Dagur - 26.07.1928, Síða 3

Dagur - 26.07.1928, Síða 3
32. tbl, DAGUB 127 r: \ Margrethe Broch-Nielsen ■ kgl. balletdansmœr. \ Bal letsýning [ | íkv0ldkl.9. | ■ Aðgöngumiðar á 2.50 og ■ | 2.00, barnasæti 1.00 í Sölu- ■ ! turninum og verzl. Guöbj. 5 5 Björnss. og við innganginn. ■ norður á sveitir, ef að vanda lætur. Eru slík ferðalög pólitískrá siiápa allþreýtandi fyrir bændur og búa- lýð, því að ekki verðuni við sann- fróðari um neitt af þessuin piltum, því að annar segir livítt það, sem hinn kallar svart. Höfum við fyrir satt, að allir fari með fals og skrök að meira eða minna leyti. Reyndin virðist þó oftast verða sú, því mið- ur, að sá hafi mestan byrinn, sem ósvífnastur er, lagnastur og lygn- astur. Er hart að verða við þetta aö kannast, en svona er það nú samt«. Nú segir Morgunblaðið, að ólaf- ur Thors hafi haft langmestan byr á pólitískum fundum í Húnavatns- sýslu hinna »sunnlensku oflátunga«- Pegar því ummælum bréfritarans og frásögnum Morgunblaðsins er steypt saman í eina heild, verður útkoman þessi: Þar sem Ólafur Thors hafði mestan byrinn á fund- unum, er hann allra manna ósvífn- astur, lagnastur og lygnastur, þeirra, er á fundum Jressum tóku til máls. þriðja lagi var honum fullkunnugt um, að skipstjórinn á »Júpíter« hafði verið sýknaður í undirrétti. Eg veit, að alt þetta hefði komið fram í málsskjölunum, og nú ær það kunnugt, að afrit af málsskjölunum í hverju einasta togaramáli er vand- lega yfirfarið og athugað af starfs- mönnum í flotamálaráðuneytum Þjóðverja og Breta. Nú er og al- kunna, að afarmikill kurr hefir verið í Bretum og Þjóðverjum út af tog- arasektum — og fanst mér því ekki ná nokkurri átt, að flotamálaráðu- neytin fengju annað eins vopn í hendur og málsskjöl, er bæru vott um útbúnaðinn á »Trausta«. Hvað mættu útlendir stjórnmálamenn og crlendur almenningur halda um ís- lenska löggæslu og íslenskt réttar- far, ef þeir kæniust á snoðir um slíkt endemis sleifarlag? Eg býst við, að réttur okkar yrði okkur þá ærið torsóttur í sektamálum er- lendra veiðiþjófa«. Því skal hér við bætt, að sekt sú, er íslenski togarinn »Júpíter« fékk, nain 15 þús. kr. Gera niá ráð fyrir, að sekt sú, er enski togarinn hefði orðiö fyrir, mundi hafa orðið við- líka, ef fært hefði verið að halda málinu áfram. Um þá upphæð hefir því M. G. skaðað landið með trassaskap sínum. Þó er peninga- skaðinn ekki sárastur; sárast er að íhaldsflokkurinn skuli hafa haldið slíkum trassa í ráðherrastóli. ------o------ Fréttir. Gömitl synd Magnúsar Guðmunds- sonar. ■— Eitt hneykslið enn. Sá atburður varð síðla sumars 1926, að eftirlitsbáturinn »Trausti« kom að tveimur togurum í Garð- sjónum og hugði þá vera að ólög- legum veiðum. Annar þeirra var ís- lenski togarinn »Júpíter«, en hinn var »Tervani« frá Hull. Skipstjór- inn á »Trausta« var ekki á honum í þessari ferð, en stýrimaður taldi togarana vera í landhelgi og kærði þá báða. Skipstjórinn á »Júpíter« var sýknaður í undirrétti, en dæind- ur sekur í hæstarétti, en ekki játaði hann á sig landhelgisbrotið. í skipstjórann á »Tervani« náðist ekki fyr en í Apríl síðastl., eða nær tveimur árum eftir að hann var kærður. En þegar til kom, sá nú- verandi dómsinálaráðherra sér ekki annað fært en láta mál þetta falla niður, til þess að sjá sæmd lands- ins borgið út á við. Hefir dóms- málaráðhera gert grein fyrir því á þessa leið: »Þegar togararnir voru kærðir, var Magnús Guðmundsson dóins- málaráðherra, og átti þess vegna að sjá um, að alt væri eins og það átti að vera á eftirlitsbátnum »Trausta«. En eftirlit þáverandi dómsmálaráð- herra var ekki betra en það, að í bátnum var hvorki kort, penni, pappír né blek. Athuganirnar voru rispaðar með nagla á öldustokk bátsins. Nú vissi eg, að enska skip- stjóranum var fullkunnugt urn þetta. Það höfðu einhverjir orðið til að segja honum það. í öðru lagi vissi hann, að skipstjórinn á »Trausta« var ekki á skipinu þessa ferð. í Prestskosningin á Húsavík. Knútur A rngrímsson fékk 257 atkv., en ekki 157, eins og sagt var í síðasta blaði, og Jakob Jónsson hlaut 204 atkv. en ekki 104; skakkaði um hundrað á báðum stöðum. Kosningin var sótt af miklu kappi. Bifrcið úr Borgarnesi kom bingað til bæjarins að kvöldi hins 19. þ. m. Bif- reiðarstjórinn hét Ólafur Sigurðsson; meðal farþeg'a voru Helgi Pétursson kaupfélagsstjóri í Borgarnesi og frú hans. Hafði bifreiðin verið 2% dag á leiðinni. Umboðsmenn síldareinkasölunnar hafa verið skipaðir: Halldór Friðjónsson fvrir Akureyrarumdæmi, Jón E. Berg- sveinsson og Hallgrímur Hallgrímsson á Hjalteyri fyrir Siglufjarðarumdæmi, Snorri Sigfússon kennari á Flateyri fyrir Vestfjarðaumdæmi og Björn Ó- lafsson á Seyðisfirði fyrir Austfjarða- umdæmi. Morðtilraun gerði maður einn 1 Rvík á syni sínum óskilgetnum, á 1. ári, með því að gefa honum saltsýru. Tilraunin nrishepnaðist að öðru en því, að sýran brendi barnið á vörum og f munni. Mað- urinn var tekin^ fastur og játaði á sig brotið og færði sem ástæðu fyrir því, að móðif barnsins væri orðin sér frá- hverf. Þessi ólánssami maður heitir Sigurður Eyjólfsson, og er hann vart talinn með fullu ráði. Slys. Fyrri Laugardag rotaðist til dauðs annar vélamaður á gufuskipinu Rjörgúlfi, er var við þorskveiðar út af Siglufirði. Maðurinn, er fyrir slysinu varð, hét Guðmundur Steinsson. Tilkynning. Athygli síldarsaltenda skal hér með vakin á því, að ef síld berst ört á land fyrstu daga sölt- unartímans, og reynist ekki nægilega góð, áskilur úíflutningsnefndin sér rétt til, að leyfa engu skipi að leggja upp til söltunar fyrir 5. Agúst meira *. en sem svarar % af söltunarleyfi þess. Akureyri 23. Júlí 1928j Utflutningsnefndin. Pálmi Hannesson náttúrufræðingur er fyrir nokkru kominn heim úr rannsókn- arferð sinni um Austurland og ÞÍDg- eyjarsýslur. Lætur hann hraklega af grassprettu austur á Héraði, segir að hún sé nokkru skárri í Þingeyjarsýsl- um, en skárst hér í Eyjafirði. — Pálmi er lagður af stað vestur um land og heldur þar áfram rannsóknum sínum. Fyrirlestur um Ameríku hélt Stein- grímur Arason, kennari, í fundarsaln- um í Skjaldborg' á Sunnudaginn var. Sagði hann þar frá ferðum sínum um Ameríku og sýndi fjölda mynda, eink- um frá Yellowstone Park, þjóðgarðinum fræga, sem er að flatarmáli tvöfalt stærri en alt Suðurlandsundirlendið. Enn fremur sýndi hann myndir frá Kaiiforníu og víðar að, og að lokum nokkrar myndir frá íslenzkum stöðum, er hann hafði haft með sér á ferðum sínum vestra og sýnt þar. —• Fyrirlest- ur Steingríms, og myndasýning, var í senn bæði fróðlegur og skemtilegur. — Að erindinu loknu mælti Steingrímur læknir Matthíasson nokkur hlý orð til fyrirlesarans. Síldveiðin hefir gengið mjög vel það sem af er síldveiðatímanum. Síldarsölt- un byrjaði í gær. Eldur. Klukkan 4 síðdegis á Mánu- daginn var tóku menn eftir því, að eldur var laus í gistihúsinu Goðafoss hér í bæ. Var þá brunaliðið kallað á vettvang, og stóð þá loginn út með þak- skegginu í norðausturhorni hússins og reykjarmökk mikinn lagði frá húsinu. Hægur norðanandvari var á, en gerði alveg logn eftir stutta stund. Var nú tekið að dæla vatni í húsið og tókst eftir skamma stund að slökkva eldinn. Efri hæð hússins er talin gerónýt og neðri hæðin mikið skemd. Húsið og mestur hluti þeirra innanstokksmuna, er skemdust, voru vátrygðir, en alt um það bíða eigendurnir mikið tjón í at- vinnumissir. Önnur hús sakaði ekki. Skip. Nova kom hingað á vesturleið á Þriðjudagsmorguninn og fór aftur að kveldi þess dags. Meðal farþega voru mag. Bogi Melsted og Guðmundur Finn- bogason landsbókavörður og kona hans. Gufuskipið »Ylva« kom á Mánudag- inn með trjáviðarfarm til Kaupfélags Eyfirðinga og Höepfnersverzlunar. Nokkuð af farminum fer til Siglufjarð- ar og Akraness, Aihugasemd. í 22. tölublaði »Dags« er athuga- semd við grein mína Jil »þingeyskra kvenna og karla«, sem eg vildi svara með fáeinum orðum. Eg blanda Alþýðuskólanum á Laugum inn í þetta tískumál af á- liuga fyrir honum og af velvild til lians, því eg vil ekki vita neinn blett á honum, vil heiður hans sem mest- an og áhrif hans sem best til alls, sem miðar til framfara og upphefð- ar fyrir æskulýðinn. Það hafa löngum verið talin tvö meginatriði þessa lífs að hafa föt og fæði; því er það álit mitt, að þetta mál komi Laugaskóla við og að hver fjölmennur samskóli hafi mikil áhrif á tískuna og það þurfi einmitt þar að læra að klæða sig smekklega,' en þó í samræmi við staðhætti alla, landslag og veðráttu. Eg elska fjör og >fegurð, en mér líður oft illa af að horfa á hégóma og tildur nútímans, af því líka að mér þykir flest, en þó ekki alt, ljótt sem talið er fínt og í móð! Nú vil eg spyrja, hvar á að reyna að vekja til lífs aftur og notkunar íslenskan, þjóðlegan búning, svo sem peysufötin? Hvar á að stemma stigu fyrir skaðlegu tildri bæði fyrir heilsu og efni? Það þarf víða að taka þetta mál föstum tökum, þar sem áhrifa gætir útí frá, og er það því einmitt eitt af verkefnum lýðháskóla, þar sem bæði eru karlar og konur, kennarar og eins nemendur. Eg þekki svo vel kennara Lauga- skóla, og veit, að ef þeir tækju þetta mál til meðferðar, vildu beita sér í því, væri því mikill sigur vís. Eg óska öllum skólanum á Laugum hamingju og blessunar, þaðan streymi sönn mentun og holl á- hrif, þaðan komi frjáls, glaður og áhugasamur æskulýður, sem byggi upp utan húss og innan, hvar sem liann starfar. Þessi J. Buch ritar mjög mikil- menskulega og reynir að upphefja sjálfan sig með því að tala um hvað mínar setningar séu »grunntækar«. Eg segi einungis: Verði honum að góðu, blessuðum. 1 .......... G, j

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.