Dagur - 01.11.1928, Side 2
184
DAOUR
47. tbl.
#•-•#-
#-#-#-#-#-#-#-#-#
m©
s:
w
Posfulínsvörur
nýkomnar:
Kínversk bollapör, mjög ódýr. —
Postulínspör með áletrun, hentugar
tækifærisgjafir við allra hæfi.
Kaffistell, Matarstell o. fl.
|S Kaupfél. Eyfirðinga. jm
mmmmmmmmmm
Mvndastofan mentalegt — listrænið — skáld-
J skapurinn -— eða þá þjóðlegt,
Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga siðferðislegt o. s. frv. - en af
frá kh 10 —6. þessu verður þó fyrst og fremst
Ouðr. Funch-Rasmussen. að líta á bókmentagildið) er það,
. i.i ......— sem á að dæma hana og hefja
irnar vaxa óeðlilega og verða smám hana eða fella eins og réttlátar á-
saman meira og meira sérstakt og stæður eru til. — Sannleikurinn
lélegra afbrigði bókmenta. Aðeins er Síb nð bækur frú Kristínar Sig-
örfáar af hinum kvenlegu höfundum fúsdóttur hafa verið svo misjafn-
standast eldraunina og sýna það ar> a^ Það mun vera mjög erfitt
síðar í bókum sínum, að þær höfðu eftir þeim að dæma um, hvers
eitthvað verulegt á hjarta. Flestar menn geta vænt af henni í fram-
berast uppi og áfram af heimsku- tíðinni — og »Gömul saga« —
lofi kven vikublaðanna og öðru því hvort heldur menn líta á fyrri eða
um líku og þær rita bók eftir bók síðari hlutann — gefur engin lof-
— ár eftir ár — langa röð af bókum, orð. Skáldatökin eru fremur dauf
sem allkr standa eins og þögult vitni og listrænið heldur lítið bæði í stíl
til þess að sýna það og sanns, að og frásögn, svartsýnið er óeðlilega
höfundar þeirra höfðu frá engu að mikið, hvergi nokkurstaðar bregð-
segja«. ur fyrir glampa af gamansemi,
Þetta er harður dómur, en sá, fyndni eða kýmni, alt er jafn
sem þekkir ofurlítið ástandið eins grátt, jafnvel sögulokin, sem þó
og það nú er á þessu sviði, verð- eiga að sýna að jafnvægið sé kom-
ur að bæta við: en því miður altof ið á, eru í raun og veru jafn grá
sannur. og ömurleg og alt hitt. Höfundur-
Hér á landi höfum vér, sem bet- inn gerir sér altof lítið far um
ur fer, að mestu verið lausir við að lifa sig inn í efni sitt og inn í
þesskonar öfgar — enda hafa líf persónanna. Sjálf er hún þar
kven-rithöfundar íslenzkir verið líkt og hún væri utanveltu, og
fremur fátíðir, og er það fremur deyfir hún frásögnina með ýms-
vorkun þó nýstárlegt þyki og þá um — að vísu oft skynsamlegum
stundum nokkuð mikið gert úr _ athugasemdum og lýsingum,
þeim. Þó hefir — að því er oss sem geta verið góðar út af fyrir
finst — nokkuð borið á öfgum, sig, en spilla frásögninni af því
sem að líkindum getur stafað af að hægt væri að komast hjá þeim
áhrifum hins útlenda kvendekurs — þær hafa venjulega svo sára-
í bókmentaheiminum, einmitt þeg- lítið með sjálft efnið að gera.
ar ritað hefir verið um bækur frú Er þetta íslenzkt sveitafólk ein-
Kristínar Sigfúsdóttur. Er það í hverntíma um miðja nítjándu öld,
raun og veru illa farið fyrir hana. eins og sjálf frásögnin sumstaðar
Jafnvel þó hún geti naumast tal- virðist benda til? verður lesaran-
ist svo tilþrifamikið skáld eins og um ósjálfrátt að spyrja — það
ástæða hefði verið til að dæma af - virðist í tali og tilfinningum oft
ýmsu, sem birt hefir verið um vera hetjurnar úr tízku-skáldsög-
fyrstu bækur hennar, þá er hún unum — í dulargerfi.
þó á margan hátt eftir vorum Frú Kristín Sigfúsdóttir þarf
mælikvarða svo merkur höfundur, nauðsynlega að ná fastari tökum
að henni er misboðið með oflofi á efninu, lifa lífi persóha sinnæ og
engu síður, en ef upp hefðu verið leggja eðlilegri málhreim í munn
kveðnir svo ómildir dómar um rit þeirra, ef henni á að takast að
hennar, að þau hefðu orðið fyrir . skapa og segja góða skáldsögu.
ranglæti að því leyti. Vér bæði óskum og vonum, að
Á þessum jafnréttistímum get- henni takist betur næst — hún'
um vér ekki og eigum heldur ætti það fyllilega skilið.
ekki — að gera upp á milli karla F. Á. B.
og kvenna á , bókmentasviðinu: ------,o-----
Góð bók verður aldrei lélegri við Endurskoðeridwr síldareinkasölurmar
að vera rituð af konu Og léleg bók hafa verið útnefndir alþm. Einar Árna-
ekki betri, þótt karlmaður sé höf- son og Ingólfur Bjarnarson, en til vara
undur hennar — gildi bókarinnar ®Brynleifur Tobiasson kennari og Þorst.
(sem bæði getur verið hreint bók- M. Jónsson bóksali.
^■■■^raB■H", AKDREYRAR BÍÓ "^"■■■■■""^
Sunnudag k|. 5:
BEN H Ú R.
Heimsfræg mynd í 12 þáttum um efni frá Krists dögum.
Aðalhlutverkið leikur:
RAMON NOVARRO
af óviðjafnanlegri snild. í þessari mynd er frásögn Biblíunnar
um líf Jesú sýnd á dásamlegan hátt. Maður sér Maríu
og Jósef á leið til Betlehem, vitringana frá Austurlöndum og
fleira. B E N H Ú R er hafinn yfir allar aðrar kvikmyndir, og
hefir aldrei nein þvílík mynd sézt hér áður.
Tákn íslenzkrar
menningar.
Pegar menn fara milli Mjóafjarð-
ar og Fljótsdalshjeraðs yfir Mjóa-
fjarðarheiði og Skeljadal, er vegur-
inn á kafla meðfram á einni. Hún
ryðst fram úr djúpum gljúfrum, hömr-
óttum og skuggalegum og fossar
áfram með stríðum straumi. Lítið
eitt neðan við gljúfrin klofnar straum-
urinn á litlum, stórgrýttum og hrjóst-
rugum hólma, sem er í ánni miðri.
Straumurinn eykst þar í þrengslun-
um, beljar um oddann, sem klýfur
hann, og stökkur úðanum yfir mos-
ann á steinunum í hólmanum. En
á neðri odda hólmans er lágvaxinn
viðarrunnur, iðjagrænn og þróttmikill
að sjá. Stofnarnir lágvöxnu þrengja
sér upp milli stórra steina, og geyma
rætur sínar undir og milli þeirra. En
feti neðar sameinast kvísiarnar aftur
og landbrjóturinn — straumurinn —
fer áfram leið sína. Bakkar árinnar
báðu meginn eru klettóttir, grýttir og
gróðurlitlir, síðan taka við sléttlend-
isræmur með móum og mýrarsund-
um, eyðilegar yfir að líta, og loks
eru fjöll til beggja handa, hömrótt
og stórgrýtt. Eggjar þeirra bera við
himinn hátt uppi, eins og óregluleg-
ar brotnar línur. Pegar kemur lengra
niður með ánni, víkkar dalurinn og
gróðurinn eykst meira og meira.
Loks hylur skógurinn dalinn hátt
upp í hlíðarnar. Par eru birkitré all
há og þéttvaxin, skógarilminn legg-
ur fyrir vit manna og alt ber vott
um mikið líf. Fjöllin gnæfa þar yfir,
eins og verðir hins mikla gróðurs.
í samanburði við gróður hólmans,
vefður gróðurinn þar risavaxinn og
fjölbreytilegur. Pó virðist sennilega
flestum meira til um runnann í hólm-
anum, af því að auðn og nekt er
umhverfis hann. Náttúran bregður
þarna upp stórfenglegri líkingu. Á
hinn bóginn fara margir þessa leið,
án þess að sjá runnann. Hann er
svo yfirlætislítill og hógværlegur, og
margir eru lítt skygnir á mikilleikann
í því einfalda.
Hvert er hlutverk þessa runna,
sem berst fyrir tilveru sinni þarna
í hrjóstrunum? mun margur spyrja.
Hlutverkið virðist mér vera all marg-
brotið. Hann er augljós og málandi
andstæða, hrjóstur annars vegar,
gróður hins vegar, eða andstæðan
milli lífs og dauða í víðustu merk-
ingu þeirra hugtaka, og jafnframt
virðist mér hann vera tákn menn-
ingar okkar íslendinga sérstaklega,
og allrar tilveru okkar. Hólmurinn
er hrjóstrugur og afskektur, eins og
landið okkar, »harðkreptur rasta-
böndum« eins og það. Gróður hans
á í baráttu við allskonar hörmung-
ar, eins og gróður landsins og and-
legur gróður og menning þjóðarinn-
ar.
Hvers virði yrði þá runnurinn
litli, ef hann væri tekinn upp úr þeim
jarðvegi, sem hann um aldir hefir
með erfiðismunum aflað sér nær-
ingar úr, og gróðursettur í skóg-
inum neðar í dalnum. Skógurinn
mundi kæfa hann, og þótt hann
næði að vaxa, yrði hann aldrei ann-
að en örlítið brot þeirra einstaklinga,
sem mynda skóginn, og það sér-
kennilega við hann yrði að engu.
Inni í auðninni er hann tákn þess
þróttar, sem^vex við baráttuna, og
þeirrar menningar, sem sýnir yfir-
burði sína og mikilleika í því ein-
falda og óbrotna, þess sem er, en
hirðir ekki um að sýnast.
Á landi hér hafa heyrst raddir,
sem lýsa ótrú sinni á þjóðinni og
andúð gegn menningu hennar. Pað
er leifast við að kveða þá menn
niður, sem benda okkur á verðmæti
þau, er aðstaða okkar á þessum
hólma fær okkur upp í hendur. f
fullri alvöru er þeirri skoðun haldið
á lofti, að það skársta, sem við eig-
um í fórum okkar og það, sem lík-
legast sé til hjálpar á framsóknar-
brautinni, sé banki, sem stofnaður
var suður í Reykjavík fyrir nokkrum
árum. Og margir fslendingar nú á
tímum æskja þess, að líf okkar og
menning nái sem nánustu sambandi
við menningu hinna miklu þjóða,
þótt þeir viti, að það er drep fyrir
' þá menningu, sem hér hefir fest
rætur við hörmungar og baráttu.
Pað sem sérstaklega einkennir þjóð-
ina, myndi hverfa úr sögunni og
verða að engu, persónuleiki okkar
færi sömu leðina, þrátt fyrir það
virðist þeim yfirborðsljóminn ekki
of dýru verði keyptur.
Runnurinn í hólmanum er and-
mælandi þeirra skoðana og óska.
Hann bendir okkur á það hlutverk,
sem við höfum að vinna. það, að
þjóð okkar og menning eigi að vera
gróður í auðn héðan af eins og
hingað til.
Sigurður Helgasoti
--------o-------
Akureijrar Bíó sýnir Ben Hur kl. 4 á
morgun (föstudag). Er sýningin ókeyp-
is fyrir börn. Er skólabörnum fyrst og
fremst boðið að sjá þessa ágætu mynd,
en önnur börn einnig v^lkomin, meðan
húsrúm leyfir.