Dagur - 10.12.1928, Qupperneq 4
210
DAGUR
53. tbl.
► • •- f « -#-•-•-• 4 > ♦ • # • • •
I Ryels B-Deild
er nú afarstórt úrval af allskonar
blysum. Flugeldar
í ótal tegundum. — Lítið inn í búðina, því þar er margt fallegt
og ódýrt, hentugt til J Ó L A G J A F A.
Balduin Ryel.
Degar brennur
sér enginn eftir að hafa vátrygt. Undirritaður
annast vátryggingar á húsum, innanstokksmunum,
vörubirgðum og allskonar lausafé í áreiðanlegum
brunabótafélögum.
BÖÐVAR BJARKAN.
Qamalt skar.
Gamall maður og auragjarn lét
oft svo um mælt, að aldrei færi
hann svo út af heimili sínu, að
hann ekki yki gróða sinn. Eg tek
í sama streng og þessi gamli aura-
seggur. Aldrei fer eg svo út af
heimilinu, að eg ekki auðgist —
auðgist — að þekkingu á mann-
lífinu, þeirri námsgrein, sem
seint verður fullnmnin. Á einni
minni stuttu heimanferð kyntist
eg gamalli konu. Líkami hennar
er rústir af byggingu, sem eitt
sinn var sterk og vegleg. Bak
hennar er svo bogið, eins og á því
hvíli allar sorgir heimsins, og
hrukkurnar á andliti hennar eru
óteljandi, eins og vonbrigði lífs-
ins. En svipurinn er mikill og
drenglyndur og ber vott um orku
og manndóm liðinna ára. Eg sezt
á rúmið hjá henni og við minn-
umst á liðna æfi hennar. »Það er
sjálfsagt alt mér að kenna, hvern-
ig farið hefir«, segir hún hæglát.
Og þegar eg sé tár hennar læðast
niður holdlausar kinnarnar, þá
finn eg það, sem eg veit áður, að
hún er systir mín og sorgir henn-
ar og vonbrigði eru mér ekki ó-
viðkomandi. Og þegar eg virði
fyrir mér þessa ellimóðu konu,
kemur í hug minn atvik löngu
liðið.
Kirkjan er full af fólki. Prest-
urinn hefir lokið ræðu sinni. Það
er stundarþögn. Þá hefur hann
upp raust sína: »Lýsist til heilags
hjónabands með heiðarlegum
yngismanni....... og heiðarlegri
yngisstúlku...... Viti nokkur
meinbugi á þessu, þá segi hann til
í tíma«. Og frammi í kirkjunni
stendur upp ung stúlka, svipmikil
og íturvaxin. Hún segir hátt og
skýrt: »Eg lýsi meinbaugum,
hann er unnusti minn«. Og unga
stúlkan giftist unnustanum gervi-
lega og marghæfa. En vonbrigði
lífsins urðu óteljandi, eins og
hrukkurnar á andliti hennar —.
Gubrún JóhannscLóttir,
Ásláksstöðum.
------0—.....
Stúlku
vantar til húsverka.
Pétur H. Lárusson.
Glasgow
Mixture
er þekf
fyrir gæði.
M U N D L O S-saumavélar
eru BEZT AR. físl í
Verzluninni NORÐURLAND.
Elephant
SIGARETTUR
(Fíllinn)
eru Ijúffengar
og kaldar,
Mest reyktu cigarettur
hér á landi.
Auglýsið i
DEGI.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal.
Gilsbakkaveg 6.
Friðrik Ásmundsson Brekkan.
Aöalstreti 15.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.
JÓLIN NALGAST!
Eins og að undanförnu sel eg nú, frá deginum í dag til ársloka,
allan skófatnað með niðursettu verði,
sem svarar til 5—20% mót peningagreiðslu um leið. Vona eg
að fólk sjái hag sinn í því að kaupa
JÓLASKÓFATNAÐ
sinn í elztu og þektustu skóverzlun þessa bæjar.
Akureyri 7. Des. 1928.
M. H. LYNGDAL.
H e r f i
Diskaherfi,
Hankmoherfi,
Fjaðraherfi,
Rúlluherfi,
Rúðólfsherfi
og
Ávinnsluherfi.
Samband íslenzkra samvinnufélaga.
Hreins - KREOLIN
er áreiðanlega bezt, efnotað er eftir forskriftinni.
Auk þess er það innlend framleiðsluvara. Sauð-
fjáreigendur! Kaupið því eingöngu:
Hreins-kreolin-baðlög.
„Hreinn“,
Herkúles
HKYYTNYIV RL A R:
Sláttuvélar, Rakstrarvélar, Snúningsvélar.
Sænskt efni — sænskt smíði.
Útbúnar með nýtisku stangastilli og fullkomnum
dragtœkjum.
Samband ísl samvinnufélaga.