Dagur - 28.06.1928, Side 3

Dagur - 28.06.1928, Side 3
28. tbl, DAGUB 111 Fréítir. U. M. F. A. fer skemtiför út á Möðru- vallamela n. k. Sunnudag. Lagt'verður af stað frá Söluturninum á Oddeyri kl. 10 V2 f. h. — Farið verður á vörubif- reiðum og kostar farið fram og aftur kr. 1.25. — Farmiða sé vitjað í sölubúð K. E. A. fyrir ‘hádegi á Laugardag. Löfjjafnaóarnefndin hefir að undan- förnu setið að störfum í Reykjavík; er þeim störfum lokið að þessu sinni. Hafði nefndin margt til meðferðar; snerust nefndarstörfin einkum að land- helgi og fiskivéiðum og um gerðadóm milli íslands og Danmerkur. Enn frem- ur hafði nefndin til meðferðar atriði, er við koma framkvæmdum síldareinkasöl- unnar. Fiðluleikari, P. 0. Bernburg, er hér í bænum með hljómsveit sína. Hefir hann tvisvar skemt bæjarbúum með hljómleik, á Föstudags- og Sunnudags- kvöldið. 1 gærkvöld hafði hann ókeypis hljómleik fyrir börn, og' annað kvöld (Föstud.) hefir hann kveðjuhljómleika í Akureyrar-bíó. Mokfiski hefir verið og er enn héf við fjörðinn. Gímseyingar komu hingað til bæjar- ins með Unni í síðustu viku, þar á meðal prestur þeirra Grímseyinga, síra Matthías Eggertsson. Voru þeir í eggjasöluferð. Láta þeir illa af varp- inu í vor. Esja kom hér á vesturleið 22. þ. m. og fór aftur sama dag. Gestkvæmt er hér í bænum um þess- ar mundir. -Fyrir og um síðustu helgi voru það einkum fulltrúar á aðalfundi Ræktunarfél. Nl., sem hér voru aðkom- andi; ennfremur Jón Þorbergsson bóndi á Laxamýri og Hallgrímur Þorbergs- son bóndi á Halldórsstöðum í Laxárdal. Fulltrúar á kennaraþing'ið koma nú m^ð Goðafossi. Fulltrúar af aðalfundi Sís, þeir Ein- ar á Eyrarlandi, Ingólfur í Fjósatungu og Stefán á Varðgjá, komu landveg að sunnan fyrir síðustu helgi. Horfur með grassprettu hér norðan- lands eru í lakasta lag'i. Valda því langdregnir fmrrakuldar. . Fimtugur varð Valdemar Steffénsen læknir 25. þ. m. og' Guðbjörn Björnsson \ ' kaupm. degi fyr. Leiðarþing var haldið í Borgarnesi um síðustu helgi og' talsvert sögulegt að því er fréttir herma. Voru mættir á þinginu Jónas Jónsson dómsmálaráð- herra og Jón Þorláksson. Kastaðist all- verulega í kekki á milli þeirra og fleiri fundarmanna, og' lauk svo að Jón Þorláksson lagði á flótta og flýði af fundinum. Frú’Astrid Kaaber, kona L. Kaaber bankastjóra, er nýönduð í Reykjavík. Krabbi varð henni að bana. Var hún hin merkasta og ágætasta kona. Trúlofun sína hafa oþinberað: Ung- frú Þorbjörg Stefánsdóttir frá Skógum á Þelamörk og Jóhann Haraldsson frá Rauðalæk. Ennfremur ungfrú Frey- gerður Júlíusdóttir frá Hvassafelli og Hólmgeir Pálmason í Kálfagerði. Hood gúmmístígvél, fullhá — hálfhá — hnéhá. Einnig ofanálímd sjóstígvél, framúr-skarandi sterk. Gúmmískór, allar stærðir, ávalt fyrirliggjandi. Hvannbergsbrœður Skóverzlun. U. M. S. E. heldur héraðsmót á Möðruvallamelum Sunnudaginn 1. Júlí n. k. og hefst á hádegi. — Þar fer fram: Söngur, guðþjónusta, upplestur, bændaglíma, hlaup og kappreiðar. — Aðgangur kostar 1 krónu. — Veitingar seldar i staðnum, Stjórnin. Tilkynning. Eg undirritaður hefi opnað verzlun í Strandgötu 49 hér í bæ (fyrv. sölubúð Sam. ísl. verzl.) og hefi eg þar á boðstólum ýmiskonar matvör- ur, nýlenduvörur o. m. fl. Vinnuföt, nærfatnaður, tóbaks- og sælgætis- vörur o. fl. Verð og vörugæði mun þola samanburð við verzlanir í bænum. Skipum og skipverjum, sem koma á Oddeyrartanga, og sömuleiðis verka- fólki, sem sækir atvinnu þangað, er hentugt að verzla hjá mér, enda munu þar vera margir af mínum viðskiftavinum frá fyrri tíð. Gjörið svo vel að líta á vörurnar. Allir velkomnir. EINAR GUNNARSSON. Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir, ekkja Haralds prófessors Níelssonar, kemur hingað til Akureyrar með Lagarfoss næsta Miðvikudag' og fer aftur með Esju 10. næsta mánaðar. Á meðan hún dvelur hér, flytur hún tvo fyrirlestra, og' verður efni þeirra sem hér segir: 1. Krishtnamurti og kenningar hans. 2 Konan, sem hefir tvær vitundir. Nýtt félug kvað vera stofnað á Sauð- árkrók fyrir forgöngu Jóns alþm. á Reynistað, og nefnir það sig »Þjóð- ræknisfélag«. Tlgangur þjóðræknisfé- lags þessa er sagður sá, að lokka kaup- féiagsmenn í Skagafirði frá félagsskap sínum og fá þá til aö stofna pöntunar- félag. Það fylgir og sögunni, að Magn- ús Guðmundsson, 1. þingmaður Skag- firðinga, muni fáanlegur til að taka að sér pöntun á erlendum vörum fyrir þá, er hallist að þessari pöntunarhugsjón Þjóðræknisfélagsins, og' leg'gja svo lítið á vörurnar, sem auragirnd hans þolir. Þetta þjóðræknisstarf íhaldsins í Skagafirði kvað fara fram með mikilli leynd. Gullbrúðkaup áttu 11. þ. m. heiðurs- hjcnin Ilelgi Helgason og Sigurfljóð Einarsdóttir, fyrv. ljósmóðir, frá Grund í Höfðahverfi. Er Helgi ennþá hinn ernasti og dvelur nú hjá tengdadóttur sinni, húsfreyjunni á Grund, en kona lians hefir verið heilsuveil undanfarið og dvelur hún hjá börnum sínum hér á Akureyri. Eitt þeirra er Magnús H. Lyngdal kaupmaður. - Dánardægur. Hinn 12. þ. m. andað- ist hér á sjúkrahúsinu Gabríella Helga- dóttir, unnusta Odds Ólafssonar, sem andaðist 5 dögum áður á sjúkrahúsinu. Degi síðar, hinn 13. júní andaðist einnig' á sjúkrahúsinu ungfrú Þórdís Maríusdóttir. — Báðar þessar stúlkur dóu úr tæringu. Látinn er í Kristneshæli Helg'i Krist- jánsson skrautritari héðan úr bæ. Hann dó 20. þ. m. Hefir hann verið veikur af berklum um mörg ár. Hinn 21. þ. m. andaðist ekkjan Rósa Gísladóttir að heimili sínu Ráðhússtíg 8 hér í bæ, móðir Gísla Magnússonar verzlunarmanns og þeirra systkina. Þá er og' látin Herdís Jónsdóttir, gömul kona á Oddeyri. Á bíl austur yfir Vaðlaheiði, Ljósa- vatnsskarð og- Fljótsheiði og alla leið til Húsavíkur fór Kristján Kristjáns- son bílstjóri í fyrrakvöld. Fór hann á stað frá Akureyri kl. 6 og kom til Húsavíkur kl. íVt um nóttina. 1 g»r keyrði hann bílinn upp að Skútustöðum og síðan heim til Akureyrar. Er þetta í fyrsta skifti, sem farið hefir verið á bíl alla þessa leið. Nova kom í gærkvöld frá Rvík. Fór snemma í morgun austur um til Nor- egs. Gefið gaum að auglýsingu hér í blað- inu um kaup á frímerkjum. Það getur borgað sig. Bruni. Föstudaginn 8. júní brann til kaldra kola lifrarbræðslustöð Kárafél- agsins í Viðey. v Hjónaband. Nýlega voru gefin sam- an ungfrú Dagmar Helgadóttir og Sig- urbjörn Friðriksdpn bílstjóri. Morgunn, fyrra hefti þ. á., er ný- kominn hingað. Er þetta hefti sérstak- lega helgað minningu prófessors Har- alds Níelssonar. Kosnir prestar. 1 Kálfafellspresta- kalli hefir verið kosinn sr. Jón Péturs- son; í Bíldudalsprestakalli síra Helg'i Konráðsson og í Mosfellsprestakalli í Grímsnesi síra Guðmundur Einarsson á Þingvöllum. í hverju þessara presta- kalla var aðeins einn umsækjandi. The House of Rank heitir allstórt rit, sem Degi hefir verið sent. Hefir Snæ- björn Jónsson þýtt ritið á íslenzku. Er þar sagt frá hinu fræga hveitiverzlun- arhúsi Joseph Rank. Þýðandinn hefir skrifað formála að ritinu, mjög hlýleg- an í garð Breta. Af riti þessu að dæma, er þetta verzlunarhús merkilegt fyrir margra hluta sakir. Rit þetta prýðir fjöldi mynda af mönnum og mannvirkjum og að öllu er þaö mjög veglega úr garði gert. ------o------ Fáein orð til hr. Páls G. Vatnsdal. í 18. tbl. Dags liefir hr. Páll G. Vatnsdal skrifað fljótfsernislegan dóni um Stuðlamál II. og það án þcss að sýna nokkur rök fyrir máli sínu, Hefir það einkent t flesta Stuðlamála-dóma, að engin rök hafa verið færð fyrir aðfinslum þeirra. Sjá allir heilvita menn, að hægt er að taka hvaða vísu sem er, og segja að hún sé »hnoð«, »leir- burður«, »gallagripur« 0. s. frv. Það cr hægt að segja allskonar marklausan þvætting um menn og Kálfskinn kaupir Fggert Einarsson. málefni, en oftast kemur annað hijóð í strokkinn, þegar krafist er ó- rækra sannana fyrir því, að um- sögnin sé rétt. Hr. Páll G. Vatns- dal skorar á mig »að taka tvær vís- ur til rannsóknar á ný«. Þó að grein hr. P. G. V. sé af talsverðum drýg- indum rituð, skal eg fúslega verða við áskorun hans, því að umræddar vísur er auðvelt að verja með rök- um. En jafnframt skora eg á hr. Pál G. Vatnsdal að senda úrvals- vísur eftir sjálfan sig í III. hefti Stuðlamála, svo að mönnum verði ljóst á sínum tíma, hvort hann hef- ir í umræddri grein inælt sér til sóma eöa vansóma. Skýringar mín- ar skal eg senda til hr. bóksala Þ. M. Jónssonar eða beint til hr. P. G. V. sjálfs, ef hann kýs það heldur, þegar hann hefir sent vísnasafn sitt, annað hvort mér eða hr. Þorsteini M. Jónssyni. 24. Júní 1928. Margeir Jónsson. -------0-------- Síldveiði er byrjuð.hér við Eyjafjörð. M.s Reginn er kominn til Siglufjarðar með um 600 tunnur síldar og M.s Sjö- stjarnan er á leið til Krossaness og er sögð full af síld. Verður ekki annað sagt en síldveiðin byrji all glæsilega. Sigurður Sigurðsson búnaðarmála- stjóri hefir verið hér í bæ að undan- förnu, fer til Rvíkur með Dr. Alexandr.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.