Dagur - 09.03.1928, Page 4
44
DAGUR
11. tbl.
MIX STAÐA.
Bæjarstjórastaðan á Akureyri er laus til umsóknar frá 1. Júlí
þ. á. að telja. — Laun kr. 5000.00, auk dýrtíðaruppbótar eftir
sömu reglum og launalög ríkisins ákveða.
Umsóknarfrestur er til 20. Aprílmánaðar næstkomandi.
Kosningin fer fram samkvæmt fyrirmælum laga nr. 43, 15.
Júní 1926.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 7. Marz 1928.
Jón Sveinsson.
Tilkynning.
Frá þessum mánaðamótum er rafmagn til suðu aftur lækkað
ofan í 12 aura hver kvst.
Pó er skorað á almenning, að nota ekki rafmagn til suðu um
Ijósatímann, fyrst um sinn, ef frost ganga.
Akureyri, 5. Marz 1928.
Rafmagnsstjórinn.
Brent og maláð kafji framleiðum við úr beztu vöru og með nákvæm-
ustu aðferðum. Hver er sá, sem neitar því, að rétt sé — að öðru jöfnu
— að styðja það, sem íslenzkt er?
Kaffibrensla Reykjavíkur.
Frá Rússum.
Það fréttist 1 símskeytum fyrir
jól í vetur, að nokkrir af hinurn ó-
stýrilátusu foringjum kommún-
ista hefðu verið reknir úr flokkn-
um á flokksþingi sameignarm.,
fyrir æsingar gegn stjórninnni og
stjórnarskipulagi ríkisins, á með-
al þeirra voru Kameneff og Rad-
ek. Hafa þeir viljað friðmælast
aftur og verða teknir í flokkinn
að 6 mán. liðnum, ef þeir hlýðnast
honum í öllum greinum. — Trot-
zki og Sinovieff voru reknir úr
f lokknum síðastliðið haust; sá
hluti flokksins, sem þeim fylgir,
hefir þrásinnis brotið lög og regl-
ur flokksins; þeir kalla sig »Len-
insinna«, og halda því fram að
ríkisstjórnin hafi svikið hugsjónir
byltingarmanna og horfið frá »al-
ræði öreiganna«. Ráðstj. hikaði í
lengstu lög við að gera foringjana
flokksræka, af því að þeir höfðu
áður staðið í fylkingarbrjósti
byltingarmanna. En nú hafa þeir
verið sendir til starfs og dvalar
fyrst um sinn, til Síberíu, Úral-
fjalla og norður að Hvítahafi. -—
Innan ráðstjórnarinnar voru Ry-
kof og Kalinin lengst til hægri, en
Stalin hafði stöðu mitt'á milli
þeirra og Trotzkis. Við burtrekst-
urinn hefir þetta' breytst þannig
að Stalin heldur stefnunni meira
til vinstri, en Rykof og Ralinin
leggja áherzlu á að styrkja pen-
ingavald einstaklinga og veita út-
lendu fé inn í Rússland. Mótstaða
Stalins gegn þessu er þó fremur
talinn ágreiningur um formsat-
riði og aðferðir við notkun hins
erlenda fjármiagns.
Afstaða Rykofs og Kalinins
miðast einkum við þá erfiðleika,
sem eru á kornverzlun bænda.
Söluverð bænda á korninu til rík-
isverzlunarinnar er fremur lágt.
Bændur vilja fá ýmiskonar iðnað-
arvörur fyrir það fremur en pen-
inga, en þær á ríkisverzlunin erf-
itt með að útvega. Fjöldi korn-
kaupmanna og spekúlanta trufla
verzlunina, og veldur það krepp-
um innanlands og brauðskorti í
borgunum með köflum. En skort-
urinn elur á óánægju og deilum
með verkalýðnum þar og iðnaðar-
forstjórum ríkisins. Út af þessum
árekstrum hafa þeir Rykof og
Kalinin hneygst að undansláttar-
stefnu og vilja leyfa bændum að
skifta við »spekúlanta«, enda hafa
ýmsar fjárhagslegar ástæður
knúð stjórnina í þá átt. En í póli-
tískum efnum veikir það hana á-
kaflega mikið og þar er Stalin
aftur á móti á verði. Nú stýrir
hann vinstri armi ráðstjórnar-
fiokksins síðan að Trotski og fé-
lagar hans voru reknir. Stalin er
að líkindum skýrasti og öflugasti
maðurinn í stjórninni. Nú vill
Rykof leyfa einstökum kaupmönn-
um kornverzlun við bændur, en
Stalin Jætur lögregluna vægðar-
laust útiloka spekúlantana frá
öllum viðskiftum; en það er örð-
ugt viðfangs, því að stundumi ná
þeir jafnvel samböndum við korn-
myllur ríkisins.
Þó að hinir rauðustu íneðal
er mest
REYKTA
tóbakið hér á landi.
Van
Houtens
Suðusúkk\ilaði
■ i i i f
er það bezta sem til
landsins Hyst.
Allar vandlátar
húsmæður kaupa það.
rússneskra kommúnista, Trotski
og félagar hans, hafi verið reknir
úr flokknum, þá er enn mikill á-
greiningur .um stefnuna í stærstu
framkvæmdamálum ríkisins. Og
vandséð er hver þar sigrar —
Stalin, sem heldur fast við hin
pólitísku princip ráðstjórnarinnar
og spyrnir þó jafnframt gegn
öfgamönnunum í því efni (Trot-
ski o. fl.), eða Rykof, sem vill
leyfa innlendum og erlendum
fjárgróðamönnum og spekúlönt-
um aukið starfssvið í Rússlandi.
Engu verður enn spáð um, hvort
þessi ágreiningur innan stjórnar-
innar stefnir henni til hnignunar.
----o---
Simskeyti.
Rvík 6. Marz.
Aðfaíanótt Sunnudags rákust
tveir þýzkir togarar saman á Sel-
vogsbanka; annar þeirra, Busck
að nafni, sökk samstundis, en
hinn bjargaði skipshöfninni af
honum — þrettán manns.
Afli hefir verið heldur tregur á
botnvörpunga undanfarið.
Cairo: Stjórnarforsetinn þar
hefir sagt af sér.
París: Þingkosningar til full-
trúadeildarinnar í franska þing-
inu eiga að fara fram 22. Apríl
næstkomandi.
Fransk-Spanskur^ samningur um
Tanger hefir nýskeð verið undir-
skrifaður.
7. Marz.
Berlin: Við þingkosningar í
Póllandi hafa fylgismenn Pilsud-
ski unnið stórsigur.
Genf: Þar stendur yfir ráðs-
fundur Þjóðabandalagsins og er
einkum rætt um vopnasmyglunar-
málið til Ungverjalands.
o
N BFTÓBAK,
skorið og óskorið þykir bezt hjá
Jóni Quðmann.
Helgi Árnason.
Þú varst að rífa þig með yfirlýs-
ingu og áskorun til okkar undirrit-
aðra í »D,egi« í sumar. Höfðum við
þá öðru arðsamara og nauðsynlegra
að sinna, en að gefa okkur að því-
Iíku narti. Er það hæfilegt skam-
degisverk að sletta í þig litlu and-
svari.
Þú þykist vera meðeigandi í Kálf-
borgarárvatni. Heyr á endemi! Lestu
þína landamerkjaskrá — eða skrár
— og hafir þú meir en hálft vit,
þá máttu sjá og skilja þar af, að
þú átt ekkert í nefndu vatni og hefir
ekki annan rétt til veiði þar, en
þann, er þú á sínum tíma keyptir af
Jónasi Jónssyni á Lundarbr. um óá-
kveðinn tíma, fen sem hér með er
lýst yfir að upphafinn sé, og stað-
fest með undirskrift Jónasar Jóns-
sonar.
Við fjölyrðum ekki um silungs-
rækt þína í nefndu vatni um nokkur
undanfarin ár, eða önnur digur-
mæli, en óhrakinn af þér er réttur
okkar til að banna veiðiskap í
Kálfborgarárvatni, nema með sam-
komulagi við okkur undirritaða.
Lundarbrekku 15. Des. 1927.
Tryggvi Valdemarsson.
Baldur Jónsson.
Jónas Jónsson.
Bezta
Hollenzka
Reyktóbakið
er:
Aromatischer Shag.
Feinr. Shag.
Golden Bell.
Mjalfavélar
Alfa-Laval
mjaltavélar eru
B—E—Z— T—Á—R.
Samb. ísl. Samvinnufél.
Ritstjóri: Þórólfur Sigurösson.
<y
Prentsmiðja Odds Bjönusonar.