Dagur - 22.12.1927, Síða 2
206
DAGUR
53. tbl.
Falleg bók.
STEFANÍA MELSTEÐ.% Æfi-
minning og bréf með sjö ljós-
prentuðum myndum. Bogi Th.
Melsteð setti saman og gaf út.
Séra Þórður Tómasson hefir
ritað einstaklega fallegan 'ritdóm
'Um bók þessa í tímarit það, sem
hann gefur út, »Dansk-islansk
Kirkesag«. Hann segir þar, að
Stefanía Melsteð geti enn eflaust
orðið afarmörgum til blessunar,
þeim sem lesi þessa fögru bók.
Hún var óvenjulega gáfuð og góð
stúlka, og öllum til gleði, sem
kyntust henni. Hún var glaðlynd
og skemtileg, þótt hún ætti við
langvinn og þung veikindi að
berjast, enda var trú hennar óbif-
andi.
Margir, sem hafa lesið bók
þessa, telja hana einhverja hina
fegurstu æfiminningu, sem út hef-
ir komið á íslenzku. Mun óhætt að
fullyrða, að aldrei hefir neinni
ungri íslenzkri stúlku verið lýst
eins vel og rækilega, eins og Ste-
faníu Melsteð er lýst í bók þessari.
Höfúndurinn tilfærir margt úr
bréfum hennar, og þau lýsa í raun
réttri bezt hver hún var.
Bókin fæst hér á Akureyri hjá
þeim Bjarna Jónssyni banka-
stjóra og Þorsteini M. Jónssyni
bóksala. Allur ytri frágangur bók-
arinnar er hinn vandaðasti. Alt
það, sem kemur inn fyrir hana,
gengur ’til að prýða leiði Stefaníu.
* *
------0-------
Ritfregnir.
B ARNABOKASAFNIÐ.
1. flokkur, 5. og 7.
bók 1927.
Æfintýri með mynd-
um.
Bókaverzlun Þórsteins M.| Jónssonar á
Akureyri gefur þetta safn út. I 5. bók, er
sagan af .BOROINNI fyrir austan tungl og
sunnan sól;« í 6. bók er sagan af »KISU
KÓNGSDÓTTURc en í 7. bók er saga
»STJÖRNUSPEKINOSINS.« Baekur þær,
sem áður hafa komið út í þessu safni
hafa náð miklum vinsældum og eru meðal
beztu barna- og unglingabóka, semgefnar
hafa verið út hér á iandi. Á æfintýrum
þessum er skemtilegur frásagnarstíli —
einkum í 5. bók — og málið gott. Mynd-
irnar og ytri frágangur bókanna er í góðu
lagi. — Barnabækur þessar fást hjá öllum
bóksölum í landinu.
„Eg lofa" . . < .! er nýútkomin
skátasaga eftir Vilh. Bjerregaard. Pýtt hefir
Eiríkur J. Eiriksson, 16 ára gamall piltur
á Eyrarbakka. Kostnaðarmaður er Aðal-
steinn Sigmundsson skólastjóri. Sagan
gerist á upphafstímum skátahreyfingarinnar
f Danmörku. Hún er fjörlega rituð og
siðbætandi fyrir unglinga. Sagan er 156
bls. á stærð og prýdd myndum. Pýðingin
ér vel og liðlega af hendi leyst. Útgefand-
inn er einn af fyrystumönnum skátahreyf-
ingarinnar hér á landi og formaður í
félaginu »Birkibeinar« á Eyrarbakka. Verk-
efni þessarar hreyfingar er að kenna
börnum og unglingum að nota frístundir
sínar sér til likams- og sálarþroska. Reglan
heldur uppi skipulegum félagsskap unglínga
með ákveðnum æfingum. Börnum og
unglingum er innrætt, með starfi og reynslu,
ýmiskonar dygðir: sannsögli, orðheldni,
trygð, háttprýði í orðum og verkum,
hjýðni, glaðværð, hjálpsemi, drengileg
framkoma, sparsemi, dýravinátta og félags-
lund. Er mikil þörf þessa félagsskapar,
einkum í bæjum og sjávarþorpum, þar
sem börnin eru þvi nær eftirlitslaus.
Pessvegna ætti að styðja þessa hreyfingu
og greiða götu hennar sem mest. Ættu
sem ftestir foreldrar og unglingar að kynna
sér hana, á þann hátt, að kaupa og lesa
áðurnefndu skátasögu; enda er það aðal
tilgangurinn með útgáfu bókarinnar.
Góðir Islendingar.
Sú króna sem greidd er út úr
landinu er kvödd i siðasta sinn,
segja merkir menn.
Finst ykkur þá ekki réttara að
kaupa innlenda viru en útlenda, ef
sú íslenska er fyllilega eins góð eða
betri.
Svarið verður »jú« hjá öllum
góðum íslendinguin.
Biðjið £ví um íslenska kaffibæt-
irinn FÁLKANN, þar sem þér versl-
ið, og þá munið þið verða ánægð
með bragðið á Jólakaffinu, auk þess
sem þér styðjið íslenskan iðnað.
Brjóstnæla úr gulli
tapaðist á veginum frá Rverá fil
Akureyrar. Skilist til Arna Jóhanns-
sonar í Kaupfélagi Eyfirðinga gegn
fundarlaunum.
SKYRSLA
Oagnfræöaskólans á Akureyri
1926-27.
í þremur bekkjum skólans voru rúmlega
120 nemendur. Oagnfræðapróf tóku 44
nemendur og 2 utanskóla. Kennaraskifti
urðu við skólann í byrjun skólaársins,
Quðmundur Bárðarson, náttúrufræðiskenn-
ari, fluttist að Mentaskólanum, en við
starfi hans hér tók Pálmi Hannesson, sem
lokið hafði náttúrufræðisprófi við Khatnar-
háskóla vorið 1926. — Allur heimavistar-
kostnaður nemenda varð 500 kr. á mann,
eða kringum 2 kr. á dag.
Skuldbindingargjöld brottfarinna nem-
enda, greidd á árinu, voru kr. 471.50.
Nemendasjóðurinn hafði vaxið.á árinu nm
nærri 900 kr.; er gaman að lesa nafna-
skrá eldri nemenda og athuga trygð þeirra
við sjóðinn og skólann. Á 50 ára afmceli
skólans œttu allir nemendur hans, sem
þá lifa, að minnast nemendasjóðsins með
framlögum. — Skólalífið var fjölbreytt Og
fjörugt og voru fluttir allmargir fyrirlestr-
ar af ýmsum gestum og svo kennurum
skólans.
Merkasti kaflinn í þessu ársriti er þó
gkýrslan um framhaldsnámið; er skýrt frá
tildrögum þess, skólaárið 1923—24, að
ýmsir álitlegir þriðjabekkjar-nemendur það
ár vildu halda áfratn námi, að loknu gagn-
fræðaprófi, en skorti fé til suðurfarar. Réð-
ust kennararnir þá í að hefja kenslu í
námsgreinum lærdómsdeildar. Pá kom
Einar Olgeirsson heim frá námi í Pýzka-
landi, við Berlínarháskóla, og réðist til
þessarar kenslu. Fylgismenn norðlenzka
mentaskólamálsins á Alþingi, og þó ein-
kum Jónas Jónsson, núverandi kenslumála-
ráðherra, hvöttu fastlega til þessarar kenslu.
— Af framhaldsnemendum skólans
tóku 6 stúdentspróf i Mentaskólanum í
Reykjavík. Stóðust þeirprófið með heiðri,
Stúdentaefnunum var haldið fjölment
kveðjugildi kveldið áður en þeir fóru suð-
ur; voru fluttar þar margar ræður. Birtist
í skýrslunni kafli úr ræðu skólameistara,
sem er kveðja og heilræði til stúdenta-
efnanna. — Oetur hann þess þar, meðal
annars; »að þrír prófessorar háskólans
hafi, að því er ráða má af »Morg.bl.« 25.
mars, lagt eindregið á móti, að leyft værí
að útskrifa stúdenta hér í skóla, með því
að »engin trygging væri fyrir«, að kensl-
an hér »væri fullnægjandi«. Petta ástúð-
Iega álit fær skólinn best goldið, ef hon-
um auðnast sfðar meir að senda háskólanum
stúdenta, er verða þessari æðstu menta-
stofnun vorri til hollustu og sæmdar,
hlynna þar að hófsemi og reglu góðri,
efla þar fagran anda og fríðan félagsskap*.
Kvaddi hann svo piitana með nokkrum
minnisverðum heilræðum úr kvæðinu
»Hólamannahögg«, og óskaði »að það
yrði aðal sem flestra Hólasveina hinna
nýju, að þeir sættist aldrei við ranglætið«.
— Við skólaslit flutti skólameistari erindi
um Sighvat skáld og bersöglisvísur
hans, sem eigi er birt að sinni. En skýrsl-
an endar á ávarpi til gagnfræðinga, sem
skólam. flutti í kveðjugildi þeirra.
..■"»» ■" ■
Frá Landsímanum.
Peir 'Sem ætla að senda heillaskeyti á jólunum, eru beðnir
að afhenda }3au á stöðina á þorláksmessudag, eða í síðasta lagi
fyrir hádegi á aðfangadag, svo hægt verði að koma þeim til
viðtakanda tímanlega á aðfangadagskvöld.
Stöðinni verður lokað kl. 5 e. h á aðfangadag og gamlársdag.
Akureyri 22. des. 1927.
Símastjórinn.
,Skandia‘-
motorar þurfa engin meðmæli. Oreiðsluskilmálar
áðgengilegir. Leitið upplýsinga hjá
Tómasi Björnssyni, Akureyri
(umboðsmanni verksmiðjunnar).
-• # • #-#-#-#■ #- •
T
Lindholms-Harmonium
er bezta Jólagj0fin.
Þau eru viðurkend um allan heim og nú síðustu ár hér á landi fyrir framúr-
skarandi smíði, tónfegurð og tónstyrk. Verða aftur fyrirliggjandi hér um miðjan
þ. m. og seld með ákjósanlegustu afborgunarskilmálum. Verðið þó 1 ægra en
frá öðrum I. flokks verksmiðjum, Spyrjið notendur hvernig þau Iíkf, og sérfróða
um gæði þeirra.
ÞORST. í>. THORLACIUS.
STRANDGÖTU 33.
#-# • #H
-# #-#-#•# • • #-# # •
Flosgarn
til sölu.
Porbjörg Stefánsdóttir.
Brekkugötu 3.
F j á r m a r k.
Sýlt, biti aftan hægra. Tvístýft fr.
biti aftan vinstra.
Ragnar Guðmundsson
Neðstalandi Öxnadal.
Þingmálafundir
verða haldnir í þinghúsi Hrafna-
gilshrepps, föstud. 30. des. n. k.
og í þinghúsi Glæsibæjarhrepps,
mánudaginn 2. jan. n. k.
Fundirnir byrja um hádegi.
Eyrarlandi 19. des. 1927.
Einar Árnason.
Ljómandi falleg
JÓLATRÉ
fást með niðursettu verði í
Verzlun Tuliniusar.
MUNDLO S-SAUMAVÉLAR
eru beztar.
Skautaskór
karla kren og barna,
góðir og ódýrir, fást í
Skóverzlun
Hvannbergsbrœðra
•••••••••••••••••••••%#•
:•••••:*•••••;:•••••:
•••••••••••••••••••••
•••
& Lakkskór &
• • • •
:\ fyrir karlmenn, sérstaklega :\
V: fallegir og vandaðir. V:
Nýkomnir í
sköverzlun •”•
••• •••
\7 Hvannbergsbrœðra.
• • • •
• • • •
••• •••
•••*••••••*••••••*•••%»•••• ••••••*••••••••••
Jörðin SKÓQAR
í Glæsibæjarhreppi er laus til ábúðar
á næsta vori. — Semja ber við
undirritaða fyrir 1. Febrúar n. k.
|Skógum 22. Desember 1927.
Svanfriður Bjarnadóttir.
Ritstjóri: Þórólfur Sigurðeson.
Prwatsjwðja Odd» BjörnaMum.