Dagur - 24.02.1928, Síða 3
8. tbl,
DA6UB
31
Frá Alþingi.
Ingvar Pálmason flytur frumvarp um
að aðstoðarlæknisembættin á ísafirði og
Akureyri verði lögð niður. Ingvar
Pálmason og Jón Bald. flytja frumvarp
um gjaldþrotaskifti, í þá átt að herða á
gjaldþrotalögunum, svo að svik eigi sér
síður stað. — Hákon Kristófersson
flytur frumvarp um sauðfjárbaðanir.
í Neðri-deild flytja 9 þingmenn þings-
ál.till. um ríkisforlag er hafi aðalbóka-
lítgáfu í landinu.
Har. G., Ásg. Ásg. og Gunnar flytja
þingsál.till. um rannsókn á stofnun rík-
isprentsmiðju.
Sigurjón Ólafss. flytur frumvarp um
að hlutafélög skuli skyld til að birta
reikninga sína. — Jón Bald. og Erl.
Friðj. flytja frumvarp um atvinnuleys-
i'stryggingar. — Erl. Fr. flytur 2
frumvörp um útflutningsgj ald af síld.
Samkv. öðru frv. á síldartollurinn að
lækka niður í 75 au. af tunnu; en sam-
kvæmt hinu á tollur á síldarlýsi og
fóðurmjöli að hækka svo að samsvari
75 aura tolli á tunnu af hráefni.
Nokkrir þingmenn flytja frumvarp
um Fiskiveiðasjóð fslands.
Jón Þorl. flytur þingsál.till. um hag-
skýrslur.
Héðinn Vald. flytur frumv. um að
ríkið taki einkasölu á tóbaki. Har.
Guðm. flytur þingsál.till. um að skora
á stjórnina, að hún noti heimildarlögin
frá 1917, til þess að láta ríkið taka
einkasölu á olíu. — ,
Jón Bald. flytur frumvarp um nýbýli.
í N.-d. er flutt þingsál.till. um að
skora á stjórnina að endurskoða fá-
tækralögin.
Meirihluti fjárhagsnefndar í Efri-
deild flytur frumvarp um breytingu á
landsbankalögunum fyrir beiðni lands-
stjórnarinnar. Helztu breytingamar eru
þær, að ríkissjóður á að bera ábyrgð á
öllum skuldbindingum bankans innan-
lands, en á nýjum erlendum lánum því
aðeins, að lagaheimild sé veitt til þess
í hvert sinn. Samkvæmt frumvarpinu á
sameinað Alþingi að kjósa 15 manna
Landsbankanefnd til 6 ára í senn með
hiutfallskosningu; þessi nefnd kýs svo
bankaráð, nema formann þess, sem er
skipaður af landstjórninni. Þessar
breytingar eru samkvæmt tillögum
milliþinganefndarinnar í bankamálinu;
en Efri-deild feldi þær úr frv. í fyrra.
Verður ennfremur numið úr Lands-
bankalögunum ýmislegt af því, sem B.
Kr. fleygaði inn í þau í fyrra; og fer
þá aftur fram kosning á bankaráðinu,
ef frumvarp þetta verður að lögum.
Síld.areinkasöluf'rumvarpið var sam-
þykt í Efri-deild og afgreitt til Neðri-
deildar.
Frumvarp um einkasölu á saltfislci
var mikið rætt við 1. umræðu í Neðri-d.
í gær og sent til nefndar og 2. umræðu.
Frv. um bygginga/r- og landnámssjóð
var samþykt til 3ju umræðu í Efri-d. í
gær, eftir nokkrar hnippingar milli
Jóns Þorl. og dómsmálaráðh. um ein-
stök atriði í því. B. Kr. greiddi atkvæði
á móti 5S milj. króna lántökuheimild
fyrir sjóðinn.
Tvö ný tekjufrumvörp eru fram kom-
in; annað frá stjórninni um 10% stimp-
ilgjald á farseðla með skipum. Skulu
þeir stimplaðir á afgreiðslum skipanna.
Farseðlar með strandferðaskipinu
»Esju« eru undanþegnir stimpilgjaldi
Jörðin Slétta í Fljótum
fæst til kaups eða ábúðar frá næstu fardögum. Ágæt heyskaparjörð.
Semja má við Hermann Jónsson, kaúpfélagsstjóra í Haganesvík
eða undirritaðann.
Böðvar Bjarkan.
• • •»«»»»>»»«»»«»»
þessu. Með þessu frumvarpi eru sér-
staklega skattlagðir farþegaflutningar
með skipum milli landa og í hraðferð-
um milli stærstu hafna hér við land.
En eins og kunnugt er hafa dönsku og
norsku eimskipafélögin borið hlutfalls-
lega miklu meira úr býtum í því efni
heldur en Eimskipafél. Islands.
Hitt frumvarpið flytur • Héðinn Valdi-
marsson, um 25% fuelckun á tekju- og
eignaskatti.
F’járveitinganefnd Neðri-d. hefir nú
lokið undirbúningi fjárlagafrumvarps-
ins og er verið að prenta nefndarálitið.
Nefndin hefir hækkað nokkuð bæði
tekju- og gjaldahliðar frv., þannig að
jafnvægi er á; en einstakar fjárbeiðnir
hefir hún mjög lítið tekið til greina.
Úrslit mála: í Neðri-deild hefir ver-
ið samþykt þingsál.till. um að endur-
skoða siglingalöfjgjöfina.
Æa/corafrumvarpið er orðið að lögum,
og frv. um friðun skóga, og kjarrs. Frv.
J. Bald. um rýmkun kosningarréttar í
málum sveita og kaupstaða var felt í
E.-d. með 7 : 5 atkv.
Frumv. um launabætwr til yfirsetu-
kvenna, sem flutt var af Halld. Steinssi
í Efri-deild og samþykt þar, féll við 1.
umræðu í Neðri-deild í gær með 12 : 12
atkvæðum.
-----o-----
Simskeyti.
Rvík 8. Febr.
Innfluttar vörur í Janúar námu
kr. 2.566.782,00; þar af til Rvík-
ur 1.485.394,00.
Berlín: Vatnsflóð eru víða í
Mið-Evrópu og valda töluverðum
skaða. Stjórnin í Þýzkalandi er
klofin vegna deilu um skólalögin.
Stjórnin reynir þó að fá fjárlögin
samþykt í þinginu, en ætlar svo
að rjúfa þing og er búist við nýj-
um þingkosningum í Maí n. k.
Rvík 19. Febr.
Wiashington: Fjórar miljónir
verkamanna eru atvinnulausir í
Bandaríkjunum.
Montreal: McGill-háskólinn til-
kynnir að örtel læknir hafi sami-
að að taugar finnist í krabba-
meinum. Krabbameinin eru því
ekki sjálfstæð cellumyndun eins
og áður var ætlað.
Oslo: Movinckel foringi vinstri-
manna hefir mjyndað stjórn í
Noregi. Ráðherrann telur aðaltil-
gang stjórnarinnar að efla fjár-
hag ríkisins.
-----Q-----
G j a 1 d s k r á
íyrir nokkur algengustu læknisstörf.
Þegar lík er krufið, skal þó ekkert
greiða sér í lagi fyrir slíka rannsókn.
Ef meira en 5 stundir ganga til starfs-
ins, skal greiða tvöfalt gjald.
17. Tilraun til að lífga mann úr dauða-
dái, kr. 2.00.
18. Fyrir rannsókn á matvöru, lyfj-
um, húsum, vatnsbólum og því um líku,
ásamt skýrslu um málið, kr. 3.00.
19. Að sjá um bað á sjúklingi, kr.
1.00.
20. Að svæfa sjúkling, kr. 3.00.
21. Nuddaðgerð, kr. 1.00.
22. Vatnslækningaaðgerð, kr, 1.00.
23. Rafmagnsaðgerð með jöfnum
(konstant) straumi, kr. 2.00.
24. Rafmagnsaðgerð með hvikuium
(induktion) straumi, kr. 1.00.
25. Dæling lyfja í holdið (auk lyfja-
verðsins), dæling í þvaggang eða
þarfagang, kr. 1.00.
■ 26. Þinill (bougie) settur inn eða
þvagleggur (katheter) eða þarfagangs-
leggur, með ídælingu eða án, og svip-
uð verk, kr. 1.00.
27. Settur inn magakanni eða kok-
legg'ur, kr. 1.00. Ef þrengsli eru í væl-
indinu eða skola þarf magann eða
rannsaka innihald hans eftir máltíð,
slial gjalda kr. 2.00.
28. Skylt er að leggja lækni til eða
gjalda honum fullu verði verkfæri og
umbúöir, er eig'i verða notuð nema
einu sinni, eða nauðsyn ber til af ein-
hverjum ástæðum að ónýtt séu, eða
sjúklingur heldur þeim til afnota fram-
vegis.
29. Ef þau verk, sem getur um í 22.
—27. lið, eru gerð margsinnis fyrir
sama sjúkling, þá er ekki fult gjaldið,
nema þrjú fyrstu skiftin, en hálft úr
því.
30. Blóðtaka, kr. 1.00.
B. Sérstök læknisverk:
Handlækningaaðgerðir.
31. Að skera í grunna ígerð eða víkka
sár kr. 1.00.
32. Að skera í djúpa ígerð kr. 5.00.
33. Sár skafið með beittum skefli, án
þess að skorið sé til kr. 1.00.
34. Að binda um lítið sár í fyrsta
sinn: a) án saums kr. 1.00, b) sárið
4 .
■saumað kr. 2.00.
35. Að sauma saman stórt sár og
binda um í fyrsta sinn kr. 5.00.
36. að 3%tja á meiri háttar fastar
umbúðir, eða teygingarumbúðir í hvert
sinn kr. 3.00.
37. Að binda fyrir meiriháttar æð,
citt um sig, eða gera við útæðai'hnút
(aneurisma) kr. 8.00.
38. Að skera sundur sin kr. 3.00.
39. Að sauma saman sin kr. 5.00.
40. Taug losuð, eða skorin sundur,
eða beygð, eða saumuð saman kr. 6.00.
41. Að ná út aðskotahlutum (corp-
aliena): a) úr opum líkamans, án
skurðar kr. 2.00, b) úr barkakýli eða
vælinda án skurðar kr. 4.00, c) úr
holdi með skurði kr. 1.00—5.00.
42. Að ná aðskotahlutum eða bein-
flísum úr skotsári kr. 3,00.
43. Að ná út vökva með ástungu: a)
úr vatnshaulvi (hydrocoele) kr. 2.00,
b) úr brjóstholi, kviðarholi, blöðru eða
eggjastokk kr. 3.00.
44. Tekin af lítil, auðveld æxli, eða
sullir, sem eru utan á líkamanum kr.
2.00.
45. Að taka af stór og erfið æxli eða
sulli, er vaxið ■ hafa utan á líkamanum
kr. 8.00.
46. Að setja legg í nefgang eyrans
(tuba Eustachii) og blása inn lofti eða
þrýsta inn vökva kr. 1.00. Ef alt er
gert, þá fult gjald þrjú fyrstu skiftin,
en hálft úr þvi.
47. Að stífla nefið kr. 1.00.
48. Að brenna innan nefið eða taka
Jörð til sölu.
Þeir, sem vilja fá sér góða
bújörð í vor, ættu að tala við
undirritaðann í Kristneshæli.
Sigurbjörn Pétursson,
frá þverá í Dalsmynni.
innan úr því með galvanbrennara kr.
3.00.
49. Smáaðgerðir á hljóðhimnu og
hljóðholu kr. 2.00.
50. Erfið aðgerð á miðeyranu, inn inn
hlustina kr. 6.00.
51. Að bora inn í klettbeinið (proc.
mastoideus) eða meitla kr. 7.00.
52. Að taka burt: a) tungukirtil kr.
2.00, b) beræxli (polyp) úr nefi eða
koki kr. 4.00, c) kirtilauka úr baki kr.
4.00.
53. Smáaðgerðir á barkakýlinu, lyf
sett inn í það o. þ. h. kr. 2.00.
54. Stórar aðgerðir innan í barka-
kýli, æxli tekin úr því kr. 15.00.
55. Að laga beinbrot og binda um: a)
einn eða fleiri fingur eða tær, brotið
andlitsbein eða viðbein eða herðablað,
eða rifj eitt eða fleiri; brotið bein í
mj aðmagrind, í úlflið, þar með talinn
úlfliðsendi geisíabeinsins (fractura
Collesii), eða ristarkrók, í handarbaki
eða rist kr. 2.00, b) upphandleggur,
framhandleggur, fótleggur kr. 3.00, c)
lærleggur, lærbeinsháls kr. 6.00, d) hné-
skel kr. 3.00, e) hnéskel saumuð sam-
an kr. 8.00.
<
56. Ef bein er brotið og standa brot-
in út úr húðinni, hækka gjöldin í 55.
lió um kr. 1.00—5.00.
57. Að taka af limi um liðamót, eða
millum þeirra:
a) lærleggur, upphandleggur kr.
10.00, b) fótleggur, framhandleggur kr.
8.00, c) fótur eða hönd kr. 6.00. d)
fingur eða tá eða einstakir kögglar kr.
2.00.
58. Að taka nögl af fingri eða tá
kr. 2.00. Ef 2 eða fleiri neglur eru
teknar í senn, þá er fult gjald
fyrir þá fyrstu, en hálft gjald fyrir
hverja hinna.
59. Að skilja samvaxna fingur eða
tær kr. 4.00.
60. Að miðhluta leggi (resectio) kr.
10.00.
61. Að miðhluta liði eða efrikjálka,
eða neðrikjálka kr. 15.00.
62. Að miðhluta rif kr. 5.00.
63. Höfuðskelin opnuð kr. 10.00.
64. Opnuð kjálkaholan kr. 4.00.
65. Að þrautrétta ki-eptan lim eða
brjóta upp aftur ranggróið bein kr.
6.00.
66. Að opna lið til útræslu eða til að
ná út aðskotahlut kr. 6.00.
67. Bein meitlað til mergjar kr. 8.00.
68. Bein skorið sundur (osteatomi)
kr. 7.00.
69. Ef það er í mjöðminni kr. 10.00.
70. Aðgerð á njórafæti (pes varae-
quinus) kr. 8.00.
------o-------
Annað blað kemur út af »Degi« um
helgina.