Dagur - 08.11.1928, Síða 2

Dagur - 08.11.1928, Síða 2
188 DAGUR 48. tbl. »»•••••• ■•-• »-•■• • •»•- ► •-• • • •^ •-• •• # • •-•- HNETUKOL fengum við fyrir nokkru síðan. Kol þessi þykja afbragð annara húskola að dómi þeirra er reynt hafa, þau sóta ekki og brenna upp til síðustu agnar. Pær húsmæður sem ekki hafa enn fengið af koiateg- und þessari, ættu að panta af þeim NÚ STRAX, því birgðir eru litlar. D. C. B. EIMKOL seljum við frá skipi þessa daga, kosta 35 kr. smálestin meðan á uppskipun stendur. Kolin heim flutt ef óskað er. Hringið í Síma 228. Kaupfélag Eyfirdinga. ammiiniiiiiiiiiiiiia Myndastofan Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga frá kh lO-ö. Guðr. Funch-Rasmussen. féð ?« segja menn, og svarið er venjulega' á þá leið, að það muni hafa lent í fjárrekstrana. — Ekki fer féð í hættur í hausti sem þessu, og þó það drepist út um hagann, ætti að gangast fram á hræin eða hrafn- inn að vísa á þau; hér er ekki um mikla víðáttu að ræða. Það verður auðvitað sjaldnast sannað með þessa kindina eða hina, sem hverfur þannig kringum túnið og á rekstrarleiðinni, aó rekstar- menn séu valdir að, en dæmi þess að kindur slæðast í sláturfjárhópana, eru alt of mörg til þess, að það sé nokkurt undrunarefni þó menn séu tortryggnir í þessum sökum. Væri hægt að tína ýmislegt til, af því tagi, ef þörf krefði. Eg hefi margsinnis verið sjónar- vottur þess, hve ógætilega rekstrar- menn fara, t. d. láta þeir þrásinnis hópinn renna á undan sér, þó um mishæðótt land sé, þar sem gil og hæðir skyggja á og kindur geti þar hæglega leynst, án þess þeir sjái. Svipað er hirðuleysið þegar áð er, eða náttað. Pað er iit að þola hrakning á fé sínu, eða láta drepa það fyrir sér, þó aó verð komi fyrir, en þó tekur fyrst út yfir allan þjófabálk, þegar kindur sem í rekstrana lenda, tap- ast eigandanum þar með fyrir fult og alt, því það þarf enginn að hugsa að allar þær kindur sern í rekstrana slæðast, komi til skila. Pað hefir svo oft munað mjóu með þessi svo kölluðu misgrip, að þau komust ekki upp, svo sem eins og þegar sviðin verða til að vitna um hvað af hinum týndu skepnum er orðið, þegar öllu öðru hefir verið gerð skil. Hér mun þykja hart að orði kveðið, en dæmin eru til, fleiri en eitt. Pessu veldur fyrst og fremst gá- leysi, þegar slátrað er. Petta hirðu- leysi getur leitt annað ilt af sér, ög gerir það sennilega. — Óhlut- vandir vondir menn geta haft þetta sleifarlag, sem er á rekstrum og slátrun, sér að skálkaskjóli, vera ekkert að prútta þó lambangi slæð- ist í hópinn. Hættan er engin, þó einhver rekist á lambið, þá er það bara ógát og sé farið að nöldra um það að þetta sé ólöglégt, þá er svarið á reiðum höndum: »Petta hefir margan hent, gætinn mann og heiðarlegan*, og svo er útrætt um þessa smámuni. Pegar fé úr Pingeyjarsýslu er hrakið yfir sýslutakmörkin, og þó einkanlega ef það fer vestur yfir Eyjafjarðará, er því venjulega flækt fram og aftur svo skömm er að, veldur þar miklu að markaskrá Pingeyjars.ýslu fyrirfinst þar í ótrú- lega fám höndum og iæpast nema hjá fjallskilastjórum og er auðvelt að sjá hve miklum þvælingi það veldur á fénu. Petta síðasta er ef til vill útúrdúr frá aðalefninu og skal eg nú víkja að þvi. Pað skal viðurkent, að á langri rekstrarleið þarf mikla athygli og árvekni til þess að aldrei lendi ó- kunnug kind í hópnum, en sé hann lítill, verður hver aðgætinn maður þess strax var. — Pegar eigandi fjár- ins eða einhver heimilismaður hans fylgir fénu að státurborðinu, þar sem ait er dregið sundur eftir mörk- um, á það að koma í Ijós ef kind hefir lent í rekstrinum, svo fram- arlega að mennirnir séu frómir, og ekki því meiri ratar. Langmest er hættan með hið svonefnda markaðsfé, þegar tínt er saman í fleiri hundruð úr mörgum stöðum og einn er eigandi síðan að öllu saman. Rekstrarmerkin eru ekki ætíð svo glögg eða þeirra svo nákæmlega gætt við slátrun fjárins, að það sé alt trygt. Oft týnist fé úr rekstrunum, og ef þá kemur fé í skarðið, er mikil hætta á að alt sé talið í lagi. Pað er síður en svo að það sé aðeins eg og mínir grannar, sem þykjast verða fyrir barðinu á þess- um rekstrum. Kvartanir heyrast úr öllum áttum. Mér hefir verið sagt, af sýslunefndarmanni úr Eyjafjarð- arsýslu, að fyrir síðasta sýslufundi Eyfirðinga hafi legið erindi úr Olæsibæjarhreppi, þar sem kvartað hafi verið yfir skaða þeim, er rekst- rarnir yllu, og óskað aðgerða nefnd- arinnar. Lítið mun þó hafa verið gert málinu til framgangs, ekki fyr- ir það að bornar væru brigður á réttmæti kröfunnar, heldur hitt að nefndin sá, að ekkert sem verulegt gagn var að, yrði gert, nema með talsverðum kostnaðj, en nefndin taldi sig eigi hafa það fé til umráða. Líka hefir mér verið sagt af greinagóðum manni, að um nokk- ur ár hafi á Sauoárkróki verið fyrir- skipuð skoðun á öllu sláturfé áður en því sé lógað. — Einhvers hafa þeir orðið varir þar vestra. Skoðun mín er sú, að við þurfum að láta fram fara skoðun á slátur- fénu eins og þá, sem getið er hér að framan, á Sauðárkróki, og hvort sem greinarkorn þetta megnar að flýta fyrir aðgerðum i þá átt, eða eigi, þá er eg þess fuilviss, að ekki verður langt að bíða þess, að ein- hverjar skorður verði reistar. —Rök- in eru óhrekjandi, og þær raddír munu verða svo margar, sem krefj- ast þess, að þær verða ekki þagg- aðar, fyr en málið verður leyst á viðunandi hátt. Með löggiltum samþyktum verð- ur að skapa rekstrarmönnunum aó- hald. Fyrst þarf að gera þeim að skyldu að haga þannig rekstri, að þeir sjái jafnan yfir hópinn. Sé um stóra rekstra að ræða, skal altaf vera einn maður á undan til að vikja fé frá veginum, »víkja« segi eg, því hitt er ósiður að æra skepn- ur burt með hundum, eins og sum- ir rekstrarmenn gera. Einnig þarf að skylda rekstrarmenn til að skila þeim kindum, sem þeir taka í heima- högum manna, heim til eigendanna, þeim að kostnaðarlausu, en láta þeim ekki líðast að sleppa þeim, hvar sem er. Og enn þarf að hafa 1 — 2 menn á hverju sláturhúsi, sem athugi nákvæmlega alt fé áður en slátraó er. Skulu rekstrarmenn skyld- ir til að gera þessum eftirlitsmönn- um grein fyrir tölu, merkjum og fjármörkum á kindum þeim, er þeir eiga aö hafa umsjón með, en eftir- litsmenn rannsaki síöan hvort þessu þrennu beri saman við það, er rekstrarmenn töldu að vera ætti. Vitanlega veróur þetta ekki gert, nema með nokkrurn kostnaði, en í það1 má ekki horfa. Pað er óhugs- andi að menn vilji lengur eiga þessa rekstra yfir höfði sér, eftirlits- og tryggingarlaust. Sjálfsagt geta verið skiftar skoð- anir um þaö hvernig eigi að fá fé tii að mæta þeim kostnaði, seni af þessu leiðir. Sýnist mér réttlátast að bæjar- og sýslusjóóir leggi það til. Eg vona, að þeir, sem fluttu þetta mál fyrir sýslufund Eytirðinga síð- ast liðinn vetur, uni ekki svefni og aðgerðaleysi; munu og ileiri koma og taka í svipaðan streng. Málið hlýtur aö ganga fram fyr eða síðar. Veigastöðum 2. Nóvember 1928. Porlákur Marteinsson. Nú sem stendur veiðist talsvert af smokkfiski hér á Pollinum. Kaupfél. Eyfirðinga hefir keypt eitthvað af afl- anum til frystingar. » «••••»••••••«« Jaróarför Unnar Uunnlaugs- dðttir frá Eyrarbakka sem andað- ist á Kristneshæli, 29. Október s. I., fer fram frá Svalbarói Föstudaginn 9. þ. m. og hefst kl. 1 e. h. Akureyri 6. Nóvember 1928. Aðstandendur. Minning Jfistthíasar Jochumssonar. Á sunnudaginn kemur (11. nóv.) er afmeelisdagur skáldsins Matthíasar Jochumssonar. Fyrir forgöngu Stúdentafélagsins hér í bænum og Ungmennafélags Akur- eyrar verður sá dagur hátíðlegur haldinn með samkomu til minn- ingar um skáldið. Verður vandað ti! samkomunnar eftir beztu föng- um. Fara þar fram ræðuhöld, söngur, upplestur og fleira, er til mannfagnaðar má verða. Mun ætlast til að áframhaldandi minn- ingarhátíðir Matthíasar þenna dag verði á einhvem hátt arðber- andi og til stuðnings íslenzkri menningu og verður með sam- komunni á Sunnudaginn stigið fyrsta sporið í þessa átt. Langdvöl síra Matthíasar á Ak- ureyri á efri hluta æfi hans er bjartasta stjarnan yfir þessum bæ; mun ljómi hennar seint dvína. Ekki þarf að efa það að Akureyrarbúar fjölmenna á minn- ingarsamkomuna, því Matthías býr í hjörtum þeirra allra. -----o----- Simskeyti. (Frá Fréttastofu Islands). New York: Við forsetakosning- arnar í Bandaríkjunum er búist við sjö miljónum fleiri greiddum atkvæðum nú en við síðustu for- setakosningar. Fullnaðarúrslit verða í fyrsta lagi í kvöld. — Jafnhliða forsetakosningunni er kosið í fulltrúadeild þjóðþingsins cg þriðjung öldungadeildarinnar. Ríkisstjórakosning fer einnig fram í 34 ríkjum. Paris: Radikali flokkurinn hefir lialdið landsfund. Vinstri hluti fiokksins, undir forustu Calliaux, réðist á stefnu Poincaré í skatta- málum, hermálum og kirkjumál- um. Herriot varði tillöguna gagn- vart trúboðsfélögunum og reyndi að afstýra því, að radikölu ráð- herrarnir gengju úr stjórn Ppin- caré. Fundurinn feldi einnig slíka tillögu, sem kom fram, en sam- J/liðstöðoarfæki: ELDAVÉLAR, OFNA, REYKRÖR er haganlegast að kaupa hjá Tómasi Bjömssyni Akureyri.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.