Dagur - 04.07.1929, Side 4
112
DAGUR
28. tbl.
Fréttir.
U. M. F. A. fer skemtiferð í vöru-
bílum fram í Garðsárdal kl. 9 á sunnu-
dagsmorgun.
Goðafoss kom á laugardagskvöldið
vestan um frá Reykjavík. Meðal far-
þega hingað voru Benedikt Elfar söng-
maður og Sigvaldi Þorsteinsson kaupm.,
hefir hann að undanförnu verið erlend-
is til lækninga og er nú orðinn heill
heilsu.
PingmennimiT Jón Þorláksson og Jón
Baldvinsson voru hér á ferð fyrir
skömmu til fundahalda á Austurlandi.
Árni Jónsson Varðar-ritstjóri var og í
för með þeim.
Fulltrúar af Stórstúkuþinginu, er
héðan fóru suður, komu heim um síð-
ustu helgi. Um sama leyti kom knatt-
spyrnuflokkurinn heim.
Kristján Karlsson bankastjóri kom
hingað með Nova síðast.
Dráttarbrautarfélag var stofnað hér
í bæ fyrir nokkrum dögum. Stofnendur
voru 21. 1 stjórn félagsins eru Ingvar
Guðjónsson, Guðmundur Pétursson og
Jónas Þór. Þúsund ferm. lóð hefir fé-
lagið leigt hjá bænum sunnan Torfu-
nef sbryggj unnar.
Símastöðvar, 3. flokks, hafa nýlega
verið opnaðar á Moldhaugum í Krækl-
ingahlíð, Möðruvöllum og Þúfnavöllum
í Hörgárdal og Þverá í Öxnadal.
Hjónaband: Ungfrú Þorbjörg Stefáns-
dóttir og Jóhann Haraldsson nætur-
vörður á símastöðinni hér.
Knattspymumót fslands var háð í
Reykjavík fyrir skömmu. 1 því tóku
þátt 4 félög í Reykjavík: Knattspyi-nu-
félag Reykjavíkur, Valur, Víkingur og
Fraip. Auk þess 2 félög utan Reykja-
víkur: Knattspyrnufélag Akureyrar og
Knattspyrnufél. Vestmannaeyja. Kapp-
leikirinir fóru sem hér greinir:
1. kappleikur. Víkingur og K. A. Vík-
ingur sigraði með 3: 0.
2. kappleikur. Valur og Vestm.ey-
ingar. Valur sigraði með 4: 0.
3. kappleikur. K. R. og Fram. K. R.
sigraði með 7: 1.
4. kappleikur. Víkingur og Vestm.ey-
ingar. Vestm.eyingar sigruðu með 4: 1.
5. kappleikur. Valur og K. A. Jafnt
með 0: 0.
6. kappleikur. Vestm.eyingar og Fram.
Vestm.eyingar sigruðu með 2:1.
Var þá Fram úr leik.
7. kappleikur. K. R. og Víkingur. K.
R. sigraði með 7: 2.
Var þá Víkingur úr leik.
8. kappleikur. Valur og K. A. Valur
sigraði með 4: 0.
Var þá K. A. úr leik.
9. kappleikur. K. R. og Vestm.eying-
ar. K. R. sigraði með 3: 0.
10. kappleikur. K. R. og Valur. K. R.
sigraði með 3: 1.
Bar þá K. R. úrslitasigur af hólmi og
vann íslandsbikarinn.
Af ofangreindri skýrslu kemur í Ijós,
að vinningar hafa verið sem hér grein-
K. R. með
Valur með
Víkingur með
Vestmannaeyingar með
Fram með
Akureyrjngar meÖ
20 vinninga.
9 —
6 —
6 —
2 —
0 —
Súlan, nýja flugvélin, kom hingað
frá Rvík kl. að ganga 7 í gærkvöld og
flaug áfram austur um eftir rúmrar
kiukkustundar viðdvöl. í þetta sinni
hafði hún enga farþega, en dálítinn
póst hafði hún hingað.
Kvenfélagið Franitíðin hefir gefið út
minningarspjöld til ágóða fyrir Gamal-
mennahælissjóð Akureyrar.
Eimskipafélag fslands. Eins og kunn-
ugt er, hefir Eimskipafélagið ekki
borgað hluthöfum sínum neinn arð síð-
an 1920. Voru það afleiðingar af hús-
byggingu félagsins í mestu dýrtíðinni
og skipasmíðum þess á sama tíma.
Nú horfir nokkru öðruvísi við en áð-
ur, því arður félagsins árið sem leið
hefir orðið óvenjulega mikill, eða nokk-
uð yfir % miljón kr. Ákveðið er að
verja 300 þús. kr. af þeirri upphæð til
afskrifta og greiða hluthöfum 4% arð.
Af öllum skipum félagsins hefir orð-
ið arður sem hér segir:
Gullfoss 133 þús. kr.
Goðafoss 217 þús. kr.
Brúarfoss 126 þús. kr.
Lagarfoss 48 þús. kr.
Selfoss 76 þús. kr.
Leikhúsið. Vegna þess að komu Goða-
foss hingað seinkaði lítið eitt, gat
danski listleikarinn Poul Reumert og
ungfrú Anna Borg ekki komið leiksýn-
ingu sinni á hér í leikhúsinu fyr en
seinni partinn á sunnudaginn. Byrjaði
hr. Reumert á upplestri, las fyrst
kvæðið Sveinn Dúfa, sem allir Islend-
ingar kannast við af þýðingu Matthí-
asar; þar að auki nokkur smákvæði og
Ioks kafla úr leiknum Andbýlingar. Að
því búnu hófst leiksýningin. Leikurinn
heitir Galgemanden og er í einum þætti
cg aðeins tvær persónur í leiknum, út-
lifaður og hálfgalinn ofursti og blíð og
saklaus stúlka, sem er ráðskona hjá
honum. P. R. sýnir svo snildarlega hið
æðiskenda sálarstríð ofurstans, að leik-
ur hans verður ógleymanlegur. Leikur
Önnu Borg er fágaður og hreinn, sem
hlutverkinu sæmir vel.
Aðsóknin var góð, og menn tóku upp-
lestrinum og leiknum með þeim fögnuði
og hrifningu sem vera bar. Að leiksýn-
ingunni lokinni, ávarpaði hr. Ágúst
Kvaran leikendurna með nokkrum vel
völdum orðum.
Pétur Jónsson óperusöngvari hefir
sungið í Reykjavík undanfarið við ó-
hemju hrifningu áheyrenda. Kemur
hann hingað með Islandi li. þ. m. og
syngur þá hér. Textar verða allir á ís-
lenzku.
Prentsmiðja Odds Bjömssonar.
Herkúles.
Bændur, athugið vel hvort þér getið komist af
án vélavinnu við heyskapinn.
Kaupið HERKULES heyvinnuvélar
þær svíkja engan. Fjöldi meðmæla frá ánægðum
notendum víðsvegar um land alt, er til sýnis
á skrifstofu vorri.
Samband ísl. samvinnufélaga.
MIX
er mest
REYKTA
tóbakið hér á landi.
M U N D L O S-saumavélar
eru BEZTAR. fást í
Verzluninni NORÐURLAND.
taka að sér að gera
uppdrætti aðhúsum,
reikna út járnbenta steinsteypu og
veita leiðbeiningar um alt, er að
verkfræði lýtur.
BOLLI * SIGURÐUR THORODDSEN,
verkfræðingar, Reykjavik,
Pósthólf 74. Stmar 2221, 1935.
^ðvörun.
Með því eg hefi, bæði í fyrra og
nú, orðið fyrir svo miklum skemd-
um á engjum mínum af völdum
ferðamanna, verð eg að lýsa því
yfir, að eg banna hérmeð alla um-
ferð af pjóðveginum niður undan Bægisá
og að brúnni á Öxnadalsá.
Verði þessu banni mínu eigi hlýtt,
sé eg mig néyddan til að sækja
hvern þann til sekta, er samt sem
áður brýtur á móti því.
Bægisá, 28. júní 1929.
Theodór Jónsson.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal.
Gilsbakkaveg 5.
Friðrik Ásmundsson Brekkan.
Aðalstræti 15.
Eftirtaldar
Reyktó bakstegundir
frd British American Co., Lon-
don, telj'a reykingamenn beztar:
Olasgow Mixture,
Waverley Mixture,
Richmond Mixture,
St. Brunos Flake,
Moss Rose,
Elephant Birdseye,
Garrick Mixture,
Capstan Mixture,
Capstan Navy Cut,
(pressað).
Viking Navy Cut,
Traveller Brand.
Einkasalar d Islandi
Tóbqksverzlun íslands
Reykjavík.