Dagur - 18.04.1929, Page 3
16. tbl.
DAGUR
65
Samsöngur Seysis
Á laugárdaginn var hélt söngfé-
lagið »Geysir« samsöng í Sam-
komuhúsi bæjarins. Húsið var troð-
fult og komust færri inn en vildu.
Var það gleðiefni, því það sýnir þó
að bæjarbúar muni hafa einhvern á-
huga og srnekk fyrir fögrum listum.
Rúnrur helmingur af lögum þeim,
sem flokkurinn söng í þetta sinn,
voru úrvalslög frá því er hann söng
í vetur, og var farið með þau af
sömu snild og þá; uin þau lög, sem
nú höfðu bæzt á söngskrána má
segja hið sama. — Satt að segja
bar eg dálítinn kvíðboga fyrir,
hvernjg ílokknum mundi takast að
fara með svo vandasamt lag, sem
»Landkjending«, en það var á-
stæðulaust, því að ef sérstaklega
ætti að taka eitt fram yfir annað af
því, sem sungið var, þá væri það
einmitt þetta lag. — Það er aðeins
eitt út á >>Geysir« að setja, og það
er, að hann »gýs« of sjaldan.
Þakklátur áheyrandi.
-----o----
Simskeyti.
(Prá Fréttastofu íslands).
Rvík 16. Apríl.
Alþing. Efri deild afgreiddi í gær
tii neðri deiidar fruinvarp um loft-
ferðir. Breytingarnar voru samþykt-
ar. Leyfistíminn var ákveðinn tíu ár
i stað tuttugu. Stjórninni er heimil-
að að banna loftferðir á ófriðartím-
um, eða að taka loftferðir og flug-
áhöld öll í sínar hendur.
Benedikt Sveinsson, Sveinn í
firði, Magnús Torfason, Þorleifur
Jónsson, Hákon í Haga, Hannes
Jónsson, Bjarni Ásgeirsson, Bern-
harð Stefánsson, Halldór Stefáns-
son og Jörundur Brynjólfsson bera
fram þingsályktunartill. um þjóðar-
atkvæðagreiðslu, sem fari fram eigi
síðar en við fyrirhugað landskjör
vorið 1930, um hvort samkomustað-
ur þingsins skuli vera á þingvöllum
eða í Reykjavik.
Eldhúsdagsumræðunum lauk í
nótt kl. tvö, eftir fimm sólarhringa.
Allir íhaldsmenn deildarinnar tóku
til máls og töluðu sig dauða nema
Jón Ólafsson, sem talaði ekki. Auk
ráðherranna Tryggva Þórhallssonar
og Jónasar Jónssonar töluðu af
Frainsóknar hálfu Benedikt Sveins-
son og Lárus Helgason.
Björgunarbát, sem kostaði 12000
krónur og kom til landsins með-Sel-
fossi, hefir Þorsteinn Þorsteinsson á
Þórshamri og Guðrún kona hans
gefið Slysavarnafélagi íslands. Eim-
skipafélagið flutti bátinn ókeypis.
Þá hefir danskur maður, Nielsen
skipamiðlari í Khöfn, gefið félaginu
5000 krónur danskar.
Guömundur Kamban skáld kemur
hingað til Akureyrar með Island og
dveíur hér nokkra daga að sögn. i Ætlar
Kamban að hafa hér upplestrarkvöld;
er hann talinn mjög góður upplesari.
Margir mtmdu óska þess, að hann vildi
flytja hér fyrirlestur þann um Daða
Halldórsson og Ragnheiði Brynjólfs-
dóttur, er hann flutti í Itvík í fyrra og
bvo aftur nú, við svo mikla aðsókn, að
jafnan urðu margir frá að hverfa.
%
J '
F r éttir.
Frægur fidkdeikari, Florizel v. Reu-
ter að nafni kemur hingað með »Island«
cg ætlar að halda hér hljómleika. Með
honum er Kurt Haeser til aðstoðar.
Ný símalína mun væntanleg á þessu
ári fram Eyjafjörð og er mál til komið.
Aöalfundwr K. E. A. hófst í morgun
og stendur yfir í 2—3 daga.
»Geysir« söng í Samkomuhúsinu á
laugardagskvöldið. Aðsókn var ágaet og
létu menn hið bezta yfir söngnum. —
Á sunnudaginn söng flokkurinn úti á
Möðruvöllum í Hörgárdal. Flokkurinn
syngur aftur á síðasta vetrardag í Sam-
komuhúsi bæjarins.
Landsfumlur Ihaldsmanna. Lítil tíð-
indi hafa borist af þeirri samkomu. Þó
hefir heyrst, að sett hafi verið 9 —
arðir segja 11 — manna nefnd, til þess
að velja flokknum eitthvert virðulegra
nafn, en hann nú hefir, en ófrétt um
niðurstöðu þess stórmáls, eða hvort hún
er nokkur orðin. Heyrst hefir og að
annað aðalmál fundarins hafi verið úr-
lausn þessarar spurningar: Hver'nig á
að koma Jónasi frá Hriflu á kné? Úr-
lausnin ófundinl
-------O-------
Andsvar
til Jóns á Reynistaö.
i 7. tbl. »ísl«, 15, febr. sl., send-
ir Jón alþm. á Eeynistað mér
kveðju — ekki Guðs heldur að-
eins — sína. Á kveðja sú að vera
svar 'gegn grein minni: »úr
Skagafirði«, er kom út í »Degi«
3. jan. sl. Er synd að segja, að
hann sé hýr á manninn í þessu
»svari« sínu, enda er það kunn-
ugra maiina mál, að í seinni tíð
standi geðprýði hans í öfugu hlut-
falli við vinsældir Kaupfélags
Skagfirðinga.
Til þess að lesendum Dags gef-
ist kostur á að meta varnir höf.
og rök, skal hér birtur útdráttur
úr svari hans. Hann segir:
»..... Greinarkorn þetta er
nokkuð einstætt vegna þess, hve
bréfritaranum hefir tekist að
hrúga saman miklu af dylgjum,
ósannindwn og rógi,* bæði um
menn og málefni...«. — Þá koma
hugleiðingar um, hver vera muni
höfundurinn, með viðeigandi
skömmum til Gísla frá Frosta-
stöðum. Hyggur hann sýnilega að
Gísli, sá vondi mann, muni vera
hinn seki, og andvarpar sáran yf-
ir því, að þessi frændi sinn skuli
vera sokkinn svo djúpt (— í
hvað?). Því næst segir hann: »Ein
af dylgjum bréfritarans er, að eg
hafi gengið fyrir hvers manns
dyr hér í Staðarhreppi í vor og
beðið hreppsbúa mína að kjósa
mig í sýslunefnd«. 'Skorar hann
síðan á mig að birta vottorð frá
einhverjum hreppsbúa um, að
þetta sé satt. Endar síðan »svar-
ið« með því að skýra frá, með
hinu mesta ýfirlætisleysi, að
* Auðkent hér.
Nýjar vörur.
— Vorvörurnar eru að koma —
verða teknar upp á föstud. og laugard. —
Par á meðal verða Sumarkápur karlm. og
kvenna. Xvenkjólar. Alfatnaðir karlmanna
og unglinga og m. m. fl.
BRAUNS VERZLUN.
Páll Sigurgeirsson.
Kristneshæli
vantar tvœr stúlkur, i árs- eða sumar-vist. Upplýsingar gefur
yfirhjúkrunarkona hœlisins. *
UPPBOÐ.
Föstudaginn 10. maí 1929 verður opinbert uppboð sett og haldið að
Syðra-Krossanesi i Glæsibæjarhreppi, og hefst kl. 12 á hádegi.
Þar verður selt ef viðunandi boð fæst: 2 kýr vorbærar, 1 naut l*/2
árs, 1 nautkálfur >/2 árs, 1—2 hestar. Einnig ýmsir dauðir munir, svo
sem: Aktygi, kerra, sleðar, reipi, amboð, skilvinda og margt fleira.
Uppboðsskilmálar verða birtir á uppboðsstaðnum.
Syðra-Krossanesi 17. april 1929.
TRAUSTI RJEYKDAL.
Opinbert UPPB0Ð
verður haldið að Efri-Vindheimum í Glæsibæjarhreppi laugardaginn 11.
mai n. k. og hefst kl. 12 á hádegi. — Verða þar seldir ýmsir búshlutir
í góðu ástandi, ef viðunandi boð fást, svo sem: Eldavél, skilvinda, herfi,
hjólbörur, reipi o. m. m. fl. Einnig e. t. v. góð vorbær kýr og nokkrar ær.
Efri-Vindheimum 16. apríl 1929.
Pétur fóhannsson.
UPPBOÐ.
Föstudaginn 10. maí 1929, verður haldið opinbert uppboð d
Veturliðastöðum í Hálshreppi og þar selt, ef viðunanlegt boð
fæst, ýmsir innanstokksmunir og búsáhöld. Ennfremur eitthvað
af lifandi peningi. — Uppboðið hefst kl. 12 á hádegi. Sölu-
skilmálar verða birtir á staðnum.
Veturliðastöðum 17. aprll 1929.
Sigríður Sigurðardóttir.
Grammofónplötur
í miklu úrvali, nýkomnar.
Verðið lækkað.
Jón öuðmann.
sveitungar sínir hafi falið sér
fleiri trúnaðarstörf, en hann hafi
kært sig um, — svona alveg ótil-
kvaddir!
Þarna er nú »svarið« komið.
Alþm. gerir ekki tilraun til að
hnekkja einu einasta, atriði í grein
SUMARGJAFIR:
Kassar með ilmvatni og hand-
sðpum eru mjög hentugir til
tækifærisgjafa. í miklu úrvali hjá
JC>]VI GDÐMANN.
minni, enda myndi honum senni-
lega reynast það torvelt. Hann
segir aðeins að eg fari með dylgj-
ur, ósannindi og róg. En —- með.
leyfi að spyrja: Hverjar eru
dylgjurnar, hver eru ósannindin
og rógurinn? Eg skora á hann að
svara því — og svara með rökum.