Dagur - 10.01.1929, Blaðsíða 2

Dagur - 10.01.1929, Blaðsíða 2
6 DAGUR 2, tbl. • • •-•••«•• > • • •--• • ••••••»••••••• k Sölubúð okkar verður opnuð 15. janúar næstkomandi. Kaupfél. Eyfirðinga. Akureyri. Myndastofan Oránufélagsgðtu 21 er opin alia daga frá kli 10-6. Guðr. Funch-Rasmussen. Þar af leiðandi er þeim skylt að vinna að útrýmingu tóbaks. En Róm var ekki bygð á sjö dögum og tóbakinu verður ekki rutt út úr landinu með einu átaki. Fram- leiðendurnir eru köllun sinni trú- ir. Eitrið er farið að hrífa. Gaml- ir neytendur mega ekki án tóbaks vera. útrýming þess kynni að stytta þeim aldur, og fáir munu vilja verða til þess. En sigarett- una á að hindra. Hún er hættu- legasti lykill tóbaksnautnarinnar, sem enn er notaður, og hennar neyta konurnar og unglingar, sem síst mega nota tóbak. Hitt er einnig almannarómur, að sigar- ettan seilist dýpst í pyngjuna. En brýningar og bindindi virðast ekki koma að haldi, og ekki held- ur smásamtök. f fyrra hóf Kaup- félag Þingeyinga máls á því, að hætt yrði að flytja sigarettur til Húsavíkur. Málið virtist vænlegt til sigurs, enda blés byrlega í fyrstu. En að síðustu strandaði á einum manni. Svo mun víðar fara. Hér dugar ekkert annað en að grípa á kýlinu, og mun það læknislegast gert með því, að banna aðflutning og neyzlu sigar- ettna með lögwm. Eg er sannfærður um, að tó- baksneyzla mundi stórum þverra, ef sigaretturnar hættu að kinka kolli til manna úr búðargluggun- um. Ekkert er enn til, sem mundi geta komið í þeirra stað. Smá- vindlamir eru dýrari og sterkari, og aðrar tóbakstegundir erfiðari viðfangs. Enda sýnir hin geysi- lega útbreiðsla sigarettna, að þar er eitthvað á ferð, sem tekur. öllu öðru fram. En væri alt látið reka á reiðan- um, mætti búast hér við svipaðri útkomu og annarstaðar. Veikari lyfin brjóta ísinn fyrir sterkari lyf. ópíum og kóakaín er næsta skrefið. En þannig má okkar unga ríki ekki farnast. Oddvitar þjóðarinn- ar verða að reynast hér dugandi menn eins og annarstaðar. Þeir verða að láta sér skiljast, að sé réttmætt að flæma burtu togara, sem stelur úr landhelgi, þá er rétt að reka af höndum sér hvem þann gest, sem læðist upp að ströndum landsins til þess að ræna þjóðina starfsmætti og þroska. A. G. ------o------ Good-Templarreglan á íslandi 45 ára í dag. Tíunda dag Janúarmánaðar árið 1884 stofnuðu tólf menn hér á Ak- ureyri fyrstu Qood Templarastúku á Islandi. Aðalstofnandinn var norsk- ur iðnaðarmaður, Ole Lied. Hann skrifaði grein í »Fróða« 22. Nóvbr. 1883 og hvatti menn til að gerast Qood-Templara. Ritgerð fylgdi: »Hversvegna eg gerðist Musteris- rnaður*. Ole Lied hafði umboð frá formanni Reglunnar í Noregi til þess að stofna hér stúku, og það hepnaðist. Stúkan var stofnuð í stofu uppi á lofti hjá Friðbirni Steinssyni bók- sala. Eg held, að Ásgeir Sigurðsson, sem nú er kaupmaður og konsúll í Reykjavík, hafi verið einn stofn- endanna. Ressi stúka, sem stofnuð var fyrir 45 árum uppi á lofti hjá Frið- birni Steinssyni, lifir enn: Isafold nr. 1. — Móðir Reglunnar á íslandi horfir yfir farinn veg í kveid. Á 2Ví ári þandi hún net sitt út yfir land alt, og þegar Stórstúkan var stofnuð vorið 1886 og tók við for- stððu Reglunnar af st. ísafold, var félagafjöldinn í stúkunum nærri því hálft sjötta hundrað. Bjarni Hjaltalín, fiskimatsmaður hér í bænum, gekk inn í »ísafoid« 19. Oktbr. 1884. Hann hefir aldrei brugðist né bognað. Er hann nú umboðsmaður stórtemplars í stúku sinni og í Umdæmisstúku Norður- lands og heiðursfélagi Stórstúkunnar. Annar félagi stúkunnar, Lilja Krist- jánsdóttir, er líka heiðursfélagi Stór- stúkunnar. 80 undirstúkur og 52 unglinga- stúkur með alls 11374 félögum eru nú starfandi á íslandi. Stúkan »ísafold« er brautryðjandi merkilegrar hreyfingar í þjóðlífi voru. Ákvörðun tólf borgara á Akureyri fyrir 45 árum er sögulegur atburður. Pað sem gerðist þá undir forustu Norðmannsins og Friðbjarnar Steins- sonar er eitt hið bezta og mesta, sem annálar þessa bæjar skýra frá. Vöxtur Reglunnar hér á landi upp af rót <ísafoldar< er eitthvert fegursta æfintýrið, sem gerst hefir nokkurntíma með þjóð vorri. Eg hygg, að Good-Templarreglan sé bezti gesturinn, sem komið hefir til Akureyrar. Minnist þess, góðir menn og bræður, að víkka hringinn, fela ykkur Reglunnar vernd og varðveizlu. Br. T. ------o Jarðrœkt og dráttarvélar. í 55. tbl. »Dags« f. á., er grein eftir hr. Jónatan Benediktsson á Breiðabóli um dráttarvélina »Fordson«, sem Búnaðarfélag Svalbarðsstrandar keypti síðastl. vor. Eg skal viðurkenna það, að eg var dálítið vantrúaður þegar eg las þessa grein, en hinsvegar var mér það fyllilega ljóst, að ef rétt væri frá skýrt, þá væri hér um nýung að ræða, sem hver sann- trúaður jarðræktarmaður hlyti að gleðjast yfir, og sem hafa mundi mjög róttæk áhrif, ekki einungis á jarðræktarframkvæmdir þessa héraðs, heldur og alls landsins. Upplýsingar, sem eg hefi aflað mér hér að lútandi, síðan eg las áðurnefnda grein, virðast mér þó skjóta nokkuð skökku við það, sem þar er haldið fram, og hefir það gefið mér tilefni til þess að rita greinarstúf þennan. Eg mun þó eigi að svo komnu máli hreyfa þeim upplýsingum, er eg hefi fengið um vinnu áðurnefndrar vélar á Svalbarðsströnd, vegna þess, að eg hefi ekki haft tök á því að rannsaka málið sjálfur, en eg vil hér með gefa þeim, er hlut- deild eiga að dráttarvél þessari, tækifæri til að endurtaka og rök- styðja frekar ummæli hr. J. B., eða leiðrétta þau ummæli hans, ei‘ valdið geta röngum skilningi á þessum málum, ef um slíkt er að ræða. Ef skýrsla hr. J. B. er rétt í öll- um atriðum, þá verða slíkar ný- ungar aldrei of oft endurteknar; séu þau aftur á móti röng eða villandi, að einhverju leyti, þá má slíkt ekki liggja í láginni og liggja til þess ástæður, sem hér skulu greindar: 1. Eg hygg að grein hr. J. B. hafi þegar vakið allvíða mikinn áhuga fyrir dráttarvélakaupum. Það er því eigi aðeins nauðsyn, heldur blátt áfram siðferðileg skylda þeirra manna, er standa að dráttarvél Búnaðarfélags Sval- barðsstrandar, að gefa . sem ná- kvæmasta og óhlutdrægasta skýrslu um vinnubrögð hennar og reksturskostnað, til þess að þeir, er á slík kaup hyggja, geti gert sér sem ljósasta og ábyggilegasta grein fyrir því, hvers þeir megi vænta. 2. Ef hægt er að vinna að með- altali á dag um li/2 dagsl. af ó- brotnu landi með Fordson drátt- arvél og herfum einum saman, eða fyrir kr. 34.33, þá liggur það í augum uppi, að það má hartnser fullrækta flest sæmilega ræktun- arhæft land fyrir þann styrk, sem nú er veittur til jarðræktar af opinberu fé. Liggur því í augum uppi að Búnaðarþing og Alþingi verða að taka ákveðna afstöðu til jarðræktarstyrksins með tilliti til dráttarvélanotkunar. Virðist þá liggja nær að álykta, að þegar ræktunin er orðin svo ó- dýr, sem hér virðist verða, þá hljóti hinn opinberi jarðræktar- styrlcur til einstaklinga að lækka til mikilla muna. 3. Eg býst við að þeir, sem þeg- ar hafa ráðist í að kaupa dráttar- vélar til jarðyrkju og eins þeir, sem hafa slík kaup í undirbún- ingi, hafi vænst þess að geta fengið nokkurn styrk til þessara kaupa frá opinberum sjóðum og félögum, er að eflingu ræktunar starfa, en ef dæma skal eftir skýrslu hr. J. B., þá virðist ár- angurinn af dráttarvélavinnu svo glæsilegur og ágóðinn svo viss, að það væri að bera í barma- fullan lækinn að veita styrk til slíkra kaupa, meðan mörg önnur nauðsynleg málefni á sviði land- búnaðarins eiga örðugt uppdrátt- ar og virðast því frekar styrks þurfandi. 4. Hr. J. B. segir í grein sinni: »Aftur reyndist hankmóherfið vel, þar sem eg tætti órudda* jörð, en þannig vann eg um 6* dagsláttur og gekk vel þar, sem ekki var stórþýft og tel eg að þannig megi vinna næstum því alt land, sem þúfnabanar geta unnið, og verður slíkt miklu ó- dýrara en engu ver unnið; með góðum herfum, hankmoherfum t. d. er eg viss um að má tæta V/2 dagsláttu á dag af meðaltali.« Ef hér er rétt skýrt frá, þá dylst mér eigi sem gjaldkera Þúfnabanafélags Akureyrar, að starfsemi Þúfnabananna hér í héraði er því sem næst lokið, þar sem eigi getur komið til mála að v-inna með þeim öllu ódýrara heldur en gert var síðastliðið sumar. Við þessu er ekkert að segja. Eg mun með gleði taka á mitt bak minn skerf af halla þeim, er kann að verða á vélkaupum Þúfna- banafélagsins, ef ástæðan til þess, að það verður að hætta störfum, er sú, að fengnar eru aðrar eins góðar og mun ódýrari leiðir til að rækta jörðina. Sé þessu aftur á móti eigi til að dreifa, er nauð- synlegt að það komi fram, svo jarðræktarframkvæmdir héraðs- ins eigi tefjist að ástæðulausu. Eg vil taka það fram, að nauð- synlegt er að gerður sé glöggur greinarmunur á kostnaði og vinnubrögðum dráttai-vélarinnar eftir því hvort hún hefir unnið brotið land eða óbrotið, eins þarf það að koma í ljós, hve stórþýft land vélin getur unnið, hvort hún \únnur jöfnum höndum, seigar mýrar og myldna móa og hve djúpt hún vinnur, hvort landið er orðið fullhæft til grasfræsán- * Á sennilega að vera óbrotna jörð. ó. J.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.