Dagur - 13.09.1928, Blaðsíða 2

Dagur - 13.09.1928, Blaðsíða 2
156 D AOUR 40. tVL - •-• •• •-•• • • « -•■■• •••••••- mfffffiffffffiifiifiife B Æ N D U R ! Athugið verð það, er við gáfum síðastliðið ár fyrir framleiðsiu- vörur ykkar, og þið sannfærist um, að hvergi fáið þið betra verð fyrir þær. Uppbætur hafa nú verið færðar á þessar vörur: Hvít vorull I og II . . 40 aurar á kíló. Oærur....................12 — - — Kjöt, alla flokka ... 4 — - — Endanlegt verð á vörum þessum hefir því orðið: Hvit vorull nr. I ... kr. 3.60 kílóið. ->- - II ... 2.90 — Dilkakjöt, >príma< . . . — 1.04 — — nr. I. a. . . . — 0.89 — — - I. b. . . . — 0.74 — Kjöt nr. II — 0.64 — - - III - 0.54 - Gaerur . • .... — 2.27 - Kaupfélag Eyfirðinga. BtHHtmMHMttHHMa Myndastofan Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga frá kl, 10-6. Guðr, Funch-Rasmussen. komandi ári verður þó þörf fyrir enn meiri fjáröflun en nokkru sinni fyr, ef vel á að ganga. Stjórninni hefir fundist margir bæjarbúar taka altof daufan þátt í að styrkja félagið. Hún treyst- ir því, þar sem hún nú hefir færst í fang að reyna að vinna bæjar- búurn enn meira .gagn en hingað til, þá muni þeir líka verða vilj- ugri til að sýna örlæti sitt og að- stoð. En það er auðskilið mál, að þetta fyrirtæki getur því aðeins blessast, að Rauða-Kross deildin mæti góðri þátttöku og velvild bæjarbúa. Steingrímur Matthíasson. p. t. form. R.-K. deildarinnar. Árbœkur. i Reykjavík var á öndverðum síðasta vetri stofnað félag, sem nefnist Feröafélag Islands. Er til- gangur þess að stuðla að ferðalög- um á íslandi og greiða fyrir þeim. Einkum vill það greiða fyrir ferð- um innlendra manna um landið og kynna þeim náttúru landsins og fegurð þess. En að öðrum þræði ætlar félagið einnig að vera til leiðbeiningar og aðstoðar út- lendum ferðamönnum. Stjórn Ferðafélags íslands hef- ir nú gefið út rit, er nefnist Ár- bók. Er ætlast til, að slíkt rit komi út árlega framvegis og að í hverju þeirra verði lýsing á einni ferða- mannaleið að minsta kosti, og auk þess ýmiskönar fróðleikur, sem ferðamönnum má verða til gagns og ánægju. - Meginritgerðin í Árbókinni fyr- ir árið 1928 er lýsing á Þjórsár- dal, eftir Jón ófeigsson. Er lýsing þessi mjög ítarleg og fylgir henni »fjöldi af fögrum myndum af fossum, skógum, gjám og tind- um«. Er dalur þessi einn af hinum einkennilegustu og fegurstu stöð- um landsins og mun margan fýsa j\ð ferðast um þessar slóðir, eftir að hafa lesið lýsinguna og athug- að myndirnar. Nokkrar fleiri ritgerðir eru í Árbók Ferðamannafélagsins, þar á meðal ein eftir Sigurð Nordal, sem nefnist »Gestrisni bygða og ó- bygða«. Hvetur S. N. íslendinga mjög til ferðalaga upp í óbygðir landsins, einkum þó Reykjavíkur- búa. Um það atriði farast honum svo orð: »Reykjavík er að verða stór bær. Þar eru orðin mikil þægindi hversdagslega, talsverður þys, er- ill og órói. Það fólk, sem ekki vinnur líkamlega vinnu og helst fer í sumarferðalög, býr við litla útivist og fullkomið hóglífi. Því getur á sumrin orðið til mestrar hressingar að koma í kyrð og ein- veru, reyna á sig og lifa einföldu og harðgerðu lífi. Þessu fólki hentar ekki best ferðalög, þar sem það er dúðað í gestrisni og hagar sér eins og keipakrakkar, fer úr gististað eftir hádegi, vekur upp eftir miðnætti, treður sig út á mat og kaffi, fitjar upp á nefið yfir veitingunum, kvartar undan stutt- um rúmum og fiðurhnútum í und- irsængunum, gefur sveitafólkinu rangar hugmyndir um daglega líf- ið í bænum og kemur sjálft heim dáðminna en það fór heiman að. Veglegastá hlutverk ferðafélags- ins er að opna óbygðirnar fyrir bæjarbúum, sjálfum þeim til sálu- bótar og sveitunum til friðunar«. .... »Öræfin ieiga líka sína gest- risni, svipmikla og stórfelda, blá- fjallageim og heiðjöklahring, sem enn þá betra er að kynnast sjálf- ur, en lesa um hjá skáldunum, því að orðin ná skamt til þess að lýsa hátign óbygðanna og friði. Ein dagleið um öræfi er að hressingu á við margar í bygðum«. Þessa kenningu hefðu efalaust margir gott af að athuga. II. Árbók Dansk-íslenzka félagsins er fyrir nokkru út komin. Byrjar hún á kvæði um Áge Meyer Bene- diktsen, og þar á eftir koma tvær ritgerðir um þenna látna merkis- mann; er önnur þeirra eftir Arne Möller, en hin eftir Sigfús Blönd- al. Marius Kristensen ritar hlý- lega grein um Finn Jónsson sjö- tugan, og Sigfús Blöndal skrifar um Stephan G. Stephansson og skáldskap hans. Ritstjóri Árbók- arinnar, Friðrik Ásmundsson Brekkan, á, auk bókafregna, þrjár ritgerðir í henni. Fjallar ein þeirra um H. F. Feilberg og starf hans undir æfilokin. önnur nefn- ist »ísland 1927« og skýrir hún frá stjórnmálalegri þróun meðal íslendinga og atvinnuháttum þeirra. Hafa íhaldsblöðin, Morg- unblaðið og Vörður, þykst við þá ritgerð. í þriðja. lagi skrifar Brekkan um Egil Skallagrímsson, til leiðbeiningar þeim, er lesa vilja sögu hans með skilningi. Þá á Oddur Rafnar gagnorða og fræðandi grein um samvinnu- hreýfinguna á íslandi í Árbókinni, og skáldkonan Margrethe L. Jör- gensen ritar um einokunarverzl- un Dana á íslandi. Enn er í bók- inni grein eftir Björn K. Þórólfs- son og eitthvað fleira smávegis. Af því, sem hér er sagt, má sjá að Árbók Dansk-íslenska félagsins er fjölbreytt að efni og er margt af því vel ritað, ekki sízt það, sem ritstjórinn sjálfur hefir lagt til bókarinnar. Ber það þess merki, að hann er fjölhæfur gáfumaður og prýðilega vel ritfær á danska tungu. Hlíðarnámurnar. Eftirfylgjandi línur eiga að vekja athygli lesenda á verðmæti brennisteinsnámanna í ^rend við Mývatn; jeg meina íslenzka les- endur, útlendingar þurfa ekki upplýsinga við frá höf. þessara lína. Norðmaðurinn, sem um var getið í síðasta blaði, geyði sér ferð til Reykjahlíðar, til þess að sjá námurnar með eigin augum og taka sýnishorn þaðan. I hittifyrra hafði Japani verið þar nokkra daga til að heyra fuglasönginn, og síðastl. sumar fór merkur þýzkur maður þann veg, til að sjá Detti- foss. Ungir íslendingar leggja ekki leið sína þangað nærri eins mikið og útlendir. Englendingar hafa farið þar um og verið þar vikum saman fyrir mörgum árum síðan og hafa að sögn náð leigu- x’étti á námunum frá Reykjahlíð fyrir gjafverð. Hvernig þeim samningum er varið veit eg ekki. Hitt veit eg, að sé eins mikið af brennisteini þar eins og mér var sagt þar eystra að enskur námu- fræðingur hefði talið vera í Hlíð- arfjalli af óhreinsuðum brenni- steini, nl. um 200 þús. smálestir, eða 10 milj. kr. virði,-hvert kg. á 5 aura., sem ekki er V20 af því verði, sem óhreinsaður brenni- steinn selst í smákaupum, þá ætti Jarðarför dóttur okkar og systur, Agnesar Sigurgeirsdóttur, sem andaðist Sunnudaginn 9. Sept., fer fram frá heimili okkar, Spítalaveg 15, Priðjudaginn 18. þ. m., kl. 1 e. h. Foreldrar og systkini. þingi og þjóð ekki að vera alveg sama um, hver hreppir þessar námur, eða hvort útlendir eða inn- lendir vinna þær. Það var ekki forvitni ein, sem tók mig þangað í þetta sinn, held- ur fann eg mér skylt að finna íólkið þar eystra, 1 sem eg hafði talað við sumarið 1918, þá í þeim erindum að skoða ýmiskonar stein- tegundir þar í fjallinu og við Mý- vatn og um leið vita, hvað þeir sjálfir óskuðu að gera og gætu gert, til að vinna nefndar námur og nota orku Laxár, bæði til að reka verksmiðjuiðnað í grend við nefndar námur, ekki svo nærri bæjum, að það eitri andrúmsloft- ið — og um leið til að hita heimili sín á vetrum og til annara heim- ilisþarfa. Sú hugmynd er þegar til meðal Mývetninga og þarf að- eins fylgi og forsjá góðra manna, til að komast í framkvæmd. Rann- sókn á orku Laxár var mér ó- möguleg í þetta sinn, enda er nú engin skortur á vatnsorku-mæl- ingamönnum, en á hinu er frem- ur þörf að framtakssamir menn og stjórn landsins láti ekki fleiri ár líða, svo að nefndar námur séu ekki nákvæmar rannsakaðar en mér hefir enn auðnast. Eg hygg það vera gott vikuverk fyr- ir tvo dugandi menn að rannsaka námurnar" vestanfjalls, til þess þarf talsverðan útbúnað, ef vel á að vera. Þeir, sem eiga ritið Fylkir, geta séð, hvað eg hefi ritað þar fyrir 10 árum á 15. og 16. bls., 4. árg., einnig á 5. bls. 5. árg. 4. Sept. 1928. F. B. Arngrímssmi. Bruni. Á mánudagsnóttinu brann stór, nýbygður, járnklæddur timbur- skúr frammi við Kristneshæli. Var hann ætlaður til geymslu fyrir hænsni, svín og hesta. Hvernig eldurinn hefir komið upp er ekki uppvíst. Skúrhurð- in var bundin aftur með snæri, gat því hver, sem vildi, gengið um húsið, en fullyrt er, að enginn af Hælísfólk- inu hafi gengið þar um. Hefir þá ein- hver aðkomumaður kveikt i honum vilj- andi eða óviljandi. Öll smíðatól smiðs þess, er vann að skúrbyggingunni, voru þarna inni, og brunnu þau auðvitað líka. Brunamál þetta hefir verið af- hent lögreglunni til rannsóknar. MIÐSTOÐ V ARTÆKI Skol- og Vatnsleiðslur Vaska etc. er hagkvæmast að kaupa hjá Gómasi fBjörnssyni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.