Dagur - 28.06.1928, Page 2
DAGUR
28. tbl.
' 110
> • • • • • • >••••*• ••••-••••* •-• • • -• • • • • • • • ••
GLERVARÁ:
Skálar, diskar, föt.
Postu I i nsvara:
m Matarstell, kaffistell, fjöibr. úrval, brauð-
föt, diskar, bollapör o. fl.
Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim, sem auðsýndu
samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför Benedikts sál.
Einarssonar hreppsjóra á Hálsi.
Aðstandendur.
fjH Kaupfél. Eyfirðinga. tm
Myndastofan
Gránufélagsgötu 21 er opin alla daga
frá kh 10-6.
Guðr, Funch-Rasmussen.
gróðurs, bæði innlendra og út-
lendra, náð ágætum þroska í stöð
félagsins, og er félagið orðið þekt
um land alt fyrir uppeldi sitt á
trjáa- og runnaplöntum. Hefir fé-
lagið árlega sent frá sér mörg
hundruð ungplöntur, og er nú svo
komið, að það getur hvergi nærri
fullriægt eftirspurninni. Hefir Rækt-
unarfélagið með starfsemi sinni á
þenna hátt lagt stóran skerf til
rannsóknar og útbreiðslu íslenskrar
skógræktar. Um þessar greinar
starfseminnar og margar aðrar geta
menn fræðst við lestur Ársritsins.
Félagið hefir verið að færast í
aukana að þreki og framkvæmdum
á síðustu árum. Mun þar ekki valda
minstu um hæfileikar, dugnaður og
framsýni þess manns, sem nú er
fiamkvæmdarstjóri félagsins. Árið
1926 var viðskiftavelta félagsins
nieðtöku og gjaldamegin á hvorum
stað nokkuð yfir 200 þús kr., og
efnahagsreikningur félagsins sama
ár sýnir hreina eign þess full 60500
kr. Á síðustu fjórum árum hefir
skuldlaus eign félagsins aukist um
nálega 16\þús. kr., og hafa þó eign-
ir félagsins á sama tíma verið af-
skrifaðar um rúmar 9 þús. kr.
Ræktunarfélag Norðurlands hélt
þessa árs aðalfund sinn hér á Ak-
ureyri, dagana 22. og 23. þ. m. Á
fundinum og í sambandi við hann
var 25 ára starfsenii félagsins minst
á ýmsan hátt. Fundinum bárust
heiilaóskaskeyti í tilefni afmælisins.
Á fundinum voru haldnir tveir fyr-
irlestrar, annar af framkvæmda-
stjóra félagsins, ólafi Jónssyni,
hinn fyrirlesturinn hélt Sigurður
Sigurðsson búnaðarmálastj. Skýrsl-
ur yfir störf félagsins og niðurstöð-
ur reikninganna, svo og áætlanir
fyrir framtíðina, báru vott um vax-
andi þróun og gengi félagsins og
bjartar vonir um framtíð þess.
Cr stjórn félagsins gekk Stefán
Stefánsson á Varðgjá, en var end-
urkosinn, sömuleiðis voru endur-
skoðendur reikninga félagsins, þeir
Davíð Jónsson á Kroppi og Hólm-
geir Þorsteinsson á Grund endur-
kosnir. Til þess að mæta sem full-
trúar félagsins á næsta búnaðar-
þingi voru kosnir ólafur Jónsson
framkvæmdarstjóri og form. fél.
Sig. Hlíðar, en til vara Jakob Karls-
son kaupmaður og Stefán á Varð-
tíðinni á þessum aldarfjórðungs-
tímamótum í æfi þess. Það gerir
Dagur hér með fyrir sitt leyti.
------o-----
Simskeyti.
Rvík 24. Júní.
Samningar um kaupgreiðslu á
síldveiðum fyrir togara og línubáta
voru undirskrifaðir í morgun. Lág-
markskaup á togurum er 211.50 kr.
á mánuði og preinía 4 aurar á mál-
ið af fyrstu 2000 málum í bræðslu,
5 au. af næstu tveimur þús. mála,
og 6 au. af niáli úr því. Á línuveið-
um er sama kaupgjald og í fyrra.
Rvík 27. Júní.
Þorgeir Jónsson frá Varmadal
vann bæði Stefnishornið og íslands-
beltið.
Hörmulegt bifreiðarslys vildi til
seinnipartinn 25. þ. m. Bifreið, eign
Hallgrínis Tulinius, steyptist yfir
sig, að því er haldið er, á veginum
utan við bæinn, og hentist fólkið út
úr henni. í bifreiðinni voru H. Tul-
inius, kona hans og börn þeirra, ein
stúlka að auk og bifreiðarstjórinn.
Frúin slasaðist svo gífurlega, að
hún dó á Landakotsspítala um
kvöldið. Engum er vel ljóst, hvernig
slysið vildi til, en bílstjórinn mun
hafa ekiö utan við veginn á kafla,
og slysið orðið, er hann ók upp á
veginn aftur. Hallgrímur og börn
hans meiddust nokkuð, en ekki
hættulega.
Lundborg, sænskur flugmaður,
flaug til Nobile og lenti á ísnum;
flaug hann með Nobile til Quest,
sænsks hjálparskips; flaug síðan
aftur til Nobilemanna, en þá brotn-
aði vélin, og situr, hann þar nú.
París: Verðfestingarlögin eru
gengin í gildi. Frankaseðlar eru
innleysanlegir með gulli. 124,21
frankar jafngilda sterlingspundi.
Ýms skip og fiugvélar eru að
leita að Amundsen, en leitin engan
árangur borið enn.
Changstolin er dauður.
Sundurlyndið eykst milli Kroata
og Serba út af morðunuin á þingi
Jugoslafa.
Átta útlend ferðamannaskip koma
hingað; af þeim fara sennilega þrjú
til dagsviðdvalar á Akureyri.
Frú Astrid Kaaber, kona L.
Kaabers bankastjóra, er látin er-
lendis af völdum krabbameiris.
------o-----
Á víðavangi.
Engin nýlunda.
hans um bæjarstjórakjörið hér á
Akureyri. Valtýr Morgunblaðsmað-
ur heldur því fram, að ástæðan hafi
verið alt önnur. Hún hafi verið sú,
að blaðstjórninni liafi ekki geðjast
að skrifum Þórólfs um verzlunar-
málin.
Það er engin nýlunda, að LJÚG-
VITNUM beri ekki saman.
Nógu svartur.
ÖII svertukaup getur G. Tr. rit-
stjóri sparað sér. Svertan kemur af
sjálfu sér, þegar ritstj. er að »hag-
ræða sannleikanum«.
Ekki samvinnuþýður.'
Gunnl. Tr. lætur lítið yfir sam-
vinnuþýðleik Þórólfs Sigurðssonar.
Þetta mun rétt vera í vissum skiln-
ingi. Þ. S. hefir aldrei verið lipur
til samvinnu um illan málstað G.
Tr. og hans nóta.
Gulur af öfund
er ísl.-ritstj. út af því, að stjórn
Útgáfufél. Dags hefir farið hlýleg-
um orðum um ritstjórn Þórólfs Sig-
urðssonar. Svo er gremjan rík út
af þessu, aö ritstj. sýnist vera far-
inn að gleyina aðalstarfi íhaldsblað-
anna, að rægja ]. ]. dómsmálaráð-
herra.
Ritstjórinn gerir sér víst ekki há-
ar vonir um glæsilegan vitnisburð,
þegar hans pólitíska útför frá is-
lendingi fer fram.
Suðurlandsskólinn.
Eins og kunnugt er, hefir lengi
verið togstreita um það meðal
Sunnlendinga, hvar hinn fyrirhug-
aði skóli þeirra ætti að standa.
Hefir sú togstreita tafið fyrir því,
að skólinn væri reistur. Loks end-
aði þessi reipdráttur um skólastað-
inn á þann veg, að nokkrir hreppar
í Árnessýslu vestanverðri sóttu um
ríkisstyrk, til þess að reisa aiþýðu-
skóla á Laugarvatni, og varð rikis-
stjórnin við þeirri málaleitan. Er
sá mikli kostur við þann stað, að
þar er nægur jarðhiti fyrir hendi til
þarfa skólans. Er nú fyrir nokkru
byrjað á byggingu á Laugarvatni.
Síðan þessi ályktun var tekin og
séð var fyrir endann á því, að skól-
’inn yrði reistur í sumar, hefir Morg-
unblaðið ekki náð upp í nef sér
fyrir reiði, Er blaðið með sífeldan
illindaaustur út af þessari ráðstöf-
un, og reynir eftir megni að sá fræ-
um sundrungar austur um Árnes-
sýslu, auðsæilega í þeirri von, að
upp af þeim kynni að spretta það
illgresi ófélagslyndisins meðal Ár-
nesinga, sem gæti orðið skólabygg-
ingunni að falli. Árnesingar hafa
svarað þessari iðju Morgunblaðsins
á viðeigandi hátt. Ungt fólk úr
Árriessýslu, bæði karlar og konur,
hefir þyrpst að skólastaðnum og
unnið þar sem sjálfboðaliðar. Hafa
þessir sjálfboðaiiðar verið úr ung-
mennafélögunum. Sannast það enn,
að íhaldið hefir æskuna á móti sér
og er því á vegi til grafar.
Umsóknir um vist á skólanum
næsta vetur eru nú farnar að ber-
ast bæði úr Árnessýslu og Rangár-
vallasýslu.
Húsaleiguokur.
Byggingarfulltrúi Akureyrar, Hall-
dór Halldórsson, hefir skrifað at-
hylgisverða grein í »Verkamann-
inn«, er út koin 23. þ. m. Vegna að-
stöðu sinnar og að gefnu tilefni,
hefir H. H. tekið sjer fyrir hendur
að rannsaka húsaleigu hér í bæ í
sambandi við leiguíbúðir. Honum
reiknast svo til, að hæfileg leiga í
vönduðu húsi sé 5 kr. á hvern rúm-
metra innan veggja yfir árið. En
við rannsókn sína hefir hann komist
að þeirri . niðurstöðu, að á þessa
hæfilegu leigu sé alloftast lagt
100% og stundum jafnvel 400%,
500% og alt upp í 1000%, og það
á þann hátt, að lélegustu og óvönd-
uðustu íbúðirnar séu hlutfallslega
langdýrast leigðar. Þykir honuni
þetta ástand óþolandi og telur þaö
þurfi tafarlaust enn ítarlegri rann-
sóknar við og lagfæringar. Leggur
hann til, að þegar næg rannsókn og
undirstaða sé fengin, þá sé of háa
húsaleigan tekin með leiguskatti,
bæði í þeim tilgangi að þrýsta nið-
ur húsaleiguokri og til þess að veita
þeim, sem byggja, betri lánskjör.
Hér skal engin fullnaðardómur á
það lagður, að hve miklu leyti
byggingarfulltrúinn hefií rétt fyrir
sér eða ekki. Hitt ætti öllum að vera
Ijóst, að húsaleiguokur í kaupstöð-
um styður drjúgum að viðhaldi
þeirrar bölvunar, sem nefnist dýrtíð
i landinu. Að því leyti er mál þetta
alþjóðarmál. Hitt mun og litlum
vafa bundið, að mest er okrað á
sumum þeim íbúðum, sem naumast
geta talist mannabústaðir.
Hér er því um mikilvægt mál að
ræða, og ættu þeir, er bezt skyn
bera á þessa hluti, að taka það til
opinberrar umræðu. • -
gjá-
Allir þeir, sem framför landbú-
skapar unna og fegurð íslenzkra
sveita, munu óska Ræktunarfélagi
Norðurlands gæfu og gengis í fram-
Ritstjóri ísl. segir, aö Þórólfur
Sigurðsson hafi verið látinn hætta
við ritstjórn Dags, vegna skrifa