Dagur - 17.11.1927, Síða 3
47. tbl.
DAGUB
183
/@1
■§)
/©)
(@5
(©i
/é)
/@5
A/'ö RYEL
hættir laugardaginn þann 19. þ. m.
|jj Notið tækifærið meðan gefst.
f BALDUIN RYBL.
/®)
/@)
(@/
(@/
/§)
/@)
/©!
í§)
(@/
(©
@1
Singers-saumavélar
taka öðrum fram. Fást hjá
Sigmundi Sigurðssyni.
Myndastofan
Gránufélagsgötu 21 er opin alla daga
frá kh 10-6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
Heilbrigt, bjart hörund
er eftirsóknarverðara
en fríðleikurinn einn.
Menn geta fengið fallegan litarhátt
og bjart hörund án kO:tnaðarsamra
fegrunar-ráðstafana. Til þess þarf ekki
annað en daglega umönnun og svo
að nota hina dásamlega mýkjandi og
hreinsandi
TATOL-HANDSÁPU,
sem er búin til eftir forskrift Heder-
ströms læknis. í henni eru eingöngu
mjög vandaðar olíur, svo að í raun
3 og veru er sápan alveg fyrirtaks ^
hörundsmeðal.
Margar handsápur eru búnar til úr
lélegum fituefnum, og vísindalegt
eftirlit með tilbúningnum er ekki
nægilegt. Þær geta verið hörundinu r
skaðlegar, gert svitaholurnar stærri
og hörundið grófgert og ljótt. —
Forðist slíkar sápur
og notið aðeins
TATOL-HANDSAPU.
Hin feita flauelsmjúka froða sáp-
unnar gerir hörund yðar gljúpara,
skærara og heilsulegra, ef þér notið
hana viku eftir viku.
TATOL-HANDSÁPA
fæst hvarvetna á íslandi.
gasr Verð kr. 0.75 stk. “m
Heildsölubirgðir hjá
I. Brynjólfsson
&
Kvaran
Akureuri.
Samvinnuskólinn. Jónas Jónsson ráðherra
hefir látið af stjórn skólans, en við hefir
tekið Þorkell Jóhannesson frá Syðra-Fjalli
i Plngeyjarsýslu.
Nýtt!
Sœngurveraefni rósótt, góð og
ódýr.
Hv. Ullarpeysur-.
Misl. drg. peysur frá kr. 2.25.
Karlmannanœrföt frá 5.50 settið.
Vetrarvetlingar á fullorðna og
börn, góðir og ódýrir.
Barnasokkar frá kr. 0.90
Kvensokkar — — 0.85
Karlm.sokkar — — 0.65
og m. m. fl. nýkomið í
Brauns Verzlun,
Pdll Sigurgeirsson.
F r é 11 i r.
Atvinnumdlaráðherra hefir ákveðið að
fresta, fram á næsta þing, að skipa dýra-
læknl í embætti það í Reykjavík er losn-
aði við fráfall Magnúsar Einarssonar. Nú
er það tilætlun ráðherrans, að í sambandi
við dýralæknisembættið verði komið á fót
stofnun, sem taki þetta mikla vandamá!
þjóðarinnar — rannsókn alidýrasjúkdóma
hér d landi — til athugunar og úrlausnar.
Sildarbrœðslusmiðja. Menn minnast þess
að stjórnarráðið fól Jóni Porlákssyni verkfr.
að . gera áætlun um hvað kosta mundi
síldarbræðslusmiðja, sem gœti brætt alt
að 2000 mál síldar á dag. — Nú hefir
stjórninni borist ákveðið tilboð á nýbygðri
verksmiðju. Verður hvorttveggja Iagt fyrir
næsta þing, umgetið tilboð og áætlun
Jóns Porlákssonar.
Ríkisstjórnin hefir skipað 2 menn til
að rannsaka og telja vínbyrgðir þær, sem
upptækar hafa verið gerðar og geymdar
eru í hegningarhúsinu. Eru það Felix Quð-
mundsson og Pétur Zóphóníasson sem
rannsóknina framkvæma. Þeir eiga enn-
fremur að ráðstafa víninu til sölu úr
landi eða í millilandaskip. Elstu birgðirnar
voru að sögn 10—15 ára gamlar og hafa
aldrei verið rannsakaðar fyr.
Norskt flutningaslcip fórst fyrir ut-
an Langanes aðfaranótt 6. þ. m. Var
það á leið héðan til Noregs með
bræðslusíld, er þeir áttu Guðm. Péturs-
son, Anton Jónsson og Sig. Bjarnason.
Brotnaði skilrúm í skipinu, sem olli því
að farmurinn féll meira út í aðra hlið-
ina og flatti skipið. Enskur togari var
nær staddur og náði skipshöfninni lif-
andi, nema 2. maskínumeistara. Hann
Hafið þér
skoðað karlmannafötin sem eru nýkomin i
Brauns Verzlun?
Páll Sigurgeirsson.
I
ÍSLENSKI KAFFIBÆTIRINN
„FÁLKINN .
Öll aðalbiöð landsins hvetja menn til að nota hann. —
Kaffibætirinn »FÁLKÍNNi er fyrsta fiokks íslensk iðnaðarvara, og
þér munið sannfærast um, að hann er Ijúffengastur og ódýrastur.
Hérmeð er alvarlega skorað á þá, sem hafa
STÁLF0T að láni frá LANDS-
VERZLUN, að skila þeim fyrir 30.
þ. m.
Akureyri 12. Nóv. 1927.
Dtbú Landsverzlunar.
var látinn er hann náðist. Flutti tog'ar-
inn skipbrotsmennina og líkið til Seyð-
isfjarðar. Skipið hét »Jarstein«. Flak-
ið af því hefir rekið upp undir land við
Gunnólfsvík.
»Rjeltur«, 2. hefti 12. árg., er ný-
komið út. 1 því eru margar merkar rit-
gerðir og skemtilega skrifaðar; má t. d.
nefna grein um »Ánauð nútímans« eftir
ritstjórann; »Frá óbygðum« með mynd-
um) eftir Pálma Hannesson; »Heim-
speki eymdarinnar« eftir Þórberg Þórð-
arson, er það bréf til varaforseta guð-
spekinga, Jinarajadasa, sem kom hing-
að til lands síðastliðið sumar. Bréfið er
fjölbreytt, rökfast og skemtilega skrif-
að; ritgerð um »Sacco og Vanzetti« eft-
ir Georg Branting, sem Steinþór Guðm.
hefir þýtt, snertandi lýsing; »Öreiga-
list« (grein um Anton Hansen teikni-
málara, með myndum) og »10 ára verk-
Iýðsvöld« hvortveggja eftir ritstj. Enn-
fremur er í heftinu skáldsaga eftir
Davíð Stefánsson: »Barrabas«; fram-
hald af grein Br. Bj.: »Kommúnisminn
og bændur«; »Víðsjá«; yfirlit um
heimsviðburði; »Ritsjá« o. fl. — Heftið
er 9 arkir lesmáls og fjölbreytt að efni.
Árgangurinn af Rétti (15 arkir) kostar
4 krónur fyrir áskrifendur.
»Brúarfoss« kom frá Reykjavík vest-
an um land 8. þ. m. og fór aftur að
kveldi þess 9. austur um til útlanda.
Skipið tók á Hvammstanga 3500 kinda-
kroppa, frosna, og hér á Akureyri
sömuleiðis 3500 skrokka; á Reyðarfirði
á það að taka 2000. Fara þá alls ca.
9000 skrokkar af frosnu keti með þess-
ari ferð, og mun það vera hið síðasta,
sem flutt verður út af því á þessu
hausti. Er vonandi að vel farnist um
sölu á því eins og fyrri farminum og að
markaðurinn reynist öruggur, því að þá
er gefið að þessi útflutningur marg-
faldast á næstu ái-um.
1 haust hafa verið fluttir út samtals
ca. 29 þús. skrokkar af frosnu og kældu
keti. Eru líkur til að misjafnlega reyn-
ist með kælda ketið, þar sem ekki er
hægt að hafa það í kælihúsi áður en því
er skipað út. Ætti því að leggja áherzlu
á, að vanda sem bezt umbúnað ketsins,
meðan verið er að vinna markaðinn.
í símfregnum var getið um að Italskt
farþegaskip, með 1200 farþega, fórst
við Brazilíustrendur 25. f. m. og þá tal-
ið að farist hefðu 34 menn. Nú hafa
eigendur skipsins viðurkent að farist
hafi 314 manns.
Mannalát: Aðfaranótt 14. þ. m. lézt
hér í bænum Brynjólfur Ámason lög-
fræðingur eftir langvarandi nírnasjúk-
dóm. — Kristján Kristjánsson, héraðs-
læknir á Seyðisfirði andaðist þar að-
faranótt 6. þ. m. eftir langstæð veikindi.
tlann var fæddur 16. Sept. 1870. Út-
skrifaður úr Reykjavíkurskóla 1890 og
frá Hafnarháskóla 1897. Það sama ár
varð hann læknir á Seyðisfirði og ávalt
síðan til dauðadags. Kristján læknir var
söngmaður góður og tónskáld. Kristján
var ættaður úr Mývatnssveit, sonur
Kristjáns frá Álftagerði, Jónssonar frá
Reykjahlíð.
Dýrtíðamppbót embættismanna er
lækkuð úr 44% í 40%. Nemur lækkun-
in 80 þús. kr. á útgjöldum ríkissjóðs.
Bjami Ásgeirsson alþm. fór utan ný-
lega af hálfu Búnfél. Isl., til að kynna
sér möguleika fyrir verzlun með tilbú-
inn áburð, á líkum grundvelli og Tr.
Þórh. hefir lagt til á undanfömum þing-
um. Þýzkar og norskar köfnunarefnis-
verksm. eru í þann veginn að mynda
hring um þá framleiðsu.