Dagur - 19.01.1928, Page 3
3. tbl.
DAGUR
11
B Æ N D U R.
Þið, sem hafið í huga að kaupa bíl í vor, ættuð sjálfs ykkar
vegna að bíða eftir hinum nýja F O R D. — Jeg fer til út-
landa í næsta mánuði og kem aftur í Apríl með f:>ann margum-
talaða nýja FORD til sýnis og sölu.
Kr. Kristjánsson.
Það liggur ekkert á
A Ð KLÆÐAST
því „R IN S 0“ sér um þvottinn.
»R I N S 0« vinnur algerlega sjálft, hvort heldur i köldu, heitu
eða sjóðandi vatni. Rað er bezta og ódýrasta sjálfvinnandi
þvottaefni, sem framleitt er í heiminum.
Reynið einn pakkaídag.
»R I N S 0« fæst alstaðar.
DAUÐI NATANS KETILSSONAR
hið merka leikrit frú ELINE HOFFMANN er komið út í
Bókaverzlun Þorsteins M. Jónssonar.
Kjartan ólafsson steinsmiður og
Sigurjón Ólafsson alþm.
Frá ísafirði: Félagar Samvinnu-
félags ísaf. eru nú orðnir á annað
hundrað.
Frá Washington: Bandaríkin ætla
að auka flota sinn geypilega svo að
hann verði langsamlega öflugasti
floti heimsins.
Frá London: Þar er nú háð iðn-
aðarráðstefna verkamanna og
vinnuveitenda
Nýjar olíulindir eru fundnar í
Mosul. Áætlað er, að þær muni
framleiða 3y2 miljón smálesta ár-
lega.
-------o--------
»Ge?/sir« söng síðastl. Sunnudag, fyr-
ir sjúklinga á Kristneshæli kl. 5 s. d.
Kristján Kristjánsson, eigandi B. S. A.,
keyrði fiokkinn fram eftir í 5 bílum
fyrir enga borgun; og gerði þannig
sjúklingunum kleyft að fá »Geysir«
fram eftir. — Um kvöldið söng flokk-
urinn í Samkomuhúsi bæjarins við góða
aðsókn.
Leikritið: »Dauði Natans Ketilsson-
ar«, er nýkomið út og er það auglýst á
öðrum stað í blaðinu.
Frú Helga Þór Kristinsdóttir, kona
Jónasar Þór verksmiðjustjóra andaðist
á sjúkrahúsinu 18. þ. m., Hún var ætt-
uð úr Eyjafirði og hin mesta myndar-
kona. Þau hjón eiga 4 ungböm og er
heimili þeirra mikill harmur kveðinn.
Jarðarförin er ákveðin Laugard. 28. þ.m.
-------0--------
Fyrir 100 árum.
Aðfararnótt 14. Mars 1828 gerðust
þeir atburðir vestur á Illugastöðum í
Húnavatnssýslu, að bóndinn þar Natan
Ketilsson, og maður sá er Pétur hét,
kallaður f járdráps-Pétur, voru báðir
myrtir. Var Pétur rotaður en Natan
stunginn hnífum til bana. Morðingjarn-
ir smurðu síðan líkin hvalfeiti og
kveiktu síðan í þeim og bænum. Þetta
ódáðaverk frömdu kona sú er Agnes
hét, vinnukona Natans og piltur, 18 ára
að aldri, er Friðrik hét. í vitoi'ði með
þoim var móðir Friðriks, Þorbjörg að
r.afni, ráðskona Natans, er Sigríður
hét, 16 ára gömul og vinnumaður Nat-
ans, er Daníel hét.
Þegar bærinn stóð í loga, fór Agnes
til næsta bæjar og sagði þau tíðindi, að
Illugastaðir væru að brenná, og að Nat-
an og Pétur væru báðir dauðir, taldi
hún að þetta hefði orsakast af meðala-
suðu Natans. Líkin fundust lítið bmnn-
in í öskunni; sáust á þeim verksum-
merki, að mennirnir hefðu verið myrt-
ir, og komst því hið sanna upp. Þetta
er síðasta morðið, sem framið hefir ver-
ið hér á landi, þar sem dauðadómi befir
verið framfylgt yfir morðingjunum. Af-
taka þeirra Friðriks og Ag-nesar fór
fram 12. Febrúar 1830.
Natan var að mörgu leyti morkilegur
maður. Hann var hæfileikamaður mik-
ill, skáldmæltur og læknir góöur, þótt
ólærður væri. En brellinn var hann í
ýmsum greinum og fjöllyndur í ásta-
málum, enda varð það honum að bana.
Skáld-Rósa var ein af konunr þeim, sem
hann lenti í ástabralli við, gáfuð kona
og glæsileg, en óheppin í lífiuu. Agnes
var einnig hæfileika kona, skáldmælt og
álitleg að sjá, en skaphörð og grimm-
lynd. Átti hún Natan grátt að gjalda.
Hann hafði tekið ástum hennae. en orð-
H—O—O—D
Gúmmístígvél
eru lang-sterkust allra tegunda,
sem hér eru fáanlegar.
Verð er sem hér segir:
Fyrir börn kr. 14.50-15.00 parið.
— unglinga kr 18.75 —
— karlmenn kr. 22.00 —
Glanssiígvél
barna kr. 8.75—9.75 parið,
unglinga kr. 12 50 —
kvenna kr 14.50—15.50 —
Hvergi eru slík vildarkjör,
nema hjá
HVANNBERGS-
B R Æ Ð R U M,
Skóverzlun.
Skóljlifar
með brúnum botnum, hinar
marg-eftirspurðu, fást nú í öll-
um stærðum fyrir börn og
unglinga. Kosta aðeins
kf\ 6.75—7.50
og fyrir karlmenn, parið
kr. 8.00-8.75.
Glansskóhlífar
ávalt fyrirliggjandi, handa fólki
á öllum aldri.
Beztu tegundir með lægsta verði.
j-Jvannbergs Bræður.
SKOVERZLUN.
ið henni síðar afhuga, og leitaðist þá
við að ná ástum Sigríðar, sem var heit-
kona Friðriks
Afbrýðisemi þeirra Friðriks og Agn-
e.sar kom þeim til að fremja morðið.
Friðrik er talinn að hafa verið gáfaður,
en ilia uppalinn. Karlmenni var hann
mikið. Hann iðraðist illvirkis síns af al-
hug' og tók dauða sínum með hugrekki.
Þorbjörg móðir hans hefir verið mis-
indiskona. Fjárdrápsmáls Pétur fékk
auknefni sitt vegna þess, að hann var
með Botnastaða-Jóni að drápi á fé Pét-
urs Skúlasonar, sem segir í þætti Eyj-
ólfs og' Péturs eftir Gísla Konráðsson.
Var hann gestkomandi á Illugastöðum,
þt'gar hann var drepinn. Daníel vinnu-
maður Natans var blendinn mjög. Sig-
ríður var efnileg stúlka og vel kynt,
enga nauðug í vitorði um morðin. Um
þdta má nánar lesa í sögu Natans eft-
ir Brynjúlf á Minna-Núpi og sögu Nat-
ans eftir Gísla Konráðsson, en sem þó
er að ýmsu hlutdræg og óábyggilegri en
sú fyrnefnda.
Dönsk skáldkona, Eline Hoffmann,
Iiefir skrifað leikrit um atburði þessa
og tildrög þeirra. Er skáldkonan alin
upp hér á landi; hún er gagnkunnug
landi og þjóð og hefir sjálf skoðað þá
sögustaði, þar sem atburðir þeir gerð-
ust, er leikritið ræðir um. Hefir hún
\
rannsakað málsskjöl og aðrar heimildir
er koma við sögu Natans. Nú er búið að
þýða leikritið á íslenzku og lpkið prent-
un þess. — Lýsir höf. fólki þvl, sem hér
að framan er getið um, og nokkrum
fleiri mönnum, er koma við sögu Nat-
ans, svo vel, að skilningur manna á
þeim hlýtur að vera gleggri en áður;
Nýkomnar bœkur:
Vitranir frá æðra heimi (eftir Shadu
Sundar Sing).
Tyrkjaránið í Vestmannaeyjum (eftir
Sigfús M. Johnsen).
Prestafélagsritið 1927.
Leikur lífsins (leikrit eftir Björgu
C. Porláksson).
Dropar (Ijóð og æfintýri eftir konur)
Porst. M. Jónsson.
íslenzkar Ijóðabækur.
kaupi eg til Febrúarloka. — Til viðtals kl.
11—12 árdegis og kl. 9—10 síðdegis.
Sigurhæðum, Akureyri.
Jónas Sveinsson.
og sögulegum sannindum breytir hún
hvergi.
Leikfélag Akureyrar, undir stjórn
Haraldar Björnssonar, hefir ráðist í að
sýna leikinn. Mun marga fýsa að sjá
leik þenna og fá að skygnast inn í sál-
arlíf þessa einkennilega fólks, sem þar
er leitt á sjónarsviðið. Leikurinn er að
vísu sorgarleikur, en þó fléttar höf.
mörg gamansöm atriði inn í hann.
Útbúnaður við leiksýningar er frem-
ur einfaldur og auðvelt að leika liann í
sveitum og smáþorpum, því að sýning-
arnar, 7 að tölu, fara allar fram í bað-
stofu og stofu, nema ein á hlaðý sem
eins má sýna í bæjardyrum eða
skemmu.
íslenzk leiklist er enn í bernsku.
lengst af hafa verið sýnd hér, nær ein-
göngu, útlend leikrit. Nú virðast vera
straumhvörf í þessu efni. Þetta er t. d.
annað íslenzka leikritið, er Leikfélag
Akureyrar sýnir á þessum vetri. Vel sé
öllum þeim, er hlynna að því, sem ís-
lenzkt er. Þeir eru landvarnarmennim-
ir, sem aftra því að útlend áhrif og bió-
menning ríði þjóðerni voru að fullu.
*
Ritstjóri: Þórólfur Sigurðsson.
Prentsmiðja Odds Bjömssonar.
Teikningar
af sveitabæjum, nýbýlum og sam-
stæðishúsum fyrir verkamenn geri
eg ókeypis fyrir þá, sem hugsa sér
að byggja á komandi sumri.
Til viðtals á Hótel Akureyri dag-
lega frá kl. 1—2 e. h.
Halldór Halldórsson,
byggingarfrœðingur.
TAKIÐ EFTIR.
Undirritaður hefir til sölu nokkra
tugi tunna af sykursaltaðri síld frá
síðastliðnu sumri, sem ekki fékk
matsvottorð til útflutnings. — Síldin
er ágæt til skepnufóðurs og þeir,
sem hafa af henni keypt og athugað,
segja síldina hæfa til manneldis. —
Síldin er í góðum 120 lítra tunn-
um, sem eru vel fullar. — Síldina
sel eg sem skepnufóðurssíld á 10
krónur tunnuna, með tré.
Akureyri 17. Janúar 1927.
Bjarni Einarsson,
Byggingarmeistari, Strandgötu 17.
T Ö Ð U “ 15-20 - hesta
vil eg kaupa.
PORST. M. JÓNSSON.
Músgrár hestur fjögra vetra,
mark: Sýlt hægra, biti fr.
v., er í óskilum í landi
Dagverðareyrar. Eigandi
tali við Kristján Sigurðsson, kennara
á Akureýri.
Hey.
Er beðinn að útvega 2 — 3 tonn
af vélbundnu úrvals hestaheyi, til
afhendinger hér í næstu viku.
Óskað eftir tilboðum.
Axel Kristjánsspn.