Dagur - 04.07.1929, Page 3
28. tbl.
DAGUR
111
Þaö er ekki furða þó maður
standi hálf-undrandi yfir því æfin-
týri, að herra Poul Reumert skuli
vera kominn hingað til lands. Þessi
maður, sem öll leikhús heimsins
standa opin fyrir, skuli vera kominn
hingað til okkar, sem ekkert leik-
húsið eigum.
Það er næstum eins og æfintýri.
Og manni verður eins og ósjálf-
rátt að líta til æfintýrisins mikla,
þá er fyrstu víkingarnir sigldu hing-
að austan um haf. Og hálf-ósjálf-
rátt setur maður þessi æfintýri í
samband hvort við annað, þó langt
sé á milli. Víkingseðli og æfintýra-
þrá dró þá hingað, forfeður vora,
endur fyrir löngu. Hingað í seið-
andi óvissuna. Norður i nóttina og
daginn. Og víst er hann víkingur,
þessi rúmlega fertugi, glæsilegi
listamaður. Víkingur í heimi listar-
innar, skáldskaparins, æfintýrisins,
því öll list, allur skáldskapur er sef-
intýri. —
Og við hérna norður frá, við vor-
um svo lánssöm að eiga ungfrú
Önnu Borg, þó ekkert eigum við
leikhúsið. Og hún svo lánssöm að
vera í Höfn í vetur, og verða fyrir
vali hr. Poul Reumert, svo sem
kunnugt er, þegar honum reið á og
þurfti á öruggri hjálp að halda, við
að sýna löndum sínunr einn af smá-
gimsteinum leikskáldskaparins á
hinu konunglega leikhúsi Kaup-
mannahafnar. Og hún brást ekki
trausti hans. Því rnætti íslenzka
þjóðin vera stolt af. Hún vakti á sér
eftirtekt, ekki eingöngu vegna þess
að hún skyldi verða fyrir valinu,
sem annars mætti virðast ærið nóg
tilefni, heldur og fyrir það hve að-
dáanlega henni tókst að fara með
hlutverk sitt, hve vel hún sómdi sér
við hlið snillingsins. Með einu á-
hlaupi gerir hún alldrjúgt landnám
í heimi listarinnar. Þar á hún heima.
Á því er enginn efi. —
Þessir góðu gestir komu hingað
með e.s. Goðafoss á laugardags-
kvöldið. Hafði hr. Ágúst Kvaran
aðallega gengist fyrir því, að þau
sýndu hér einu sinni, og var svo í
fyrstu ákveðið að það yrði á laug-
ardagskvöldið. En skipinu seinkaði,
svo eigi var unt að hafa sýninguna
fyr en kl. 3 á sunnudag. Gafst
mönnum þar tækifæri til að hlýða
upplestri hr. Reumert, og að því
búnu léku þau áðurumgetinn smá-
leik, »Galgemanden«, eftir finskan
rithöfund.
Húsið var þéttskipað áhorfendum.
Leikendurnir klappaðir fram hvað
eftir annað, og sæmd blómurn, og
að síðustu mælti hr. Ágúst Kvaran
til þeirra nokkur vel valin þakkar-
og kveðjuorð.
Eg hafði nýlega séð hr. Reumert
leika í fjórum hlutverkum, þrisvar í
Galgemanden áður en' eg sá hann
hér. Eg reyni ekki að lýsa aðdáun
minni né þeirri unun, er list hans
hefir veitt mér. Og meðferð ungfrú
Önnu Borg á sínu hlutverki! Svo
látlaust, barnslega mjúkt, alvarlega
ákveðið og grát-ljúft. Við munum
eftir heimsóknum frú Stefaníu Guð-
mundsdóttur hér áður fyr. Þær rifj-
ast svo vel upp fyrir okkur nú. Og
við blessum þann dag, afmælisdag-
inn hennar, sem færði okkur dóttur
hennar, þó ekki væri nema til ör-
stuttrar dvalar. En sú stutta dvöl
færði okkur heim sanninn um það,
að hún ekki einasta er hold af móð-
ur sinnar holdi og blóð af hennar
blóði, heldur og sál af hennar sál.
Við þökkum þessum góðu gestum
fyrir komuna. Hennar verður lengi
minst.
3. júlí 1929.
S. B.
fæddur 15. okt. 1845.— Dáinn 15. okt. 1928.
Atgeir dauðans iðinn heggur
Unga og gamla* fjær og nær.
Frumstofnana flata leggur,
Föstum yfirtökum nær.
Barrvið styrkan beygði að lokum,
Blásnar rætur sleit og tróð
Hans, er lífs í renni-rokum
Rakleitt beinn og og keikur stóð.
Dvergasals und hamri háum
Hann dró fyrstu andartök.
Vöggu hans úr viðartágum
Vaktaði móðir ljúf og spök.
Gæfudísir góða drenginn
Glöddu og sæmdu dýrum völ.
»Hollur baggi heima fenginn.«
Hélt sér því á réttum kjöl.
íslands-dala æskuleiki
Æfði og brekkuskeiðin djörf.
Snyrtímenskan snemma á kreiki,
Snillimundin hög og þörf.
Ungur kvaddi æskudalinn,
Áframleitinn, hugumstór.
Sjálfstæð þrá í sálu alin,
Sannur maður hvar sem fór.
* *
*
Oftast glaður, eðiisþýður,
Andans sjónarhringur víður.
Takmark hans og tignarmerki:
Trúmenskan í orði og verki.
Anda frjálsan ungur hylti,
Engin kredda hugann vilti.
Andlega þrælkun af sér beit ’ann,
Útskúfanir fyrirleit hann.
Sálin skýr og sólarmegin
Sannleiks þræddi beina veginn.
Frjáls þú hefur ferðum hvatað,
Fáir máske betur ratað.
Haldgóð fræði nam* og nýtti,
Námi reynslu við þau hnýtti.
Vóg þau samkvæmt vitund beztu,
Varfærni og sannleiks-festu
Tungumælgi tamdi ei neina,
Tókst því vel að skilja — greina
Sorann burt, frá gulli göðu,
Gagnyrðin á verði stóðu.
Stilti í hóf í stífnismálum,
Sneiðing tók frá vegi hálum.
Rökstutt sér þá reisti vígi,
Rak í vörður skrum og lýgi.
Fús að rétta hjálparhendur
Hverjum, sem við neyð var kendur.
Sannur vinur sakleysingja,
Sem varmenni kvelja og þvinga.
* Sjátfmentaður.
Dýrin eygðu í umsjón þinni,
Örugt traust og vinarsinni.
Nægtafylli nutu og hlutu,
Neyðarmálum til þín skutu.
Langa æfi lagði að baki,
Lyfti mörgu Grettistaki.
Lánaðist mikill líkamsstyrkur,
Laghentur og mikilvirkur.
Sjálfstæður með sæmd og hreysti
Sérhver störf af hendi Ieysti.
Átti ei skylt við uppskafninga,
Augnaþjóna og hálfdrættinga.
Öllu fögru unni af hjarta,
Einlæg trú á framtíð bjarta,
Bæði hér og hinum meginn,
Höfn þar næði sæll og feginn.
Lýsing mín, ei úr lofti gripin,
Lengi mun eg kenna svipinn,
Ásýnd þína og andans göfgi,
Unz mig faðmar síðsti höfgi.
* *
*
Pú víst gleymist, þá sem fleiri,
Þegar horfinn ertu að sýn.
En þína líka þyrftu fleiri
Pessi jörð, — er ætlun mín.
Ef að liggur yfir sundin
Ódauðleikans strengjabrú,
Ódáins við yndislundinn
Insta bekkinn skipar þú.
Thor Stephansson.
------0------
Simskeyti.
(Frá Fréttastofu fslands).
Rvík 3. júlí.
New York í gær: Cramer og
Gast flugu héðan til Chicago í gær.
Leggja þeir af stað í Evrópuflugið
innan skamms og nota flugvél með
4 mótórum. Ætla þeir fyrsta dag-
inn að fljúga til Ruperthouse í
Canada, annan daginn til Hobbs-
camp á Grænlandi, þriðja til Reykja-
víkur, fjórða til Bergen, fimta til
Berlín. Förin til Ruperthouse verð-
ur ef til vill hafin í dag eða á
morgun.
París: Bandaríkjastjórn hefir synj-
að beiðni Frakka um að fresta
gjalddaga 400 milj. dollara, er greið-
ast eiga 1. ágúst. Hinsvegar vilja
Bandaríkin gefa gjaldfrest, ef Frakk-
land vill staðfesta skuldasamningana.
, London: Eitt af herskipum Breta
bjargaði spönsku flugmönnunum
Franco og Gallarza, er voru á reki
á fiugunni sunnan Azoreyja.
Khöfn: Varðskipið Ægir fer
reynsluferð eftir nokkra daga. Sktp-
ið er 170 feta langt, 29V2 fet á
breidd og 17V2 fet á dýpt; hraði
ló sjómílur. Skipið er hitað með
rafmagni og hefir 2 75 mm. fall-
byssur.
Grænlandsfarið Gotta með sauð-
nautaleiðangursmennina er ekki far-
ið af stað enn, en fer sennilega
bráðlega.
v Síðastl. föstudag varð það sorg-
lega slys á línuveiðaranum Ólafur
Bjarnason, að 1. vélstjóri, Ingiberg-
ur Jóhannsson, beið bana við þétt-
ing á gufukatli, sem bilaði.
Halldór Briem, bókavörður, er
látinn.
Valtýr Stefánsson ritstjóri hefir ver-
ið hér í bænum undanfarna daga.
Hœnsnafóðrun.
(Niðurl.).
Á vetrum er nauðsynlegt að gefa
hænsnum einhverskonar grænfóður.
F*að er oft ilt að geyma það til vetr-
ar, en þó má það lukkast, ef það
er höfð fyrirhyggja með það á haust-
in. Ágætt er að saxa ögn af vot-
heyi og hræra saman við mjöl. Eg
hefi pressað töðuhá í tunnur og
sömuleiðis gulrófnakál, saxað það
og blandað með mjöli, og hefir það
gefist vel.
Ef þið athugið eggin að vetrar-
lagi, þegar hænsnin hafa vanalegt,
einhæft fóður, þá munuð þið taka
eftir því, að rauðan er lítil, og gul
á lit. Ef þið svo athugið þau að
sumarlagi, eftir að hænsnin hafa náð
í græn grös, þá sjáið þið að rauð-
an er stærri og fagurrauð á litinn.
Pví rauðari sem hún er, þess meiri
og betri næringarefni hefir hún. Pað
er mikið grænu grösunum að þakka,
en þó ekki eingöngu. Pað verður
að veita hænsnunum það f inni-
stöðu, sem þau þurfa að hafa, til
þess að vera fær um að framleiða
góð egg.
Pað eru svo mismunandi næring-
arefni í hinum ýmsu korntegundum,
að það er aldrei gott að gefa eina
korntegund eingöngu. Það, sem
vantar í eina korntegund, er til í
annari. Því er bezt að blanda saman
sem flestum korntegundum, með
því fæst algildara og betra fóður.
En kornið verður altaf að vera aðal-
fóður hænsnanna.
Haldið hænsnunum allan veturinn
sí-starfandi. Pað fæst með því að
hafa þunt lag af þurru moði á
gólfinu í hænsnahúsinu, og gefa
kornið í það að morgninum. Pá
eru hænsnin allan daginn að Ieita,
og tína, enda er líka töluvert af
fræi í moðinu, sem þau lfka tína,
og hafa gott gagn af. En umfram
alla muni þarf að vera bjart í hús-
inu. Gefið svo úthrært fóður seinni-
hluta dags í ílát, sem hænsnin geta
ekki vaðið uppí, og hafið altaf nægi-
legt drykkjarvatn, sem hænsnin hafi
greiðan aðgang að.
Um þetta jhefði þurft að skrifa
langt mál, en eg geri varla ráð fyrir
að eg fengi rúm í blöðunum fyrir
langa grein, og hefi eg því hlaup-
ið á efninu eins og mögulegt er.
En vona þó að það geti orðið ein-
hverjum að gagni.
Kr. S. Sigurðsson,
Erfiljóö þau um Jóhann Magnússon,
er birtast hér í blaðinu, eru Degi send
vestan um haf og þess getið, að Jóhann
hafi verið Eyfirðingur að ætt og upp-
runa, en flutst vestur um haf á fim-
tugsaldri. Jafnframt er það gefið í
skyn, að það sé samkvæmt ósk hins
látna, að erfiljóðin séu send á æsku-
stöðvar hans til birtingar. Höfundur
ljóðanna er tengdasonur Jóhanns og er
búsettur í Ameríku.
Fundur sá á Siglufirði, er þeir Magn-
ús Guðmundsson og Ólafur Thors ætl-
uðu að halda þar á sunnudaginn, fórst
fyrir. Munu þeir hafa verið orðnir full-
saddir á fundahöldum.