
saman í sjóðandi vatnsgufu.
Heita vatnið er notað í öll böð og
vaska í húsinu.
Aðalinngangur í hælið er norðan í
miðálmu hússins, sérinngangur frá
norðri í læknisbústaðinn og í sambandi
við hann inngangur í kjallara. Úr legu-
skála er einnig inngangur austan í hús-
ið. Hælið tekur til starfa um miðjan
þenna mánuð og tekur á móti 50 sjúkl-
ingum; en mun geta bætt við 10—15
sjúklingum þegar lengra líður. Um-
sóknir eru þegar fleiri en hægt er að
sinna.
Hið fasta starfsfólk við hælið er, auk
læknisins, yfirhjúkrunarkona ungfrú
Sólborg Bogadóttir, aðstoðarhjúkrunar-
kona ungfrú Steinunn Jóhannesdóttir,
ráðskona ungfrú Ása Jóhannesdóttir,
ráðsmaður Eiríkur Brynjólfsson og
vélavörður og bifreiðarstjóri Bjarni
Pálsson. Þá eru og' ráðnir 3 hjúkrUnar-
nemar og þjónustustúlkur eftir þörfum.
— Himi 27. f. m. fór rannsókn-
ardómarinn, með nokkra menn
með sér, út í Hnífsdal og tók þá
Hálfdán Hálfdánarson og Eggert
Halldórssoni fasta og flutti þá til
ísafjarðar í varðhald, Eggert þó á
sjúkrahús.
Eftir síðustu símfregnum að
dæma er hreppstjórinn í Bolung-
arvík flæktur inn í málið og horf-
ir þar einnig til uppreisnar frá
hálfu þorpsbúa gegn rannsóknar-
dómaranuim. Fer málið því að
verða all umfangsmikið. — f gær
var þeim Hálfdáni og Eggert
slept úr gæzluvarðhaldi gegn
tryggingu, var sagt í símtali frá
ísafirði.
--------o------
Metúsalem Stefánsson búnaðarmála-
stjóri hefir verið skipaður annar gæzlu-
stjóri Ræktunarsj óðsins í stað Gunnars
Viðar hagfræðings, er frá gekk sam-
kvæmt hlutkesti.
Sli/s. Maður að nafni Jón Bergsson
frá Dufþekju í Hvolhreppi, varð ný-
skeð undir bifreið á Fríkirkjuvegi í
Reykjavík. Var hann þegar í stað flutt-
ur á sjúkrahús, og andaðist þar nóttina
eftir slysið. — Líkið var krufið og kom
þá í ljós að maðurinn hafði dáið af
blæðingum frá beinbrotum, einkum
mjaðmarbroti.
Sighvatur Bjamason fyrv. banka-
stjóri varð 27. f. m. fyrir manni á
Fóðurmjöl
handa mjólkurkúm innihaldandi:
40 hluti Bómullarfrækökur.
15 — Solsikkakökur.
10 — Jarðhnetukökur.
12 — Soyaskrokökur.
12 — Kokoskökur.
5 — Rapskökur.
8 — Pálmakökur.
Petta fóðurmjöl panta eg fyrir
þá sem óska þess, mót greiðslu
um leið og það kemur hingað,
nokkra sekki fyrirliggjandi, á 70
kg. verð 23.50. 1000 kg. af góð-
ri töðu vil eg kaupa komið á
Hafnarbryggju hér.
Akureyri u. Nóvember 1927.
A. Schiöth.
reiðhjóli í Bankastræti í Reykjavík, og
slengdist á götuna. Féll hann þegar í ó-
megin, en fékk rænu aftur skömmu eft-
ir að búið var að flytja hann heim til
sína. Hann hafði meiðst á höfði og mar-
ist á mjöðm og víðar. Liggur hann enn
með miklum hita þungt haldinn eftir
meiðslin.
Maðurinn, sem var á hjólinu, hrökk
af því, en sakaði ekki. Hafði hann
runnið aftan á Sighvat á flugferð.
Gegnir furðu hversu ógætilega er farið
með farartæki á götum bæjanna.
Jón Sigurðsson bóndi í Yzta-Felli er
á fyrirlestraferð í Eyjafjarðarsýslu, um
þessar mundir, á vegum héraðssam-
bands Ungmennafélaganna hér í sýslu.
Flytur hann erindi um þjóðemisvernd
og menningarhlutverk ungmennafélag-
anna.
Jón Ingimundarson bóndi á Brekku £
Núpasveit lézt 4. þ. m. úr krabbameini.
Hafði hann legið rúmfastur síðastl.
sumar. Jón sál. var rúml. 60 ára; hafði
hann búið lengi á Brekku og verið
hraustmenni mikið.
Sigurjón Friðjónsson á Laugum flyt-
ur erindi og les upp í Samkomuhúsinu
á Laugardaginn kemur, kl. 8(4 s. d. —
Aðgöngumiðar verða seldir á 1 krónu.
Frú Lizzie Willia/msdóttir á Hall-
dórsstöðum í Laxárdal kom til bæjar-
ins með »Goðafossi« síðast. Hún hefir
ákveðið að halda söngskemtun í Þing-
húsi önguls^taðahrepps á Þverá n. k.
Laugardag, 12. þ. m., kl. 8 s. d., og aðra
í samkomuhúsinu í Hrafnagilshreppi á
Sunnudagskveldið þ. 13. á sama tíma.
Frú Lizzie er svo alkunn fyrir sína á-
gætu og hljómþýðu söngrödd, að búast
má við mikilli aðsókn, að samkomum
þessum.
Á eftir söngnum verður dansskemtun
á báðum stöðum.
í siðasta bl. hafði fallið úr símfrétt,
að kaupverðið á Bessast. er 120 þús. kr.