Dagur - 10.01.1929, Síða 3
2. tbl.
DAGUR
7
ingar eða völtunar, ef um sjálf-
græðslu er að ræða, þegar vélin
skilur við það og ýmislegt fleira.
Að lokum vil eg taka það fram,
að ef þessi grein mín ekki ber
þann tilætlaða árangur, að fram
komi fyrir almennings sjónir ít-
arleg og rökstudd skýrsla um
.starfsemi dráttarvélar Svalbarðs-
ströndunga, þá vil eg eindregið
ráðieggja þeim búnaðarfélögum,
er kunna að hafa dráttarvélakaup
í hyggju, vegna hinnar glæsilegu
reynslu Búnaðarfélags Svalbarðs-
strandar, að rannsaka málið til
hlýtar og afla sér ítarlegri og ná-
kvæmari upplýsinga, heldur en er
að fá í grein hr. J. B., áður en
þau ráða ráðum sínum.
Akureyri 10. janúar 1929.
Ólafur Jónsson.
—o-------
S ims key í i.
(Frá Fréttastofu íslands).
Rvík 3. Jan. 1929.
Oslo: Samningur undirskrifað-
ur milli vinnuveitenda og verka-
manna í járniðnaði um að launa-
kjör haldist óbreitt næstu tvö ár-
in. Hafa þessi málalok vakið al-
menna ánægju og gefið vonir um,
að í höndfarandi samningatil-
raunir í öðrum iðnaðargreinum
fari friðsamlega fram. Betri iðn-
aðarhorfur hafa haft örfandi á-
hrif í atvinnulífinu, einkum
skipasmíðaiðnaðinum.
New York: Gerðardómur á að
útkljá þrætuna milli Bolivíu og
Paraguay.
Berlín: Parker, formaður
skaðabótanefndarinnar, hefir birt
ársskýrslu sína um skaðabóta-
greiðslu Þjóðvérja, er sýnir að
þeir hafa staðið vel í skilum. Þýsk
blöð eru óánægð yfir því, hve
mikillar bjartsýni gæti í skýrsl-
unni; óttast að ekki takist að fá
skaðabætumar lækkaðar; haf i
Parker eigi tekið tillit til þess,
að atvinnuleysi sé í landinu og
landbúnaðurinn eigi erfitt upp-
dráttar. Hins vegar krefjast blöð
Frakka að skaðabæturnar verði
ekki lækkaðar.
Khöfn: Inflúensa breiðist mjög
út í Englandi og Svíþjóð og hafa
all-margir fengið lungnabólgu.
Erfitt um hjúkrun vegna sjúkl-
ingafjölda. Læknar telja veikina
fremur væga.
Friedrichshaven: Dr. Eckner
segir að »Graf Zeppelin« fari
hringflug kringum hnöttinn á
næstkomandi sumri, um Siberíu,
Japan og Bandaríkin.
Jón Árnason framkvæmdar-
stjóri S. í. S. settur formaður
bankaráðs Landsbankans.
Rvík 9. Jan. 1929.
Belgrad (VJ : Alexander Jugo-
slavakonungur gaf út í gær til-
kynningu til þjóðarinnar. Kvað
hann þingræðið vera misnotað af
blindum pólitískum ofsa. Þing-
ræðið hefði því hindrað nytsam-
lega starfsemi í ríkinu, og valdið
klofningj meðal þjóðarinnar.
Skylda konungsins sé sú, að
vernda rétt og samlyndi meðal
þjóðarinnar. Það sé því nauðsyn-
legt nú að finna nýjar leiðir. Kon-
ungurinn hafi þess vegna í gær
numið stjórnarskrána úr gildi,
rofið þingið og falið Sivkovitch
hershöfðingja að mynda nýja
stjórn. Konungurinn hefir gefið
út ný lög um vald konungsins,
eru þau þegar gengin í gildi.
Þessi lög ákveða konungi ótak-
markað vald til að gefa út ný lög.
Hann útnefnir ráðherrana og em-
bættismennina. En ráðherrarnir
hafa ábyrgð gagnvart konungi.
Dómsvaldið skal framkvæmt í
nafni konungs. Lög um verndun
ríkisins hafa samtímis verið gef-
in út, þau fyrirskipa að uppleysa
skuli alla flokka, sem stofnaðir
eru á trúarbragða- eða þjóðern-
islegum grundvelli, undir vissum
kringumstæðum heimila þau út-
komu blaða; þau fyrirskipa enn-
fremur, að allar bæjarstjórnir og
sveitastjórnir skuli uppleysast,
en konungur útnefnir nýjar í
þeirra stað.
Belgrad (í gær) : Þinghúsinu
hefir verið lokað, alt samkomu-
frelsi takmarkað, bannað að bera
vopn, strangt eftirlit með öllum
skeytum. Króatar eru mjög á-
nægðir með breytinguna. Ætlað
er að konungur muni síðar undir-
búa nýja stjómarskrá á ríkja-
bandalags-grundvelli.
Rvík: Kenslumálaráðherrann
hefir skipað Sigurð Nordal
prófessor og Freystein Gunnars-
son kennara í nefnd til að athuga
og gera tillögur um löggilta rétt-
ritun í landinu.
15 togarar hafa nýlega selt
ísfisk fyrir samtals liðlega 16,000
sterlingspund.
Skeyti hefir borist um að
Nikolajevitch, yfirforingi rússa-
hers í heimsstyrjöldinni sé lát-
inn.
-------o-------
Mislingarnir ganga nú víða hér á
Norðurlandi og leggjast að sögn all-
þungt á sumstaðar.
Ferðapistlar.
Alls 612 miljónir kristinna manna
í veröldinni. En 1140 miljónir eru
ekki kristnar, en þar af eru ca:
245 milj. Múhameðstrúar.
Hin mikla evangelisk-lutérska
kirkja á sýningunni var öll úr
stáli, eir og gleri, og úti fyrir var
líkneski mikið af Lúter. Þessi
kirkja var eitt hið einkennilegasta
listaverk, sem eg hefi séð. Ekk-
ert skraut eða annar íburður vai-
þar. Harðir trébekkir, en að öðru
leyti var sjálft húsið alt úr málmi
og gleri. Var hún oftast nefnd
stálkirkjan. Venjulega var flutt
stutt guðsþjónusta þar á hverju
kveldi. Var eg viðstaddur eina
þeirra. — Það er hvorttveggja, að
eg er ekki maður til að skýra
tákn þessarar einkennilegukirkju-
smíðar, enda mundi »Dagur« ekki
hafa rúm til þess.
Aðalatriðið var þetta, að stíll-
inn átti að vera á áhrifamikinn
hátt tákn andans og orðsins. —
Evangelisk-lúterska deildin var
í 26 herbergjum eða hólfum, Gat
Slökkvilið Akureyrar.
Slökkviliðsstjóri:
Eggert St. Melstað, Oddagðtu 3.
Varaslökkviliðsstjóri:
Gunnar Guðlaugsson, Lundargötu 10.
Flokksstjóri í innbænum:
Jón Norðfjörð, Lœkjargötu 3.
Flokksforingjar: Gísli R. Magnússon, Strandgötu 15. Aðalsteinn Jónatans-
son, Hafnarstræti 107 b. Friðrik Hjaltalín, Grundargötu ó. Tryggvi
Jónatansson, Strandgötu 39. Svanberg Sigurgeirsson, Þórunnarstræti.
Brunaboðar: í útbænum: Rudolf Brun, Hríseyjargötu 5.
Höskuldur Steindórsson, Gilsbakkaveg.
í innbænurn: Edvard Sigurgeirsson, Spítalaveg 15'
Alfred Jónsson, Aðalstræti 22.
Menn eru ámintir um að tiikynna sfmstöðinni og slökkviliðinu strax,
ef eldsvoða ber að höndum og festa upp þessa auglýsingu sér til minnis.
Slökkviliðsstjórinn á Akureyri, 7. janúar 1929.
Eggert St. Melstað.
(Sími 115.)
Fréttir.
Ingimar Eydal kennari liggur á spí-
talanum sem stendur, var hann skor-
inn upp við botnlangabólgu á Laugar-
daginn var. Uppskurðurinn hepnaðist
mjög vel, og eru beztu vonir um að
Ingimar bráðlega komist á fætur aft-
ur heill helsu.
Bæjarstjórnarkosningar fóru fram á
Norðfirði 2. Jan. Alls voru fjórir listar
að velja á milli. Fengu jafnaðarmenn
193 atkv. og komu að fjórum mönnum.
íhaldsmenn fengu 93 atkv. og komu að
tveimur. Framsóknarfl. 54 atkv. og
kom að einum. Sjómannalistinn fékk
49 atkvæði og kom að einum manni.
Dánardægur. Nýlega eru látnir
Guttormur Vigfússon fyrrum alþingis-
maður á Geitagerði í N.-Múlasýslu og
Bjarni Bjarnason bóndi á Geitabergi í
Borgarfirði, faðir Bjarna læknis hér.
Báðir voru þeir merkir bændur og þekt-
ir menn.
Leikfél. Akureyrar æfir nú franskan
gamanleik eftir Moliére, er nefnist
»Schapin«. Aðalhlutverkið leikur Har-
aldur Björnsson. Verður það að líkind-
um það síðasta, sem menn eiga kost á
að sjá hann leika hér í vetur.
þar að líta m. a. marg't um trú-
boð, upplýsingar um ýmiskonar
félagsskap í mótmælenda kirkju-
deildum, starfsemi meðal æsku-
lýðsins, þ. á. m. heimskort, þar
sem merkt var á útbreiðsla Kristi-
legs félags ungra manna; þar
voru og rit frá fjölda landa um
kristilega kirkju og aðra kristi-
lega starfsemi. Hringsjá þessi gaf
gott yfirlit hinnar margháttuðu
starfsemi, sem rekin er í heimin-
um í anda Lúters, Kalvíns o. fl.
mikilmenna á kirkjulegu sviði.
Tilraunir þær, er gerðar hafa ver-
ið til þess að sameina ýmsar
kirkjudeildir, spá góðu. Voru
skýrslur þarna frá alþjóðlega vin-
semdarstarfinu í Genf, frá
kirkjuþinginu mikla í Stokkhólmi
árið 1925 og frá Lausanne.
Mikið safn blaða og bóka var
bæði í rómversk-kaþ. og evang.-
lút. deildinni. óskaði eg þess, að
klerkar vorir hefðu tækifæri til
þess að sjá þessi bókasöfn og
blaða. Það er mikil andleg hress-
Skattanefndarkosningin.
Á næst seinasta bæjarstjórnarfundi
átti að kjósa mann í Skattanefnd
Akureyrarkaupstaðar í stað Böðvars
Bjarkans, sem úr gekk. Munu bæj-
arfulltrúar flestir hafa litið svo á,
að sjálfsagt væri að hann sæti
áfram í nefndinni. En á fundinum
kom 'fram tillaga frá Erl. Fr. um
að fresta kosningunni til næsta
fundar — var hún illu heillu sam-
þykt. En á síðasta fundi bæjarstjórn-
arinnar notuðu jafnaðarmenn í bæj-
arstjórn sér veikindi Ingimars Eydals
til þess að bola Bjarkan út úr
skattanefnd og koma einum gæðingi
sínum að í staðinn. Ef allir fulltrúar
hefðu verið viðstaddir mundi Bjark-
an hafa náð kosningu því að jafn-
aðarmenn komu sínum manni að
með hlutkesti. Allir aðrir bæjarfulltr.
fylgdu Bjarkan, þrátt fyrir það, að
hann í sköðunum hefir staðið þeim
fjær, en jafnaðarmönnum. Er þessi
framkoma »jafnaðar«-fulltrúanna í
bæjarstjórn ærið blandin og gefur
ástæðu til að ætla, að .þéir beri
eigin flokksmál frekar fyrir brjósti,
en heill bæjarins.
-----o
Boy Holm hefir verið skipaður for-
stjóri skátadeildarinnar hér í bænum.
ing prestum á þessu afskekta
landi að fá sem oftast rit góðra —
og helzt beztu — höfunda. Allir
kennimenn verða að fylgjast með
tímanum, ef þeir kjósa að hafa
áhrif.
Sérstök deild social-demokra-
tiskrar pressu var á sýningunni.
Karl Marx og Fr. Engels stofn-
uðu blaðið »Neue Rheinische Zei-
tung« í Köln árið 1848, en sama
ár var það bannað, þá er bylt-
ingatilraunirnar höfðu strandað á
Þýzkalandi. Urðu þessir menn
báðir að flýja land. Foringjar
þýzkra socialista, þegar fram liðu
stundir, voru þeir Lassalle, Bebel
og Liebknecht. —
Árið 1871 komust tveir social-
istar inn í þýzka ríkisþingið, en
sjö árum síðar var socialistum
bannað að gefa út blöð, og póli-
tískur félagsskapur þeirra einnig
leystur sundur. Þessu fór fram
um tólf ára skeið. Árið 1890 voru
lögin frá 1878 numin úr gildi.
Hreyfingin magnaðist, Qg nú eru