Dagur - 04.05.1928, Side 4
80
D A G U R
20. tbl,
Tímaritin.
„Nýjar Kvöldvökur". Þorsteinn M. Jóns-
son bóksali hefir nú keypt útgáfurétt og
eldri árganga »Nýrra Kvöldvaka«; og
koma þær út framvegis 15. hvers mánaðar.
Fyrsta og annað hefti þessa árs er nýkomið
og eru þau fjölbreyttari að efni og frá-
gangur vandaðri en áður tíðkaðist. Aöal-
efni ritslns verður þó sem áður, sögur
þýddar en vel valdar, og ennfremur ýmis-
konar fróðleikspistlar og ritdómar. í 2.
hefti birtist kvæði eftir Davíð Stefánsson:
»Vorc, »SumarkomuhugIeiðingc eftir séra
Friðrik Rafnar og upphaf að ritgerð um
»HóIaskóIa hinn fornac eftir Brynleif
Tobiasson. Pálmi Hannesson ritar um út-
gáfuflokkinn >Lýðmentun<. Pá birtist og
upphaf að fróðlegum smágreinum uni
höfuðborgir landanna, Efni þessara hefta
er að öðru leiti þýddar sögur og smá-
greinir, — Miklar likur eru til þess að
vfnsældir »Nýrra Kvöldvaka< aukist mjög
við þá breytingu, sem á þeim hefir orðið
hjá hinnm nýja útgefanda.
„Eimreiðin", 34. árg. 1. h., er nýkomið;
flytur það meðal annars yfirlitsgrein eftir
ritstjórann: »Við þjóðveginnc, er skýrir
frá erlendum og innlendum atburðum á
stjórnmálasviðinu 1927, með myndum af
sumum stjórnmálamönnum stórveldanna
er tóku þátt í helztu viðburðum stjórn-
málanna árið sem Ieið.
Richard Beck ritar fróðlega grein um
>bókmentalðjy (slendinga í Vesturheimic.
Fyrrihluti greinarinnar birtiit í þessu hefti,
og fjallar um islenzka blaðamensku í
Vesturheimi, og fylgja myndir af stofn-
endum blaðanna. Nokkrar smásögur eru í
heftinu eftir Einar H. Kvaran, Einar Þor-
kelsson, Odd Oddson og kvæði eftir Jón
Magnússon og Þorstein Jónsson. Smágrein
um íslsnzka guðfræði eftir Helga Péturss
og ritdómar um ýms íslenzk skáldrit sem
komu út á síðastl. ári.
„Vaka«, 11. árg., 1.' h. er og nýkomið.
f því éru tvær góðar ritgerðir, önnur
eftir Þorkel Jóhannesson frá Fjalli: »Um
atvinmf og fjárhagi á íslandi á 14. og 15.
öld<; og hin eftir Sigurð Nordal: »Bók-
mentaþættirc. Árni Pálsson ritar »um bylt-
ing Bolsjevikac í Rússlandi, eigi óhlut-
drægagrein. í heftinu er og »ForIeikurinn
úr Merði Valgarðssyni«, eftir Jóhann Sig-
urjónsson, og »ritfregnir«. — Það er að
verða skoplegt við þetta tímarit, að sumir
útgefendur þess eyða nálega jafn-
miklu rúmi í persónulegt nagg um ritverk
sín, við þá, sem að þeim finna, eins og
því, sem varið er til þess að rita um aðr-
ar bækur, og svo eru sumir ritdómarnir
verri en ekki neitt; má því til sönnunar
nefna ritdóm Kr. A., um Vefarann mikla
frá Kasimir. En í ritgerðum um bækur
hefði mátt vænta þess, að ritið flytti jafn-
an vekjandi hugsanir og bollár bendingar
og sumir útgef. gæta þess líka vel. Á svið-
um annara viðfangsefna og mála eru útgef-
endurnir svo ósamstæðir, að þar virðist
engrar vakningar frá þeim að vænta.
--------0---------
Rfkisstjórnin hefir leyft Skátasambandi
íslands að selja opinberlega merki einn
dag á ðri til ágóða fyrir skátastarfsemina
hér á landi. Merki þessi verða seld hér á
götunum næstk. Sunnudag og er sennilegt
að bæjarbúar bregðist vel við. Skátafélagið
er einhver hollasti félagsskapur barna og
ættu bæjarbúar að teija skyldu sína að
styðja þann félagsskap sem bezt. Einn
maður hér i bænum, Qunnar Quðlaugsson,
hefir unnið mikið og gott starf í þágu
þessa félagsskapar nú um margra ára
Skeið,
Hjúkrunarstöðvar
eða
hjálparstöðvar.
í öllum menningarlöndum fjölgar nú
ár frá ári hjálparstöðvum fyrir sjúklinga,
einkum hjálparstöðvum fyrir berklaveika
og fyrir mæður og ungbörn. Og þessar
stöðvar eru bæði kostaðar af opinberu fé
og góðgjörðafélögum.
Hjálparstöðvar verða til þess að koma
í veg fyrir sjúkdóma. Læknar og hjúkrun-
arkonur vinna þar í sameiningu að því,
að leiðbeina fólki um alla hollustuhætti,
og ódýr eða ókeypis hjúkrun er látin í
té þegar þess er þörf.
1 Reykjavík hefir Hjúkrunarfélagið »Líkn<
starfrækt Hjálparstöð fyrir berklaveika
nokkur undanfarin ár og sent hjúkrunar-
konur út um bæinn til að hjúkra sjúkling-
um á heimilum þeirra og leiðbeina hús-
ráðendum um meðferð sjúklinga og varnir
gegn smitun. í vetur hefir félagið bætt
við sig Hjálparstöð fyrir mœður og ung-
börn. Þar er vanfærum konum veitt til-
sögn um hvernig þær bezt geti komið
í veg fyrir að fæðingin verði þeim erfið
eða hættuleg. Hjúkrunarkona kemur þeim
til aðstoðar jafnskjótt og ljósmóðirin hefir
hætt starfi sínu Og kennir þeim að fara
með barn sitt. Síðan geta mæðurnar kom-
ið, á viku hvérri á stöðina til þess að litið
sé yfir heilsufar barnsins og læknir leggi
því ráð ef um veikindi er að ræða.
Prófessorsfrú Chr. Bjarnhéðinsson á
mestan heiðurinn fyrir stofnun og starf-
rækslu hjálparstöðvanna. — Hún hefir ný-
lega gefið út skýrslu um starfsemi Líknar
á síðastliðnu ári. Sést af skýrslunni, að
félag þetta hefir unnið Reykjavíkurbæ
stórgagn, enda hefir félagið hlotið mestu
þakkir fyrir starfsemi sína frá bæjarbúum
og þegið styrk úr ríkissjóði. Margir efna-
menn hafa styrkt féiagið með stórgjöfum.
Félagið hefir haft 4 hjúkrunarkonur i
þjónustu sinni. Hafa allar starfað að hjúkr-
un og heimsóknum til sjúklinga í bænuni,
en tvær hafa þar að auki veitt forstöðu
og umsjá báðum hjálparstöðvunum. Þær
hafa farið alls 8140 ókeypis heimsóknir
og 1909 heimsóknir fyrir gjald, en auk
þess hjúkrað 45l/a daga og 31 nætur hjá
sjúklingum, 1620 sinnum hafa sjúklingar
leitað ráða á Hjálparstöðinni fyrir berkla-
veika og 60 mæður hafa leitað til Barna-
verndarstöðvarinnar. Öll hjálp á stöðvun-
um er veitt ókeypis.
Rauða Kross Deildin hér í bænum hefir
í hyggju að koma upp hjálparstöð fyrir
bæinn á komandi vetri — bæði fyrir
berklaveika og sennilega einnig fyrir mæð-
ur og ungbörn. Bæjarstjórn og Alþingi
hafa veitt sínar 1000 kr. hvor til stöðvar-
innar. — Deildin hefir í hyggju að ráða
til sín lærða hjúkrunarkonu til að starf-
rækja stöðina í samráði við lækni, en þar
að auki ætlar deildin sér, að hafa fram-
vegis eins og að undanförnu í þjónustu
sinni hjúkrunarkonu þá, sem nú starfar
fyrir félagið til heimahjúkrunar.
Til þess að deildin geti klofið allan
kostnað sem af þessum líknarstörfum Ieiðir,
þurfa bæjarbúar að sína henni velvild og
styrkja hana með fé.
Til þess gefst tækifæri Sunnudaginn 20.
Maí næstkomaadi. Þá heldur deildin
Rauðakrossdag til fjáröflunar. Þá verða
seld Rauðakrossmerki á götunum, veiting-
ar hafðar á boðstólum í barnaskólanum
og fjölbreytt kvöldskemtun haldin f Sam-
komuhúsinu. Þennan sama dag er þess
vænst að margir gerist meðlimir deildar-
innar. Ársgjald er 5 kr, Æfigjald kr. 100,
Áheit á Rauða Krossinn hafa gefist vel.
Verzlun Kristjáns Sigurðssonar, Akureyri
Kaupir:
Harðar gærur, Kálfskinn, Lambskinn, Folaldaskinn, Selskinn, Vorull, allar
tegundir og máske Sundmaga, stóran, glæran o. fl.
Selur:
Auk ýmislegrar kornvöru og nýlenduvöru, Vefnaðarvörur, svo sem:
Cheviot, blá, Karlniannafataefni, Reiðfataefni, Tvistdúka, Kjólatau 20 teg-
undir, Léreft, hvít, Lakaléreft, mjög ódýr, Boldang, Sængurveraefni Rúm-
teppi, Rekkjuvoðir, Borðteppi, Borðdúka, Skyrtuefni, brún, Verkamannaföt,
Vinnuskyrtur, Nærföt, Stormjakka, Sokka, Manchettskyrtur, Hálstau,
Höfuðföt, Kvensokka, Lífstykki, Handskar o. fl. Eldhúsgögn: Vöfflujárn,
Eplaskívupönnur, Steikarapönnur, Járnpotta, Mjólkurfötur, Herbergisfötur,
Kaffikönnur, Kaffikvarnir, Katla, Mjólkurbakka, Hakkavélar, Pvottavindur,
Olíuhitunarvélar, Pvottaborð. — Ferðakoffort, Beizlisstengur, ístöð, Bak-
pokar o. fl. — Ýms smíðatól og járnvðrur, svo sem: Skrár, Lamir,
Handföng, Saum o. fl. smávegis. — Færi, Öngla, Tauma. — Sjófatnað,
Leirtau og Postulínsvðrur, Leirkrúsir, Blómpotta, Garðkönnur o. fl.
KARTÖFLUR nýkomnar.
Fra' Landssímanum.
Frá og með 1. þ. m. og fyrst um sinn fram-
vegis, uns annað verður ákveðið, verða 1. fl. A.
langlínutalstöðvarnar opnar einni stundu lengur
en verið hefir, eða til klukkan 22 á kvöldin.
Reykjavík 1. Maí 1928.
G. J. Hlíðdal,
settur.
Kaffibæfirinn ,Sóley‘
Efnarannsókn hefir sannað, að hann stendur í engu á baki þeim kaffi-
bæti, sem beztur hefir þótt á landi hér. Atvik hafa sýnt, að vánd-
látustu kaffineytendur þekkja ekki tegundirnar í sundur á öðru en um-
búðunum.
Félagsmenn
er lóga ætla nautgripum á þessu sumri eru beðnir að tilkynna
það í KJÖTBÚÐINA fyrir næstu mánaðamót.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Snemmbær kýr
til sölu. Upplýsingar hjá Leifi
Kristjánssyni Smjörlíkisgerðinni.
Nokkrar grammófónsplötur
hafa fundist. Geymdar hjá Bene-
dikt söðlasmið.
»FÁLKINN«, vikublað með mynd-
um fæst hjá Benedikt Benediktssyni
Brekkugötu 37.
Menn ættu að prófa í viðiögum. Akureyr-
búar styrkið gott fyrirtæki! Hjálparstöð
hér í bæ mun gjöra sama góða gagn og
slíkar stöðvar hafa gert annarsstaðar.
Með því að koma í veg fyrir sjúkdóma
aparast fé, þjáningar og sorg.
Stgr. Matth.
Ritstjóri: Þórólfur Sigurðsson.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.
Fleur de Paris
og
Fleur de L uxe
smávindlarnir eru mest
R E Y K T 1 R.
Vindillinn
Jón
Sigurðsson
ber af öðrum vindlum.