Dagur - 22.12.1927, Page 1
DAGUR
kamur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júlL
Irmheimtuna annast Jónai
Sveinason bóksali, Eyrar-
landsveg 3 (Sigurhsöðir),
A f g r e i ðs lan
•r hjá J6m Þ. Mr,
Norðurgötu S. Talalad 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanna fyrir 1. das.
X. ár.
Akureyri, 22. Desember 1927.
53. tbl.
Hffflfflfii
•m
VEGNA VÖRUKÖNNUNAR
og reikningsskila verður sölubúð okkar á Akureyri lokuð
1.—22. Janúar 1928, að báðum dögum meðtöldum.
Á sama tíma verða engir peningar látnir úti úr reikn-
ingum eða Innlánsdeild. — Aðvarast því viðskiftamenn
okkar, sem innstæður eiga og peninga þurfa að nota á
þessum tíma, að hafa tekið þá fyrir 31. Des. n. k.
Kaupfélag Eyfirdinga.
Íiiiiliiililiftliiilllli®
Iðnskólar.
Vélgengi og stóriðja draga stöð-
ugt reipið úr greipum heimilisiðju
og liandverksmanna. Með hverjum
degi týna þeir tölu, sem smáiðju reka
at eigin ramleik, en þorri þeirra
verður að ganga á hönd stóriðju-
höldunum og hverfa í múg þann, er
þjónar og þrælkar í verksmiðjuver-
unum. Þungir straumar hverfa nú í
þetta horf, og mun að svo komnu
lítii von þess, að ráða megi straum-
hvörfum.
Þó kemur flestum uppalendum og
sálarfræðingum saman um, að mik-
illar varúðar þurfi að gæta, svo
þroski og siðferði verkalýðsins bíði
ekki af þessum sökum hnekki mikla.
Verkalýður erlendra stórbæja er
ömurlegt dæmi þess, hve ill áhrif
vélamenningin getur haft á mann-
sálir: Margt er þar mannbrota og
mannhraka. Einhæf og fábreytt
störf skapa einhæfar og þröngar
sálir; flestum er varnað útsýnis; ýms
frumleg og sterk einstaklingsein-
kenni hverfa og afmást; vélavinnan
breytir mönnum, sem búnir eru öll-
um möguleikum til þroska og frels-
is, í stritandi, andlaus verkfæri. Sé
nokkurt víxlspor stigið — ef þeir t.
d. missa atvinnu sína, sem oft skeð-
ur — þá er þeim tæpast unt að fitja
upp á nýju: Vélarnar hafa heimskað
þá; þeiin er synjað allra bjargráða.
Nú á tímum soga stórbæirnir
þúsundir tápmikilla, frjálsra og
dugandi æskumanna úr sveitum
niður í svelg sinn; lífi þeirra og
þroska tekur þegar að hraka:
Reynslan sannar að niðjar þeirra í
3. og 4. lið eru oftast nær orðnir
að mannabrotum, grómi og sora á
botni inannféiagsins.
Öllum mannvinum er þetta hið
mesta áhyggjuefni, vilja þeir hefjast
handa, en verður flestuin ráðafátt.
Vér íslendingar erum að ýmsu ut-
anveltumenn. En fátækt vor og fjar-
lægð frá öðrum þjóðlöndum hefir
enn haldið vágesti þessum frá bæj-
ar dyrum vorum.
En — nú er svo komið, að vél-
gengi og stóriðja halda innreið sína
í landið. Mætti það sem flestum að
gagni koma! Munu þær og mörgum
aufúsugestir.
En vér verðum þegar að búa svo
um hnútana, að þær skilji förunaut
sinn, skrílinn, eftir fyrir handan haf.
Flestum mannfræðingum kemur
saman um, að hnekkja mætti vexti
og viðgangi sálnadrepsins, ef unt
væri að veita öllum verkalýð stór-
bæjanna fræðslu og aðgang að góð-
um skólum,
Á Islandi er fátt um skríl — a. m.
k. hefir enginn skríll skapast hér af
völduin stóriðju. Flestir iðnaðar-
menn vorir eru þjóðinni til gagns
og sóma. En íslenzkur iðnaður er
ennþá reifabarn, og á, að ætla má,
vöxt og viðgang fyrir höndum — á
eftir að móta og skapa marga. Tæk-
ist þá giftusamlega, ef engin manna-
lnot eða andlegir kryplingar fynd-
ust í hópi íslenzkra iðnaðarmanna á
komandi árum. Ýmsir ágætir menn
hafa komið auga á hættu þá, sem
auknum iðnaði fylgir og ógnar oss
nú, og hafa þegar hafist handa til
bjargráða: Þeir vilja menta iðn-
nema og veita þeim útsýn; þeir vilja
þroska manninn jafnhliða iðnaðar-
manninum. Þeir vita að fræddur og
þroskaður maður muni aldrei verða
svo þægur ljár í þúfu fyrir stóriðju-
hölda og pólitíska sálnabraskara,
eins og einhæfur, þröngsýnn og ó-
mentaður iðnaðarmaður, sem ekkert
þekkir, nema iðn sína eina.
Menn þessir hafa með ærnu erfiði
reist iðnskóla, er veita skulu iðn-
nemum almenna mentun og einnig
reynt að kippa iðnaðarlöggjög þjóð-
arinnar í heillavænlegra horf.
Reykvíkingar hafa fyrir alllöngu
reist iðnskóla þar; hefir hann starfað
í mörg ár, og oftast nær með ágæt-
um árangri. Mun óhætt að fullyrða,
að reykvískir iðnaðannenn eigi
skóla þessum mikið að þakka, hve
vel þeir standa nú að vígi í sam-
kcpni við aðra iðnaðarmenn ís-
lenzka.
Margur dugandi iðnaðarmaður —
sem ekki hefir hlotið neina almenna
mentun — mun, er hann vill hefja
sókn sína í lífinu, finna sárt til þess
hve framkvæmdum hans er mjög
takmörk sett, ef t. d. undirstöðuat-
riði i reikningi, bókfærslu og tungu-
málum eru honum ókunn eða þoku-
kend: Öll erlend viðskiftasambönd
eru honum lokuð; hann getur ekki
veitt forstöðu neinu umfangsmiklu
iðnfyrirtæki, ef reikningsfærsla öll
er honum sem hebreska væri. Hann
getur naumast skrifað bréf til við-
skiftamanna eða vina, án þess að
eiga sífelt á hættu, að orð hans
verði misskilin eða hlægileg.
Norðlendingar hafa jafnan verið
taldir stórlátir menn og kappsfullir.
En lítið legst fyrir stærilæti þeirra
og metnað, ef þeir una því lengur,
að iðnaðarmenn þeir, sem upp vaxa
á Akureyri, séu eftirbátar stall-
bræðra þeirra sunnlenzkra í al-
mennri færni, og standi sökum þess
höllum fæti í samkepni við þá.
Iðnaður á Akureyri mun eiga
mikla framtíð fyrir höndum: Þegar
vegir opnast í nágrannasýslurnar á
báða bóga, stendur enginn norð-
lenzkur bær betur að vígi um við-
skifti og markað. Veltur því eigi á
litlu fyrir bæ, fjórðung og þjóð alla,
að iðnaðarstétt Akureyrar megi
verða sem bezt að sér gjör um alla
hluti. Mættu þessir aðiljar allir því
nokkuð á sig leggja, meir en nú er
orðið, til þess að svo mætti verða.
Málið er þegar reifað, en á þó
langt í land: Fyrir atfylgi nokkurra
góðra drengja og víðsýnna eiga Ak-
ureyrarbúar vísi til iðnskóla. En
skólahald alt á erfitt uppdráttar. Er
skólanum margt til miska. þarf in. a.
að vinda bráðan bug að því að bæta
fjárhag hans. En verstur Þrándur í
Götu hans er þó tómíæti og andúð
sumra iðnaðarmanna. Fylgja þeir
skólanum hálfir sumir, en nokkrir
ekki. Er það illa farið, að þeir hafa
ekki réttari skilning á tilgangi hans
og stefnu en það, að þeir telja hann
hégómamál og hafa hann að ásteyt-
ingarsteini. En þeir gætu þó haft
hann að bakþúfu, er þeir vilja stíga
á hærri hest og halda' til jafns við
sunnlendinga í menningarinálum.
Jóhann Frimann.
-----o-----
Símskeyti.
Reykjavík 21. Des.
ítölsk blöð eru nú hógværari í
garð Frakka, búist er við að sam-
komulagstilraun verði gerð af Bret-
um, og að samkomulagsgrundvöllur
verði sá, að ítalir hætti allri árásar-
pólitík á Balkanskaga, en fái Sýr-
land.
Shanghai: Þjóðernissinnar hafa
slitið sambandi við Rússland, vísað
fulltrúum Rússa úr landi, lokað
rússneskum verzlunarskrifstofum,
vegna þess að Rússar hafi verið
upphafsmenn Cantonuppreistarinn-
ar. Sinoviev* hefir sent stjórn þjóð-
ernissinna nótu, neitar hann þver-
lega ákærunni um Cantonuppreist-
ina. Nokkrir Rússar hafa verið líf-
látnir þar á meðal varakonsúllinn.
London: Neðri málstofan hefir
felt tillögur kirkjuþingsins um nýja
kirkjusiðabók, er átti að fullnægja
ýmsum kröfum ensk-kaþólsku stefn-
unnar. Búist við að sá úrskurður
flýti fyrir aðskilnaði ríkis og kirkju
í Englandi.
Montreas: Barnahæli brunnið, 37
börn brunnu inni.
Helsingfors: Sunila hefir myndað
bændastjórn.
Boston: Amerískur kafbátur hefir
sokkið eftir árekstur, 36 menn hafa
sennilega farist.
óvenjumikil frost víða í Evrópu;
stórhríðarveður í Suður-ítalíu og
margir inenn frosið í hel í Frakk-
landi. Þverár sem falla í Rín, eru
lagðar ísi; í Noregi er víða 42 stiga
frost.
Kénworthy hefir gert fyrirspurn í
enska þinginu um sektir hinna
þiiggja togara frá Hull, sem teknir
voru nýskeð við Norðurland; hvort
stjórnin ætlaði að gera tilraun til að
fá sektirnar niður færðar, eða mót-
mæla sektunum að öðrum kosti.
Chamberlain svaraði því að skip-
stjórarnir hefðu kannast við brot
sín; annars gæti hann ekki svarað
spurningunni nánar fyrri en hann
hefði kynt sér málsskjölin.
* Mun vera misheimi hjá Fréttastof-
unni fyrir Litvinow.
------O---;—
Annað blað kemur út.af *Degi á
niorgunn.